Hringekja – Lifðu núna

Grátið, slegist og kyssts í The Block
Sjónvarpsþættirnir The Block eða Húsaröðin urðu til árið 2003. Hugmyndin var einföld, að fá fimm pör til að keppa í að gera upp og selja íbúðir og hús í Ástralíu. Þetta sló í gegn og önnur þáttaröð var send út árið 2004 en svo duttu þeir niður en sneru aftur árið 2010 eftir sex ára hlé. Þá var ekki að sökum að spyrja þeir slógu rækilega í gegn, ekki hvað síst vegna þess að nýr stjórnandi Scott Cam náði að heilla heimsbyggðina og margskonar drama lífgaði upp á tilveru þátttakenda milli þess sem þeir hömuðust við að sparsla og mála.

Parið Chantal og Wyatt móðgaðist hressilega í nýjustu þáttaröð The Block og hótuðu að fara heim. Ástralir bíða í ofvæni eftir að heyra hvað verður.

Nýjasta þáttaröðin er nýhafin og nú þegar hafa orðið uppákomur. Eitt parið var sakað um að svindla og að fara langt fram yfir fjárheimilidir í gerð fyrsta herbergisins og nú hóta þau að hætta og fara heim. Það hefur einu sinni áður gerst í Húsaröðinni. Það par hvarf á braut en nú bíða áhorfendur og ástralskir fjölmiðlar í ofvæni eftiir að frétta hvernig spilast úr spilunum. Nei, engum þarf að leiðast sem horfir á The Block en þessir þættir hafa verið sýndir í Síminn Premium og líklega ekki langt að bíða þess að íslenskir áhorfendur fái að kynnast þessum nýju og hressu keppendum.

Auðvitað eru þetta ekki einu áströlsku sjónvarpsþættirnir sem slegið hafa í gegn á heimsvísu. Þyrnifuglarnir voru geysivinsælir hér og raunar um allan heim og hið sama má segja um nágranna. Það er þó eitthvað alveg sérstakt við Húsaröðina. Þarna fylgjumst við með misgeðfelldu fólki leggja sig allt fram um byggja og hanna fullkomin heimili. Sumir eru algerlega óvanir allri byggingavinnu og kunna ekkert til verka meðan aðrir hafa reynslu eða jafnvel iðnmenntun. Oft halda þeir keppendur sérþekkingu sinni leyndri og í hvert sinn sem það kemst upp veldur það úlfúð, enda standa þeir þess vegna betur að vígi en þeir sem enga reynslu hafa. Í nýjustu seríunni er, samkvæmt áströlsku pressunni, einmitt eitt slíkt par, Courtney og Sev, bestu vinkonur frá Sidney, sú fyrrnefnda er byggingarstjóri að atvinnu og hefur starfað við margs konar byggingar og sú síðarnefnda er innanhússarkitekt. Það kom áhorfendum því ekkert á óvart þegar þær unnu fyrsta herbergið.

Mitch og Mark unnu The Block árið 2021. Þeir nutu mikilla vinsælda árið 2019 og komu aftur 2021.

Stærstu hneykslin og minnsti gróðinn

Viku eftir viku sogast fólk að sjónvarpstækjunum, dáist að sínum keppendum og ergir sig yfir svindlinu og svínaríinu í kringum þá sem það kann ekki við. Alls konar bandalög myndast, vinátta og vinslit, óvinátta og hörð samkeppni og allt þar á milli. Já, þetta er sko sjónvarpsefni sem bragð er að. Þáttaraðirnar enda svo á að heimilin eru boðin upp og allt umfram ásett verð á húsið fá keppendur að eiga fyrir sína miklu vinnu og það getur verið umtalsvert fé en lukkan er fallvölt þar eins og annars staðar og stundum seljast húsin alls ekki og stundum er tap á þeim. En keppendur halda áfram að sækjast eftir að komast í Húsaröðina og á meðan er auðvitað haldið áfram.

Í gegnum tíðina hefur mörgum keppendum tekist að byggja upp gullfalleg heimili og þótt smekkur manna sé vissulega misjafn á þessu sem öðru eru nokkur pör sem beinlínis standa upp úr. Allir eiga auðvitað sín uppáhöld og ekki vert að tína til einhverja umfram aðra en skoðum nokkur stærstu hneykslin í sögu Húsaraðarinnar.

Daylesford-uppboðsfíaskóið (2025): Líklega það sem flestir telja verstu útkomu þáttanna frá upphafi. Aðeins eitt hús seldist með hagnaði á uppboðinu, annað fór á undirverði enda ásett verð mjög hátt. Keppendur kusu flestir að draga hús sín til baka fremur en að selja þau undir kostnaðarverði og mörg þeirra voru lengi að seljast. Þau hafa hins vegar verið að detta út af markaðnum eitt og eitt og sumir keppendur fengið einhvern hagnað.

Mimi og félagi hennar, Kristian. Hún var sökuð um að daðra opinskátt við annan keppanda, Brad sem varð til þess að sambýliskona hans yfirgaf þættina.

Mimi og Brad skjóta sér hvort í öðru (2024): Áhorfendum þótti lítið til koma þegar Brad nokkur og Mimi hvort úr sínu keppendaparinu fóru að gefa hvort öðru auga og daðra nokkuð áberandi við hvort annað. Þetta endaði með sambýliskona Brads, Kylie, hætti í þáttunum. Hún hafði heyrt Brad segja eitthvað mjög óviðeigandi við Brad, við fengum ekki að vita hvað, en hann var farinn að fylgja Mimi á Onlyfans. Þáttastjórnendur fengu Kylie til að koma aftur og klára húsið með Brad en samband þeirra hékk á bláþræði þegar þáttunum lauk.

Þetta var ekki eina hneykslið árið 2024: Adrian Portelli, ástralskur auðkýfingur keypti öll húsin á uppboðinu og valdi hvaða par stæði uppi sigurvegari. Hann fór í gegnum fasteignasala og enginn vissi fyrr en eftir á að sami maður væri að baki tilboðunum. Það voru svo systurnar Maddy og Charlotte sem hann valdi að kaupa af fyrir hæsta verð og þar með tryggja þeim sigurinn. Þetta olli mikilli óánægju og áhorfendum þótti ekki sanngjarnt að einn maður gæti stýrt sigrinum á þennan hátt og margir töldu systurnar alls ekki verðugustu sigurvegarana.

Systurnar Eliza og Liberty lentu í alvarlegum útistöðum við annan keppanda, Kirsty.

Árið 2023 varð togstreita milli tveggja keppenda, Kristy og Elizu svo mögnuð að talað var um „the feud“. Eliza keppti ásamt systur sinni Liberty og Kirsty þoldi hvoruga þeirra. Hún hélt því fram að þær fengju sérmeðferð hjá starfsfólki og dómurum. Deilurnar náðu hámarki þegar Eliza sakaði Kirsty og eiginmann hennar Brett um að skapa eitrað andrúmsloft í kringum sig og uppástóð að þau kæmu illa fram við iðnaðarmennina sem ynnu fyrir þau. Hún sagði einnig að þeim hefði tekist að græta kvikmyndatökumennina og starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar. Slagurinn hélt áfram eftir að þættirnir fóru í sýningu og þær Kirsty og Eliza mættu reglulega í fjölmiðla til að tala illa um hina.

Par lagði á flótta eftir tveggja daga dvöl í Húsröðinni árið 2022: Þau hétu Elle og Joel, hún er áhrifavaldur en hann fyrrum fótboltastjarna í Ástralíu. Þau létu engan vita hvað stæði til, pökkuðu einfaldlega saman og fóru um miðja nótt. Síðar sögðu þau að ástæðan hefði verið að mamma Joels hefði dottið og slasast illa en Scott Cam lagði engan trúnað á það. Hann lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að afsökun þeirra væri: „piss-pour“ og að það væri ekki í samræmi við þjóðarsál Ástrala almennt að gefast svo auðveldlega og lúalega upp. Svo mörg voru þau orð.

Allt virtist ganga Tom og Söruh-Jane í haginn þar til kom að uppboðinu.

Sama ár eða árð 2022 virtist allt ganga Tom og Söruh-Jane í haginn engu að síður seldist húsið þeirra á aðeins 20.000 dollurum hærra en ásett verð. Allir höfðu búist við meiru því bæði dómarar og áhorfendur voru mjög hrifnir af verkum þeirra. Það voru þeir Omar og Oz sem unnu það árið. Sarah-Jane sagði síðar frá því í viðtali að ágóðinn hafi ekki náð að dekka þann kostnað sem þau höfðu haft af því að taka þátt í þáttunum. Þau þurftu að selja bíl sem þau höfðu unnið meðan á þeim stóð til að ná að koma út á núlli.

Ljósmynd lekið til keppenda (2021): Áhorfendur urðu margir bæði hneykslaðir og reiðir þegar upp komst að einn keppenda, Tanya, játaði að hafa tekið mynd af byggingaáætluninni og fengið þannig forskot á hina því hún vissi alltaf hvaða herbergi yrðu tekin fyrir næst. Hún var sektuð og teknir af henni punktar á stigatöflunni. Þáttaröðinni lauk með að Darren og Deanne, og Michael og Carlene, fengu aðeins 10.000 dollara í sinn hlut eftir hafa lagt á sig gríðarlegt vinnuálag og þau kenndu uppboðshöldurum um. Þeir höfðu sérvalið inn á uppboðið og leyfðu ekki hverjum sem er að bjóða og pörin tvö vildu einnig meina að sú röð sem húsin voru boðin upp í hefði verið þeim mjög óhagstæð.

Árið 2020 voru Luke og Jasmin tvisvar sökuð um að svindla. Einn dómaranna, Shayna Blaze þekkti barnaherbergishönnunin þeirra og sýndi fram á að hún væri nánast eftirlíking af mynd á Instagram af verki annars innhússhönnuðar. Seinna fengu þau einnig orð í eyra þegar ljós kom að þau höfðu látið smíða fyrir sig trébekk sem var nánast nákvæm eftirlíking af bekk sem Daniel og Jade höfðu áður látið sérsmíða fyrir sig. Parið svarað ásökununum með því að segja að þau hefðu sótt innblástur í hönnun annarra.

Hús Jimmy og Tam var stórglæsilegt og allt stefndi í metgróða. Þá kom í ljós að kaupandi gat ekki staðið við tilboð sitt.

Tilboðið reyndist svik (2020): Jimmy og Tam unnu þessa þáttaröð að því er virtist og ef allt hefði verið með felldu hefðu þau fengið 1,06 milljónir Ástralíudala í sinn hlut en bjóðandinn stóð ekki við tilboðið. Kaupandinn hét Emese Fajk og átti hæsta tilboð í hús Jimmy og Tam eða 4.256 milljónir ástralíudala en gat ekki staðið við greiðslur. Hún kenndi um bankasvikum og skjalafalsi af hálfu bankans en ekkert slíkt sannaðist. Þetta allt fór mjög illa með Jimmy og Tam og úr varð að sjónvarpsstöðin gekk inn í tilboðið og keypti húsið og seldi það síðar fyrir mun lægri upphæð. Reynt var að grafast fyrir um fortíð Esme en ekkert fannst um þessa dularfullu persónu.

Árið 2014 földu bræðurnir Shannon og Simon síma stilltan á upptöku í húsinu sínu til að taka upp einkasamræður dómaranna og fá þannig að heyra hvað þeir segðu um þeirra hús og annarra. Darren Palmer, einn dómaranna fann tækið og þeir fengu lægri einkunn fyrir vikið. Sama ár gekk uppboðið mjög illa og tvenn pör fengu aðeins 10.000 dollara ágóða. Annað parið Darren og Deanne kom aftur í þáttinn ári síðar og þá náðu þau 935.000 dollara gróða.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

„Draumurinn að halda sýningu á Íslandi“
Á Borgarbókasafninu Spönginni stendur nú yfir áhugaverð sýning á verkum listakonunnar Dariya Tumanova undir yfirskriftinni Í ljóma liðinna tíma.

„Það hefur lengi verið draumur minn að halda sýningu á Íslandi og sjá hvernig íslenskir áhorfendur upplifa myndirnar mínar,“ segir listakonan Dariya Tumanova, sem hefur opnað sýninguna Í ljóma liðinna tíma á Borgarbókasafninu Spönginni.

Á sýningunni gefur að líta vatnslitamyndir af fornbílum, en listakonan kveðst vera heilluð af viðfangsefninu. „Mér finnst hver og einn þessara gömlu bíla hafa sinn eigin svip og sinn eigin persónuleika. Nútímabílar eru vissulega þægilegri en þeir líkjast hver öðrum svo mikið að ég á stundum erfitt með að finna minn eigin bíl á bílastæði,“ segir hún og hlær.

Dariya tekur fram að sýningin í Spönginni snúist þó ekki eingöngu um fornbíla heldur heldur um minningar, menningu og þann ljóma sem fortíðin getur enn varpað á daglegt líf okkar.

Dariya, sem er frá Úkraínu, hefur starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkennari um árabil og sýnt verk í Úkraínu, Þýskalandi og á Ítalíu.

Í ljóma liðinna tíma er fyrsta sýning Dariya á Íslandi og segist hún vera glöð með bæði að geta unnið að listsköpun sinni hérlendis og deilt útkomunni með Íslendingum.

Sýningin stendur yfir til 28. ágúst.

Öll hjartanlega velkomin.

Þegar brúa þarf bilið
Stundum rakna sambönd og tengsl milli fólks upp eiginlega án þess að neinn taki eftir því. Samtölin verða styttri og færri, hætta að snúast um það sem skiptir báða aðila máli og verða að meiningarlausu spjalli um daginn og veginn. Oft er eftirsjá að gömlum vini og alvarlegt ef um fullorðið barn viðkomandi er að ræða eða annan fjölskyldumeðlim. Þetta getur virst óyfirstíganlegt vandamál en stundum er hægt að brúa bilið, skapa aftur andrúmsloft hlýju og nándar. Það getur verið sársaukfullt en þess virði.

Náin sambönd byggja á grunni trausts, skilnings og virðingar milli beggja. Í gegnum árin reynir á og það koma upp ásteytingarsteinar og vandamál, deilur og rifrildi en allt það þarf að leysa. Ef vandamálin ná að safnast upp, ekki er talað út um hlutina eða komist að niðurstöðu um málamiðlun getur komið að því að annar hvor aðilinn gefist upp. Þegar „Tinna“ dóttir „Stínu vinkonu“ hætti að hringja í mömmu sína nema endrum og sinnum hélt hún fyrst að stelpan væri einfaldlega mjög upptekin. Tinna var í námi, í vinnu og með tvö börn, alveg skiljanlegt að hún hefði minni tíma til að sinna mömmu sinni.

En smám saman fór Stína að taka eftir því að samtölin voru innihaldslausari en áður. Tinna var hætt að tala um líðan sína, trúa mömmu sinni fyrir draumum sínum og erfiðleikum. Öllum spurningum var svarað nánast með einsatkvæðisorðum, jú það gekk vel í skólanum, krakkarnir voru hraustir, vinnuveitandinn ágætur, lífið bara fínt. Stína vissi betur. Hún vissi að Tinna hafði áhyggjur af yngri stráknum, að verkefnin í skólanum voru stundum snúin og hún komst ekki áfram í þeim og vinnuveitandinn var sannarlega ekki ágætur.

Hætti að hlusta á dótturina

Stína fór að velta fyrir sér hvort hún hefði sagt eitthvað til að særa dóttur sína. Hafði hún ekki sýnt nægan stuðning? Hvers vegna var komin þessi kaldi tónn í samræður þeirra og fjarlægð á milli mæðgnanna. Og Stína áttaði sig. Í stað þess að hlusta á dóttur sína hafði hún gert lítið úr áhyggjum hennar af drengnum. Hann var bara yndislegi ömmustrákurinn hennar en hvað ef hann var með ADHD eins og Tinna hélt var þá ekki betra að barnið fengi greiningu sem fyrst? Já og verkefnin, Stína hafði aldrei sýnt áhuga á náminu. Hvað var það sem olli Tinnu erfiðleikum? Af hverju stóðu sum fögin ekki opin fyrir henni? Tinna var góður námsmaður. Hafði Stína ekki nennt að setja sig inn í þetta og kannski ræða við dóttur sína um hvernig best væri að leysa úr þessu? Stína var jú, lærð í svipuðu fagi. Og vinnuveitandinn, af hverju hafði hún ekki hvatt dóttur sína til að tala við manninn, krefjast betri framkomu og vinnuaðstæðna?

Margir foreldrar kannast við þetta. Þegar börnin verða fullorðin breytumst bæði þau og við. Oft ákveðum við að einhver þurfi ekki á okkur að halda, að viðkomandi sé sjálfstæður og fullorðin og við einbeitum okkur að öðru. Hættum að rækta gömul samskiptamynstur eða þau  virka ekki alltaf jafn vel áður. Fjölskyldufræðingurinn John Gottman lýsir nánum samböndum eins og húsi. Öryggi og traust mynda grunninn, en hæðirnar byggjast upp af góðum samskiptum, gagnkvæmri virðingu og tilfinningalegum tengslum. Þegar sprungur koma í sambandið snýst málið ekki um að rífa allt húsið, heldur að gera við þar sem þess er þörf.

Límið í varanlegum samböndum

Þegar börnin flytja að heiman og hefja eigið líf er auðvelt að halda að við þekkjum þau enn út og inn. En fullorðið fólk þarf að takast á við margskonar áskoranir og ekki allar auðveldar. Allir vilja að á þá sé hlustað, eiga einhvern í lífi sínu sem alltaf er til staðar og sér hver maður er. Þegar spurt er af einlægum áhuga og hlustað af athygli finna allir muninn. Ef gefin eru ráð gefðu þau ekki til að stjórna heldur til að styðja viðkomandi í að taka næsta skref, hugsa málið til enda og finna sína lausn. Oft er gott að spyrja: „Hvernig lítur málið út í þínum augum akkúrat núna?“ eða „Segðu mér frá því sem skiptir þig mestu máli núna.“ „Hefur þú einhverjar áhyggjur einmitt núna?“ Að hlusta á fólk sýnir virðingu og opnar dyr. Þegar manneskja hlustar án þess að dæma, gefur af sér af einlægni og sýnir stuðning stuðlar það að trausti.

Gottman leggur áherslu á að gagnkvæm virðing og kærleikur sé límið í varanlegum samböndum. Þegar einhver er dapur eða vonlítill er gott að beina athyglinni að því sem gengur vel. Segja upphátt: „Ég dáist að því hvernig þú tekst á við þetta.“ Eða: „Ég kann virkilega að meta hvað þú ert umhyggjusöm/umhyggjusamur.“ „Mér finnst þú standa þig ótrúlega vel.“ Uppörvunarorð geta dregið úr spennu og gamalli togstreitu og skapað nýja nálægð.

Þegar erfitt er orðið að tala við einhvern, fjarlægð hefur myndast á milli og andrúmsloftið er ekki gott er auðvelt að draga sig í hlé. Finnast betra að láta þetta vera, bíða eftir að það lagist eða hugsa, þetta er ekki mitt mál, ég gerði mitt besta og nú verður viðkomandi bara að bjarga sér. En með því að rétta fram sáttahönd, mæta með vinarþel sýnir það vilja til að bæta úr og að þú ert ekki hrædd við að taka erfiðu samtölin líka, hlusta á gagnrýni á þig. Kærleikur er öflugur kraftur og sterk taug þegar kemur að tengslum milli manna. Jafnvel lítil skref, eins og skilaboð eða kaffibolli saman, geta opnað dyr að sáttum. Mörg fullorðin börn þora ekki að nálgast foreldra sína á ný fyrr en þau finna að foreldrarnir sýna vilja til að berskjalda sig, viðurkenna að þeim geti orðið á, biðjast fyrirgefningar af auðmýkt og löngun til að skilja viðhorf annarra og sársauka.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Frumraun sjötugs rithöfundar slær í gegn
Allt er fertugum fært og fimmtugum vel gerandi var eitt sinn haft að orðtaki en kannski ætti að uppfæra það og bæta við og flest fá sjötugir sigrað. Theo of Golden er frumraun lögfræðingins og tónlistarmannsins Allen Levi á rithöfundasviðinu. Hann gaf bókina út sjálfur að áeggjan vina þegar hann var sjötugur og flestir hefðu spáð henni að falla í gleymsku. Annað kom á daginn og saga þessarar skáldsögu er lyginni líkust.

Allen er frá Alabama og hann byrjaði að skrifa seint á sjöunda áratug ævi sinnar. Hann langaði að vita hvort hann gæti skrifað skáldsögu og afrakstur tilraunarinnar varð 400 síðna skáldsaga, Theo of Golden. Sjálfur ætlaði Allen að henda handritinu ofan í skúffu og leyfa því að liggja þar, enda tilgangur hans aldrei annar en sá prófa. Vinur hans ýtti hins vegar við honum og úr varð að hann gaf bókina út sjálfur.

Sagan segir frá rosknum manni, Theo að nafni sem flytur til bæjarins Golden í Suðurríkjunum. Bærinn er skáldaður en minnir að sjálfsögðu um margt á sambærilega bæi þar um slóðir. Dag nokkurn bíður Theo í röð eftir að kaupa sér morgunkaffi á kaffihúsinu í nágrenni heimilis síns og sér þá níutíu og tvær teikningar af manneskjum til sýnis á veggjum þess. Hann ákveður að kaupa allar myndirnar og skila þeim til fyrirsætanna en hann telur að þær eigi helst skilið að eiga myndirnar. Lesendur fylgja honum svo í leit hans að fyrirmyndunum og fá að fylgjast með hvað gerist þegar hann finnur þær.

Lögfræði, bókmenntir og tónlist

Bókinni hefur verið líkt við bækur Fredrik Backman, Maður sem heitir Ove og Mai-Britt var hér. Fleiri af svipuðum toga mætti svo sem nefna eins og, Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir Jonas Jonasson, Hin ótrúlega pílagrímsför Harolds Fry eftir Rachel Joyce og Tuesdays with Morrie eftir Mitch Albom. Allt eru þetta notalegar sögur um manneskjur sem ákveða lifa fremur en að bíða dauðans. Þær eiga einnig sameiginlega kímnina og skemmtilega persónusköpun.

Allen Levi fæddist í Bay Minette í Alabama árið 1956 en flutti til Columbus í Georgíu ásamt fjölskyldu sinni og ólst þar upp. Þótt hann hafi alltaf haft áhuga á bókmenntum og lesið mikið ætlaði hann sér aldrei að verða rithöfundur. Hann lærði lögfræði og vann við það fag í áratug í heimabæ sínum. Árið 1990 flutti hann til Skotlands og hóf nám í skoskum bókmenntun við Háskólann í Edinborg. Hann flutti heim að námi loknu og hélt áfram að vinna við lögfræði í þrjú ár til viðbótar. Þá hætti hann og hóf tónlistarferil. Hann samdi og söng eigin lög og ferðaðist um hélt tónleika. Allen er trúaður og lög hans voru kristlegs eðlis og hann söng mest í kirkjum og hjá kristilegum samtökum.

Þegar bróðir hans greindist með heilakrabbamein árið 2010 hélt Allen heim til að hugsa um hann og aldraðan föður þeirra. Hann vann einnig sem dómari við erfðaréttarmálum. Eftir að hann missti bróður sinni og föður var hann ekki viss um hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur næst en þegar hann, rétt eins og Theo í bókinni, rakst á 92 blýantsteikningar af fólki á myndlistarsýningu á kaffihúsi í nágrenni heimilis síns ákvað hann rétt eins og söguhetjan að kaupa þær allar. Og næstu vikurnar horfði hann á andlit þessa ókunna fólks og þá kviknaði hugmyndin að bók.

David Morse les bókina í hljóðútgáfunni.

Handskrifaði fyrstu drögin

Það tók hann þrjú og hálft ár að skrifa söguna. Hann kom sér fyrir í litlum kofa í nágrenni heimilis síns og byrjaði. Hann notaði pappír og penna til að byrja með og fyrsta handritið var allt hanskrifað. Honum fannst þetta skemmtilegt en erfitt og deildi á facebook myndbandi þar sem hann sat með gítarinn og sönglaði: Ég er að skrifa bók og það er að gera mig brjálað/Ég er að skrifa bók og ég er að missa vitið. En svo var handritið tilbúið, komið inn í tölvu og Allen var hreykinn af sjálfum sér og ánægður. Hann ætlaði að láta við svo búið standa. Hann hafði sannað fyrir sjálfum sér að hann gæti fylgt verkefni sem þessu til enda. Einn vina hans var hins vegar ekki sáttur við það og sá hvatti hann til að leyfa verkinu að koma fyrir almenningssjónir.

Allen bað bróðurdóttur sína, Aron Ritchie, að hjálpa sér að gefa bókina út. Þau gerðu sér grein fyrir að bókin þyrfti kynningu en í stað þess að leita til risastórra fyrirtækja og verslana hafði Aron Ritchie, samband við stóran hóp þeirra fjölmörgu sem Allen hafði kynnst í gegnum ævina og bað þá að lesa bókina og kynna hana eigendum bókabúða í nágrenni við sig og í hópi kunningja sinna. Þetta markaðsbragð dugði. Að vísu tók það þrjú ár fyrir bókina að ná metsölu en það tókst. Orðið tók að berast manna á milli og í lok árs 2023 hafði Theo of Golden selst í 3000 eintökum, ári síðar var talan orðin 25.000 og á fyrra helmingi síðasta árs náði hann 125.000 eintaka markinu.

Bókin var þar með komin í sæti 38 af 100 mest seldu bókum á  Amazon í Ameríku. Blaðamenn tóku við sér og sáu að hér var áhugaverð saga á ferð. Algjörlega óþekktur höfundur, nærri sjötugur og ekki með neitt útgáfufyrirtæki eða kynningarteymi á bak við sig hafði náð þessum árangri. Og það voru ekki bara blaðmenn sem fengu áhuga. Útgefendur slógust um útgáfuréttinn og það var Atria, hluti af Simon & Schuster samsteypunni sem að lokum hlaut hnossið. Theo of Golden kom út á prenti og hljóðbók á haustmánuðum í fyrra hjá þeim og það er leikarinn David Morse sem les. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt í The Green Mile. Síðan þá hefur salan rokið upp og nú eru 2.5 milljón eintak seld og víða um heim er farin í gang vinna við að þýða bókina. Það er alveg hugsanlegt að hún komi út á íslensku en þeir sem lesa ensku geta pantað sér eintak á Amazon og dæmt sjálfir hvort bókin á skilið þá athygli og lof sem hún hefur hlotið.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Gói, gervigreindarfulltrúinn minn
Undanfarinn áratug höfum við hjónin átt viðskipti við sama bílaumboðið. Við erum ánægð með bílana frá þeim en þjónusta þeirra er arfaléleg. Á þessum tíma hafa komið upp nokkur smávægileg vandamál sem hafa orðið að stórfelldum óþægindum fyrir okkur í meðförum starfsmanna umboðsins. Auðvitað höfum við kvartað, verið vel tekið og kurteislega en nákvæmlega ekkert breytist.

Meðal þess sem hefur reynst okkur erfitt er að um það bil sólarhring tekur að fara með bíl í árlega skoðun. Nokkuð sem tók um það bil klukkustund hjá bílumboðinu sem við versluðum við áður. EItt sinn voru send skilboð um að bíllinn væri tilbúinn eftir slíka skoðun en þegar komið var til að sækja hann stóð hann óhreyfður fyrir utan og hafði ekki verið litið á hann. Þetta kostaði tvær leigubílaferðir í og úr vinnu en umboðið bauðst ekki til að keyra bíleigandann til baka eða bæta í það minnsta aðra fýluferðina.

Þegar við hófum viðskipti og hringt var í umboðið og beðið um samband við einhvern sérfróðan aðila hringdi ævinlega út. Allsendis ómögulegt reyndist að ná sambandi nema keyra á staðinn og setjast hreinlega inn og heimta svör. Nú fást þær upplýsingar að skiptiborðið geti ekki gefið samband við starfsmenn fyrirtækisins og símsvörunarfólkið tekur skilaboð sem auðvitað er svo ekki svarað. Í dag brá svo við að ég þurfti að leita til umboðsins vegna smávægilegs galla sem komið hafði í ljós í bílnum. Símastúlkan tók mér af fádæma kurteisi og hlýju, tók niður skilaboð og sagði að sérfróður starfsmaður þyrfti að fara yfir þetta og hafa samband við mig. Og ekki stóð á svörunum að þessu sinni. Tölvupóstur barst um hæl frá Góa gervigreindarfulltrúanum mínum sem tjáði mér að erindi mitt hefði borist fyrirtækinu og væri í skoðun hjá sérfróðum starfsmönnum.

Gói hljómar bæði kurteis og notalegur. Ég hef alls ekkert undan honum að kvarta og eflaust eru Gói og félagi hans Spói það sem koma skal í fyrirtækjarekstri. Hvort það er fagnaðarefni er svo annað mál. Gói færði mér nefnilega alls engar nýjar upplýsingar. Bréfið frá honum var nákvæmlega samhljóða því sem símastúlkan hafði áður sagt. Ef mér dytti í hug að svara Góa er ég nokkuð viss um að ég fengi einfaldlega sama bréf eða annað staðlað til baka. Þess vegna kviknar sú spurning hjá mér hvort þetta sé til bæta þjónustuna? Er ekki einfaldlega óþarft að tvítaka sömu upplýsingarnar?

Það læðist í kjölfarið að mér sá grunur að Gói sé sendur út af örkinni til að friða samvisku önnum kafinna starfsmanna. Erindi mitt verður án efa tekið til meðferðar einhvern tíma á næstu mánuðum og á meðan geta hinir sérfróðu vísað á Góa. Allir þekkja í dag snjallmennin sem svara galvösk á heimasíðum flestra stórfyrirtækja. Þau eru elskuleg og kát en sorglega fáfróð um allt utan algengustu spurninga og stundum duga svörin ekki einu sinni til að leysa úr þeim. Er þá hjálp í þeim?

Ég veit það ekki en ég sakna þeirra tíma þegar góð þjónusta var keppikefli og metnaðarmál innan fyrirtækja. Tekið var á móti fólki og reynt að leysa úr vanda þess í einu símtali eða innan nokkurra mínútna á gólfi fyrirtækisins. Þeir tímar eru liðnir hjá mörgum stórum fyrirtækjum og sum taka helst ekki á móti viðskiptavinum. Allt fer fram á netinu. Af margvíslegum ástæðum henta þessir þjónustuhættir mörgu fólki mjög illa. Sumir eru tæknilega heftir en aðrir búa við takmarkanir sem hindra þá í að nálgast þjónustu á þennan hátt. Eitt sinn hefðu forsvarsmenn fyrirtækja fjölgað starfsfólki til að geta komið til móts við alla sína viðskiptavini en núna fækka þau starfsmönnum markvisst og koma sér upp Góum í stórum stíl.

Margir hafa áhyggjur af þessari þróun. Ekki bara vegna þess að störfum fækkar heldur vegna þess að mannleg samskipti eru að hverfa úr fyrirtækjarekstri og þjónustu stofnana. Ákveðnir jaðarhópar lenda einnig milli skips og bryggju í þessari gervigreindarvæðingu allri því enn í dag er til fólk sem ekki hefur aðgang að snjallsíma eða tölvu. Hvert á það að leita? Það eru mannréttindi að geta nálgast upplýsingar frá opinberum aðilum og í það minnsta íslenska ríkinu ber að tryggja að allir þegnar geti nálgast þjónustu og þekkingu á réttindum sínum, ekki bara þeir sem geta spjallað við Góa og félaga.

Þeir eru auðvitað ekki alslæmir. Oft er mikill tímasparnaður fólginn í því að geta haft samband við snjallmennin á netinu en mér finnst þess virði að staldra við og hugsa um hverju við erum að fórna. Viljum við veröld þar sem maður á mann samskipti hverfa með öllu? Bensínstöðvar og hleðslustöðvar eru í dag ómannaðar, margar bílaþvottastöðvar sömuleiðis, í bönkum örfáir þjónustufulltrúar og ekki er langt í að matvöruverslanir verði tómar af öðrum en viðskiptavinum. Mér finnst þetta hálfnöturleg framtíðarsýn en kannski er ekki hægt eða ekki vert að stoppa tæknina. Hingað til finnst mér hún hins vegar ekki hafa bætt þjónustu fyrirtækja og verslana heldur þvert á móti.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Kíví á dag kemur skapinu í lag
Trefjar, C-vítamín, andoxunarefni, pótassíum og fólat allt eru þetta næringarefni sem kíví-ávöxturinn inniheldur í miklum mæli. Í raun eru þessir litlu grænu boltar meðal næringaríkustu ávaxta. Að auki eru þeir gómsætir en samt þeir ávextir sem Íslendingar borða einna síst. Fyrir því eru nokkrar ástæður en við ættum kannski að tína þá oftar í poka og njóta.

Epli, bananar og appelsínur eru vinsælustu ávextirnir hér á landi þrátt fyrir að nú orðið fáist margir aðrir allan ársins hring. Auðvitað er ekkert að því að borða epli, appelsínur og banana daglega en það getur borgað sig að auka fjölbreytnina og benda má á að í einu kíví er jafnmikið af C-vítamíni og í einni appelsínu en kíví-ið er helmingi hitaeiningaminna. Kíví er alls ekki meðal dýrustu ávaxta á markaðnum hér svo það er sannarlega þess virði skoða það betur.

Hvað er svona merkilegt kíví?

Með því að borða kíví reglulega getum við bætt meltinguna, örvað húðfrumur til endurnýjunar, bætt svefninn og létt lundina. Allt þetta leiddi bresk rannsókn á áhrifum þess að borða eitt kíví á dag á eldra fólk í ljós. Vegna þess hve trefjaríkur ávöxturinn er getur hann hjálpað til við að losa um hægðir ef hægðatregða er að plaga fólk og evrópsk rannsókn leiddi í ljós að það hefur mun meiri og varanlegri áhrif en sveskjur hvað þetta varðar. Það er vegna þess að kíví inniheldur bæði uppleysanlegar og óuppleysanlegar trefjar og auk þess ensímið actínídín en það örvar meltinguna og hjálpar likamanum að brjóta niður prótín. Auk þess hjálpa trefjar okkur að viðhalda bakteríuflóru þarmanna og þar með ónæmiskerfi líkamans.

Áhrif þess á húðina koma fyrst og fremst til vegna C-vítamín innihaldsins en í ávextinum er einnig efni sem ýtir undir kollagen-framleiðslu en kollagen er byggingarefni húðarinnar og það sem veldur því að hún er bæði teygjanleg og sterk. Í kíví er líka E-vítamín og fjölfenól sem hjálpa til við að halda húðinni heilbrigðri og ýta undir varnir hennar gegn UV-geislum sólar. C-vítamínið í ávextinum gerir það einnig að verkum að sár gróa fljótar og betur.

Áhrif þess á svefninn eru hins vegar tilkomin vegna þess að í kíví er töluvert serótónín og það hjálpar líkamanum að framleiða melatónín, hormón sem hjálpar fólki að slaka á og sofna og einnig sofa lengi og vel. Margir íþróttamenn vita af þessu og þeir borða þess vegna eitt til tvö kíví klukkustund áður en þeir fara að sofa kvöldið fyrir keppnisdag.

Kíví léttir lund

Breska rannsóknin leiddi einnig í ljós að kíví-át væri líklegt til að létta lundina og auka lífsþorsta fólks. Sennilegast þótt vísindamönnum að þetta væri fyrir áhrif C-vítamínsins og andoxunarefnanna en þau ýta undir boðefnaframleiðslu í heilanum, þar á meðal vellíðanarboðefna og þau hafa góð áhrif á lífsgleði og orku fólks. Í venjulegu kíví er að finna um 60 mg af C-vítamíni og það nægir til að tryggja venjulegri manneskju ráðlagðan dagsskammt af því góða vítamíni.

Ef þú lesand góður hefur enn ekki sannfærst um að eitt kíví á dag geti bætt heilsuna verulega ættir þú vita að trefjarnar í því vinna gegn vondu kólesteróli eða blóðfitu. Það þarf aðeins að borða tvö kíví á dag til að ná fram 13% lækkun á trígýseríði eða blóðfitu í líkama meðaljónsins. Þegar viðbætist að kíví er ríkt af pótassíumi lækkar blóðþrýstingur einnig verulega þegar fólk borðar tvö á dag. Þetta leiddi norsk rannsókn í ljós.

Ættu einhverjir að forðast kíví?

Já, sumir ættu að láta vera að borða kívi vegna þess að það inniheldur mikið magn af K-vítamíni og pótassíumi hefur það blóðþynnandi áhrif. Fólk sem tekur blóðþynningarlyf ætti því alls ekki að borða kíví daglega en því er alveg óhætt að smakka það af og til. Kíví ofnæmi er einnig þekkt þótt það sé ekki algengt og lýsir sér í kláða í munni og hálsi. Bráðaofnæmi fyrir kíví er einnig þekkt en mjög sjaldgæft. Fólk með ofnæmi fyrir latexi, avókadói, banana og heslihnetum er líklegra en aðrir til að fá ofnæmisviðbrögð þegar það borðar kíví. Ef kíví-ið er óþroskað getur aktiníðið í ávextinum valdið óþægindum í munni og hálsi án þss að það sé endilega merki um ofnæmi. Það að kíví getur verið illa þroskað eða óþroskað er eiginlega eini ókostur þess. Ávöxturinn á ekki að vera harður viðkomu þegar hann er tekinn til neyslu heldur gefa aðeins eftir þegar fingri er þrýst á hann. Ef kíví er hart þarf að geyma það í skál í einn til tvo daga og prófa þá hvort það hafi náð þroska.

Sumir borða kíví með hýðinu en aðrir kjósa að afhýða það. Þótt hýðið sé loðið og virki ólystugt er það bragðlítið og alls ekki óhollt. Í því er mikið af trefjum, eins og reyndar í öllu hýði, og að auki er það ríkt af fólati, E-vítamíni og fjölfenólum. En ef menn vilja gera tilraun til að borða kíví með hýðinu ættu þeir að skola það vel undir vatnsbunu frá krananum og jafnvel bursta það með hreinum bursta.

Kíví-hristingur

2 kíví

frosið mangó

1 banani

safi úr 1/2 lime

1 lófi af myntulaufum

3 msk. grísk jógúrt

2 msk. chia-fræ

Allt sett í blandarann og hann ræstur og blandað þar til blandan er mjúk.

Chia-grautur með kíví

50 g tröllahafrar

2 msk. chia-fræ

100 ml möndlumjólk

2 msk. grísk jógurt

Allt setti krukku og látið standa í ískáp yfir nótt. Tekið fram að morgni og kíví skorið í bita og blandað saman við og sett ofan á. Möndluflögur, hörfræ, graskersfræ, bananar, jarðarber og annað góðgæti er gott ofan á.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Er eyðslusemi arfgeng?
Áhugi fólks á uppruna sínum og sögu fjölskyldunnar er mismikill en yfirleitt eykst hann með árunum. Stundum koma upp atvik er beinlínis kalla á að leitað sé aftur í ættir til að finna skýringar á erfðasjúkdómum en margir telja að þar sé líka að finna ástæður viðbragða okkar við þeim atvikum sem lífið sendir og skapgerðinni.

Í flestum tilfellum þekkir fólk annað hvort móður- eða föðurætt sína betur. Einhverjar sögur hafa varðveist, oftast af dramatískum atburðum, ástarsaga langafa og langömmu, lát afa, frændinn sem fékk berkla og fleira. Þegar farið er að grúska kemur venjulega eitthvað nýtt og áhugavert í ljós. Þær Ólína Þorvarðardóttir og Nanna Rögnvaldardóttir hafa báðar grúskað í ættarsögu sinni og skrifað um formæður sínar. Þeirra leit skilaði ekki bara staðreyndum heldur einnig neistum sem náðu að kveikja elda ímyndunaraflsins. Þessar konur urðu lifandi fyrir hugskotsjónum þeirra og þær gátu sett sig inn í tilfinningalíf þeirra.

Til er gömul sögn í móðurfjölskyldu minni af forföður, stórbóndasyni, sem ekki fékk að eiga vinnukonuna sem hann varð ástfanginn af. Móðir hans neyddi hann til að sverja af sér barnið fyrir rétti. Í fjölskyldu vinkonu minnar hefur sagan af langömmunni sem missti mann sinn í sjóinn frá fimm börnum verið afkomendum hennar hvatning til að gera vel, standa sig. Hún tók inn leigjendur og kostgangara og tókst þannig að halda börnum sínum hjá sér og koma þeim til manns.

Stórbóndasonurinn sór af sér barn

Afi annarar vinkonu veiktist af berklum og barðist við heilsuleysi upp frá því. Honum tókst af fádæma dugnaði og eljusemi engu að síður að koma sér og fjölskyldu sinni vel fyrir í Hafnarfirði og öllum börnum sínum til mennta. En ekki eingöngu jákvæðir eiginleikar skila sér þannig áfram til næstu kynslóða. Samstarfskona sagði undirritaðri eitt sinn þá sögu að í fjölskyldu hennar hefði mann fram af manni erfst algjör blinda og heimska í meðferð peninga. Hún hafði nýlega komist að því að einum forfeðra hennar hafði oft græðst fé en hann jafnóðum tapað því. Þetta mynstur virtust afkomendur hans dæmdir til að endurtaka og fjölskyldan var reglulega í peningavandræðum en þess á milli hafði heppni skilað þeim háum fjárhæðum. Af einhverjum ástæðum virtust þau ekki geta lært að fara skynsamlega með og ávallt biðu blankheit handan við hornið.

Að þekkja slíkar sögur og hafa alist upp við þær er verðmætt. Það skilar þeirri tilfinningu að maður eigi arfleifð, sé tengt fortíðinni og geti ýmist breytt henni eða varðveitt.  Margir hafa einnig þá tilfinningu að þeir séu skyldugir til að virða fórnir þeirra sem á undan komu og tryggja að vinna þeirra sé ekki til einskis. Vísindamenn hafa á síðustu árum rannsakað hvernig áföll erfast og hvernig þau breyta erfðaefni manneskjunnar. Kannski liggur lykillinn að góðri heilsu barnabarna okkar í því að við skiljum eftir handa þeim aðgengilegar upplýsingar um líf okkar.

Margir kjósa að varðveita sögur fjölskyldunnar með því að skrifa niður allt sem vitað er um forfeðurna. Gamlar myndir geyma einnig merka sögu og gamlir munir. Tölvuvæðingin hefur þann kost að auðvelt er að geyma mikið magn upplýsinga en þann ókost að auðvelt er að glata þeim, annað hvort hít hinna ótal mörgu upplýsingaveita eða niður í svarthol úreltrar tækni. En séu ekki bara líkamlegir eiginleikar varðveittir í genunum heldur einnig hegðunarmynstur og lífsstílsval forfeðranna veitir það okkur frelsi til að velja að rjúfa vítahringinn svo lengi sem við horfumst í augu við söguna.

Þetta getum við skilið eftir skriflegt:

Sögurnar sem við ólumst upp við af ættingjunum og hvernig við upplifðu eldri kynslóðirnar í fjölskyldunni þegar við vorum að alast upp.

Ef við viljum ekki endurtaka mistök forfeðranna hvað viljum við þá gera í staðinn og hvernig?

Hverjar eru óskir okkar til handa börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum?

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Frá Frelsisgöngu yfir til Gleðigöngu
Verið velkomin í ókeypis kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 6. ágúst í tilefni Hinsegin daga, þar sem rakin verður saga frelsis- og gleðiganga hinsegin fólks.

Eins og flestir vita í dag þá er Gleðiganga Hinsegin daga hápunktur hátíðarinnar og einn stærsti menningarviðburður landsins. En hvert var upphaf Gleðigöngunnar? Hvernig var tíðarandinn þegar hinsegin fólk blés fyrst til slíkrar göngu? Hvernig hafa áherslur breyst síðan sú fyrsta var gengin, og hvers vegna?

Í tilefni Hinsegin daga leiðir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks, gesti um slóðir Gleðigöngunnar og forvera hennar í gegnum árin í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 6. ágúst.

„Til hvers þurfum við eiginlega þessa Gleðigöngu? Er þetta ekki bara komið, eru spurningar sem sumir spyrja og þarna verður meðal annars leitast við að svara því,“ segir Ugla og getur þess að farið verði yfir söguna í stuttu máli og gengið á ýmsa staði í miðbænum sem tengjast menningu hinsegin fólks og göngunni góðu.

Gangan hefst kl. 20:00 á horni Lindargötu og Frakkastígs, þar sem fyrsta félagsheimili Samtakanna ’78 stóð eitt sinn, en sjálf gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.

Ókeypis er á viðburðinn og fer hann fram á íslensku.

Öll hjartanlega velkomin.

Þess má geta að gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina og eru öllum gjaldfrjálsar.

Nánar um gönguna á fimmtudag á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Grátt hár hefur aldrei verið vinsælla
Silfurrefir og silfurtófur skarta nú gráum lokkum og láta algjörlega vera að lita hárið. Það er einnig þónokkuð algengt að yngra fólk kjósi að lita hárið í gráum tónum til að fá á sig virðuleikablæ. Lengi vel trúðu menn og konur því að með því að lita hárið virkuðu þau yngri en það þarf alls ekki að vera svo. Fallega klippt og stílíserað grátt hár yngir ekki síður en dökkir lokkar og ljósir liðir.

Að hætta að lita hárið er frelsandi og opnar á ótal möguleika. Það er hægt að nota skol af og til ef fólk vill lífga upp á litinn eða breyta til. Með flottri klippingu og vel útfærðri greiðslu er gráa hárið virðulegt og mikill stíll yfir því. Breytingin getur verið dálítið þreytandi því það tekur tíma að leyfa litnum að vaxa úr og hárið getur verið leiðinlega tvískipt og asnalegt á meðan en vel þess virði þegar upp er staðið. Sumir telja að grátt hár njóti sín best stutt en það er vitleysa, margar stjörnur sem kjósa að skarta gráum lokkum hafa sýnt og sannað að svo er ekki.

App til að prófa greiðsluna áður en klippt er

Nú orðið er hægt að sækja sér app sem sýnir manni hvernig mismunandi hárklipping fer við andlitið. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja appið og hlaða upp mynd af sjálfri/sjálfum þér og prófa þær greiðslur sem boðið er upp við þitt andlit. Þegar búið er að finna það sem hentar best er hægt að fara með myndina á hárgreiðslustofu og biðja snjallan hárgreiðslumeistara að klippa þig einmitt svona. En það að kjósa að leyfa hárinu vera í sínum náttúrulega lit sparar ótal stundir í stólum á hárgreiðslustofunni og langa bið með liturinn tekur sig. Þá þarf heldur ekki lengur að hafa áhyggjur hvernig gráa rótin stækkar og stækkar.

Silfurgrátt hár grípur ljósið á sérlega fallegan hátt og oft glansar grátt hár einstaklega glæsilega eða þegar blár blær kemur á hárið. Á það má líka benda að rauður varalitur passar sérlega vel við grátt hár og mjög margar konur sem leyfa silfurmakkanum að njóta sín kjósa hárrauða varaliti. Þekktust er án efa förðunarmeistarinn, Ragna Fossberg. Brúnn hörundslitur fer líka mjög vel gráhærðu fólki.

Grátt hár getur verið viðkvæmt fyrir þurrki og það hjálpar þess vegna upp á heilbrigði hársins að hætta að lita það og fólk ætti að velja vandaðar hárvörur til að viðhalda glansinum á hárinu. Ekki þvo hárið of oft og spara hárblásarann. Ef notuð eru heit tæki til að móta hárið að nota þá vernandi hárefni áður en þær eru dregnar fram. En hvort sem fólk kýs að lita hárið eða ekki geta allir verið sammála um að fólk sem líður vel í eigin skinni og er ánægt með sjálft sig nákvæmlega eins og það er aðlaðandi og skemmtilegt fólk.

Hinsegin fólk opnar sig í Hreiðrinu
Fimmtudaginn 6. ágúst verður innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra opnuð á Borgarbókasafninu Grófinni. Þar munu gestir og gangandi geta hlýtt á áhrifamiklar frásagnir af því hvað það þýðir að tilheyra og finna sinn stað í samfélaginu. Í tilefni Hinsegin daga verður kastljósinu beint sérstaklega að reynslu og röddum hinsegin fólks.

Einlægni, húmor og hugrekki. Í tilefni Hinsegin daga fá sögur og raddir hinsegin fólks að hljóma við opnun innsetningarinnar Hreiðursins: sögur um að tilheyra á Borgarbókasafninu Grófinni fimmtudaginn 6. ágúst.

Hreiðrið er notalegt horn á annarri hæð safnsins í Grófinni, rými fyrir samtal, samkennd og ólíkar raddir, á tímum þegar sífellt fleiri upplifa sundrung og fjarlægð. Á Hinsegin dögum verður þar hægt að hlýða á áhrifamikil og einlæg viðtöl við hinsegin fólk sem segir ýmist frá bókum, kvikmyndum, ljóðum, leikhúsverkum eða tónlist sem hefur vakið hjá því tilfinningu um að tilheyra og verða umræddir gripir jafnframt hafðir sýnis í Hreiðrinu.

Upptökurnar, sem eru annað hvort á íslensku eða ensku, eru níu talsins, jafn ólíkar og þær eru margar, en eiga þó það sameiginlegt að hreyfa við hlustendum og varpa ljósi á mikilvægi þess að finna sér stað í samfélaginu.

Viðmælendur eru þau Ólafur Aðalsteinsson, Rebecca Hidalgo, Ólafur Helgi Móberg Ólafsson (Starína), Reyn Alpha Magnúsdóttir, Sebastían Oddný Arnarson, Sindri Sparkle Freyja, Dori Baldvinsson, Nas og Eliott Spencer.

Opnun Hreiðursins verður fimmtudaginn 6. ágúst frá klukkan 16:00 til 18:0. Þar verður hægt að hlýða á sögur hinsegin fólks í ágúst og út september. Eftir það taka aðrar frásagnir við en sögur hinsegin fólks verða áfram aðgengilegar á heimasíðu safnsins.

Verkefnisstjóri Hreiðursins er Fanny Sissoko. Hreiðrið er hannað af Droplaugu Benediktsdóttur. Uppsetningu innsetningarinnar annaðist Embla Vigfúsdóttir.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is