Auður Haralds – Lifðu núna

Oft var þörf, nú er nauðsyn
Auður Haralds

Auður Haralds rithöfundur skrifar

Árans fjárans vitleysa var það hjá okkur að segja okkur frá kaþólskum siði. Þar á bæ eiga menn verndardýrðlinga, sem vinna dag og nótt við að láta smátt sem stórt ganga upp hjá mannfólkinu. Það eina sem þarf til að fá aðstoð að ofan, er stutt ákall, svo stutt, að það er styttra en óþarft símtal.

Tökum dæmi: Þú ert við það að missa af strætó. Næsti vagn kemur einhvern tíma í óræðri eilífðinni. Þá másar þú: „Heilagur Kristófer, láttu mig ekki missa af strætó“. Uppá himnum smellur Kristófer í gír. Hann þenur vængina og steypir sér til jarðar. Haukfrán augu hans finna strætóinn þinn, sem markvisst af meðvituðum ásetningi ætlar að æða fram hjá biðstöðinni þinni og bruna leiðar sinnar án þín. Kristófer grípur aftan í vagninn, breiðir út vængina í hemlunarstöðu (sjá vinnuteikningar af flugvélum) og stingur niður himneskum hælunum. Nú ekur strætó á hundrað metra hraða á klukkustund. Þú nærð að lagfæra hárið sem ruglaðist í æsingnum, máta mismunandi yfirhafnir, finna lyklana og ganga síðan virðulega út á biðstöð. Þegar þú hefur tekið þér stöðu þar og sett upp umburðarlyndan þolinmæðissvip, þá sleppir Kristófer takinu. Vagninn þýtur til þín og þökk sé verndardýrðlingi ferðalanga standast áætlanir þínar. Það er óþarfi að nefna það, en auðvitað dáleiðir Kristófer bílstjórann og aðra farþega svo þeir taki ekki eftir töfunum.

Kannski er eins gott að Kristófer er lítið kallaður til.  Göturnar okkar mega varla við því að harðsnúnir hælar Heilags Kristófers bætist við og risti upp malbikið.

Hið efra er skýr verkaskipting og afmörkuð verksvið.  Þeir eru svo ekki jafn afdankaðir og villutrúar – hér er átt við lúterstrúar – menn gætu haldið. Dæmi um að fylgst er með tækni og framförum hér niðri væri, að Heilög Klara sér um sjónvarpið.  Þó virðist hún ekki sinna dagskránni, heldur halda utanum útsendingar og fólkið sem vinnur við þær.  Það þýðir ekki að hún geti ekki fært út kvíarnar og farið að föndra skárri dagskrá. Sameinað ákallsátak, t.d. alla virka daga; „Heilög Klara, viltu hafa eitthvað skemmtilegt í kvöld“ gæti ýtt henni til aukins vinnuframlags.

Öryrkjar eiga sér verndardýrðling, Heilagan Rocco, sem var heilari í lifanda lífi. Mætti ekki nefna við hann, að hér höfum við Grensás og Reykjalund og Náttúrulækningahælið og hvort hann væri ekki til í að taka gangstéttarbrúnirnar í staðinn. Þar sem hallinn er á þeim, þið vitið, hallinn sem hjólastóll á að geta klifið. Sem var lagður af Pólverja á þriðja bjór eða unglingi sem aldrei hefur orðið misdægurt og aðeins tónf hundruð hestafla trukkur getur ekið upp eftir. Jafna það, Rocco.

Svo mikil og margvísleg er umhyggjan hið efra, að maður verður hreint hlessa að uppgötva, að í gögnum um gagnsemi himnanna engla eiga ellilaunaþegar sér engan verndardýrðling. Væntanlega er það vegna þess, að fyrr á öldum var fólk skynsamara og dó Drottni sínum áður en það komst á eftirlaun. Þar sem sú ráðdeildarsemi líkt og flest önnur er farin fyrir lítið, þá þyrfti eiginlega að ráða bót á þessu. Það er ekki eins og skortur sé á dýrðlingum, þeir hlaupa á þúsundum og flestir verkefnalausir. Þetta er líka óréttlæti og af því höfum við nóg. Ef að vændiskonur (háð því að þær hafi iðrast) og hattagerðarmenn (án iðrunar) hafa verndardýrðling, þá eigum við líka að fá. Sting ég upp á að lagzt sé á eitt og verndarengli síma – og fjarskipta sent sms og kurteislega farið fram á að okkur sé afhentur einn slíkur. Verndarengillinn heitir Gabríel Erkiengill og boðin hljóta að berast honum séu þau send á skiptiborð Símans.

Draumur eins, martröð annars?
Auður Haralds

Auður Haralds rithöfundur skrifar

Menn eiga sér drauma.  Sumir stóra drauma, aðrir hógværa drauma.  Nokkrir eiga sér byggðadrauma.  Það eru aðallega ríkisstjórnir og borgarstjórnir. Þeir draumar eru oft draumórar.

Ríkisstjórnir vilja byggja á ræmum undir bröttum hlíðum og styrkja ofankomusjóð.  Það er af því að ríkisstjórnir eru ekki eins vitlausar og borgarstjórnir, þær vita að vikuleg snjóflóð halda mannfjöldanum niðri og þá atvinnuleysi í lágmarki.  Borgarstjórnir halda að gamlir miðbæir séu svarthol og taki endalaust við. Þetta héldu menn um sjóinn á síðustu öld. Nú vitum við að sjórinn tók ekki endalaust við. Lítur borgarstjórnin til hafs og dregur lærdóm af? Nei, hún æðir blint í sjóinn.

Nú á ekki bara að þétta byggð, það á líka að blanda hana betur. Veitti ekki af, miðborgin er óttalega einsleit; hótel, gistihús, veitingahús og lopabúllur. Innan um þessi naglföstu verðmæti velkjast nokkrir innlyksa aldraðir og örlítið fleiri yngri og hraustari. Þó er ekki mannlaust í miðbænum, síður en svo, já það er bara mannmargt, en 90% íbúanna eru ferðamenn og greyin hírast í 80% húsnæðisins. Þetta er óneitanlega blanda en hráefnin eru fá.

Í draumi sá einhver fyrir sér eðlilega byggð og eðlilegt mannlíf. Annað hvort eins og maður sér í útlandinu, þar sem engum hefur dottið í hug að breyta miðborg höfuðborgar í leiksvæði ferðamanna þar sem örvona innfæddir hrekjast á milli olnboga og þrífóta með glóðaraugu og skrámur. Eða eins og Reykjavík fyrir fimmtíu árum, þegar hún  ar nákvæmlega eins og málpípa borgarinnar lýsti óskaborginni sinni: Alls kyns verzlanir, skrifstofur, þjónusta, léttur iðnaður og íbúðarhúsnæði.

Um miðja síðustu öld var miðborgin blönduð byggð.  Í bílskúrum á báðum Holtum voru verkstæði, heildsalar á hæðum, skósmiðir í kjöllurum og við Laugaveginn var léttur iðnaður; járnsmiðja. Þar voru líka klæðskerar, fatahreinsanir, húsgagnaverzlanir, kjötvinnsla og reykhús. Verksmiðjur vantaði ekki, á einu horninu var smíðað kex, handan við það súkkulaði og spölkorni ofar var bruggað maltöl.

Fyrst fór reykhúsið. Einhverjar húsmæður höfðu fengið þvottinn reyktan á snúrunum. Það tók mörg ár að bola því í burtu, en á endanum hafðist það.

Síðan hófust draumfarir. Einhver með skuggalega skipulagsþráhyggju og hólfunaráráttu gat sagt til um, að nú skyldi reisa iðnaðarhverfi og öll starfsemi sem í heyrðist eða af rykaðist skyldi í sóttkví fyrir utan byggð, rétt eins og hver annar pestarpyttur. Næst væri gott að setja skrifstofur í einangrun og því skyldi byggja skrifstofuhverfi. Allar verzlanir væri bezt að hafa í einu húsi, fjarri öllum fótgangandi aulum. Með þessum aðgerum mætti losa miðborgina við rápandi rollur, sem hvort eð er gátu fengið súrefniseitrun af að rjátla undir beru lofti.

Þá var aðeins eftir að flokka fólkið: Efnafólk fékk nesin (með útsýni), fátæklingar fengu naglaskúffu fyrir ofan snjómörk, fólk með uppsteit fékk hraðbraut fyrir dyrnar og meðalmaðurinn gat velkzt á veðursvæðum.

Þetta tókst vel. Miðborgin er ný tegund eyðimerkur, engin þjónusta, fáar verzlanir (hvað getur borgarbúi þurft mikið af lopa og lífsstíl um ævina?), uppgefnir frumbyggjar. Draumur eins er martröð annars.

Og nú nýr draumur: Blöndum miðborgina uppá nýtt. Troðum inn barnafólki með trampólín í stofunni (það verður ekkert „úti“ eftir), fáum tannsmið í einhvern bílskúrinn og kannski konu með prjónavél í annan(snyrtilegt), reisum áburðarverksmiðju við Tjörnina (og seljum ferðamönnum svanaseyru í túbum) og lítið lekkert álver við Laugaveginn. Verum eðlileg.

Það sem fer upp kemur ekki endilega niður
Auður Haralds

Auður Haralds rithöfundur skrifar

Hvernig er bezt að þreyja þorrann? Liggja í sófanum og leyfa þyt þúsundkallanna í lögnunum að svæfa sig. Fljóta síðan sofandi að Feigðarósi, já, eða einhverjum öðrum viðkomustað lífshindrunarhlaupsins, til dæmis sjónvarpsþætti sem er betur skrifaður og betur leikinn en fréttirnar.

Fyrir helgi var friðurinn rofinn þegar þunglamaleg digur rödd brauzt inn í værðina. Röddin sagði, að kaupmenn hefðu enn einu sinni stolið peningunum okkar. Matvörur hefðu ekki lækkað. Ég opnaði bæði augun til að skoða manninn. Alltaf gaman að sjá mann sem á von á að eitthvað lækki.

Ég skildi ekki rök mannsins, sem við skrifum á höfgina sem heitavatnsbruðlið olli, því það getur nú ekki verið að menn fari í miðlana með illa rökstuddar yfirlýsingar. Þess utan er það ekki satt, að ekkert hafi lækkað. Benzínið. Það er beinlínis orðið ódýrt. Nú gæti einhver sagt, að benzín sé ekki matur. Sá einhver kann þá lítið fyrir sér í eldhúsi. Þegar benzínið er orðið hræódýrt, þá getur fólk keypt meira af dýrum mat. Svo stendur benzín í beinna sambandi við matargerð en margan grunar: Það er til fólk sem notar það til að ná verðmiðanum af nýkeyptum búsáhöldum. Sem er óverjandi bruðl, það má nota terpentínu, sem á öllum tímum er ódýrari en hreinsað benzín.

Svo hafa einhverjar matarörður lækkað. Ekki allar, ekki flestar, ekki margar, en sumar. Það gæti villt fyrir fólki, að áður en lækkunin skall á, hækkaði matur svo ört, að fólk þurfti hjálpartæki til að fylgjast með verðklifinu. Annað hvort báru menn bókhaldsdoðrantana með sér í kauffélagið eða fengu sér app til að appa eða fletta við hillurnar. Þannig má vera að margir hafi einfaldlega misst af síðustu hækkun fyrir lækkun og þess vegna virðist vöruverðið hafa staðið í stað eða hækkað.

Ég nota einfalda leið til að vega og meta hækkun/lækkun: Dómsúrskurðurinn á kassanum. Fyrir hrun sagði kassakrafturinn oftast „eiddúsond ádda úndruð og eitthvað.“ Eftir hrun hætti hún því og hóf átök við ný orð í íslenzku: „Dvo dúsond sjo úndroð og eitthvað.“ Núna segir hún: „Fjogur dúsond drjú úndrod og eitthvað.“ Borða ég nú 60% meira en árið eftir hrun? Nei. Þá hefur eitthvað hækkað, þó það hafi kannski líka lækkað.

Er það hér sem minnt er á, að á meðan kassakvittunin kleif hæð sína í loft upp (frá því fyrir hrun og fram á daginn í dag), hafa bætur ekki hækkað um 100%? Er það ekki óþarfi? Þá sleppum við því og tökum verðlækkanir: Meðal þess sem ég tók eftir að lækkaði var kaffið. Það féll um fjórar krónur. Fór úr 1.076 í 1.072. Það er hvorki meira né minna en 0,41% lækkun. Maður veit varla hvernig maður á að lóga þessum umframkrónum. Haldist þetta lága verð á kaffipakka stöðugt, áætla ég að hafa vetursetur á Bali næsta vetur.

Annað sem hefur lækkað- og hér er um verðhrun að ræða- eru rommkúlur. Þeim var nú bara hrint fram af verðhamrinum og féllu lóðrétt um ein 9%. Nú gætu sumir spurt- sennilega þeir sömu og skilja ekki að benzín er matur – hvort rommkúlur séu matvara. Það fer nú bara eftir hvernig á er haldið. Kúlurnar eru gerðar sem hér segir: Innst er áfengi; líklega læknaspritt með rommslummu út í. Rommblandan er heft með þykkri sykurhúð sem er blönduð kókosmjöli. Yzt er súkkulaðihúð. Séu kúlurnar notaðar í morgunverð í stað andabrauðsins, þá koma þær ofan í tóman maga. Þannig hámarksnýtist áfengið í þeim og magnast jafnframt upp af sykrinum sem fylgir. Það þarf ekki margar kúlur til að ganga glaðari inn í nýjan dag. Svo er súkkulaðið seðjandi og ekki má gleyma kókosmjölinu: Trefjar! Og ekki bara trefjar, heldur sætar trefjar. Það gæti sparast álitleg upphæð í minni neyslu á hægðalyfjum.

Sú neyzluvara sem mest hefur lækkað, heil 80%, margfalt meira en rommkúlur og miklu meira en benzín, er kókaín. Það eina sem okkur vantaði ekki.

Skepnan byltir sér
Auður Haralds

Auður Haralds rithöfundur skrifar

Einu sinni var Tortryggnin þunglamaleg skepna sem svaf í djúpinu og bærði ekki á sér nema að ólgandi óveður rótuðu upp úthafi sakleysisins. Nú er sakleysið aðeins pollur, já, eiginlega bara bleyta á gólfinu og Tortryggninni kemur vart dúr á auga. Hún þrammar um heima hjá manni og fnæsir þegar fréttirnar koma. Mest ólmast skepnan þegar minnst er á að ekki megi hækka launin. Það gerir drengurinn í landsföðurlegu jakkafötunum og gefur upp ástæðuna: Stöðugleikinn, þessi sem hann sjálfur og persónulega, uppá eigið eindæmi, kom á; sá stöðugleiki getur farið fyrir lítið. Þá étur verðbólgan búbótina. Þegar raðverkföllin voru gengin yfir og allir höfðu fengið eitthvað, þó svo það væri ægilega hættulegt, þá hafði Tortryggnin haft allt á hornum sér. Helzt og sérstaklega gluggatjöldin, sem skepnan tætti í hengla og eru því nú rimlagluggatjöld. Þótt aðeins séu eftir slitrur af búslóðinni, þá er dýrið ekki hætt.Tortryggnin taldi sig skynja, að eftir að launahækkanir höfðu ýtt þjóðarbúinu út á yztu brún, þá yrði spyrnt við fótum á blábrúninni. Til dæmis einum fæti í íþróttaskó og öðrum í lakkskó. Tortryggnin telur, að á síðasta þingdegi fyrir jól verði ákveðið að áætluð hækkun bóta í janúar steypi okkur í hyldýpi verðbólgunnar. Verður því samþykkt að dreifa hækkuninni á næstu sjötíu árin, en fyrsti áfangi komi þó til framkvæmda í janúar 2016 og verði 0.01743%.

Það versta við að búa með Tortryggninni er ekki stöðugt rápið, tuðið og hornaskakið, heldur að hún hefur svo niðurdrepandi oft rétt fyrir sér. Hún álítur að það væri varhugavert að eyða hækkuninni fyrirfram í jólahald, sem bótaþegar voru hvort eð er búnir að venja sig af. Þess í stað skyldi styðja við sinn eigin stöðugleika með því að spara bara eins og venjulega.

Nokkurri gagnrýni sætti, að sparnaðarráðin sem gefin voru síðast, hefði þurft að taka í notkun eigi síðar en fyrir fjörutíu árum. Það mál þarf fólk að taka upp við foreldra sína, sem tilheyrðu fyrstu eyða-spreða-glutra kynslóðinni. Því miður verður að segja eins og er; afkomendum óráðsíðunnar reynist oft erfitt að læra sparnað. Að hluta er það vegna þess að fólk var vant að geta veitt sér allar nauðsynjar. Það virðist taka suma mörg ár eða áratugi að ná því að það er ekki lengur hægt. Sumir ná því aldrei. Annar hluti, sennilega meirihluti vandans, er að ekki er farin rétt leið að viðfangsefninu. Líklega er það sísuðið um niðurskurð i fjölmiðlum sem þvælist fyrir fólki. Hér þarf U-beygju.

Þegar spara skal, á ekki að leggjast yfir útgjöldin til að finna einhver atriði sem mögulega væri hægt að komast af án. Árangur þess er t.d. að einni tímaritsáskrift af fjórum er sagt upp og hætt að kaupa blóm í hverru viku, bara aðra hvora viku. Að því ákveðnu er upplagt að engjast yfir missinum og mótlætinu. En viti menn, fjárhagslega finnst enginn munur.

Takið stóra U-beygju og læðist aftan að eyðslunni. Hvað þurfið þið? Fæði, klæði, skæði, húsnæði. Annað eru ekki þarfir, heldur langanir. Skerið allt burtu nema fatnað, skó, mat, rafmagn, hita og snúrusíma. Þessu skal síðan stillt í það hóf, að það rúmist innan efnahagslögsögu ykkar. Fúlt? Það venst.

Eitt sinn bað koma mig um skyndihjálp í sparnaði, þar eð gjaldþrotið var farið að veifa henni af bílastæðinu. Á meðan við töluðum saman, reif hún upp varalit á 10-15 mínútna fresti og renndi yfir varirnar. „Hvað eyðirðu í varalit á mánuði?“ spurði ég. „Voða lítið, hann kostar ekki neitt,“ svaraði hún snöggt og fór aukayfirferð til áherzlu. „Ég fæ varaþurrk ef ég er ekki með varalit,“ bætti hún svo við.

Já er það. Ég reiknaði. Hún málaði um 15 fermetra með varalit á mánuði og hver fermetri leggur sig á 4 þúsund krónur. Dýrari en gólfefni. Sex mánuðum síðar var hún gjaldþrota.

Gamalt húsráð við varaþurrki: Eyrnamergur. Náttúrulega vernd líkamans. Bezt er að nota sinn eigin. Ekki verður séð að húsráðið standi fólki eitthvað fyrir þrifum, það er tiltölulega ólíklegt að eldri borgarar sem bregða sér í bæinn lendi skyndilega í lostafullum kossaofsa upp við næsta vegg með ókunnugum. Vildi samt svo til, þá má hæglega segja: Bíddu rétt á meðan ég nudda eyrnamerginn af vörunum….

Ókeypis falskar
Auður Haralds

Auður Haralds rithöfundur skrifar

Byrjar ekki barlómurinn aftur! Það er sama hvaða tittlingaskítur bærir á sér í þjóðfélaginu; fjárlagafrumvarp, samningar, pípari tekur í nefið eða páfinn prumpar; upp rís eymdarkveinið um bæturnar.

Eins og annað endurtekið efni er þessi armæða leiðigjörn. Það er enginn vandi að lifa á örorku- eða ellilífeyri, tala nú ekki um þegar bæturnar ná 150 og jafnvel 180 þúsundum á mánuði. Örfáar, einfaldar aðgerðir í tíma gjöra afkomuna að léttum leik, já, lífi í munaði.

Fyrsta skrefið að farsælli elli er tekið á 27. aldursári. Þá er síðasta íbúðin keypt. Ekki fyrsta, heldur síðasta. Er svo stakkurinn sniðinn að vexti;  sé íbúðin lítil, þá er eignast minna af börnum (eða minni börn). Fjörutíu árum síðar er eignin skuldlaus, sem er eina vitið ef fólk ætlar að lifa fram yfir 67 ára aldur.

Frá síðustu íbúðakaupum og fram að næstu aðgerðum er þokkalegt hlé, þetta allt að 30 ár, sem má nýta til að koma börnum í gegnum arðbært nám, svo maður geti hætt að sjá fyrir þeim um sextugt.

Uppúr fimmtugu eruð þið hætt að kaupa plastpoka undir matinn og notið tuskur í stað eldhúsrúllunnar.

Þegar örlátir afkomendur ykkar vilja gefa stjórgjafir á sextugsafmælinu, þá biðjið þið um, að frjálsu vali gefanda, þvottavél, ísskáp eða eldavél. Tækið er svo sett geymsluna. Þeta er endurtekið á 65 ára afmælinu og fer einnig það tæki í geymsluna. Þá eru komin tvö af þremur nauðsynlegustu heimilistækjunum. Sjálf kaupið þið svo tvær vara-ryksugur og eitt vara-sjónvarp á ústölum á síðustu tveimur árunum.

Frá 60 til 67 ára dragið þið markvisst saman seglin. Afmælis- og jólagjafir minnka um 25% á ári hverju í sjö ár, til að venja þiggjendurna við væntanlegan fjárhag ykkar.  Áskriftum og félagsgjöldum er fækkað árlega og þarf ekki að sýta það, eftir 50 ára streð, strit og puð hafið þið litla heilsu í að stunda samkomur. Áhuginn á glanstímaritum minnkar, en aðallega á ekki að vera að fletta þeim, því það espar upp alls kyns langanir sem verða utan seilingar þegar lifa skal á lífeyri.

Síðustu tvö árin notið þið til að kaupa rammbyggðan skófatnað og vandaðar yfirhafnir sem endast í 15-20 ár. Gott er ennfremur að koma upp varasjóði með því að hætta að fara til tannlæknis. Falskar tennur eru í boði Tryggingastofnunar við 67 ára aldur, háð því að þær séu í samræmi við reglur stofnunarinnar (framleiddar í Albaníu, staðlaðar stærðir, en flestir finna eitthvað við sitt hæfi). Tannhirða ellitanna kostar um 6 þús. krónur á mánuði og er þá aðeins átt við þrif. Lausar tennur má bara taka með hinum uppþvottinum.

Sé farið eftir þessum einföldu leiðbeiningum, má lifa við kjörskilyrði. Þau eru: Allir reikningar greiddir á gjalddaga og að auki máltíð á hverjum degi. Er hægt að biðja um meira?

Tók einhver eftir, að minnsti stjórnmálaflokkur landsins fattaði, að vinsælasta kosnigabrellan var laus til ábúðar? Nú ætlar flokkurinn að beita sér fyrir hærri bótum. Hvað gera menn ekki þegar fylgið minnkar….