Ragnheiður Linnet – Lifðu núna

Sköpunin kemur úr trúnni, náttúrunni og eigin reynslu
Guðrún Erlingsdóttir er alin upp í Vestmannaeyjum og segir lífið þar og náttúruna hafa mótað sig. Hún ákvað 63 ára að gefa út vínylplötu og segir að tónlistin komi til sín en lögin hennar eru bæði trúarleg og veraldleg. Ferlið allt í kringum gerð hljómdisksins og vínylplötunnar einkenndist af gleði og krafti en eiginmaður Guðrúnar var hennar stuðningur, enda segir hún að hún hefði aldrei farið út í þetta stóra verkefni án hans. Útgáfutónleikar Guðrúnar verða á Goslokahátíð í Eldheimum í Eyjum nú á föstudaginn en miða má nálgast á tix.is.

„Ég byrjaði að semja lög fyrir um 15 árum, upp úr þurru og það kom engum eins mikið á óvart mér. En þegar ég var búin að semja fyrsta lagið fann ég einhverja þörf að ég ætti að koma þessu einhvern tíma út og ekki að geyma lögin ofan í skúffu.

Hafið, rokið og náttúran í Eyjum móta

Guðrún bjó í Eyjum í 50 ár. Hún upplifði gosið og það sem því fylgdi. Náttúran, nálægðin við náttúruöflin og hafið,  hefur haft mikil áhrif á hana ásamt tónlistarhefðinni sem er Eyjamönnum í  blóð borinn. „Eftir að ég flutti ég upp á land hef ég samið minna, sköpunarkrafturinn er í rokinu og sjónum í Eyjum. Mér fannst eins og ég væri að flytja til útlanda þegar ég flutti upp á land, ég vissi ekkert hvar ég átti að leita eftir þjónustu, eða kirkju. Ég fór í HÍ og útskrifaðist úr norsku og atvinnulífsfræði 53 ára. Þá hélt ég tónleika með öllum lögunum mínum og þýðingum á textum, en einn daginn fór ég að þýða gospeltexta. Ég fór í Ástjarnarkirkju og heillaðist af kórnum en honum stjórnaði Matthías V. Baldursson. Þetta var 2014 en þegar ég var komin í kórinn spurði ég Matthías hvort hann væri til í að vera með mér á tónleikum með lögunum mínum og hann tók því vel.

Guðrún byrjaði svo að þýða gospeltexta. „Við vorum einhvern tíma að syngja gospellög á ensku og þá kom einn kórmeðlimur til mín og spurði hvort ég gæti þýtt texta á íslensku, það væri svo leiðinlegt að syngja þetta á ensku. Ég sagði já, en hafði aldrei þýtt en það er oft flókið að þýða, það þarf að passa upp á að hvert atkvæði passi við hverja nótu. Sumir textar eru auðþýddir, aðra þarf nánast að semja upp á nýtt. Ég sendi þessa þýðingu á kórstjórann og hann varð þetta litla glaður því hann hafði verið að leita að þýðanda. Næstu árin þýddi ég tæplega 30 texta,“ segir Guðrún og brosir.

Guðrún og Gylfi

Tónlistin kemur til mín

„Ég hélt aftur tónleika undir stjórn Matthíasar 2022 en þá var ég sextug og fannst tilvalið að halda upp á það með tónleikum, hver gerir það ekki,“ segir Guðrún og hlær. „Í millitíðinni var ég að semja, ekki af því að ég gerði það meðvitað heldur af því að tónlistin bara kom. Þegar það gerist má ég bara gjöra svo vel að hætta því sem ég er að gera, grípa gítarinn og semja, tónlistin tekur yfir; ég fæ hana senda. Þetta eru mest lög sem eru trúarlegs eðlis og ég segi að þetta sé náðargjöf frá Guði. Ég hef haft kjark til að stíga á svið og flytja tónlistina mína og af því er ég stolt.

Guðrún  fór í annað háskólanám og kláraði meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku 55 ára. Tíminn leið og Guðrún sem var í fullri vinnu auk þess að syngja í tveimur kórum. Rokkkór Íslands og Vox Gospel. Hún fann þó hvorki tíma né kjarkinn til að gefa út tónlistina.  „Ég var alltaf með það á bak við eyrað að gefa út lögin mín. En það ferli er flókið og sérstaklega fyrir þann sem hefur aldrei gefið út plötu eða geisladisk. Kannski vonaði ég innst inni að einhver myndi banka upp á og segja; ég skal gera þetta fyrir þig,“ segir hún.

Lagði fyrir í tónlistarsjóð

„Það gerðist ekki og fyrir fimm árum fór ég  að leggja fyrir í tónlistarsjóð, allt sem kom inn aukalega, eins og það sem ég fékk fyrir skrif, fór í sjóðinn. Svo gerðist það að  Gugga Lísa sem er frábær tónlistarkona hafði sambandi við mig  hún var að gefa út plötu og langaði að hafa á henni lag eftir mig sem heitir Drottinn, ég tilbið þig. Ég gaf henni fullt leyfi til þess og að túlka það á sinn hátt og hún gerði þetta mjög fallega. Hún lét mig fá plötuna í nóvember og þá hugsaði ég; nú ferð þú af stað, það er enginn sem gerir þetta fyrir þig, það er annaðhvort núna eða ekki.

Ég strengi aldrei áramótaheit en skrifa oft niður það sem mig langar að gera og eitt af því var að ég ætlaði að gefa út plötu 2026. Í byrjun janúar tók ég ákvörðunina. Ég hafði tekið upp báða tónleikana mína og þó að hljóðið væri ekki gott þá átti ég demóið og útsetningarnar sem flestar eru eftir Matthías. Ég sendi póst á Stúdíó Paradís sem er rekið af feðgunum Jóhanni Ásmundssyni og syni hans Ásmundi. Gugga Lísa hafði tekið sína plötu upp þar. „Soundið“ sem er á henni er það sem ég vildi hafa á minni plötu. Ég sendi öll lögin mín og textana seint að sunnudagskvöldi og eldsnemma morguninn eftir fékk ég svar: „Okkur líst vel á þetta og við tökum þetta“. Ég fór af stað þegar ég fékk svarið frá Paradís og fékk góða tónlistarmenn til liðs við mig. Þeir feðgar mixuðu og masteruðu plötuna í stúdíóinu.“

Guðrún segir að í sjávarplássi eins og Eyjum hafi fólk oft þurft að bregðast skjótt við t.d. til að nýta afla og segir að það hafi haft áhrif á sig og komið sér vel í öllu ferlinu við plötuna. „Ég tók þetta eins og eina góða sex mánaða vertíð. Ég vildi klára þetta allt fyrir vorið því mig langaði að vera með tónleika í Eldheimum á Goslokahátíð. Platan mín ber nafnið Sólarlag og er vísun í sólarlagið við Smáeyjarnar en það er hvergi fallegra en þar og sjálf hafði ég þetta útsýni í áraraðir. Titillagið heitir Sólarlag við smáeyjar. Sólarlag markar bæði upphaf og endi á degi. Ég er trúuð og trúi á Guð og ég veit að það er eitthvað gott til og það er líf eftir dauðann.“

Guðrún með plötuna Sólarlag.

Gamall draumur sem rættist

„Lögin voru gefin út á vínylplötu, geisladiski og stafrænt, sem er frekar nýlegt, þannig að það þýðir ekki fyrir fólk að segja, ég get ekki keypt því ég á ekki spilara,“ segir Guðrún glettin. „Vínylplata er allt öðruvísi en geisladiskur, það er eitthvað við það að sitja með plötuumslag í höndunum. Ég fékk með mér góða tónlistarmenn, feðgana í Paradís; Sigurgeir Sigmundsson gítarleikara og Arnór Vilbergsson, organista í Keflavík. Við byrjuðum 18. janúar að taka upp og lukum tökum 27. mars sem er svakalegur hraði. Þetta var vel skipulagt og hálfgerð sprengja. Vínylmasterinn var sendur frá Stúdíó Paradís til  Þýskalands sem gerði master-plötu og svokallaða negatívu sem var send til RPM records í Danmörku en einn af eigendunum er Íslendingur. Ég fékk ég frábæra söngvara sem hafa sungið með mér í ýmsum kórum til að syngja á Sólarlagi. Síðasta lagið á plötunni er jólalag  sem ég setti á Spotify 2021 sem Helga Möller syngur og lagið sem Gugga Lísa söng á sinni plötu fór líka á Sólarlag.

Ég lagði mikið upp úr plötuumslaginu þannig að ég hringdi í dóttur mína  Bjarteyju sem er listamaður og bað hana að mála fyrir mig verk af  sólarlagi við Smáeyjar sem er titillag plötunnar. Tengdasonur minn sem er grafískur hönnuður sá um art-verkið á plötunni. Önnur dóttir mín, Jóhanna Björk, syngur með mér eitt lag á á plötunni sem fjallar um barnabarnið mitt.  Á opnu plötualbúmsins eru allir textar og myndir af tónlistarmönnum og flytjendum í sem við Gylfi, maðurinn minn, tókum á meðan á ferlinu stóð.“

Guðrún við gerð plötunnar

Tilfinningaþrungin stund þegar nálin fór plötuna

„Ég sagði við Gylfa, að ég vildi ekki fara af stað nema hann væri með, við gerum allt saman og ferlið er tímafrekt og kostnaðarsamt. Gylfi var allt umlykjandi í þessu ferli, lagaði kaffið handa mannskapnum, mokaði tónlistarmennina upp úr snjónum og margt fleira.

Eftir að master-platan er tilbúin sem tekur nokkar vikur er hún send Danmerkur. Það voru gerðar tvær prufuplötur sem átti að senda til Íslands, þar sem ég þurfti að hlusta á þær og samþykkja  áður en pressun plötunnar færi fram í Danmörku en það tekur fjórar til átta vikur. Það var í boði að fara og fylgjast með ferlinu og ég sagði við Gylfa: Nú fylgjum við bara plötunni alla leið, og við pöntuðum okkur far til Danmerkur. Ég hlustaði á prufuplöturnar þar. Mér hafði verið sagt að ég myndi heyra töfra plötunnar þegar ég heyrði tónlistina af vínylplötu og það gerðist. Þegar nálin fór á vínylplötuna, brast ég í grát. Það var stór stund að heyra þetta svona. Það var mikil breyting frá því að ég var ein með gítarinn minn og kunni fjögur grip og í fullbúna plötu. Nú voru lögin mín orðin „fullorðins“. Eftir alla vinnuna þá var þetta yndisleg stund.

Framleiðsluferlið fór svo að stað og ég startaði henni í orðsins fyllstu merkingu með því að ýta á takkann á pressuvélinni. Vínylhlunkur er settur í vélina, pressaður saman og eftir hálfa mínútu er önnur hlið plötunnar tilbúin, þetta er ótrúlegt. Það þarf svo að kæla plöturnar í sólarhring áður en þær fara í umslag. Það fara 30 mm af hverri plötu og sá vínill notaður í næstu plötur. Í klassík er notaður nýr vínill, en ef það er rokk eða pönk þá er meirihlutinn notaður gamall vínill. Eftir hálfa mínútu er önnur hliðin tilbúin. Sólarlag er 19 laga heilsteypt safn og fór á tvær plötur. Það var ætlunin að gera eina plötu en efnið var svo mikið að það þurfti albúm til. Mér finnst gaman að hafa albúm sem hægt er að opna, og skoða, ég  vildi hafa þetta almennilegt.“

Tilfinningaþrungin stund þegar platan fór á fóninn.

Berskjöldun að gefa út plötu

„Ég ákváð að koma plötunni út 19. júní á afmælisdegi ömmu minnar sem ég heiti í höfuðið á en hún var eins árs þegar konur fengu kosningarétt. Mér fannst það táknrænt og líka vegna þess hve tímarnir og staða kvenna hefur breyst, við konur getum verið þakklát fyrir svo margt í dag.

Ég sem öll lög og texta á plötunni. Flest lögin eru samin á gítar. Ég keypti mér hljómborð í Covid, lærði eitthvað smávegis á það og náði að semja tvö lög á það. Eitt lagið, var við ljóðið Storm eftir Hannes Hafstein, mér fannst lagið sem er ljúft ekki passa  beint við kvæðið. Mig langaði heldur ekki að vera með texta eftir aðra á plötunni minni. Ég ákvað þá í stúdíóinu að hafa lagið instrumental, þ.e. engin texti.. Ég breytti líka nafninu á því úr Stormi í Paradís. Það eru tvö lög tengd gosinu, Noregsfarar, en það er mitt uppgjör frá kvöldinu fyrir gosið og þar til við komum heim á ný til Eyja. Og svo Sólarlag við smáeyjar sem er minn óður til heimahaganna, ég fór í huganum yfir eyjarnar eins og dróni, það er mjög miklar Vestmannaeyjar í því  lagi, þótt ég segi sjálf frá.“

Guðrún segir að önnur platan í albúminu innihaldi trúarleg lög en hin veraldlegri en með trúarlegum tilvísunum í þeim flestum. „Tvö lögin eru reyndar þannig að þú getur hlustað á þau sem trúarleg eða veraldleg en sköpun mín kemur mikið úr trúnni og minni reynslu. Lagið Algleymi er annað lagið sem ég samdi á píanó, annars eru lögin samin á gítar. Mamma fékk alzheimer-sjúkdóminn og lagið og textinn var mín leið til að vinna úr þeirri reynslu að ganga við hlið hennar í baráttunni en ég samdi það áður en hún dó. Ég sá fyrir mér hvað yrði þegar hún myndi losna úr viðjum sjúkdómsins og textinn byrjar á spurningum: Hvar ertu, hvert fórstu, hvað dvelur þú nú? Ég saknaði hennar því hún var að hverfa  en hún var samt þarna.“

Guðrún segir það sérstaka tilfinningu að gefa út svona plötu með eigin  lögum og textum því fylgir að fólk berskjaldi sig algjörlega. „Þetta gekk ótrúlega vel, einungis sex mánuðir frá því byrjuðum og þar til útgáfutónleikarnir verða. Ég hef verið ótrúlega heppin með fólkið í kringum mig. Ég gaf tónlistarfólkinu frelsi til að setja  sína túlkun í lögin. Ég vildi  koma plötunni út, ekki velta hverju smáatriði fyrir mér. Boðskapurinn er góður, en hann er í raun kærleikur allri sinni mynd.

Ég hlakka til útgáfutónleikanna í Eyjum, Þar stígur á svið blanda af heimamönnum og öðrum tónlistarsnillingum af plötunni. Eyjarnar verða ekki teknar úr manni og það er svo mikil söng- og tónlistarmenning í Eyjum, hún er eiginlega bara í blóði Eyjamanna og ég mun segja sögurnar af lögunum mínum á tónleikunum,“ segir Guðrún full tilhlökkunar

Útgáfutónleikarnir verða á föstudag 3. júlí, kl. 18.30 í Eldheimum á Goslokahátíð í Eyjum. Miðasala er á tix.is. Platan fæst í flestum plötubúðum, Kirkjuhúsinu, Lindinni og hægt er að hafa samband við Guðrúnu á Messenger.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.

Ég lít á allar aðstæður sem tækifæri
Margrét Júlía Rafnsdóttir, kennari og umhverfisfræðingur, var ein af þeim allra fyrstu sem fengu Covid-19. Hún var flutt á spítala en fékk að fara heim viku síðar. Margrét náði sér ekki eins og skildi og sat uppi með langtímaafleiðingar eftir veikindin. Hún segist alltaf hafa verið orkumikil og starfsöm og þurfti að venjast nýjum aðstæðum, að geta nánast ekkert gert og vera alltaf verkjuð og þreytt. Margrét hélt um tíma að þannig yrði lífið,  en smám saman fékk hún næga orku til að byrja aftur að vinna hlutastarf.

Margrét hefur skíðað töluvert.

Þetta er búið að vera ferðalag

Margrét segir að það sé forsaga að Covidinu. „Ég, eins og svo margar aðrar íslenskar konur, hef starfað mikið og haft mjög gaman af öllu sem ég hef gert. Ég hef verið í fullri vinnu og tekið að mér alls konar aukaverkefni, ekki síst tengt fræðslu, náttúrufræði, umhverfismálum og mannréttindum og fundist það spennandi, auk þess sem ég starfaði líka í pólitíkinni í um 20 ár, í nefndarstörfum, ekki síst í umhverfismálum og skipulagsmálum og svo í bæjarstjórn í Kópavogi. Ég reyndi að sinna fjölskyldunni vel en það var töluvert leitað til mín og ég hef þar reynt að greiða götur minna nánustu eins og ég hef getað.

Vorið 2019 gekk ég loks á vegg. Ég var að fara á ráðuneytisfund og var allt í einu svo ringluð og hugsaði; ég get þetta ekki, Ég var að missa minnið og fór heim. Ég var með yndislegan yfirmann sem sagði við mig: Nú ferð þú í frí og talar við lækni. Ég fór í frí en þó ekki alveg, það var svo margt sem lá fyrir í vinnunni en ég starfaði hjá Barnaheillum á þessum tíma.

Ég gat ekki verið í öllum venjulegum aðstæðum eins og margmenni og í stórum verslunum þar sem var erill. Ég hef alltaf stundað líkmasrækt, en þegar allar líkamsræktarstöðvar voru lokaðar fannst mér gott að fara í sund og í kalt vatn til að lina verki, þannig að ég synti svolítið á þessum tíma. Svefnþörfin var mikil og er enn, helst að minnsta kosti 10 tíma á sólarhring. Ég gat helst dundað mér við hluti eins og að brjóta saman þvott eða þurrka af. Það var núvitund. Ég fór síðan í Virk og það var algjör lífsbjörg. Ég ætlaði að ná mér að fullu,  þáði alla þá þjónustu sem var í boði, námskeið og annað og lagði mig fram. Um haustið fór ég að vinna aftur og jók vinnuna smám  saman, vann við skýrslugerð fyrir erlenda aðila og sinnti svokölluðu  Vináttu – verkefni, þar sem Blær bangsi er í aðalhlutverki, en ég  innleiddi það í skóla hér á landi. Ég átti heldur ekki endalaust veikindafrí þó að ég hefði aldrei farið í slíkt áður. Ég ætlaði að fara í fulla vinnu í byrjun mars en við hjónin ákváðum að skella okkur fyrst á skíði með vinahjónum til Selva á Ítalíu. Vélin sem við fórum með út sótti hóp til að fara með heim og það fólk fór í vinnuna bara daginn eftir og þannig komst Covid til Íslands. Við vorum í viku í Selva og þegar við fórum heim var ljóst að veiran var komin til Íslands og miklar varúðarráðstafanir voru þegar við fórum heim. Við þurftum að vera með grímu í flugvélinni og það var engin þjónusta um borð, bara vatnsflöskur við innganginn. Allir fóru síðan í Covid-próf við heimkomuna á flugvellinum og beint í tveggja vikna sóttkví. Eftir tvo daga kom niðurstaðan úr prófunum sem voru tekin á flugvellinum og við vinahjónin vorum öll smituð og líklega nær allir sem voru í vélinni. Heilbrigðiskerfið var að læra á þessa veiru og þurfti að spila af fingrum fram hvað hægt var að gera en ég var viðfang meðal annars þar sem ég var ein af þeim fyrstu sem smituðust og veiktust illa. Læknar á Landspítala hringdu í mig daglega og tóku stöðuna. Svo versnaði mér stöðugt þannig að ég gat ekki orðið reist höfuðið frá koddanum. Þá var sendur til mín læknir sem kom plastklæddur frá toppi til táar og ákveðið að senda mig á Landspítala vegna þess að súrefnismettunin var orðin léleg. Það komu tveir sjúkrabílar með bráðaliða og ég var borin út í annan bílinn. Ég var svo á sjúkrahúsinu í viku, fárveik og með óráði. Starfsfólkið var mjög indælt og alltaf í þessum blessuðu göllum þegar það kom inn í stofurnar. Það veiktist enginn í kringum mig í fjölskyldunni svona illa nema ég. Börnin mín og fjölskyldan urðu ansi óttaslegin þegar ég þurfti að fara á spítalann. Ég var sem betur fer komin heim þegar fyrsti einstaklingurinn lést af völdum Covid hér á landi. Allir í fjölskyldunni fengu Covid að lokum en þá var búið að bólusetja og ég fór svo líka í bólusetningar.“

Margrét með bókina um Rafn, föður sinn.

Ákvað að skrifa bók á spítalanum

„Þegar ég lá á spítalanum rann það upp fyrir mér að ég lá á sömu stofu og pabbi hafði legið á þegar hann lá banaleguna. Ég lít á allar aðstæður sem ég lendi í sem tækifæri og ákvað að skrifa bók um pabba minn, Rafn Júlíusson. Sigurður, maðurinn minn, sótti mig síðan á spítalann og þurfti náttúrlega að fara í sóttkví en ég gat ekki gengið lengd mína fyrst um sinn eftir heimkomuna, verkir, þreyta og mikil mæði. Ég þurfti að passa upp á lungun þegar ég fór út í kalt loft. Það var ekkert þá í kerfinu sem tók við manni og ég þurfti að leita að öllu sjálf, hvað ég gæti gert og hvað væri í boði til að ná heilsu. Ég fór svo aftur í veikindaleyfi í vinnunni. Ég vann svolítið heima, skrifaði bókina hluta dags og vann hluta úr degi en það unnu allir heima á þessum tíma. Bókin kom svo út fyrir jólin 2022.

Ég sem hafði alltaf verið þessi orkubolti fór aftur og aftur fram úr mér og fékk endalaus bakslög. Smám saman fór ég að læra á mína heilsu og lærði að velja á milli hluta til að gera á daginn. Svo frétti ég, um einu og hálfu ári eftir að ég veiktist, að einhverjir hefðu farið á Reykjalund í kjölfar Covid. Ég hélt að ég þyrfti nú ekki að vera lengi þar, hugurinn var alltaf svo mikill, og var á dagdeild. Ég fór á morgnana og aftur heim seinni partinn en þegar ég var búin að vera þarna í sex vikur kom bakslag, þannig að ég var í níu vikur alls á Reykjalundi.

Þeim sem höfðu fengið Covid var boðið  í rannsókn hjá Íslenskri erfðagreiningu. Rannsóknin var ekki til að hjálpa okkur á þessum tíma, hún var fyrir vísindin til að fá upplýsingar. Við veittum þær engu að síður með glöðu gleði að sjálfssögðu og vonandi hafa þær komið að gagni fyrir fólk.

Margrét hrósar verunni á Reykjalundi og segir hana hafa hjálpað sér mikið. „Reykjalundur bjargaði lífi mínu. Einkennin sem ég hafði eftir að hafa fengið Covid í byrjun faraldursins, lýsa sér í ofboðslegri þreytu og mjög miklum verkjum um allan líkamann, ég gat stundum öskrað af verkjum. Svo var það heilaþokan, ég hélt að ég væri komin með alzheimerssjúkdóminn. Ég er mæðin og lungun eru skemmd, það er örvefur þar. Enn fæ ég verkjaköst og þreytan sem hefur fylgt mér er oft ekki síður andleg en líkamleg.“

Gat loks farið að vinna

Núna eftir sex ár líður Margréti loks miklu betur. „Ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég er búin að læra inn á mig og mína heilsu eða hvort ég sé í raun orðin betri. Tilfinningin sem ég var með á tímabili var eins og ég væri á færibandi og væri að fara fram af því beint í rusladallinn, þetta væri bara allt búið. Ég fór líka oft fram úr mér og þá kom bakslag og ég þurfti að hvíla mig í viku. Þetta hefur líka reynt á manninn minn. Heilsan var þannig að ég sá ekki fram úr þessu sem var mjög erfitt, því maður vissi ekkert hvað tæki við og hafði það á tilfinningunni að maður væri kominn á endastöð.“

Margrét hefur ferðast mikið og m.a. farið til Nice að læra frönsku.

Hefur lært að ekkert er gefið

Eftir Covid vann Margrét  í hlutastarfi haustið 2020 á sínum vinnustað, eins og áður sagði,  en fór aldrei aftur í fulla vinnu „Ég vann ekkert frá janúar 2024 og þar til í haust, 2025. Mig langaði til að vinna og fór að kenna. Ég er lærður kennari og var náttúrufræðikennari til langs tíma og umsjónarkennari. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið vinnu  í skólanum þar sem ég kenndi áður, Snælandsskóla. Þar er yndislegt starfsfólk og frábær börn.  Ég hef svo oft stokkið í djúpu laugina og út fyrir rammann í lífinu, ég elska áskoranir. Núna kenni ég erlendum börnum sem eru nýkomin til landsins. Þau eru yndisleg og að kljást við nýjar aðstæður og nýtt tungumál. Það er mikilvægt að mæta þeim þar sem þau eru stödd og aðstoða við að taka þátt í íslensku samfélagi. Starfið er 38% og ég kenni milli 8 og 10 á morgnana. Svo fer ég heim og legg mig jafnvel í 2 klst. Þetta hefur tekið á en er þess virði. Þetta hefur verið krefjandi,  en mjög gaman og gefandi, hefur gengið vel og ég hef fengið góð viðbrögð.

Mér finnst æðilegt að vera komin aftur í vinnu, klæða mig á morgnana og fara til vinnu. Ég tek eitt ár í einu og hef lært að ekkert er gefið. Ég hef oft hugsað – mikið vildi ég að ég hefði haft þann þroska sem ég hef í dag fyrir um 20-30 árum og kunna að setja mörk, vera ekki að gera marga hluti í einu eins og að vera í námi, vinnu, með börn og fleira á sama tíma. Það er rosalegt … Það er líka mikilvægt að næra andann og sálina og finna að þú hafir tilgang. Mikilvægt er að vera í núinu, skilja kjarnann frá hisminu og leyfa sér að vera í flæði. Leyfa því góða að koma til sín.

Mér var boðin meiri vinna en ég þori ekki í það strax, tíminn verður að leiða í ljós hvað verður. Ég gæti auðvitað hætt að vinna sökum aldurs en tími því ekki.

Ég hef ekkert gert mikið annað í vetur en að kenna og sinna því verkefni. Ég hef prjónað mikið á barnabörnin í gegn um tíðina. Ég var hálfnuð með peysu á eitt þeirra í haust, en ekki snert hana í allan vetur, ekki fyrr en ég var komin aftur í frí í sumar.Hef einfaldlega ekki haft orku í að prjóna í vetur. En heilsan er miklu betri,“ segir hún glöð í bragði, „ég var úti í garði fyrir nokkru að saga tré eins og ég gerði áður en ég fékk Covid. Það var dásamlegt að finna orkuna og kraftinn og minna sig á gamla tíð.“

Margrét segir að fólk sem sé með langtíma Covid megi ekki sjúkdómsvæða sig, eins og hún orðar það, við erum ekki sjúkdómurinn, og að vinnuveitendur þurfi að koma til móts við fólk sem getur ekki unnið 100% starf.

Ég er mjög þakklát mínum vinnuveitanda fyrir skilninginn. Að hitta fólk og láta gott af sér leiða er öllum nauðsynlegt, það er besta geðlyfið.

Margrét með eiginmanni sínum, Sigurði Hauki Gíslassyni, þegar bók hennar var tilkynnt til verðlauna á Storytel.

Þýðir ekki að sýta það sem ekki er

Maður fær alls konar verkefni í lífinu og maður bara tekst á við þau. Það er svo margt í lífinu sem mig langar að gera og ég hef verið að setja draumana í farveg svo þeir geti ræst. „Ég er búin að fara í skíðaferðir og göngur og er að fara til Nice í þriðja sinn á þremur árum til að hressa upp á frönskuna. Að fá að njóta og fylgjast með barnabörnunum stækka og blómstra er það dýrmætasta. Ég vil kynna fyrir börnunum og barnabörnunum það sem er mér kært og hugsa um arfleifina,“ segir hún.

Eftir þetta mikla ferðalag eru það ákveðnir hlutir sem Margréti finnst skipta mestu máli í lífinu. Skilaboð hennar eru skýr: „Njótum þess sem við höfum eins og við mögulega getum, á þeim forsendum sem við höfum, það vil ég gera. Það þýðir ekki að sýta það sem ekki er, ef við getum ekki gert eitthvað sem við vorum vön að gera, gerum þá bara eitthvað annað. Verum alltaf forvitin, hættum aldrei að vilja læra eitthvað nýtt.

Ég trúi svolítið á að lífið sé handrit, eða beinagrindin, og svo skrifum við það sjálf. Auðvitað hafa komið tímar þar sem ég hef hugsað, er þetta bara búið, verður þetta alltaf svona, að ég geti ekkert gert og verði alltaf þreytt. Breytingarnar gerast ekki sjálfkrafa, maður verður að vinna að þeim sjálfur og nýta sér þau bjargráð sem eru möguleg, alla þá hjálp sem maður getur mögulega fengið. Ég veit að það er fólk sem varla kemst fram úr rúminu, fólk sem var mjög aktíft, þetta fólk þarf hjálp og stuðning. Það er dýrkeypt að veita ekki þann stuðning. Það er alltaf von og í öllum aðstæðum eru tækifæri.“

Góð heilsa dýpkar alla hluti
Sumir segja að þriðja æviskeiðið geti verið einn besti tíminn í lífinu ef vel er á spilunum haldið. Kristín Björg Þorsteinsdóttir hætti að vinna fyrir tveimur árum en hún segir að góð heilsa sé grundvöllur þess að njóta lífsins á þessu skeiði en það góða sé að það aldrei sé of seint að byrja að hreyfa sig. Hún segist hafa þurft að venjast því að hafa allt í einu allan tímann fyrir sig en hún nýtur lífsins á margvíslega hátt. Tónlistin hefur alltaf skipað stóran sess í lífi Kristínar Bjargar og svo er enn.

„Ég er þeirrar skoðunar að þetta æviskeið geti verið það besta en það hangir á ýmsu, að maður sé við þokkalega heilsu og hafi það nokkuð gott fjárhagslega, geti notið hlutanna og lífsins, hreyft sig og farið í ferðalög innanlands og utan. Ég fór ekkert að hugsa um þetta æviskeið fyrr en hálfu til einu ári áður en ég hætti, þetta brestur allt í einu á og maður verður hálfundrandi á að vera kominn í þessa stöðu. Á sama tíma þakkar maður fyrir að fá að eldast.

Auðvitað geta allir notið einhvers en góð heilsa dýpkar allt og gerir allt betra. Hún er forsenda þess að geta verið sjálfstæður, ferðast á eigin vegum, vera ekki bundin öðrum og vera með í lífinu. Þó að fólk hafi ekki mikið stundað hreyfingu á yngri árum, þá þarf að koma sér upp húsnæði, ala upp börn og ýmislegt fleira og kannski ekki alltaf tími í hreyfingu en þess vegna að það er svo dásamleg tilhugsun að það sé aldrei of seint að byrja að hreyfa sig og helst svolítið daglega. Það er enginn að segja að þú eigir að fara út að hlaupa eða ganga frá þér allt vit. Þessar ráðleggingar sem eru gefnar, að fara t.d. daglega þrisvar í 10 mínútur út að ganga og eiga lóð heima til að grípa í eru aðgengilegar fyrir fólk en öll hreyfing hjálpar.

Ég syndi alltaf og hreyfi mig í lauginni. Ein fyrrverandi samstarfskona mín sagðist fara í laugina um hádegi því þá væri birtan mest. Ég er farin að gera þetta líka ef ég get, er ekkert að sperrast á morgnana í alls konar færð, hef það kósí yfir kaffibollanum á morgnana og fer þegar birtan er sem mest og fæ D-vítamínið. Þessir hlutir og breytingar á þeim taka svolítinn tíma þegar maður hættir að vinna. Mér fannst alltaf að ég yrði að klára hreyfingu fyrir hádegi, að sundlaugin færi bara í burtu ef ég mætti ekki snemma.“

Konur félagslega hæfari en karlar

Kristín segir að áhugamálin skipti gríðarlega miklu máli þegar komið er á þriðja æviskeiðið og þar telur hún að konur standi sterkari en karlar. „Konur hafa verið í alls konar hópum, þú sérð konur oft saman, þær fara í leikhús, á kaffihús, í göngutúra og til útlanda saman. Maður heyrir aldrei að fimm karlar fari saman til útlanda til að njóta. Ég vorkenni stundum körlum að hafa þetta ekki í sínu lífi en ég er með kenningu varðandi þetta. Konur koma sterkari út félagslega seinna í lífinu en karlar af því að sem stelpur og unglingar þurfum við oft að díla við jafnöldrur okkar. Við rífumst, móðgumst, þurfum að sættast á meðan strákar rífast og banka svo upp á 10 mínútum seinna og spyrja: Viltu koma í fótbolta?  Við erum vanari að fást við þessa hluti og jafnvel að stilla til friðar hjá börnunum okkar. Ég held að við séum félagshæfari en karlar. Mér finnst reyndar heiti potturinn í sundlaugunum vera völlur karlanna. Þar ræða þeir saman og finna jafnvel grundvöll til einhverrar vináttu eða tengsla.

Það má ekki gleyma öllum kórunum. Þar syngur fólk, sem er skemmtilegast og hlær sem er líka skemmtilegast. Það er farið í ferðalög og svo eru kórar náttúrlega svo paramyndandi,“ segir hún sposk. Þau eru ófá hjónaböndin sem hafa myndast í kórum.“

Byrjaði að baka á eftirlaunaaldri

Kristín Björg hefur farið nýjar leiðir eftir að hún hætti að vinna sem lúta að matargerð og bakstri. „Maður hefur náttúrlega allt í einu svo mikinn tíma. Ég fór skyndilega að baka komin á 70 ára aldur. Ég hafði einu sinni skreytt súkkulaðitertu og afmælistertu fyrir barnið okkar og það lá við hjónaskilnaði á miðnætti daginn fyrir veisluna. Þetta var bara ekki minn tebolli. Svo gerðist það að dóttir mín fór í Húsmæðraskólann í Reykjavík í eina önn og þá kviknaði einhver áhugi hjá mér.

Ég fékk í afmælisgjöf hálfa KitchenAid og vann í happdrætti hinn helminginn og komst að því að ég elska að baka og finnst gaman að eiga með kaffinu. Ég er ekki mikið í tertunum en baka hversdagslegri kökur eins og hjónabandssælu, jólaköku, kanilsnúða og sítrónukökuna hennar Nigellu, hún er algjör dásemd. Mér finnst heilandi að baka og svo tekur ilmurinn á móti fólki þegar það kemur heim. Ég baka líka normalbrauð en mig langar að færa mig upp á skaftið í brauðbakstri,“ segir hún og brosir. „Ég hef líka gaman af að vera með rétti víða að úr heiminum og það hefur komið í gegnum ferðalög. Ég elda ítalskt, kínverskt og mat frá fleiri löndum. Maður fær allt hráefni í þessa rétti í dag og fólkið mitt kannað meta þetta sem er mjög ánægjulegt. Að baka köku og elda góðan mat er bæði skemmtilegt og mjög þakklátt. Ég vona líka að atvinnurekendur og stofnanir skilji að ef fólk fær góðan mat í hádeginu þá skapast líflegri samræður og það fer miklu glaðara til sinna starfa en þegar allt fer að snúast um hvað maturinn sé óspennandi. Þetta skiptir gríðarlegu máli fyrir almenna vellíðan á vinnustöðum.“

Fyrirtæki sem undirbúa starfsfólk fyrir þriðja skeiðið

„Fólk þarf að undirbúa þetta aldursskeið því það getur tekið tíma að venjast því að vakna ekki lengur til vinnu, segir Kristín Björg. „Ég veit að ýmis fyrirtæki undir búa starfsfólk sitt fyrir starfslok og það sem tekur við og bjóða því upp á fyrirlestra, til dæmis BYKO og það er ekki einu sinni valkvætt. Mér finnst þetta frábært því það verða svo miklar breytingar í lífi fólks þegar það hættir að vinna. Mörgum leiðist svolítið og fara að sulla í víni, finnst þeir eiga skilið að fá sér drykk og því miður fer það stundum mjög illa,“ segir Kristín sem nýtur áfengislauss lífsstíls. „Það er svo margt hægt að gera. Sjálf fer ég mikið til útlanda, þó að ég ferðist ekki endilega um allt. Los Chirstianos er lítill bær á Tenerife sem við hjónin elskum að vera í. Við leigjum okkur litla íbúð, ströndin er frábær, þarna eru mörg kaffihús og einnig mörg góð veitingahús. Við höfum lent í leiðinlegu veðri en það er alltaf ýmislegt sem þarf að gera og maður nýtur, eins og að kaupa í matinn í litlu sérverslununum, fara á kaffihús og veitingahús. Maður fer ekki jafn hratt yfir og maður gerði áður og fólk verður að sýna sjálfu sér skilning með það þó að það geti ekki gert hlutina eins hratt og áður.“

Félagsleg tengsl mikilvæg

Kristín vann stærsta hluta starfsferilsins á RÚV og kynntist þar eiginmanni sínum en endaði á Umferðarstofu og var þar síðustu 20 árin áður en hún lauk starfsævinni. „Ég hef alltaf mikil tengsl við fólk á RÚV og þar hafa mörg hjónabönd orðið til,“ segir hún kímin. „Ég hitti vinkonur mínar þaðan yfirleitt fyrsta laugardag hvers mánaðar.“

Kristín Björg ólst upp við tónlist en faðir hennar, Þorsteinn Hannesson, var óperusöngvari og söng m.a. við Convent Garden-óperuna í London. Sjálf stundaði hún tónlistarnám og hefur söngurinn einnig fylgt henni alla tíð. „Ég fór í tónmenntadeild Tónlistarskóla Reykjavíkur og útskrifaðist þaðan sem tónmenntakennari en hafði lært sem barn á píanó, hætti á unglingsárunum en byrjaði svo aftur.

Ég tók 7. stig á píanó, lærði hjá Halldóri Haraldssyni og lærði söng hjá Ruth Magnússon. Marteinn Hunger dómorganisti kenndi mér og Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld líka. En mínir tveir helstu mentorar í tónlist voru Þorgerður Ingólfsdóttir sem var með MH-kórinn og Marteinn Hunger dómorganisti. Þau mótuðu mig bæði enda einstakar manneskjur og gott fólk til orð og æðis. Marteinn var rosalega flinkur organisti og kórstjóri en hann kenndi mér kórstjórn í tónlistarskólanum og á orgel í tvo vetur og lét mig hafa lyklana að Dómkirkjunni til að æfa mig. Tónlistin er heill heimur og dásamlegt að fá að kynnast öllum þessum tónbókmenntum og tónskáldum. Tónlistinn yfirgefur mann aldrei.“

Kristín lærði síðar sjónvarpsupptöku (pródúsjón) í Bandaríkjunum og fór að vinna við það. Ég tók BS-gráðu í sjónvarpsupptökum. Ég hafði unnið sem skrifta og fékk svo starf á RÚV og var þar til 1998 þegar öllu sjónvarpsupptökufólkinu var sagt upp. Ég fór til Umferðarstofu, sem seinna var Samgöngustofa, í barnafræðslu og það var rosalega skemmtilegt. Ég gerði svo ýmisleg annað þar eins og að skrá flugatvik og umferðarslys og endaði á skjalasafninu þar til ég hætti að vinna.“

Tónlistin yfirgefur mann aldrei

Kristín ræktar sín áhugamál og tónlistin ber þar eðlilega hæst. „Ég náttúrlega elska tónlist og umhverfi hennar og reyni að vera dugleg að sækja tónleika. Ég hef sungið í MH-kórnum síðan 1975 og árið 1978 fór ég í Dómkórinn hjá Marteini Hunger þegar hann stofnaði hann. Ég gerði eins og Marteinn sagði um kórfélagana, það hættir enginn, fólk tekur sér bara mismunandi löng hlé. Ég er í hóp sem heitir Sönghópurinn Marteinn en við köllum okkur „Hinn dæmalausa Dómkór“. Við æfum hálfsmánaðarlega yfir veturinn og oftar ef eitthvað stendur til. Við höfum farið tvívegis á kóramót, einu sinni á Tenerife og einu sinni á meginlandi Spánar en Þórunn Björns, ekkja Marteins, er potturinn og pannan í þessu og stjórnar hópnum og svo eru fleiri líka sem koma að ýmsu þarna. Þetta er allt fólk sem var hjá Marteini í Dómkórnum. Nú fara makarnir með okkur í ferðalög, við erum yfir 50 manns og þetta er unaðslegur félagsskapur,“ segir Kristín Björg með áherslu. „Það hefur alltaf ratað í Dómkórinn svakalega gott fólk og aldrei neitt vesen. Þarna eru kennarar og margir sem hafa verið í ábyrgðarstöðum sem njóta þess að þurfa ekki að taka ákvörðun um alla hluti og að láta bara segja sér hvað verði gert næst; það segir bara aha og borgar með ánægju. Það var árshátíð fyrir stuttu og aðsóknin sló öll met, þannig að þetta er öflugur hópur sem hefur gaman af lífinu.“

Einstakt á Heilsustofnun Hveragerðis

Kristín dvaldi fyrir nokkru á Heilsustofnun í Hveragerði og hefur farið nokkrum sinnum þangað undanfarin fjögur ár. Hún hrósar verunni þar mikið. „Ég er alltaf rosalega ánægð en ég kom hingað fyrst árið 2022 og var hér núna í fjórar vikur. Þarna er heilrænt prógramm, allt svo faglegt og maturinn stórkostlegur. Ég var í sjúkraþjálfun, fór í göngutúra, heit böð, sundleikfimi og jafnvægisæfingar sem eru mjög mikilvægar fyrir fólk á þessu æviskeiði. Svo voru fyrirlestrar daglega um andlega líðan og líkamann, markmiðasetningu, verki og hvernig sé gott að vinna úr þeim, svo var núvitund á morgnana, heitir bakstrar á kvöldin; ég get nánast talið endalaust upp hluti sem eru í boði. Það er líka lögð mikil áhersla á að maður hvíli sig og ofgeri sér ekki þarna. Félagsskapurinn er svo skemmtilegur, alltaf margt fólk til að tala við, aldrei illt umtal og andinn er einstaklega góður og hefur víst alltaf verið. Það er líka verið að koma fólki af stað í hreyfingu og annað sem það getur svo viðhaldið og haldið áfram með, það er hugsunin. Þetta er algjör paradís og ég mæli með þessu fyrir alla sem þurfa, og vilja hugsa um heilsuna, segir hún sannfærandi.“

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Vefnaðurinn er að komast í tísku alls staðar í heiminum
Vefnaður barst hingað til lands með landnámi en hann er eitt elsta form handverks sem til er. Hér á landi hefur þeim fækkað sem iðka þetta forna handverk en konur sem voru hættar að vinna tóku sig saman fyrir þó nokkrum árum og eru með vefstofu í Hafnarfirði þar sem þær láta sköpunargáfuna njóta sín og afraksturinn er allt í senn fallegur, notadrjúgur og umhverfisvænn.

Konurnar sex, þær Friðbjörg Kristmundsdóttir, Brynja Guðmundsdóttir, Helga Zoega, Herborg Sigtryggsdóttir, Jóhanna Ragnarsdóttir og  Steinunn Pálsdóttir eru með vefstofu sem þær kalla Mýró á Miðvangi 41 í Hafnarfirði í húsnæði sem er fyrir aftan Nettó í Norðurbænum og þangað getur fólk komið og keypt af þeim allt frá pottaleppum upp í gólfmottur, sjöl og teppi en sjón er sögu ríkari.

Konurnar eru hættar störfum, eða starfa ekki lengur sem launþegar, en allmörg ár eru síðan ein þeirra keypti vinnuplássið. Þær segja það mikilvægt að fá tækifæri til að skapa með þessum hætti auk þess sem félagsskapurinn gefi þeim mikið. Þær Helga, Jóhanna, Herborg og Steinunn eru vefnaðarkennarar, frá Myndlistarskóla Reykjavíkur, en ekki er lengur hægt að útskrifast sem vefnaðarkennari þaðan en Herborg og Steinunn voru ekki viðlátnar þennan dag þegar blaðamaður kíkti í heimsókn. Friðbjörg og Brynja lærðu vefnað í Svíþjóð og fara reglulega á námskeið þar. Konurnar segjast koma þegar þær vilja og geta en að einhver þeirra sé á staðnum daglega. Á miðvikudögum eru þær hins vegar allar á vinnustofunni og þá kemur fólk að versla og aðrir vefarar koma líka og það er mikið spjallað.

Brynja Guðmundsdóttir er eigandi að húsnæðinu. „Ég keypti þetta húsnæði til að setja upp vefstofu. Ég hef tekið ýmis námskeið bæði hér heima og í Svíþjóð en við Friðbjörg áttum báðar vefstóla, við keyptum einn vefstól og fengum hinn gefins í Svíþjóð. Ég keypti upp vefstofu sem var í Elliðaárdal og hlutir þaðan eru hér. Ég vef það sem mér finnst spennandi og líka upp í pantanir. Nú þarf ég að skila þremur treflum fyrir konur sem vildu fá trefil eins og ég var með,“ segir hún og brosir. Ég rak gallerí á Skólavörðustíg sem hét Stígur en svo seldi ég það, þar var svo sem engin myljandi sala af vefnaði, fólk var að leita eftir málverkum og keramík. Fólki finnst vefnaður oft dýr en áttar sig ekki alveg á hvað þetta er, vinnan er mikil og endingin afar góð. Það er frekar að útlendingar kaupi þessar vörur.“

Jóhanna Ragnarsdóttir, vefnaðar- og myndlistarkennari, kenndi í Setbergsskóla og Víðisstaðaskóla. Hún byrjaði að kenna vefnað í húsmæðraskóla en það breyttist. „Þessir skólar fóru svo úr tísku og duttu út en þá fór ég að kenna myndlist. Mínar aðstæður breyttust og ég varð að selja vefstólinn minn en ég hafði selt mikið hjá Íslenskum heimilisiðnaði. Ég bjó í Búðardal og vann á verkstæðinu hjá Karólínu og hjálpaði Ásgerði Búadóttur þegar hún fór að missa sjón og var að vefa. Þannig að vefnaðurinn hefur alltaf verið nálægt mér. Þegar maðurinn minn dó vissi ég ekkert hvað ég ætti að gera en þá frétti ég af þessari vefstofu og það hefur reynst mér mjög vel að vera hér. Hér er sköpun og félagsskapur og maður hlakkar alltaf til að koma. Svo er þetta svo hvetjandi andrúmsloft því það eru ekki allir sem vilja tala um vefnað,“ segir hún og þær skella allar upp úr.

Sú eina á landinu sem vefur þjóðbúningasvuntur

Friðbjörg Kristmundsdóttir er lærður hárskerameistari og starfaði lengi sem slík. Hún lærði vefnað í Svíþjóð og sótti þar námskeið. Friðbjörg er með síðuna Friðbjörg vefari á Facebook.

„Samstarf okkar Brynju byrjaði þannig að við fórum saman til Svíþjóðar á námskeið í damaskvefnaði. Við Brynja ætluðum bara að vera með aðstöðu í bílskúrnum heima hjá mér, það reyndist ekki nógu gott þannig að Brynja keypti þetta húsnæði hér í Norðurbæ Hafnarfjaðrar og hér höfum við verið í 14 ár. Við erum með 12 vefstóla og veitir ekkert af því það verður að vera hægt að fara á milli svo maður þurfi ekki að bíða eftir komast að vefstól.

Við byrjuðum tvær hér en svo kom Herborg sem rekur verslunina Handíðir og var áður með aðstöðu fyrir verslun og námskeið, í Hamraborginni sem var lögð niður, Hún vefur m.a. þjóðbúningasvuntur og er sú eina á landinu sem gerir það en nú er uppsveifla í gangi og margar konur sem vilja eiga íslenska þjóðbúninginn. Vefnaðurinn er líka að komast í tísku og það gildir alls staðar í heiminum, eftir því sem maður les. Það er þessi hægi taktur og núvitundin sem felst í því að vinna svona í höndunum og skapa um leið en einnig að vera með flíkur eða annað sem gengur jafnvel milli kynslóða. Þessi áhugi sést í Félagi vefnaðarkennara og vefara. Nú er hægt að læra vefnað í Myndlistarskóla Reykjavíkur og þaðan útskrifast fólk með kunnáttu í að vefa og á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðarskólanum. Listaháskólinn lagði niður textíldeildina þegar Myndlista- og handíðaskólinn var og hét en krakkarnir sem eru í námi í fatahönnun í LHÍ vilja kynnast vefnaði og bindingum frá grunni,“ segir Friðbjörg.

Fjölbreytilegt og fallegt

Þær stöllur vefa allt mögulegt eins og trefla, damaskpúða, teppi og fleira en þær eru líka með handklæði sem eru mjög vinsæl. „Fólk sem prófar hörhandklæðin vill ekki annað, því þau þurrka vel og þorna mjög fljótt. Brynja býr til baby-wrap til að bera börn framan á sér og við erum með barnateppi. Auk þess teppi til að breiða yfir sig, löbera og diskamottur. „Við vefum það sem okkur langar til að gera þá stundina. Við reynum að gera þetta þannig að allar geti farið í stólana og unnið úr sömu uppistöðunni af því að mesta vinnan liggur í að setja upp og þá erum við kannski að setja upp 20-25 metra og þó að við séum að vinna í sömu uppistöðunni þá verða verkin ólík því hver og ein hefur sína liti og hugmyndir um hvernig hún vill hafa verkið. Við erum svo ólíkar svo útkoman er margbreytileg,“ segir Friðbjörg.

Konurnar voru með á sýningu í Gallerí Fold fyrir nokkrum árum og þar var t.d. listaverk með hrosshárum eftir Jóhönnu og hörverk sem hengja má í glugga eða á vegg, eftir Helgu og er það nú í glugga vinnustofunnar ásamt öðru verki eftir eftir Friðbjörgu sem einnig var á sýningunni. Helga er lærður vefnaðarfræðikennari og útskrifaðist árið1964 en kenndi aldrei vefnað heldur textíl, lengst af í Seljaskóla og Hamraskóla. „Ég minnkaði við mig húsnæði fyrir um fjórum árum og velti fyrir mér hvort ég ætti að selja vefstólinn minn en mér var þá boðið að vera með hér og ég nýt þess til hins ýtrasta. Hér er yndislegt að vera, við erum allar að vefa sem er okkar sameiginlega áhugamál og gott að hitta konurnar og spjalla. Við erum ekki í listvefnað enda ekki með listvefnaðarstól,“ segir hún, en á einum vegg hangir fallegt veggteppi sem mun í raun vera rúmteppi, og Helga tekur fram að það gleymist stundum að textíll á vegg er hljóðeinangrandi og sömuleiðis gólfmottur.

Nýta gömul föt í verkin

Konurnar eru umhverfisvænar í hönnun sinni og vefa úr endurunnu efni, til dæmis gólfmottur, púða, pottaleppa, mottur undir heita potta eða föt. Á vinnustofunni eru því margir stórir pokar fullir af taui sem þær eru búnar að rífa niður. Og tauið er í raun alls staðar, meira að segja í kókkælinum, sem var fyrir þegar þær komu, er endurvinnsluefni.

„Við nýtum allt mögulegt enda eru margir fullir pokar af gömlum gallabuxum, sængurfötum og ýmsu, bara nefndu það,“ segir Friðbjörg og dregur fram gólfmottur sem hún vann fyrir endurnýtingarsýningu í Reykjanesbæ. „Við kaupum líka garn hjá Rauða krossinum og höfum notað í mottur.“

„Allt efni sem er sérstaklega til vefnaðar kaupum við úti það er ekki svo mikið úrval hér heima, við förum og sækjum efnin,“ bætir Brynja við.

Getur fólk pantað hjá ykkur til dæmis mottur í ákveðum litum? „Já það er alveg mögulegt, ef við eigum litina til, við erum opnar fyrir öllu. Við viljum samt vinna aðallega efir eigin sköpunarþörf fremur en pöntunum en við erum allar af vilja gerðar,“ segir Friðbjörg.

Á vefstofunni hefur verið stundum opið hús og konurnar einnig haldið sýningar þar. Finna má verk kvennanna á Facebook á síðunum Skarfur, Mýró og Friðbjörg vefari og Handíðir þar sem fólk getur bæði séð verkin og haft samband til að nálgast kaup því misjafnt er hvenær þær eru við og hve margar. Þó eru þær allar á vefstofunni eftir hádegi á miðvikudögum, eins og áður sagði.

Skarfar

Friðbjörg og Herborg hönnuðu ullartrefla úr íslenskri ull og kynnt á markaði Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu 2022. Treflarnir fást hjá Handprjónasambandinu, á Kjarvalsstöðum, Þjóðminjasafninu, í Þingborg Ullarverslun, á Snyrtimenni.is á Selfossi og í Mýró í Hafnarfirði.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Í skjóli þagnarinnar fá slæmir hlutir að ríkja
Melkorka Laufeyjardóttir, söngkona og sálgæslufræðingur, stundaði nám í Hollandi. Rannsóknarverkefni hennar til meistaraprófs fjallaði um tengsl ofbeldis á konum við  fæðingar fyrirbura. Sjálf var hún rannsóknarefni, auk fleiri kvenna. Líf Melkorku hefur ekki alltaf verið dans á rósum en hún er baráttukona og lætur aldrei bugast. Erfiða reynslu hefur hún nýtt til gagns fyrir aðra í von um að það geti leitt eitthvað gott af sér.

Melkorka með Selmu.

Sumar fjölskyldur eiga í erfiðleikum sem elta þær milli kynslóða

Melkorka fann sína leið til að komast í gegnum erfiðleika í lífinu og segist vera sátt við Guð og menn í dag. Hún er úr fjölskyldu þar sem aðstæður voru óviðráðanlegar og sköpuðu erfiðleika sem virtust erfast á milli kynslóða, rétt eins og áföll. „Heimili mömmu var leyst upp þegar pabbi hennar lést árið 1939, hún var sjö ára. Mamma var send á sveitabæ, látin vakna kl. 5 á morgnana til að vinna og var beitt líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Svipaða sögu var að segja um ömmu. Sumar fjölskyldur verða hornreka og hálfgert skotveiðileyfi er á þær vegna stöðu þeirra, sem er verri en annarra.

Ég er slagsmálahundur. Við erum öll sterk systkinin en sundruð og ólumst upp við mjög erfiðar aðstæður. Við vorum send á upptökuheimili og þau mál eru ekkert rædd, nema við elsti bróðir minn ræðum þau. Hann fór eiginlega verst út úr þessu en spjaraði sig samt. Ég var í fimm ár á upptökuheimilum en það eru engar skráningar um nokkurn hlut sem skiptir máli, bara að ég hafi verið þarna.“

Margir hafa erfiða reynslu af upptökuheimilum eins og dæmin sanna. Melkorka segir að allir hafi eitthvað slæmt í sér en aðstæðurnar sem fólk elst upp við ráði því hvort fólk þrói þá þætti mér sér eða þá góðu. „Við erum lítil þjóð og í fjölskyldum okkar allra er örugglega einhver barnaníðingur, þjófur, morðingi eða önnur misindismanneskja sem við viljum helst ekki vita af og skömmumst okkar jafnvel fyrir. Við höfum þessi fræ í okkur en sum fræ fá að dafna og önnur ekki og hvað er það þá í umhverfinu sem gerir það að verkum að vondir hlutir fá að dafna? Það er í skjóli þagnarinnar.“

Selma.

Viðurkenning á ofbeldinu mikilvæg

„Ég hlustaði á sögu Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttir af kynferðisofbeldi sem hún var beitt, en hún var brautryðjandi í baráttu gegn því hér, og ákvað þá að skrifa landlækni bréf um ofbeldi sem ég var beitt á Kleppi. Landlæknir viðurkenndi það, sem var mér dýrmætt. Ég fékk líka bréf frá fyrrverandi yfirlækni barnalækninga varðandi fæðingu Selmu dóttur minnar en meðferðin á mér, bæði á meðgöngunni og á Vökudeild, helgaðist af því að ég væri kleppari. Ég var lögð inn á Klepp eftir að hafa reynt að stytta mér aldur, en ég missti fótanna þegar bróðir minn lést, hann rann undir bíl föður míns þegar hann og fleiri strákar voru að teika.

Í bréfi yfirlæknisins var þetta þó ekki sagt berum orðum.“ Melkorka segir að þessi framkoma hafi mótast af því að hún kom úr ákveðnu umhverfi og átti ákveðna fortíð. „Sá sem hefur verið á Kleppi á ekki talsmann, jafnvel þótt hann sé í góðum efnum og hafi gengið vel, enn þann dag í dag hægt að sparka í þig og þú ert ekki tekinn alvarlega. Ég er óvirkur alkóhólisti og er með arfgengt þunglyndi en ég held þessum sjúkdómum niðri. Ofbeldi og fylgifiskar þess er svo víða í fjölskyldum en það er þessi þögn sem er verst og þess vegna valdi ég þetta heiti á meistararitgerðina mína: Hear my voice, eða Heyrðu rödd mína.“

Melkorka málar og hefur haldið sýningar á verkum sínum.

Melkorka segir að ekki hafi verið hægt að setja út á læknisfræðilega meðferð Selmu, en að ekki hafi verið nægilega hlúð að foreldrum og aðstæður oft bágbornar sem hafi haft áhrif. „Það var ekki var hlustað á innsæi mitt og má segja að það hafi komið niður á meðferð Selmu. Á meðgöngunni var aldrei litið til þess að ég var líkamlega veik, að ég vissi að það var eitthvað að gerast með barnið mitt. Selma var fyrirburi, fæddist í október 1991 og kannski var henni ekki  sinnt nægileg á Barnaspítalanum vegna orðspors míns. Einu sinni lá hún inni á skoli í rúmi í ælu. Hún var á spítalanum frá 1992-1995 en hún dó það ár.

Ég rak fyrirtæki og sá fyrir okkur fjölskyldunni en ég átti ofbeldisfullan eiginmann. Selma fékk endurteknar sýkingar út frá ventlum og hafði farið í aðgerð deginum áður en hún dó vegna sveppasýkingar. Ég fékk fyrirboða og fann að það var verið að koma að sækja hana. Ég var sátt við það en ég var búin að segja að ég myndi ekki vilja að hún yrði endurlífguð ef til þess kæmi, þetta var ekkert líf. Hún var svo fín morguninn eftir aðgerðina en ég vissi að hún væri að deyja. Ég segi þá við einn barnalækninn: Hún er að deyja og hann svaraði: Æ, þú ert alltaf svo undarleg. Svo var hringt seinna um daginn og þá var sálin í raun farin og ég vildi koma í veg fyrir að hún yrði sett í öndunarvél, heldur fengi bara að fara.“

Melkorka varð ófrísk stuttu eftir að Selma dó og fann að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. „Það var eitthvað að gerast á 24.-25. viku. Ég fór til læknis en var alltaf send heim og ekki hlustað á umkvartanir mínar. Það var svo sveitalæknir í endurmenntun sem ákvað að skoða mig og sá þá að leghálsinn var opinn, þá tóku menn við sér og ég var saumuð en það var bara of seint. Ég var búin að gera samkomulag við tvo lækna um að ef ég eignaðist fyrirbura aftur, þá yrði engin endurlífgun á ófædda barninu.

Ég fæddi lifandi stúlku en læknarnir höfðu tekið ákvörðun mína gilda. Ég vildi ekki bjóða henni upp á sama líf og Selma átti. Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum nokkurn tíma; rödd sem öskrar innra með þér að þú viljir að barnið þitt fái að deyja og lifi ekki svona, en um leið ertu að taka það af lífi.“

Melkorka og Forni, eiginmaður hennar.

Fór í guðfræði til að fá svör

„Þrátt fyrir að vera með þessa brennimerkingu eða verða fyrir fordómum eins og fyrir að  hafa verið á Kleppi þá komst ég alltaf áfram í lífinu. Ég var t.a.m. í Félagi kvenna í atvinnulífinu og var valin ein af fimm konum til að vera leiðbeinandi fyrir konur í Eystrasaltslöndunum á vegum Norrænu ráherranefndarinnar árið 2000.

Ég hef alla tíð verið trúuð og það er mikil listhneigð í fjölskyldunni. Ég er einkabarn föður míns sem hirti ekkert um mig en ég varð að fá einhverja skýringu á því af hverju allt þetta hefði gerst í mínu lífi. Ég spurði Guð oft að því, eins og Harold Kushner: Af hverju gerast vondir hlutir í lífi góðs fólks? Ég fór í guðfræði og taldi að þar fengi ég svar, fyndi frið og fengi uppreist æru.

Ég hóf námið heima og var orðin 58 ára þegar ég fór til Hollands, fékk Erasmus-styrk og kláraði B.A.-námið frá háskólanum í Utrecht. Ég fór svo í framhaldsnám í sálgæslu og trúarbragðavísindum. Námið var ekki undir merkjum neinnar trúar og mér finnst sú sálgæsla miklu heiðarlegri og meira gefandi en sú sem er í anda hinnar evangelísku-lútersku kirkju. Ég stundaði einnig nám í kóraninum og íslamstrú í eitt ár. Ég hafði sagt mig úr þjóðkirkjunni þegar ég var tvítug og ákvað fara ekki inn í hana aftur. Námið gaf mér nánast sama rétt og prestar hafa á Íslandi, ég má gifta, jarða o.fl. en mitt nám yrði þó aldrei samþykkt heima, guðfræðin þar er bundin við kirkjuna. Ég er sálgæslufræðingur utan kirkju og starfaði innan heilbrigðisgeirans.“

Melkorka mála þetta verk samhliða krabbameinsmeðferð bróður hennar.

Ofbeldi hefur áhrif á fyrirburafæðingu

„Þegar kom að því að ákveða lokarannsóknarefni fyrir meistararitgerðina vandaðist málið. Eftir tvær tilraunir að verkefni ákvað ég að berjast fyrir því að fá að skrifa um mína eigin sögu eða ethno authobiographic research. Ég rannsakaði sjálfa mig, ferlið í samskiptum við sjúkrastofnanir og ferli okkar mæðgna, auk þess sem ég tók viðtal við sjö konur sem voru beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi sem börn og ungar konur. Ég hafði ákveðna rannsókn til viðmiðunar og þá með tilliti til kvenna sem áttu fyrirbura en rannsóknir sýna að ein af hverjum fjórum konum sem hafa verið í og voru í ofbeldissamböndum fæða fyrirbura. Ég var með leiðbeinanda frá University of South Florida sem átti fatlaða dóttur og hafði rannsakað ofbeldi gagnvart fötluðum þar sem þau vistast.“

Rannsókn Ólafar sýndi að kona sem er „brennimerkt eftir ofbeldissamband“ eða er í ofbeldissambandi, glímir við afleiðingar þess og fær litla sem enga hjálp, fæðir frekar fyrirbura. „Það sem gerist á meðgöngu hjá konum sem búa í ofbeldissamböndum er að ofbeldið eykst til muna. Þá eru konurnar viðkvæmari og varnarlausari. Þetta er mín reynsla og líka reynsla þeirra kvenna sem ég ræddi við. Margir spyrja: Af hverju fórstu ekki? Staðreyndin er sú að þetta er Stokkhólmsheilkenni. Þetta var ástæðan fyrir því að ég sótti fast að fá að gera þessa rannsókn, sem er fyrsta ethno authobiographic-rannsóknin á þessu sviði sem var gerð í Hollandi.

Ein konan í minni rannsókn var beitt kynferðislegu ofbeldi af afa sínum og amman horfði á. Önnur kona var beitt mjög grófu ofbeldi þegar hún fór í sveit á sumrin. Báðar eru þær fyrirmyndarkonur í dag og þú myndir aldrei ímynda þér annað en að allt hefði verið gott í þeirra uppvexti. Rannsókn mín var læknisfræðileg, siðfræðileg og guðfræðileg og sýndi að það óeðlilegt ferli í boðefnum heilans hjá þessum konum sem kemur af stað fyrirburafæðingu.

Ofbeldi hefur löng og viðvarandi áhrif, meðal annars á heilann. Fólk getur komið eðlilega fyrir en þeir sem hafa verið beittir ofbeldi geta átt erfitt með líkamlegt samneyti við maka sinn, hluti af lífinu er dáinn og farinn. Konurnar sem ég talaði við í rannsókninni voru venjulegar konur, í góðum stöðum og frá góðum heimilum fyrir utan konuna sem afi og amma beittu kynferðisofbeldi. Þetta er alheimsvandamál sem finnst á okkar litla landi eins og annars staðar. Ofbeldi gengur á milli kynslóða innan fjölskyldna og að sama skapi eru ofbeldismenn og -konur búin til.“

Melkorka tók starfsnám í meistaranáminu og fór á starfstöð þar sem var fólk með heilabilun. „Þarna var fólk með ákominn heilaskaða eftir slys, sjálfsvígstilraunir og heilablóðföll. Þá var ég nýbúin að fregna, eftir rannsókn á sjálfri mér, að ég væri með alvarlega heilaáverka eftir líkamlegt ofbeldi sem ég var beitt árið 1972 og allar líkur á að ég gæti fengið er heilablæðingu hvenær sem er. Ég ákvað að hlusta ekkert á þetta. Eftir námið lét ég gera aðra rannsókn og í ljós kom að ég er með mikinn örvef í heila sem er afleiðing af heilablæðingum og ég er útsett fyrir að fá heilablóðfall. Þetta eru afleiðingar ofbeldis. Kannski er það bara mín lífsbjörg að ég hafi einhverja heilabilun,“ segir Melkorka glettin og brosir sínu bjarta brosi.

Melkorka hefur velt fyrir sér hvers vegna sumir beita ofbeldi og hvar það eigi upptök sín. „Hvers vegna beitir manneskja ofbeldi í nánu sambandi? „Ég skynja einmanaleikann og sársaukann sem býr innra með ofbeldismanninum. Og ég skynja líka eigið ofbeldisfræ vegna þess að ég er alin upp við þetta sem barn á upptökuheimilum og veit hvernig þetta í raun er.“

Melkorka á síðasta starfsdeginum sem sálgæslufræðingur.

Boðið starf til að vinna með eigin aðferð

Þegar Melkorka var 63 ára var henni boðið starf sem sálgæslufræðingur í Hollandi á heimili fyrir fólk með heilabilun. „Þar fékk ég að nota aðferð sem byggðist á minni eigin aðferðafræði, hvernig ég nálgaðist þann sem var veikur, var að fara að deyja eða aðstandendur. Í Hollandi þarf maður að biðja um leyfi ef maður vill fá að snerta fólk, halda í höndina á því eða faðma. Ég notaði þetta mikið. Mikilvægast í sálgæslunni er að hlusta og ef skjólstæðingur hefur þörf fyrir líkamlega nánd af þessu tagi, þá má það. Ég var þarna í tvö ár en þá fluttist ég til Spánar. Þar hef ég verið síðan en ég sneri mér að fasteignarekstri og leigi út ferðamannaíbúðir. Auk þess mála ég myndir. Ég er sátt við sjálfa mig eins og ég er. Ég hef ekkert til að skammast mín fyrir. Ég er eins og fuglinn Fönix, ég rís alltaf upp og ég á mann sem er algjör engill,“ segir hún og brosir. „Ég er ekkert stolt af því að hafa þurft að þola ofbeldi en þakklát fyrir að hafa haft þor til að tala um mína reynslu. Því miður lifum við á tímum þar sem ofbeldi er alls staðar, styrjaldir, morð og reynsla drengjanna af Bakkakoti er nærtækt dæmi. Ofbeldissaga fjölskyldu minnar er hins vegar búin, henni lýkur með mér.“

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.

Ég grét og grét, stríðið var svo mikið áfall
Júlía Rachenko og Ásgeir Magnús Ólafsson hafa aðstoðað flóttafólk frá Úkraínu frá upphafi komu þess hingað. Þau segja fólkið hafa verið þakklátt og viljað gera gagn, en vilji  snúa aftur og taka þátt í uppbyggingu í landinu. Þegar svona neyðarástand skapist af mannavöldum sjáist hvað má betur fara og hvað sé gert vel þegar tekið er á móti flóttafólki.

Júlía Rachenko, er viðskiptafræðingur að mennt og kom til Íslands 2008 til að bæta við sig ensku.

„Vinkona mín var á Íslandi og sagði að hér töluðu allir mjög góða ensku og að boðið væri upp á opið gott prógramm. Ég ákvað að skella mér hingað þó að ég vissi ekki einu sinni hvar landið var. Ég hitti síðan barnsföður minn og sá að ég myndi ílengjast hér.“ Júlía skildi við barnsföður sinn og kynntist núverandi sambýlismanni sínum síðar, Ásgeiri Magnúsi Ólafssyni.

Hjálpa fólki í gegnum samfélagsmiðla

Svo skellur þetta stríð á í heimalandi þínu og þið hafið aðstoðað flóttafólk, í hverju felst það? „Ég er með Facebook-síðu sem heitir Úkraínumenn á Íslandi sem ég stofnaði fyrir um 4 árum en ákvað svo að opna hópinn meira þannig að allt fólk frá Úkraínu gæti komið í hann. Í upphafi hjálpum við fólkinu með því að veita upplýsingar og við svöruðum fyrirspurnum og höfum gert það sem við getum,“ segir Júlía.

Ásgeir segir að þegar stríðið skall á hafi orðið eins konar sprenging. „Það var náttúrlega algjör tilfinningarússíbani hjá fólkinu. Ég var erlendis en samtölin við Júlíu voru mjög erfið, hún var gjörsamlega niðurbrotin, ætlaði að rjúka beint út og ná í mömmu sína. Það voru alls konar tilfinningaleg viðbrögð, eðlilega, og það var vinna hjá okkur að ná tökum á hlutunum tilfinningalega séð til að vera í stakk búin að sinna flóttafólkinu og öðrum verkefnum fyrst eftir að stríðið skall á. En í dag er komið betra skipulag á hlutina en þau halda engu að síður áfram að aðstoða.

„Þetta var mikið áfall og ég átti erfitt með að meðtaka þetta stríð, ég grét mikið og gat ekki hætt, ég var við að það kasta upp, ég grét svo mikið, þetta var svo mikið áfall,“ segir Júlía.

Menn báðu okkur fyrir eiginkonur sínar og börn

Hvernig er ástandið á fólkinu þegar það kom hingað, tilfinningalega og líkamlega? „Fólkið átti rosalega erfitt, það vissi ekkert hvert það væri að fara. Ég fékk skilaboð frá eiginmönnum og verið beðin um að hjálpa konum þeirra og börnum að koma. Þetta fyrsta skref var mjög erfitt.

Oftast er þetta fólk sem hafði allt heima hjá sér. Það átt líka stundum erfitt með að þiggja að það væri greitt fyrir hjálpina.

Júlía bendir á að margir hafi reynst mjög hjálpsamir t.d. hjá Útlendingastofnun og bent fólkinu á rétt þess. „Fólk er mjög þakklátt fyrir hótelherbergin og matinn og vildi reyna að komast sem fyrst í vinnu. Þetta er eitthvað í menningunni segir hún. „Það var hámenntað fólk þarna innan um, eins og læknar, verkfræðingar og kennarar en fólkið hefur verið til í hvaða vinnu sem er.“

Ásgeir skýtur inn í að fólk í Úkraínu sé vant að vinna mikið og telji það ekki eftir sér. „Mamma Júlíu er hjúkrunarfræðingur og vinnur 12 klst. á dag sex daga vikunnar og það er bara normið, þessu fólki finnst það ekkert mál.“

Aðspurð um Facebook-síðuna sem Júlía heldur úti, segir hún að þau bendi fólki þar á hvert það geti leitað eftir aðstoð, t.d. til stofnanna. „Þetta var mikið í byrjun, því það lágu ekki fyrir góðar upplýsingar.“

Júlía segir að stuðningur þeirra við flóttafólkið hafi líka í gegnum fleiri síður en hennar, m.a. Support Ukraine o.fl. Ásgeir bendir á að þau hafi einnig komið að félagi sem Sveinn Rúnar Sigurðsson læknir setti á laggirnar sem heitir Flottafólk, ekki Flóttafólk, tekur hann fram.  Þar var tekið á móti fjárframlögum einstaklinga og fyrirtækja sem og ýmsum varningi.

Flottafólk opnaði á fyrstu dögum innrásarinnar aðstöðu í Guðrúnartúni til að taka á móti fólki þar sem boðið er upp á ýmsa aðstoð, samveru, máltíðir og nauðsynjar. Einnig hefur Flottafolk opnað á fleiri stöðum aðstöðu fyrir barnagæslu og félagsstarf.

„Þetta er allt frábært starf, en okkur fannst að ríki og sveitarfélög hefðu þurft að kveikja á því að finna aðstöðu strax þar sem hægt væri að hlúa að fólki, það hafi stuðning hvert af öðru og geti átt samskipti. Skólarnir eru t.d. ónotaðir seinni part dags og hefði mátt nýta þá. Fólkið er mjög þakklátt en hrætt við að koma til lands þar sem það getur ekki tjáð sig og það var mikill léttir fyrir Júlíu þegar henni varð ljóst að móttaka á Keflavíkurflugvelli er eins einföld og góð sem hugsast getur. Júlía hefur sent skilaboð til þeirra sem eru að koma: „Hæ, ég er að koma frá Úkraínu, geturðu aðstoðað mig við að finna lögreglu til að skrá mig inn í landið.“ Þeir sem hafa komið að þessu kerfi eiga hrós á skilið fyrir hversu einfalt það er og aðgengilegt. Fólk er komið á gististað strax og það kemur inn í landið. Og það getur haft samband við okkur hvenær sem er. Verkaskiptingin herfu verið með þeim hætti að Júlía hefur séð um samskipti við flóttafólkið en Ásgeir farið á stúfana og útvegað hlutina.

Ásgeir segir að þau hafi bæði tekið á móti fólki og verið í alls konar skutli með fólk innan höfuðborgarsvæðisins, svona prívat, fólk sem þau kynntust og vildu aðstoða. „Það haf allir viljað gera allt til að aðstoða. Við höfum fengið fullt af fyrirtækjum sem komu með peninga, mat og fatnað og við dreifðum þessu. Þetta snýst um þessa hluti.“

Júlía segir að æ fleiri hafi komið inn í til að hjálpa. Ég skrifaði kannski á Facebook og eftir stutta stund er komið svar. „Læknar, tannlæknar og sjúkraþjálfarar sem við eða aðrir hafa talað við hafa undantekningarlaust sagt; við björgum þessu,“ segir Ásgeir.

Júlía í Kiev.

Fyrirtæki og einstaklingar hafa lagt mikið til

Hvar hefur þörfin verið mest hjá þessu fólki? „Það er húsnæðið, fólk fékk fjórar vikur á hóteli og svo tóku sveitarfélög við næstu fjórar vikur og þá var reynt að hafa eitthvað til nánustu framtíðar en hvernig eigum við að geta verið með húsnæði fyrir kannski 1.500 manns ofan á allt annað. Þetta hefur verið risaverkefni en ég hefði viljað að sveitarfélögin hefðu opnað strax á ákveðin úrræði. Vonandi verður lærdómur dreginn af þessu. Við erum góð í því að bregðast við áföllum vegna náttúrhamfara og óveðurs, opnum fjöldahjálparstöðvar á nokkrum mínútum.  Það mæti vera svipað fyrirkomulag við svona aðstæður fyrir félagslega aðstoð,“ segir Ásgeir.

Þau segja bæði að Íslendingar hafa staðið sig vel við að taka á móti fólkinu en að öll pappírsvinna hafi taki tíma. „Ég fór því að senda sjálf pósta á fyrirtæki til að spyrja hvort fólk frá Úkraínu mætti sækja um vinnu. Svörin voru mjög jákvæð. Allir gerðu sitt besta og mörg fyrirtæki og einstaklingar hafa lagt til stór fjárframlög að þeirra sögn, vörur o.fl. Starfsfólk fyrirtækja gefið páskaeggin sín, vinur Ásgeirs gaf nokkur lambalæri og peningaumslög og annar gaf fatnað í ræktina. Þetta er svona, við getum nefnt mörg dæmi, fyrirtæki og einstaklinga,“ segir Júlía.

Hvernig gengur fólki að starfa hér? „Ég held að það gangi vel, en karlar gegna herskyldu úti  þannig að mjög stór hópur hér er konur með börn. Það þyrfti þá að útvega pössun en ég veit að þær eru eitthvað að vinna, t.d. á hótelum úti á landi og það er fólk sem hefur bankað upp á hjá fyrirtækjum þar sem það hefur menntun til og fengið vinnu í alls konar verkefnum,“ segir Ásgeir.

Júlía með móður sinni, systur og frænkum í Kiev.

Pútínistar eru víða

Úkraínska er móðurmál Úkraínumanna en rússneska er opinbert tungumál þar. „Við lærum ensku en allir kunna rússnesku, höfum rússneskt sjónvarp. Þetta er sama fólkið og tungumálið hefur aldrei verið vandamál. Pútín segist vera að vernda rússnesku og rússneska menningu en það virkar öfugt það sem hann gerir því fólk segist oft ekki vilja lengur læra rússnesku eða lesa hana eftir að stríðið skall á.

„Ég fór úr hópum þar sem fólk var bæði frá Úkraínu og Rússlandi, gat ekki verið með fólki sem styður stríðið. Ég fékk send alls konar screen shot og það var rosalegt að sjá hvernig fólk talar. Þegar konur mótmæltu fyrir framan rússneska sendiráðið í hvítu fötunum með blóð, þá skrifuðu pútínistar hér ógeðfellda hluti. Þau hlógu að þessu,“ segir Júlía.

„Þetta er fólk sem hefur búið hér lengi en getur varla gert sig skiljanlegt á íslensku, fólk sem hlustar bara á rússneskt útvarp og sjónvarp. Það er líklega ástæðan fyrir þessu. Það er lokað í sínum heimi og getur ekki séð hvað er að gerast. Við höfum fengið hótanir, ekki bara frá Rússum, líka fleirum og í einhverjum tilvikum veit ég um hverja ræðir. Þetta eru útsendarar Pútíns og það eru Rússar sem hafa smeygt sér inn í úkraínska hópinn og ég er nokkuð sannfærður um að þau eru send og fá greitt frá Rússum, þeir eru út um allt,“ segir Ásgeir.

„Allar upplýsingar sem við skrifum á Facebook hjá okkur virðast rata beint til Rússanna sem er allt í lagi, Það mega allir sjá þær. En þeir vilja stöðva upplýsingastreymi frá mér á síðunni,“ segir Júlía.

„KGB eru enn að njósna um fólk, jafnvel hér, þar var rosalega mikið áreiti á mér frá fólki sem vildi hjálpa en svo kom í ljós það það vakti ekki fyrir þeim að hjálpa heldur njósna.“

En hvað segir fólk um stríðið og ástandið í Úkraínu? „Þetta er hrikalega erfitt, maður hefur varla heyrt um jafn skelfilega hluti eins og í þessu stríði. Það var t.d. hermaður sem nauðgaði ungbarni, það eru sannanir fyrir því, gerandinn tók þetta upp á myndband. Það komu opinberar upplýsingar um að Rússum sé sagt að gera þessa hræðilegu hluti til að hræða fólk. Hermenn drepa hver annan en það sem þeir gera við almenna borgara er óskiljanlegt. Þeir t.d. leiku sér að því að skjóta á 11 ára gamla stúlku sem var að hlaupa frá þeim, voru í keppni hver gæti skotið hana. Þetta eru upplýsingar sem koma frá ráðamönnum. Ástæða innrásarinnar er að sögn Rússa sú að þeir bjarga sínu fólki í Úkraínu sem er algjört bull því þeir vilja bara ná svæðum í Úkraínu.

Ég hef fylgst með sjónvarpsstöðvum þeirra og þar segja þeir að Úkraína eigi ekki að vera til, þeir vilja fremja þjóðarmorð, eyða Úkraínumönnum og taka landið. Það er myndband þar sem ein opinber persóna segir þetta,“ segir Júlía. Við Úkraínumenn búum þarna, þeir ættu að einbeita sér á sínu landi, það er nóg að gera þar, landið er í rúst, nema kannski Moskva. Hermennirnir stela klósettum og örbylgjuofnum og fara með til Rússlands því þeir hafa aldrei átt svona hluti. Þeir nauðga konum og stela frá þeim nærfötum fyrir eiginkonur sínar, barnafötum og dóti, jafnvel blóðugu.“

„Zelenskyy er einstakur maður,“ segir Ásgeir, „hann hefur frá upphafi forsetatíðar sinnar ætlað að uppræta spillingu og stöðva stríðið í austri. En það er hægara sagt en gert. Það tekur mörg ár en ógnin er að Rússar komu fyrir forsetum á undan Zelenskyy, Julija Timoschenko o.fl. Stóra spillingin í Úkraínu er m.a. sú að Rússar hafa náð að moka til sín úr einkavæddum ríkisfyrirtækjum sem þeir hafa komið í hendur á vinum sínum, olíugörkunum. Zelenskyy ógnar stöðu þeirra. Hann er sterkur karakter og nýtur virðingar. Úkraínumenn eiga að fá að vinna í sínum málum sjálfir og fólkið vilji snúa aftur heim til að byggja upp í landinu“ segir Ásgeir.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Styrktarþjálfun mikilvægust fyrir konur á breytingaskeiði
Þú getur ekki byggt upp vöðva án eldsneytis, bætt efnaskipti án nægrar orku og minnkað streitu án næringar. Þetta segir Björn Þór Sigurbjörnsson, einka- og styrktarþjálfari, en hann hefur mikla reynslu af þjálfun og er vel menntaður í sínu fagi. Hann segir að styrktarþjálfun sé hornsteinninn og mikilvægasta æfingaformið fyrir konur á breytingaskeiði enda vöðvar gríðarlega virkur vefur þegar kemur að efnaskiptum. Með réttu mataræði og æfingum geti þetta tímabil í lífi kvenna verið eitt það besta.

Margar konur á breytingaskeiði eiga erfitt með þyngdina þrátt fyrir að borða hollt og hreyfa sig. Hvað veldur? „Margar konur sem spyrja þessarar spurningar hafa „gert allt rétt“ í lengri tíma. Þær vita hvað hollt mataræði er, þær kunna að hreyfa sig og eru ekki að byrja frá grunni. Samt gerist lítið. Það er vegna þess að líkaminn breytist og reglurnar sem áður giltu í þessum efnum virðast ekki lengur ganga.

Í fyrsta lagi er þetta vegna lífeðlisfræðilegs breytingarferlis. Á breytingaskeiði verða djúpstæðar breytingar á hormónakerfinu. Það er ekki bara að estrógenmagn lækki, það verður óstöðugt og sveiflukennt. Prógesterónmagn breytist og hverfur jafnvel stundum. Testósterón lækkar líka smám saman. Kortisólseyting verður viðkvæmari og sveiflast meira. Insúlínnæmi breytist og verður óstöðugt. Þetta er ákveðin kerfisbreyting, ekki eitthvert eitt hormón sem veldur.“

Það sem virkaði vel virkar ekki lengur

Björn segir að konur bregðist allt öðruvísi við álagi en karlar, sérstaklega þegar þetta hormónajafnvægi kvenna fer að breytast, líkami þeirra verði „varnarsinnaðri“. „Líkaminn verður betri í að geyma orku en verri í að losa hana. Þetta er líffræðileg aðlögun við þessum hormónasveiflum. Líkaminn skynjar þetta sveiflukennda ástand og svarar með því að halda í forða. Þess vegna sjáum við að fita safnast frekar á kvið og miðsvæði kvenna, vöðvamassi minnkar, grunnorkueyðsla lækkar, blóðsykur verður óstöðugri og streitu- og álagsþol minnkar.“

Björn segir að margar konur bregðast við þessu með því að gera meira af því sem virkaði áður. „Konur borða minna, hlaupa meira, verða strangari við sjálfar sig og þarna liggur vandinn. Á þessu skeiði túlkar líkaminn slíkt oft sem viðvarandi streituáreiti. Kortisól hækkar, endurheimt hægist og fitutap, til að mynda, verður hægara.“

Vöðvar mjög mikilvægir þegar kemur að efnaskiptum

Björn segir að styrktarþjálfun sé mikilvægasta æfingaformið fyrir konur á breytingaskeiði og fyrir því eru ástæður.

„Með aldrinum tapar líkaminn vöðvamassa ef ekkert er gert. Á breytingaskeiði eykst þetta ferli. Þetta kallast sarcopenia. Styrktarþjálfun er því mjög mikilvæg af því hún hægir á vöðvatapi og hreinlega getur snúið því við, auk þess sem hún styður við styrk og eykur sjálfstæði kvenna lengur en annars væri, þær geta gert meira.

Ég hef ítrekað lagt áherslu á að konur þurfa að þjálfa fyrir hormónajafnvægi, ekki gegn því, með styrktarþjálfun. Á þessum aldri þarf hreyfing að miðast við fjóra þætti: Að viðhalda og byggja vöðvamassa. Styðja við efnaskipti og blóðsykur, þjálfa taugakerfið, ekki bara vöðvana, og halda streitukerfinu í jafnvægi.

Ekki til að þær líti betur út, heldur vegna áhrifa og starfsemi líkamans á þessu skeiði.

Vöðvar eru gríðarlega virkur vefur þegar kemur að efnaskiptum. Þeir taka upp glúkósa, bæta insúlínnæmi, hækka grunnbrennslu og styðja við hormónajafnvægi. Þegar estrógenverndin minnkar, verður vöðvamassi enn mikilvægari.“

Tvær til þrjár styrktaræfingar á viku, með áherslu á stóra vöðvahópa, geta haft meiri áhrif en fimm til sex þol- og liðleikaæfingar með tilliti til efnaskiptaheilsunnar, að sögn Björns.

„Ég vil benda líka á mikilvægi þess að róa taugakerfið jafnmikið og að örva það með æfingum þegar það á við, sem er reyndar oft. Göngur í náttúrunni, öndunaræfingar, liðkandi æfingar eru dæmi um leiðir til að halda streitukerfinu í jafnvægi og öðlast heilahvíld, fara úr rútínunni.“

Að lyfta hefur góð áhrif á hormóna og taugakerfi

„Þegar talað er um „þungar lyftur“ sjá margar konur fyrir sér kraftlyftingar. En það er ekki það sem við erum að tala um. Við erum að tala um að þegar konur lyfta þá eigi það að vera nógu krefjandi til að virkja taugakerfið og stóru hreyfieiningarnar. Líkaminn skynjar krefjandi verkefni, stöðugleika, kraft og samhæfingu. Rétt framkvæmd lyfta er stöðug og krefst einbeitingar. Þegar þetta er gert rétt fær miðtaugakerfið skilaboð sem hafa bein áhrif á góð efnaskipti. Lyftingar stuðla einnig að bættu insúlínnæmi en sterkir vöðvar taka betur upp glúkósa. Þetta þýðir að blóðsykur verður stöðugri, fitusöfnun minni og konur hafa meiri og jafnari orku yfir daginn.

Viðeigandi lyftingar, sem eru hvorki og þungar né of léttar, styðja einnig við vaxtarhormón, testósterón og streituviðbragð eflist. Þær hafa einnig góð áhrif á taugakerfið sem helst „yngra“. Kraftur, samhæfing og viðbragðsflýtir haldast betur. Þetta er ekki bara góð líkamsrækt, þetta eykur lífsgæði.“

Prótínrik fæða.

Konur á breytingaskeiði þurfa að borða mikið prótín

Hvað með mataræði, hversu mikilvægt er það? „Ég fer ekki í grafgötur með það að margar konur þurfa að borða meira og með reglubundnari hætti. Þetta er sá þáttur sem er stundum mest kaótískur í hraðanum. Konur á breytingaskeiði þurfa oft meira prótín en áður til að vernda vöðva, styðja við bata og halda seddu. Gríska orðið proteios, merkir forgangur og konur á þessum aldri þurfa að hafa prótínríka fæðu í forgangi.“

Hvað með kolvetni? „Kolvetni eru ekki óvinurinn. Of lítið af þeim getur aukið streitu, dregið úr svefngæðum og frammistöðu. Gæði kolvetnanna og tímasetning inntöku þeirra geta skipt máli. Of fitusnautt mataræði getur unnið gegn hormónajafnvægi.“

Þú segir að flestar konur á breytingaskeiði sem festast í þyngd séu ekki að borða of mikið, heldur of lítið. Þetta hljómar andstætt því sem margar hafa lært. Geturðu útskýrt þetta nánar? „Já, við þurfum fyrst að skilja eitt grundvallaratriði. Þegar kona borðar of lítið, sérstaklega yfir langan tíma, og uppfyllir ekki næringarþörf, upplifir líkaminn það sem orkuóvissu. Líkaminn aðlagast þessu en það hjálpar honum ekki. Þegar konur eru yngri getur líkaminn oft brugðist við tímabundnum orkuskorti með tiltölulega litlum afleiðingum. Á breytingaskeiði breytist þetta.

Þegar hormónajafnvægið verður viðkvæmara og estrógenverndin minnkar, verður líkaminn mun næmari fyrir orkuskorti. Það sem áður var „smá aðhald“ verður nú ákveðið streituáreiti. Þegar orkuinntaka er of lág, sérstaklega í samhengi við hreyfingu, æfingar og streitu, fer líkaminn smám saman í það sem kallast adaptiv-efnaskipti, sem er líffræðilegur varnamekkanismi. Þá lækkar grunnorkueyðsla og líkaminn lærir að gera meira með minni orku. Hann lækkar þá orku sem fer í daglega starfsemi eins og hitamyndun, hormónastarfsemi og hreyfingu. Þetta þýðir að einstaklingurinn getur borðað mjög lítið en samt ekki grennst og byggir ekki upp vefi og vöðvatap eykst

Þegar líkaminn fær ekki næga orku og prótín, byrjar hann að fórna dýrasta vefnum, vöðvum. Þetta er ekki heppilegt á breytingaskeiði, þar sem vöðvamassi er lykillinn að efnaskiptaheilsu. Sem sagt: Minni vöðvar = lægri grunnbrennsla = verri blóðsykurstjórnun.

Svo er það kortisólið sem oft er kallað streituhormón. Orkuskortur veldur streitu sem hækkar kortisól sem hamlar fitulosun og stuðlar að fitusöfnun á miðsvæði.

Björn segir að hækkað kortisól haft fleiri neikvæð áhrif. „Það brýtur niður vöðva og truflar svefn. Þetta er ástæðan fyrir því að margar konur upplifa meiri kviðfitu þrátt fyrir „hreint“ mataræði.“

Viðvarandi orkuskortur getur dregið úr virkni skjaldkirtilshormóna að sögn Björns. „Þetta hægir enn frekar á efnaskiptum og eykur þreytu og slen, að borða of lítið gerir það að verkum að líkamann nýtur kolvetni verr. Þetta leiðir til meiri blóðsykursveiflna, meiri þreytu og aukinnar fitusöfnunar.

Okkur hefur verið kennt og sagt í áratugi að þyngdarvandi sé tilkominn vegna þess að við borðum of mikið. Þetta eru skilaboð sem hafa fest sig rækilega í sessi, jafnvel hjá fólki sem veit betur, þótt þau eigi oft við. Margir einstaklingar og líka konur sleppa morgunmat, borða mjög lítið yfir daginn en borða svo mikið af mat sem er snauður af næringarefnum á kvöldin.“

Regluleg prótíninntaka yfir daginn eitt einfaldasta og áhrifaríkasta skrefið

Myndir þú ráðleggja konum að borða meira yfir daginn?

„Já, mat sem nærir. Næring á breytingaskeiði og næring almennt snýst um að gefa líkamanum það sem hann þarf. Ef það er eitt næringarefni sem flestar konur fá of lítið af, þá er það prótín og það er ekki bara fyrir vöðva. Það verndar vöðvamassa, styður við endurheimt, eykur seddu, dregur úr blóðsykursveiflum og styður við hormónastarfsemi.

Á breytingaskeiði þarf líkaminn oft meira prótín en áður. Margar konur borða tiltölulega lítið prótín í morgunmat og hádegismat, sem leiðir til meiri svengdar síðar, minni stöðugleika yfir daginn, minni bata eftir æfingar. Regluleg prótíninntaka yfir daginn er eitt einfaldasta en áhrifaríkasta skrefið sem konur geta tekið.

Sumar konur eru ekki heilsuhraustar eða geta ekki æft mikið, hvað er til ráða? „Svarið er einfalt. Það er samt hægt að vinna með líkamann. Gera stuttar æfingar, léttari viðnámsþjálfun í fyrstu, jafnvægisæfingar, göngur og taugakerfisvinnu, þetta getur haft góð áhrif. Árangur mælist ekki bara á vigt, heldur í betri svefni, minni verkjum, meiri orku og auknu sjálfstrausti. Lífsgæðin aukast.“

Kolvetni eru ekki óvinurinn

Kolvetni eru litin hornauga, sérstaklega meðal kvenna sem hafa reynt „allt“ að sögn Björns „Langvarandi lágkolvetnamataræði getur verið sérstaklega erfitt á breytingaskeiði. Of lítið af kolvetnum getur aukið kortisólið og haft slæm áhrif á svefn, dregið úr æfingaárangri og aukið löngun í sykur.

Kolvetni eru hins vegar eldsneyti fyrir heila, taugakerfi og vöðva. Á breytingaskeiði, þar sem streitukerfið er viðkvæmara, getur algjör kolvetnaskortur gert líkamann enn varfærnari. Málið snýst um að velja gæðakolvetni, tímasetja neyslu þeirra skynsamlega og nota þau til að styðja við æfingar og endurheimt. Þá er fita nauðsynleg fyrir hormón en fitusnautt mataræði getur haft áhrif á hormónajafnvægi, húð, liðheilsu og vellíðan. Góð fita hjálpar líka til við seddu.“

Reglufesta er mikilvæg

„Ein stærsta breytingin sem margar konur þurfa að gera er að sleppa hugmyndinni um „fullkomið mataræði“ og einbeita sér að reglufestu. Líkaminn vill fyrirsjáanleika, næga orku og stöðugt áreiti.

Óreglulegar máltíðir, að sleppa máltíðum og stöðugur orkuskortur halda líkamanum í varnarstöðu, sama hversu „hreint“ mataræðið er. Og konur á breytingaskeiði eiga EKKI að fasta. „Þú getur ekki byggt upp vöðva án eldsneytis, bætt efnaskipti án nægrar orku og minnkað streitu án næringar.

Margar konur æfa vel en næringin vinnur gegn æfingunum. Þá getur hreyfingin í versta falli verið enn eitt streituáreitið.“

Hvað með konur sem eru þreyttar, með verki eða finnst þær vera búnar á því? „Þá þarf oft að byrja á meiri næringu. Stundum er fyrsta skrefið að borða reglulegar máltíðir og að auka prótíninntöku. Árangurinn af því kemur oft fyrst fram í betri svefni, meiri orku, minni verkjum og betra skapi. Þyngdarbreytingar koma síðar sem afleiðing.

Ef konur gera æfingar sem vinna með taugakerfinu, taka inn næringu sem styður hormónastarfsemi og stunda hreyfingu sem byggir upp í stað þess að brjóta niður, getur þetta orðið eitt sterkasta tímabil lífs þeirra.“

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Ótrúlegt að við skildum lifa þetta af
Hulda Margrét Eggertsdóttir var 16 ára gömul þegar hún flutti í Hornvík á Hornströndum með mannsefni sínu Jóni Þorkeli Sigmundssyni. Þau fóru þangað árið 1951 og voru í rúmt ár, komu til baka 1952 um haustið en árið 1947 höfðu síðustu ábúendur farið frá Hornvík. Hulda lenti í ýmsum ævintýrum og var hætt komin enda segir að hún myndi ekki ráðleggja nokkurri manneskju að prófa þetta. Verst af öllu við að búa þarna fannst henni þó kuldinn.

Hornvíkin er á milli Hornbjargs og Hælavíkurbjargs og skiptir Hornströndum í vestur og austurhluta. Hulda hafði farið að vinna á Horni sem ráðskona og eldað fyrir menn sem komu að ná í egg í björgunum þó svo að búskapur hafi lagst af og þar kynntist hún mannsefninu sínu Þorkeli, eða Kela eins og hann var kallaður.

Hvernig stóð á því að þið fluttust í Hornvík? „Keli var einn af svokölluðum eggakörlum sem fóru til að síga í bjargið á vorin og ég var með nokkra á mínum snærum sem þurfti að elda fyrir á meðan á þessu stóð og svo fóru þeir. Við Keli fórum svo í heimsókn til systur hans og mágs að Látrabjargi en þau voru vitaverðir í Hornbjargsvita og bróðir Kela, Pétur, spurði hvort við vildum ekki prófa að búa þarna í húsi sem hann átti á Horni og við Keli vorum alveg til í það, töldum að það yrði gaman að prófa það.

Ekki staður fyrir ófríska konu

Horft inn í Hornvík frá Hornbjargi.

Þorkell var uppalinn á Hornströndum, í Hælavík, og þekkti vel til allra aðstæðna og segist Hulda hafa treyst á hann. „Ég treysti bara á hann. Við fórum um vorið og höfðum með okkur hænur sem mamma gaf mér, kött og eina kú sem tengdamamma mín keypti fyrir okkur.. Svo bauð bróðir hans Kela mér sem var vitavörður í Hornbjargsvita að taka fallegustu gimbrina sína upp í kindakofa ef við færum þarna í Hornvíkina.

Við fórum með þetta allt norður á Fagranesinu og fluttum okkur um set, bara alveg,“ segir Hulda með áherslu. Konráð bróðir Huldu, sem margir þekkja undir nafninu Konni hrefnubani,  var níu ára og kom um vorið sem kúasmali. Einn daginn var kýrin horfin og fannst ekki þrátt fyrir mikla leit. Á tíunda degi fannst hún þó við fjallið Snók sem er um 10 km í suður frá Horni og hafði farið rétta leið til síns fyrra heimilis. Þessi kýr átti eftir að reynast Huldu og Kela drjúg. „Við urðum að ná í allan mat sjálf sem við ætluðum að borða og þetta vor skaut Keli og snaraði 500 svartfugla. Við hamflettum og sviðum svo fuglana, söltuðum og settum í tunnur í súr því að kýrin mjólkaði svo vel. Við gátum búið til smjör og skyr og fengum undanrennu og það fór allt í tunnuna, allur matur sem átti að vera súr um veturinn.

Þetta var nú hálfgerð bíræfin,“ segir Hulda þegar blaðamaður nefnir að þetta hafi verið ótrúlegur kjarkur hjá svo ungri stúlku að fara þarna. „Auminga mamma mín sagðist hafa orðið gráhærð þennan vetur sem við vorum þarna. Hún hafði áhyggjur af okkur. Ég var líka ófrísk sem bætti nú ekki úr skák. Þetta gekk allt ljómandi vel hjá okkur en þetta var erfitt. Ég hélt að þetta yrði ekki jafn erfitt og það var þegar á reyndi. Við þurftum að afla okkur eldiviðar en við höfðum bara timbrið úr fjörunni og þetta var svo náttúrlega allt frosið og klakað og við urðum að bera timbrið upp í hús, láta það þiðna og saga svo niður. En það sem bjargaði okkur með eldiviðinn var að það eru tvö hús þarna á Horni. Stígshús var við hliðina á okkur þar höfðu verið móstaflar úti í skúr og ég fór í hann og stal heilmiklu af mó. Það bjargaði okkur að geta notað hann í eldinn.“

Þurfti að ganga ófrísk upp gil í miklum snjó til að þvo tauið

Ljóst er að allar aðstæður voru mjög erfiðar og oft og tíðum beinlínis hættulegar en Hulda og Keli voru einstaklega dugleg og björguðu sér, en stundum stóðu þó hlutirnir mjög tæpt. „Aðstæðurnar voru erfiðar en ég fann ekkert fyrir því,“ segir Hulda æðrulaus. „Um veturinn fór náttúrlega að snjóa þarna eins og í Bolungarvík, og annars staðar, en ég er þaðan, það fór allt  á kaf í snjó. Ég þurfti að renna mér á rassinum með þvottabala á maganum í Árgil til þess að skola tauið. Ég man alltaf eftir þegar ég var að príla upp brekkuna við Árgilið hvað það var erfitt en ég komst þetta.“

Sá fólk fyrir jólin sem kom með skipi

Hvernig var svo með önnur mataraðföng? „Það var ekkert að hafa. Við vorum kartöflulaus allt árið. Ég hefði átt að hafa vit á að setja niður kartöflur en datt það ekkert í hug þannig að ég varð að baka flatkökur á eldavélinni, ég var með Skandia-eldavél sem var kolavél og bakaði flatkökurnar úr hveiti, haframjöli og rúgmjöli og þetta borðuðum við með öllum mat í staðinn fyrir kartöflur.“

Kom enginn til ykkar meðan á dvölinni stóð? „Þarna var mikil einangrun en næsti staður sem einhver var á var Hornbjargsviti. Það kom enginn til okkar þennan tíma, fyrir utan Konna bróður minn náttúrlega, en það voru einhverjir sem komu með vitaskipinu Hermóði fyrir jólin. Maður varð svo glaður að sjá fólk. Við fengum hangikjötslæri frá mömmu sem hún hafði fengið einhvers staðar og sent okkur, það var kærkomið. En við höfðum ekkert að borða nema fisk sem við veiddum og söltuðum. Við áttum skektu sem Keli smíðaði, sem við veiddum á og svo fórum við yfir Hornbjargið og yfir í Rekavík og þar skutum við seli. Keli skaut 13 seli, hann spýtti skinnið og við seldum þetta svo þegar við komum heim til Bolungarvíkur aftur um haustið og fengum pening fyrir. Það var náttúrlega enga peninga að hafa þarna, við urðum bara að lifa á því sem við veiddum.“

Veturinn var kaldur í Hornvík.

Kuldinn var verstur

Aðstæður voru án efa mjög erfiðar erfiðar en Hulda segist lítið hafa fundið fyrir einangruninni. Hún óttaðist hins vegar að ísbirnir gætu gengið þarna á land. Einu sinn sat hún í rólegheitum að hlusta á útvarpssögu með köttinn í þegar mikið öskur heyrðist. Hulda var viss um að nú væri bjarndýr komið á þeirra slóðir. og Keli sömuleiðis sem kom hlaupandi úr fjósinu. Þá kom annað öskur en þau sáu ekki bjarndýr og vissu í raun aldrei hvaðan þessi óhljóð komu. En eftir þetta var Hulda ávallt með riffilinn hlaðinn sem þau áttu. „Ég fann lítið fyrir einangruninni, ég fann aðallega fyrir kulda. Stundum var kuldinn svo mikill að við urðum að hlaupa hálfa Hornvíkina niður að Hafnarkletti til að fá í okkur hita á kvöldin. En maðurinn minn var svo sjóðandi heitur að hann var eiginlega eins og hitapoki.

Hornbjarg.

Mátti litlu muna að þau færu niður af Hornbjarginu

„Það er alveg ótrúlegt að okkur skyldi detta í hug að fara að búa þarna og að við skildum lifa þetta af. Ég var búin að lofa mömmu því að fara alltaf hálfsmánaðarlega í Látravík til að lata vita af okkur. Maður varð að fara yfir garð og fjall til að komast þangað. Það var svo misjafnt hvernig færðin var og oft var mikil sleipa. Einu sinni fórum við yfir í Látravík til að láta hana vita af okkur en við urðum að fara yfir skarð og þá var bara grátt gler yfir öllu skarðinu og ég segi við Kela: Hvað gerist ef við rennum af stað? Ég passa það, sagði hann en hann fór með skíðin og stafina og bara skreið á hnjánum og ég beið hinum megin. Svo kemur hann til að sækja mig og ég renn af stað. Hann náði þó að grípa í mig og náði í einhvern grastopp sem hann hélt sér í. Þarna munaði litlu að við færum niður þverhnípt Hornbjargið. Ég gleymi aldrei þessari stundu, aldrei,“ segir hún og leggur ríka áherslu á orð sín.

Situr í henni að vilja eiga nógan mat

Eðlilega hafði búskapurinn á Horni sín áhrif á Huldu, þó ekki slæm. Hún segir að það sé mikil fegurð þarna en að hún myndi ekki leggja það að nokkra manneskju að búa þarna. Hún nefnir þó eitt atriði sem fylgi sér efir dvölina. „Þetta hafði ekkert slæm áhrif á mig og það er yndislega fallegt þarna.. En það fylgir mér æ síðan að vilja eiga nóg af mat og það hefur smitast til krakkanna minna. Það er aðallega það af því við vorum stundum, ja ekki matarlaus, en við borðuðum mjög einhæfan mat. Alltaf fugl, súrsaðan úr tunnu og saltfisk allt árið, kartöflulaust. Ég hef smitað krakkana af þessu. Þú getur ímyndað þér, ég bý ein og ég á tvær frystikistur fullar af mat.“

Er eitthvað sem þú myndir vilja segja við unga fólkið í dag hafandi búið þarna við þessar aðstæður? „Ég myndi ekki leggja þetta á nokkra unga manneskju í dag, ekki einu sinni að vera í hálfan mánuð þar, það er alveg á hreinu. Strákarnir mínir tóku svo húsið sem við pabbi þeirra vorum í á Horni í gegn og það er allt til á myndbandi sem ég er með. Það er ótrúlega gaman að horfa á þetta og ég lifi allt upp aftur.  En ég var í góðum höndum á manninum mínum – hann kunni á alla hluti og vissi hvað hann var að gera, hann var 10 árum eldri en ég. Fjölskyldan var guðsfegin þegar við Keli komum aftur til byggða og 22 ára var ég búin að eignast þrjú börn. En það var mikil reynsla að fá að gera þetta, búa þarna við þessar aðstæður í þennan tíma. Það var náttúrlega ekki glóra að gera þetta, en við höfðum þetta af,“ segir þessi einstaka kona.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Minningar bjarga menningarverðmætum
Stúlka með fálka – er önnur sjálfsævisaga Þórunnar Valdimarsdóttur en jafnframt hennar 31. bók. Þórunn er mjög fjölhæfur rithöfundur, er jafnvíg á skáldssögur og sagnfræðilegar bækur enda sagnfræðingur að mennt. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, 14 tilnefningar, 8 verðlaun og fálkaorðu. Stúlka með fálka fjallar um ævi Þórunnar frá 9. áratugnum, fullorðinsárin, skrif hennar og líf og segir Þórunn að það hafi verið heilandi að skrifa endurminningarnar og vill að fólk hugi að því að skrifa minningar sínar áður en það verði of seint.

Minningarskrif eru heilandi

Þórunn hvetur fólk til að byrja, bæði fyrir afkomendur og það sjálft, og segir að minningaskrif séu „mikilvæg aðferð til færa töfra lífsins fram til lesenda. Það er svo heilandi að skrifa, stafsetning skiptir engu máli og það er núna hægt að tala inn á tölvu sem breytir töluðu orði í texta. Það er heilandi líka að taka til í höfðinu á sér, með því að skrifa sjálfsævisögu. Ég var orðin leið á að skrifa um alla þessa karla, Matthías Jochumsson, Snorra á Húsafelli, Jakob Frímann, Skúla fógeta og Natan Ketilsson, þannig að það var kominn tími á mig. Þetta er önnur sjálfsævisaga mín en fyrri bókin hét Stúlka með höfuð og var þroskasaga.

Mig langar að segja jafnöldrum mínum þær góðu fréttir að ég las nýlega að áhyggju heilafrumurnar deyja fyrstar í höfðinu á okkur. Gullnu árin taka við eftir sjötugt og dásamlegt er þá að lifa ef maður er frískur. Afar mikilvægt er að hafa eitthvað fyrir stafni. Fólk verður á efri árum markvisst að finna sér viðfangsefni og eitthvað að gera. Maður getur ekki horft á sjónvarpið allan daginn.“

Fékk hugmyndina fyrir rúmum 40 árum

„Það er langt síðan mig langaði að verða rithöfundur. Ég var í tvítyngdum listaháskóla í Mexíkó 1977-1978. Þar var boðið upp á námskeið í ritlist, svo snemma beygðist krókurinn, þarna fann ég hvað ég þráði að skrifa skáldskap. Sjálfsævisögur eru ein mikilvægasta bókmenntagreinin. Þær bjarga miklum menningarverðmætum frá glötun. Mig langaði fyrir löngu að halda námskeið fyrir eldra fólk þar sem það myndi skrifa minningar sínar. Ingibjörg Sólrún var þá borgarstjóri og henni leist vel á. En eitt er að fá hugmynd en annað að framkvæma þær,“ segir hún og hlær. „Það varð ekkert úr þessu, ég hafði alltaf svo mikið að gera. Fólk er í alls konar klúbbum og margir eiga góð stofuborð eða borðstofuborð og fólk gæti sameinast í hópa með fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að skrifa minningar. Ritlist er kennd uppi í Háskóla og víðar, þar hafa margir höfundar tekið fyrstu skrefin. Fólk gæti líka sjálft hist og skrifað, hvatt hvert annað og lesið yfir texta hinna. Annað sem mér datt í hug væri að hafa sérstök merkt „Opin borð“ á kaffihúsum þar sem einmana fólk gæti hist og spjallað. Einmanaleiki er hryllileg meinsemd í samfélaginu, láttu mig þekkja það, ég hef verið ekkja í 11 ár. Þá gætu menn sest þar og spjallað og kynnst fólki, eignast nýja vini.“

Það er ferli fyrirgefningar að skrifa sjálfsævisögu

„Allt er stórt sem ég geri,“ segir Þórunn þegar blaðamaður imprar á hve stór bókin hennar sé. „Bækurnar mínar eru langar. Það sem kom þessum skrifum í gang var það að ég flutti vinnustofuna mína í ReykjavíkurAkademíunni tímabundið heim. Þá áttaði ég mig á því hvað ég átti fínt efni í minningabók, því sagnfræðingurinn í mér setti öll bréf og skjöl í umslög og geymdi. Það hristi líka upp í mér að tvö systkini mín eru með heilabilun sem þau hafa erft frá Þórunni móðurömmu okkar. Það er eins gott að skrifa minningabók áður en ég ruglast líka, hugsaði ég.“

Þórunn segist vera hrifin af ævisögum og segir að skáldskapur sé ekkert annað er minningar fólks sem er færður í skáldlegan búning. „Allt sem fólk gerir og upplifir er mögulegur efniviður í ævisögu eða skáldskap. Mér finnst að það eigi að hafa sérstakan flokk í Bókmenntaverðlaununum fyrir ævisögur. Sjálfsævisögur fá sjaldan verðlaun en ævisögur sem eru sagnfræðilegar lenda í flokki fræðilegra bóka. Þannig bækur færa töfra tilverunnar til lesenda og lesendur draga heilmikinn lærdóm af lestri slíkra bóka. Þau sem eru af sömu kynslóð geta baðað sig í sínum eigin minningum um leið og þau lesa.“

Aðspurð segist Þórunn hafa verið fljót að skrifa þessa minningasögu. „Ég hefði getað skrifað miklu meira, 5-10 sinnum lengri bók, en allt er best í hófi. Það er líka fullt af myndum í bókinni, bæði ljósmyndir og mínar eigin teikningar.“

Segðu mér aðeins frá bókinni þinni. „Ég læt alls ekki allt flakka í henni. Ég er pínu viðkvæm að hún sé auglýst þannig, en ég er bara einlæg. Ég segi frá kostum mínum og göllum, einlæglega. Bókin er í raun bautasteinn, ég segi í stuttu máli frá öllum helstu ritverkum mínum, þannig að þetta er flott egóflipp,“ segir hún og hlær.

Hvers vegna sjálfsævisaga, er einhver ákveðinn tilgangur með því? „Þetta er á vissan hátt ferli fyrirgefningar, bæði gagnvart öðrum og sjálfri mér. Þannig verða skriftirnar einskonar þerapía. Ég er hreinskilin en passa mig að tala ekki illa um aðra í bókinni, ég hatast ekki út í neinn. Það eina sem gerir manneskjuna hamingjusama er að hafa afrekað eitthvað eða lokið einhverju, hvað sem það er en ánægjan varir í allt of stuttan tíma af því við viljum strax fara að sinna næsta afreki. Ég er svo hamingjusöm, og mér finnst frábært að vera komin á „sjöuna“,“ segir Þórunn, „ég keyrði þetta hugtak fyrst inn í bókinni um Jakob Frímann, mér fannst svo ómögulegt að segja alltaf á 8. áratug síðustu aldar.

Ég er búin að skrifa 31 bók og fæ mikið þakklæti fyrir á förnum vegi. Ég sé að fólk sem hefur notið þeirrar blessunar að gefa mikið af sér verður oft hundgamalt. Það er hluti af því að nenna lifa að einhver kunni að meta mann.

Ég er glöð að hafa komið þessari bók frá mér og finnst ég hafa skilað mínu, á nokkrar óskrifaðar bækur á borðinu, ef tilverunni þóknast að spara mig til þess.“

Vöntun á kvenfyrirmyndum

Þórunni er þakklát fyrir að hafa lifað það að sjá kvenfrelsi blómstra á Íslandi. „Mín kynslóð hafði ekki marga innlenda kvenhöfunda sem fyrirmyndir. Það var helst Svava Jakobsdóttir sem naut virðingar. Talað var hæðnislega um kerlingabækur, en þegar ég las bækur Guðrúnar frá Lundi varð ég heilluð. Bragð er af er þjóðin finnur. Engin leið var að gera lítið úr Svövu Jakobs, hún var menntuð í Ameríku og af sterku fólki, dóttir dómkirkjuprests. Ég tilbað Svövu, ekki síst Gunnlaðarsögu. Þegar Eggert Þór Bernharðsson, eiginmaður minn heitinn var að skrifa Reykjavíkurbækur sínar sá hann hve bækur Þórunnar Elvu Magnúsdóttur, móður Megasar, voru góðar. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fæðst á þessu landi þar sem fólk er styrkt til að skrifa. Ég hefði ekki skrifað neitt ef ég hefði ekki fengið styrki, maður varð að eiga í sig og á og maður vinnur ekki við skriftir á kvöldin. Listamenn segja að það séu um fjórar klukkustundir á dag sem maður er skapandi, en það er hægt að dúlla í allskonar léttari vinnu það sem lifir dags. Þórunn amma lét mömmu skrifa bernskuminningar sínar úr Reykjavík, Bernsku í byrjun aldar kornunga, og seinna gaf mamma út ljóðabók. Amma mín í föðurætt var náskyld skáldinu góða, Guðmundi Inga á Kirkjubóli í Önundarfirði. Þannig að bóklistum var haldið að mér þegar ég var barn, eplið og eikin og allt það.“

Teikning eftir Þórunni.

Breyttir  tímar

„Áður fyrr þegar bækur komu út voru ritdómar birtir í öllum dagblöðum um allar bækur sem komu út. Fólk var á launum við að skrifa dóma en nú eru birtir einungis Morgunblaðið stöku dóma. Þetta er hættuleg þróun.  Bækur hafa lækningamátt, þær eru lífselexír. Bóklestur er róandi. Rannsóknir sýna að við öndum helmingi hraðar en við gerðum árið 1900, þetta er mælikvarði á spennuna í fólki sem er alltaf á spani að keyra og sækja börnin, klára verkefni í tíma o.s.frv. Það eru ekki allir jafn heppnir og ég að geta gengið og þurfa ekki bíl, ég tek svo bara leigubíl þegar ég vil og þarf. Þetta er mjög gott fyrir heilsuna og budduna.“

Það hlýtur að vera sitthvað að skrifa skáldsögu eða sagnfræðirit, gerir þú eitthvað upp á milli? „Nei, það er ekkert svo ólíkt að skrifa skáldsögu og sagnfræðilegar bækur, sagnfræðin gætir þess að slúðrið verður ekki ofan á, heldur sannleikurinn. Ég elska öll vísindi og fræði og það sem þau hafa gert fyrir okkur.Ω“

Þórunni er margt til lista lagt, fyrir utan að skrifa og teikna þá söng hún sem barn einsöng með Kór Hlíðaskóla „Guð gaf mér eyra“ og jafnframt með sama kór tvö lög í sænska sjónvarpinu, í þætti sem var gerður um íslenska æsku.

Hér má heyra Þórunni unga syngja Guð gaf mér eyra:

https://thorvald.is/wp-content/uploads/2015/01/Guð-gaf-mér-eyra1.m4a

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Það sem þú skilur eftir þig skiptir mestu máli
Sveinbjörn Bjarnason, prestur og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, hefur lifað margt. Hann hefur í tvígang staðið við dauðans dyr og þau hjón urðu fyrir þeim harmi að missa ungan son í slysi. Sveinbjörn segir að gervigreind og tölvur þurfi að umgangast með aðgát og hefur áhyggjur af sókn ungmenna í samfélagsmiðla, því þau vanti oft þann grunn sem finna megi í trú til að þroskast og hafa ákveðin gildi að leiðarljósi. Nú þegar hátíð ljóss og friðar nálgast vill hann minna fólk á að sýna samkennd og rétta út hjálparhönd, það sé víða þörf.

Sveinbjörn fæddist á Ísafirði 1944 og var þar fyrstu 20 ári ævinnar. „Ég fór síðan til Akureyrar í eitt ár en ég hafði fundið konu frá Akureyri, Friðrikku Eðvaldsdóttur sem var á Húsmæðraskólanum á Ísafirði þegar viðvorum 17 ára og árin okkar saman eru orðin 64. Ég hóf svo störf í Lögreglunni í Reykjavík 1967 í almennu deildinni en árið 1970 fór ég í rannsóknarlögregluna, lengst af í tæknideild, og var þar til 1981. Þetta var erfitt starf en mjög gefandi. Við vorum kallaðir út í flest innbrot, oft ef dauðsfall var í heimahúsi að ekki sé talaði um ef það gerðist með voveiflegum hætti, þá vorum við sendir út til að mynda á vettvangi og annað. Þetta gat tekið verulega á.

Vaknaði lamaður upp að hálsi

Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði.

Árið 1959 fékk Sveinbjörn heilabólgu eftir mislinga þá 14 ára gamall. „Ég var mjög hætt kominn, var meðvitundarlaus í 10 sólarhringa og þegar ég vaknaði var ég bæði mállaus og lamaður upp að hálsi. Það var enginn kraftur í líkamanum, augun voru það eina sem ég gat hreyft. Þetta hef ég rætt við marga lækna því mér finnst þetta svo merkileg saga. Einn taugalæknir sagði við mig mörgum árum síðar: „Þú átt nú eiginlega ekkert að vera hér. Menn höfðu svona veikindi yfirleitt ekki af.“

Þegar ég lá á sjúkrahúsinu kom mágur pabba til hans og sagði að það yrði bænastund í kirkjunni og spurði hvort þau mættu láta biðja fyrir mér sem var auðsótt. Maður sannar ekkert í þessu eins og svo mörgu en ég vil meina að þarna hafi komið hjálp. Ég var á stofu með gömlum sjómanni en hann hafði lent ásamt pabba í skipstrandi og allir komist í land fyrir harðfylgi. Það var búið að setja taum í rúmið mitt svo ég gæti hysjað mig upp, en hann segir við mig einn daginn: „Úr því að þú getur notað hendurnar þá geturðu notað lappirnar, drífðu þær undan sænginni og fram á skörina.“ Hann rétti mér hendurnar og sagði: „Tylltu í fæturna, treystu mér, pabbi þinn gerði það.“ Og ég gerði það. Þetta var byrjunin á því að ég fór að ganga. Þetta var leyndarmálið okkar lengi vel.“

Það var fleira merkilegt sem átti sér stað á sjúkrahúsinu. Sjómaðurinn hafði eitt sinn sagt við aðstandendur sína: „Þegar ég dey, fær Sveinbjörn málið.“

„Nóttina sem hann dó vaknaði stofufélagi minn við það að ég var að tala upp úr svefni. Ég hafði ekkert getað tjáð mig en byrjaði þarna aftur að tala.

Ég var ótrúlega fljótur að ná mér í meginatriðum en ég hef samt aldrei náð mér alveg. Það eru alltaf einhvertauga- eða vöðvaeinkenni sem gera vart við sig sem má jafnvel rekja til þessa.“

Friðrikka og Sveinbjörn.

Sonarmissir og breytt líf

Sveinbjörn og Friðrika urðu fyrir þeirri erfiðu og sáru lífsreynslu að missa níu ára son sinn, Sveinbjörn, af slysförum. Söknuðurinn hverfur aldrei en þau hafa lært að lifa með honum og varðveita minningu sonarins og segja hann aldrei fjarri enda hugsi þau til hans daglega.

„Ég var þá starfandi í rannsóknarlögreglunni og fékk góðan stuðning þegar slysið var en svo hélt hversdagurinn áfram hjá öllum nema mér og ég var mættur í vinnu skömmu eftir slysið.

Ég óskaði svo eftir því að fá ársleyfi en fékk ekki og hætti þá, en ég varð að skipta um umhverfi. Á þessum tíma ræddi fólk svona hluti ekki eða líðan sína. Það var bara þannig og ekkert til sem heitir áfallahjálp. Ég vil ekki vera vanþakklátur, við fengum mikla hjálp frá fjölskyldum okkar beggja og mörgum góðum vinum en annað ekki. Sveinbjörn okkar var níu ára þegar hann dó og yngsti sonur okkar var fjögurra mánaða þá,“ segir Sveinbjörn og viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt að hugsa um bræður Sveinbjörns mitt í þessu áfalli og vera þeim styrkur. „Það var erfitt og bara að halda sjó. Það sem foreldrar eða nánustu aðstandendur þurfa að gera í svona aðstæðum er heilmikið. Dánarorsök var sögð drukknun samkvæmt krufningu en Sveinbjörn hrapaði við Systrafoss og fannst með andlitið á grúfu í smá sprænu þar hjá. Ég var í góðu sambandi við þá niðri á rannsóknarstofu og þeir sögðu við mig að þó að þeir hefðu verið á staðnum þá hefðu þeir engu getað breytt. Mér fannst gott að heyra það.

Það á ekkert foreldri að þurfa að ganga í gegnum slíka reynslu að missa barnið sitt, segir hann. „Ég var fullur sjálfsásökunar í áratugi á eftir að hafa ekki farið ekki með. Ef ég hefði farið, hvað þá. Sveinbjörn var í árlegri ferð með kirkjunni og steig óvarlega eitt skref út á rakt grasið og það var nóg, það fundust merki eftir það.“

Eðlilegt að fólk viti ekki hvað það eigi að segja

„Fólki er oft legið á hálsi fyrir að láta ekki heyra í sér eða koma ekki í erfiðum aðstæðum sem þessum, það er bara eðlilegt því fólk veit ekki hvað það á að segja eða gera, þetta er svo stórt. Menn grípa oft til frasa eins og tíminn læknar öll sár en hann gerir það ekki, hann hjálpar þér til að lifa við þessar gjörbreyttu aðstæður, sárið grær en það verður alltaf kaun undir niðri og þegar fólk heyrir svona fréttir þá fer að blæða aftur. Við Friðrikka höfðum ekki úr neinu að velja þannig að við unnum úr þessum harmi og héldum áfram með lífið, og við bárum líka ábyrgð á hinum drengjunum okkar og að koma þeim til manns, en Sveinbjörn er og verður alltaf hluti af fjölskyldunni.“

Sveinbjörn segist, tala við son sinn á hverjum einasta degi. „Eldri synir okkar, Bjarni og Eðvald, muna eftir Sveinbirni en sá yngsti, Helgi Þór, gerir það ekki. Það er hins vegar til mynd af Sveinbirni með hann í fanginuog sú mynd hefur mikið að segja fyrir Helga því það var snerting.“

Spurull og umhyggjusamur drengur

„Sveinbjörn var afskaplega hægur og svo ég vitni í kennarann hans þá var hann mjög traustur og bar umhyggju fyrir samnemendum sínum. Hann átti það til að koma til kennarans og hvísla að honum að sér fyndist þessi eða hinn fara óvarlega, það gætu verið hættur. Hann var næmur á umhverfið og afskaplega spurull og sagði gjarnan: „Ef maður spyr ekki þá veit maður ekki.“ Hann þurfti að innbyrða svo mikla þekkingu og upplýsingar á stuttri ævi. Það skiptir ekki alltaf öllu máli hvort ævin er stutt eða löng heldur það sem þú skilur eftir. Fyrir hvað ertu munaður eða munuð.“

Fór í guðfræði á miðjum aldri

Sveinbjörn hafði tekið verslunarpróf frá öldungadeild í Fjölbraut í Breiðholti og fór að vinna hjá Sambandinu í bókhaldi eftir andlátið. „Ég tók svo við bókhaldi í Miklagarði, var aðalbókari og skrifstofustjóri meðan Mikligarður lifði nánast. Þá langaði mig að fara í guðfræði en ég hef alla tíð verið trúaður og kannski hafði hvorutveggja þar áhrif á að ég veiktist alvarlega 14 ára og svo að missa Sveinbjörn. Friðrikka sagði: „Leggðu af stað, þú getur alltaf hætt við.“ Þar sem ég hafði ekki stúdentspróf fór ég og talaði við dr. Einar Sigurbjörnsson sem þá var forseti guðfræðideildar. Hann tók mér vel og sendi ég inn starfsferil, sitthvað um mig og ýmis próf sem ég hafði. Ég byrjaði 1993 í guðfræði þá 49 ára. Þetta var mikið átak en þarna var fólk á öllum aldri og ég ekki elstur. Enn í dag höldum við nokkur sambandi. Ég hætti að vinna þannig að við lifðum á launum Friðrikku en ég vann svolítið bókhald með náminu og var með aðstöðu heima og þegar ég var orðinn þreyttur á að lesa guðfræðibækur þá sneri ég mér bara við og fór að vinna í bókhaldi. Það var allt önnur hugsun. Ég útskrifaðist svo 1998 eftir fimm ára nám.

Símtalið örlagaríka

Kirkjan á Þórshöfn þar sem Sveinbjörn þjónaði.

Kvöld eitt fékk Sveinbjörn símtal sem átti eftir að verða örlagaríkt. „Sr. Ingimar Ingimarsson prófastur í Þingeyjarprófastsdæmi og sóknarprestur í Þórshafnarprestakalli, en honum hafði ég kynnst fyrr á árinu, hringir og segir mér að hann ætli að hætta um haustið og spyr hvort ég gæti hugsað mér að sækja um Þórshafnarprestakall. Við Friðrikka ákváðum að skoða svæðið áður en ég tæki ákvörðun. Eftir að hafa farið norður og skoðað svæðið og hitt fólk þá sóttum við um. Ég var eini umsækjandinn og fékk embættið frá 1. okt. 1999. Ný kirkja var vígð 22. ágúst 1999. Áður en maður vissi voru komin 5 ár. Okkur leið mjög vel á Þórshöfn og fólkið tók okkur afskaplega vel. Við eigum mikið af góðum vinum og kunningjum þarna. Þann 4. apríl 2004 var ég með fermingu en krakkarnir báðu um þennan dag, 04.04.04. Morguninn eftir fékk ég alvarlegt hjartaáfall. Ég hringdi í lækni og var kominn korteri seinna upp áheilsugæslu, ég náttúrulega keyrði sjálfur, það hvarflaði ekki að mér að ég væri með hjartaáfall. Ég átti að fara með sjúkraflugi frá Þórshöfn en veðrið leyfði það ekki. Það er flugvöllur á Vopnafirði, Þórshöfn og Raufarhöfn, en engan þessara flugvalla var hægt að nota vegna veðurs. Ég fór með sjúkrabíl frá Þórshöfn og sjúkrabíll frá Húsavík kom á móti okkur og ég var færður yfir í hann úti á Sléttu, á Húsavík beið mín flugvél. Það slokknaði einu sinni á mér á þessari löngu leið. Ég man ekkert meira alla þessa leið fyrr en ég kom kom til Reykjavíkur. Hjartað er alvarlega skemmt eftir þetta en ég hugsa lítið um það, ég er mjög mæðinn en ég lifi bara fyrir daginn í dag og geri mitt besta. Friðrikka hefur staðið þétt við hlið mér og ég fæ henni aldrei fullþakkað, það er ekki hægt að greiða þann reikning.“

Sveinbjörn tók við sem heimilisprestur á dvalarheimilinu Grund eftir veruna á Þórshöfn, það var yndislegur staður og ég var þar í þrjú ár. Ég ákvað að hætta störfum 65 ára og fór að sinna mínu grúski, ættfræði og fleira.“

Sveinbjörn og Friðrikka ásamt barnabarni, Dagnýju Mayu.

Jólaboðskapurinn er einfaldur

Nú er jólatíminn fram undan og Sveinbjörn segist myndi vilja að fólk hefði einkum tvennt í huga á þessum tíma. „Að sýna kærleik og virðingu. Þetta er minn jólaboðskapur. Það eru margir í kringum okkur, þó að við tökum ekki alltaf eftir því, sem þurfa hjálp. Stundum þarf bara samtal. Fólk áttar sig oft ekki á þeirri staðreynd að við erum aldrei nema einu símtali frá náunganum. Það er mikilvægt fyrir fólk að vita að það er einhver sem spyr.“

Sveinbirni er annt um unga fólkið og þá vegferð sem samfélagið er á. „Nú er ekki lengur heimilað að skólabörn heimsæki kirkjuna, í hverju liggur hættan? Við viljum lifa eftir gildum sem eru í kristinni trú, og í öðrum trúarbrögðum líka, en trú og trúarbrögð er svolítið sitthvað og svo er það sá sem velst til að vera í forsvari sem hefur áhrif á hvernig trúin er túlkuð. Hér áður fyrr var Biblían ekki til á íslensku og einungis fræðimenn sem gátu lesið hana sem túlkuðu það sem þar stóð. Það er ekki fyrr en Oddur Gottskálksson þýðir Nýja testamentið að við gátum farið að lesa sjálf og mynda grunn til samræðna.

Fermingarbörnum var í flestum tilfella gefin Biblía í fermingargjöf, en hver er fræðslan sem ungmenni fá ídag? Hún er mikið úr sjónvarpi og samfélagsmiðlum.

„Það vorum ég og þú sem upp þau ólum“, segir í ágætum texta og það verðum við að hafa í huga.

Gervigreind, tölvur og fleira er vandmeðfarið, við verðum að hafa stjórnina en ekki öfugt. Þess vegna vantar okkur oftar en ekki grunn sem við finnum í trú, það er kærleikur, virðing, vinátta og samkennd. Traust er líka mjög mikilvægur þáttur, ef þú treystir manneskju geturðu alltaf tjáð þig við hana og treyst því að það sem þú segir liggi hjá henni og fari ekki út um allt. Þetta vantar okkur líka. Þegar traust er fyrir hendi, opnast fyrir svo margt. Við þurfum að líka að taka eftir fólki og muna að hönd þess sem þarf hjálp er alltaf útrétt. Sýnum samhygð, ekkert okkar er eyland og ekkert okkar kemst af án samskipta við aðra.“

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna