70 prósent með undir 300 þúsund á mánuði

Erna Indriðadóttir

Erna Indriðadóttir

Tæplega 70 prósent eftirlaunafólks hafa tekjur undir 300 þúsund krónum á mánuði, þetta kemur fram í svari Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ernu Indriðadóttur, varaþingmanni Samfylkingarinnar. Þingmaðurinn spurði ráðherrann hversu margir 67 ára og eldri hefðu tekjur undir 300 þúsund krónum á mánuði. Í svari ráðherra segir að 44.680 einstaklingar 67 ára og eldri hafi skilað skattframtali árið 2014. Orðrétt segir í svari ráðherra. „Af þeim höfðu 31.028 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 69,4% af hópnum. Hér er miðað við samanlagðar tekjur að meðtöldum greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Ef ein­göngu er miðað við aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun, svo sem atvinnutekjur, lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur, höfðu 34.239 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 76,6% af hópnum.“

2.600 fá vasapeninga

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra

Ennfremur kemur fram í svari ráðherra að samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins fengu í nóvember 2014, 32.200 einstaklingar greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Af þeim höfðu 21.864 einstaklingar tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 67,90% af hópnum.Hér er miðað við samanlagðar tekjur að meðtöldum greiðslum frá stofnuninni. Ef ein­göngu er miðað við aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun, svo sem atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur, höfðu 25.952 einstaklingar tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 80,60% af hópnum. Þá fengu 2.604 heimilismenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum greidda vasapeninga frá Tryggingastofnun ríkisins. Af þeim höfðu 2.324 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 89,25% af hópnum.“

Ritstjórn nóvember 18, 2015 11:07