Viðar Eggertsson – Lifðu núna

Tvisvar verður gamall maður unglingur
Viðar Eggertsson leikstjóri og öldungur skrifar.

Það er svo ótalmargt sem maður hefur innbyrt af hugmyndum og reynslu í gegnum ævina og getur litið til þegar maður hefur að baki mikinn árafjölda – og vonandi einnig töluverðan þroska. Allt það sem hefur mótað mann og gert mann að því sem maður er; núna þegar maður er orðinn öldungur. En orðið öldungur er myndað úr tveimur orðum: öld og ungur. Gott að hafa það í huga þegar tekið er til í geymslu minninganna, draumanna og reynslunnar.

Róta aðeins í þeim geymslum og finna þar að auki löngu týnda drauma og  langanir. Blása af þeim rykið og taka þá til handagangs. Ég trúi nefnilega því að tvisvar verður gamall maður unglingur. Tíminn er runninn upp!

Unglingsár mín, voru eins og flestra annarra, byltingarkennd. Fimmtán ára gamall breyttist ég og tók út nýjan þroska. Augu mín opnuðust fyrir ýmsum möguleikum sem ég þekkti ekki áður né vissi af og heimurinn stækkaði. Þetta var tími uppgvötvana á öllum sviðum. Umbrotatímar.

Ég hætti að vera barn, en var samt ekki orðinn neitt annað í staðinn. Var manneskja í hraðri mótun, þar sem allt var mögulegt – Hvílíkir tímar.

„Nú byltist allt og breytist“

Ég var svo heppinn að alast upp í skjóli 68-kynslóðarinnar; kynslóðarinnar sem bylti öllu og breytti. Á þeim árum, eins og fyrir flesta unglinga, voru listir og menning drifkrafturinn í endurskoðun alls í lífinu. Ómissandi hreyfiafl var tónlist og skáldskapur. Á mínu mótunarskeiði var söngvaskáldið Bob Dylan meðal helstu áhrifavalda og lagið hans um að nú væri runninn upp tími byltinga og breytinga, The Times They Are A-Changin, sem skáldið Þorsteinn Valdimarsson sneri svo snilldarlega á íslensku, Nú byltist allt og breytist. Í ljóðinu ávarpar Dylan ýmsa valdamenn og -stofnanir og segir þeim að nú séu runnir upp nýjir tímar og þörf sé á að hlusta eftir kalli tímans. Það var einkum erindið um foreldra og börn sem hreyfði mest við mér á þessum unglingsárum mínum þar sem ég var að breytast í sjálfstæða manneskju:

„Þér mæður og feður,                                  Come mothers and fathers

nei, fellið ei dóm                                           Throughout the land

á forsendum vanans                                    And don’t criticize

né páfans í Róm.                                          What you can’t understand

Þó að börn yðar vaxi                                   Your sons and your daughters

upp úr brekum og skóm                              Are beyond your command

um það bil sem þér eldist og þreytist.       Your old road is rapidly agin’

Látið þau hlýða kalli,                                    Please get out of the new one

þótt þér heyrið ei hljóm, –                           If you can’t lend your hand

því nú byltist allt og breytist.“                      For the times they are a-changin’

Sr. Örn Bárður Jónsson birti þýðingu Þorsteins á bloggsíðu sinni fyrir um ári og gerði um betur, því hann raular hana jafnframt. Hægt að hlusta HÉR.

68-kynslóðin

68-kynslóðin er oftast talin fædd í lok fimmta áratugar síðustu aldar og er því orðin að eldri borgurum og það fyrir nokkrum árum.

Þótt 68-kynslóðin sé ekki einsleitur hópur og ómögulegt sé að setja alla undir sama hatt er margt sem sameinaði ungt fólk á árunum kringum 1968. Til að mynda að vilja umfram allt ekki feta í fótspor foreldra sinna, sem unga fólkinu þótti óttalega smáborgaralegir og um fátt annað hugsa en efnisleg gæði. Að „vera“ frekar en „eiga“ og slá öllu upp í kæruleysi var meira í anda 68-kynslóðarinnar.

Þessi kynslóð varð fyrirferðarmeiri en kynslóðirnar á undan, gagnrýnni á alla skapaða hluti og óhrædd að lýsa andúð sinni á því sem henni þótti miður fara í samfélaginu. Viðhorfin spegluðust með afgerandi hætti í lífsstíl, tísku, kvikmyndum, sjónvarpi, bókmenntum, myndlist og þó fyrst og fremst tónlist.

Smátt og smátt gleypti brauðstritið 68-kynslóðina; hún stofnaði fjölskyldu, „barðist í bönkum“ við að koma sér upp húsnæði, koma sér fyrir á vinnumarkaði. Hún eignaðist börn og buru – en hvarf ekki.

Okkar tími er runninn upp

Nú er 68-kynslóðin mætt til leiks að nýju. Komin á eftirlaun og í flestum tilvikum að mestu laus við amstur hversdagsins. Hún er jafnvel í betri stöðu nú en áður til að hafa hátt. Hún getur látið sig varða hvaðeina sem hún vill. Getur leyft sér að hafa skoðanir og gagnrýna hugsun, því hún hefur engu að tapa heldur allt að vinna. Getur að nýju horft á samfélagið í kringum sig og tekið til hendinni!

Hún getur þess vegna dustað rykið af gömlum baráttusöngvum og sungið við raust af þekkingu og reynslu um að nú sé tími til breytinga:

„Þér sofendur, vaknið!                                  Come gather ’round people

Sjá, voðinn er beinn.                                     Wherever you roam

Hina vaxandi flóðbylgju                               And admit that the waters

stenst eigi neinn;                                           Around you have grown

og kannist hver við,                                      And accept it that soon

að hans kostur er einn                                 You’ll be drenched to the bone

og knappur sá frestur sem veitist              If your time to you is worth savin’

að læra að synda –                                        Then you better start swimmin’

eða sökkva´eins og steinn, –                      Or you’ll sink like a stone

því nú byltist allt og breytist.“                   For the times they are a-changin’

Rísum upp, áður en það verður of seint! Okkar tími er kominn!

Fer allt í hund og kött á nýju ári í einbýlishúsum landsins?
Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri skrifar.

Mér finnst skoðanakannanir skemmtilegar og afar fróðlegar, en ekki endilega hverjar niðustöður þær sýna, heldur oftar hvernig fólk svarar. Fólk svarar á alls konar forsendum, stundum eru þær nærtækar og stundum er erfitt að sjá tengsl fólks við viðfangsefnið. Þegar þær eru „brotnar niður“ eins og sagt er þá kemur stundum eitt og annað skondið í ljós. Við slík niðurbrot hef ég stundum séð ótrúlega ákveðin og einörð viðhorf til mála sem fólk hefur jafnvel enga reynslu af og hefur ekki upplifað neitt sem réttlætur svo ákveðna skoðun.

Ekki er sama hvernig könnun er framkvæmd

Stundum eru þessar kannanir framkvæmdar á vísindalegan hátt af viðurkenndum fagaðilum sem fylgja þröngum skilgreiningum um hvernig eigi að framkvæma skoðanakannanir svo þær gefi sem réttasta mynd af afstöðu hópsins sem svarar þeim. Slíkar kannanir eru mjög mikilvægar til að mæla púlsinn á tilteknum hópi eða sjálfri þjóðinni. Síðan eru hinsvegar ýmsar skoðanakannanir, oftast óvísindalegar, sem framkvæmdar eru án vísindalegra viðmiðana og fólk tekur af tilviljun þátt í þeim og er þá ekki endilega þverskurður af þjóðinni – nema síður sé.

Skemmst er að minnast ýmissa skoðanakannana sem t.d. Útvarp Saga hefur framkvæmt á heimasíðu sinni. Þar er vægast sagt ýmislegt á skjön. Man t.d. að samkvæmt einni slíkri hefði Guðmundur Franklín átt að hafa náð kjöri sem forseti á sínum tíma af þeim rúmlega 90% sem tóku þátt. Viðurkenndu skoðanafyrirtækin (Gallup, Maskína, Prósent og Zenter) mældu Guðmund Franklín með 6,5% – 9,7% á sama tíma. Man nokkur eftir að hann hafi náð kjöri? Ekki ég, enda hlaut maðurinn aðeins 7,8% atkvæða, svo viðurkenndu skoðanakönnunarfyrirtækin voru á nokkuð betra róli heldur en t.d. Útvarp Saga.

Gæludýr

Á dögunum var framkvæmd skoðanakönnun á nýjum lögum varðandi gæludýrahald í fjölbýli. Þar voru niðurstöðurnar einkar fróðlegar þegar þær voru brotnar niður. Þá kemur nú ýmislegt áhugavert (og jafnvel grátbroslegt) í ljós.

Megin niðurstaða könnunarinnar var þessi: „Helmingur landsmanna er ánægður með breyttar reglur um gærudýrahald í fjölbýlishúsum en þriðjungur óánægður. Mikill munur er á afstöðu fólks eftir kyni, aldri og því hvort það eigi gæludýr eða ekki.“

Í stuttu máli ganga nýju lögin um gæludýrahald, sem samþykkt voru frá Alþingi 12. desember sl., út á að leyfa hunda- og kattahald í fjölbýli óháð því hvort aðrir íbúar samþykki það eða ekki. Í lögunum er síðan sleginn varnagli um að ef eitthvað fer verulega úrskeiðis hjá þeim sem heldur gæludýrið í fjölbýlinu varðandi velferð dýrsins eða annarra íbúa vegna þess, þá geti íbúarnir (skiljanlega ekki vesalings dýrið sjálft) gripið inn í málin og gert hvorutveggja að úthýsa dýrinu eða eigandanum með dýrið.

Bestu vinir hundsins

Sjálfur fagna ég þessum lögum því ég á smáhund, minn annan á 20 árum og get hreinlega viðurkennt það hér að fáu hef ég séð eftir í lífinu nema þá helst að hafa ekki fengið mér hund fyrr. Hvílíkan félagsskap hafa þeir báðir veitt mér. Eftir að ég varð öldungur hefur hundurinn minn séð til þess að ég fái góða hreyfingu á hverjum degi. Hann er hreinlega lífsbjörg mín. Fyrir það er ég honum óendanlega þakklátur. Enda hef ég snúið við orðatiltækinu kunna og sagt að ég sé besti vinur hundsins. Held nefnilega að honum finnist það.

Ég hef stundum komið í heimsókn á ýmiskonar fjölbýli með hundinn með mér þar sem öldungar búa eða hafast við. Ég kemst alltaf við þegar ég sé dofin andlitin lifna í gleði þegar þau sjá hann og síðan væntumþykjuna þegar þau fá að halda á honum og strjúka blíðlega. Enda gerir Rauði krossinn út vinahunda til að heimsækja gamalt og lasburða fólk í einmanaleik sínum og fáskiptni.

Eins gleymi ég ekki vinkonu minni sem býr í fjölbýli fyrir aldraða og sögu sem hún sagði mér. Þegar hún var að fara með lyftunni einn daginn kemur einsetukona, sem býr í húsinu, með smáhund með sér inn í lyftuna. Einsetukonan horfði óttaslegin og hrædd á vinkonu mína og úr augum hennar skein bæn um að atyrða hana ekki fyrir smáhundinn, besta vin hennar og sambýling. Vinkona mín lét sem ekkert væri og brosti og það var eins og heimsins áhyggjur hryndu í einu vetfangi af konunni. Hún hafði sloppið í þetta sinn með vin sinn einasta eina.

Einbýli og fjölbýli

Samkvæmt fyrrgreindri könnun um viðhorf fólks til gæludýrahalds í fjölbýli sem skoðanafyrirtækið Prósent framkvæmdi, þá eru búar í tvíbýli, þríbýli og fjórbýli jákvæðastir (enda má gera ráð fyrir að þeir hafi sjálfir einhverja reynslu af gæludýrahaldi í fjölbýli).

Athygli vekur, aftur á móti, að út frá búsetuformi fólks er minnstur stuðningur og mesta andstaðan við lagabreytinguna meðal íbúa í einbýlishúsum sem lögin hafa engin áhrif á! Þá erum við aftur komin að spurningunni um forsendur fólks þegar það svarar skoðanakönnunum, því þó þær spegli kannski viðhorf fólks til ákveðinna málefna, þá geta viðhorf fólks jafnvel blindað þeim sýn og rökhyggjan fokið út í veður og vind.

Það er þá kannski engin undra að maður spyrji sig í ljósi niðurstaðanna: Fer allt í hund og kött á nýju ári í einbylishúsum landsins vegna rýmri laga um gæludýrahald í fjölbýlum?

Ja, ekki er nú öll vitleysan eins.

Boðið til sætis – í minningu látins ástvinar
Viðar Eggertsson

Viðar Eggertsson, leikstjóri og öldungur, skrifar:

„Það vantar svo fleiri bekki í Reykjavík“, var setning sem vinir Unu Collins búningahöfundar mundu öll sterklega eftir að hún hafði oft sagt.

Þau höfðu komið saman til að minnast hennar að henni látinni og voru að ráða ráðum sínum hvernig best væri að minnast hennar og þess mikla framlags sem hún lagði sviðslistum á Íslandi. Það þurfti því ekki að bollaleggja mikið lengur. Þau afráðu að koma upp bekk í almannarýminu til minningar um hana og staðsetningin skyldi vera í miðborginni enda var starfsvettvangur hennar löngum þar.

Una

Una Collins fæddist í London 1935. Hún átti langan og merkan feril sem búninga- og leikmyndahöfundur í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum víða í Evrópu. Hún tók sérstöku ástfóstri við Ísland. Una kom fyrst hingað til lands árið 1966 og var um tíma fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu. Hún hélt tryggð við íslenskt leikhús upp frá því og vann við tugi leiksýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar. Þá vann hún við á annan tug sýninga hjá Íslensku óperunni auk þess að gera búninga fyrir íslenskar sjónvarpsmyndir og kvikmyndir. Una var afkastamesti búningahöfundur sem starfað hefur í íslensku leikhúsi. Hún lést 68 ára að aldri árið 2004.

Rangalar kerfisins

Þegar vinahópur Unu fór að vinna að því að koma upp minningabekk um hana komust þau fljótt að því að slíkt væri ekki auðvelt mál. Engar reglur eða ferlar eru til hjá borginni um minningabekki, því það hefur aldrei verið tekin ákvörðun um hvort slíkir bekkir eigi að vera í borginni og þá heldur ekki hvernig almennir borgarar geta sótt um að setja niður minningabekki. Þar sem engar samþykktar reglur eru til þá er erfitt að vita hvar hugsanlega megi gera það, hvar eigi að sækja um og að ekki sé talað um hvaða kostnað umsækjendur þurfa að bera fyrir bekkinn sjálfan og tilheyrandi kostnað við jarðvegsbreytingar og undirstöður.

Vinahópur Unu þurfti því að fara um ýmsa rangala kerfisins. Þau fundu að lokum starfsmann borgarinnar sem gat látið langþráðan draum ræstast eftir að hafa haft öll spjót úti um að minningabekkurinn yrði að veruleika. Þau söfnuðu fyrir kostnaðinum og eftir nokkur ár reis bekkurinn við Skúlagötu, í námunda við þau leikhús sem Una starfaði mest við.

Í skjóli Sólfarsins

Bekkurinn hennar Unu stendur nú við göngustíginn meðfram Sæbraut, milli Hörpu og Sólfarsins eftir Jón Gunnar Árnason, þó nær Sólfarinu. Þetta er eini almenningsbekkurinn á þessum hluta gönguleiðarinnar. Einstök staðsetning og væri tilvalið að hafa fleiri minningabekki á göngustígnum meðfram strandlengjunni með einstöku útsýni til hafs, Esju og Viðeyjar. Fleiri bekkir myndu eflaust ýta undir að fleiri færu þessa fallegu gönguleið sér til gleði og heilsubótar. Því fleiri almenningsbekkir við gönguleiðir myndu auðvelda mörgum að stunda heilsusamlegar gönguferðir – ekki síst eftirlaunafólk.

Á síðustu árum hafa æ fleiri viljað minnast látinna félaga og ættingja með því að gefa minningarbekki sem um leið myndu þjóna gangandi vegfarendum, en hafa rekið sig á veggi; óþarfa veggi sem kerfið hefur ekki enn brotið niður með því að taka af skarið með pólitískri ákvörðun um að minningarbekkir verði hluti af almenningsbekkjakerfi borgarinnar. Eftir að formleg ákvörðun hefur verið tekin þá ætti að gera umsóknarferli auðvelt og aðgengilegt.

Öldungar leggja til breytingar

Vegna þessa lögðu fulltrúar U3A Reykjavík og Samtaka aldraðra í öldungaráði Reykjavíkurborgar, sem fundar með mannréttindaráði borgarinnar, fram bókun og tillögu um að borgarstjórn setti sér reglur og markmið með almennri almenningsbekkjavæðinu í borginni þar sem reglur og ferlar um minningarbekki yrðu jafnframt að veruleika og minningarbekkirnir yrðu hluti af skipulaginu.

Tillagan hafði verið kynnt á sameiginlegum fundi ráðanna á mánaðarlegum fundi í júní sl., síðan lögð formlega fram á októberfundinum og borin síðan upp formlega á nóvemberfundinum þar sem einróma var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum, bæði frá stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum, að vísa tillögunni til umhverfis- og skipulagsráðs og fylgdi með eftirfarandi bókun:

„Mannréttindaráð styður tillöguna og leggur áherslu á að hún hljóti vandaða meðferð í umhverfis- og skipulagsráði. Mikilvægt er að mótuð sé skýr og samræmd stefna um staðsetningu og hönnun almenningsbekkja í borgarlandinu, sér í lagi minningabekkja.“

Minningarbekkir eru einstök leið til að gefa af sér til samfélagsins til minningar um látinn ættingja og ástvin. Gjöf sem gleður göngumóða á heilsusamlegri göngu um borgarlandið.

Höfundur er fulltrúi U3A Reykjavík í öldungaráði Reykjavíkurborgar.

Er bara einn öldungur á Íslandi?!
Viðar Eggertsson leikstjóri og öldungur skrifar.

Að ljúka störfum á vinnumarkaði kallar á ýmsar vangaveltur um framtíðina.

Hvað ætla ég að gera við allan þennan frítíma sem ég mun eiga? Hvað langar mig til að verða þegar ég hætti formlega störfum? Og ekki síst: Hvað á ég að kalla mig þegar ég er ekki lengur starfið mitt?

Flest okkar höfum menntað okkur til ákveðinna starfa. Sú menntun hverfur ekki þó við hættum á vinnumarkaði. Við hættum ekki að vera smiður, kennari, líffræðingur, ljósmóðir, ef það eru t.d. störfin sem við menntuðum okkur til. Við erum bara ekki lengur að vinna við það baki brotnu. Við nefnilega ráðum okkur sjálf og getum fengist við það sem okkur langar, þó yfirleitt fáumst við áfram við eitthvað sem tengist menntun okkar og sérþekkingu.

Við ráðum líka sjálf hvernig við skilgreinum okkur og það er alveg óþarfi að hætta að skilgreina okkur samkvæmt því starfi eða iðn sem við menntuðum okkur til. Kunnáttan og þess vegna ástríðan hverfur ekkert endilega þó við hættum að puða við starfið daginn út og inn.

Vissulega er það breyting að hætta á vinnumarkaði og fara jafnvel í fullt starf sem…? Sem hvað?, spyrja sig margir.

Ég stóð á þessum tímamótum fyrir rúmu ári. Því ég ákvað að hætta þá í föstu starfi þegar ég varð sjötugur. Síðan hef ég velt fyrir mér hver ég er, hver ég er orðinn og ekki síst: Hvað vil ég kalla mig í samfélagi sem starfsgrein er mikilvæg skilgreining á hvað hver og einn er.

Vissulega hafa ýmsir merkimiðar verið settir á fólk sem er komið á eftirlaun. Vinsælast hefur verið starfsheitið „eldri borgari“. Fjölmörg félög sem kennd eru við „eldri borgara“ spruttu eins og gorkúlur vítt og breitt um allt land síðustu áratugina. Þau eru víst orðin 56 félög eldri borgara um allt land með yfir 36.000 félagsmönnum og flest heita þau „Félag eldri borgara…“

Í seinni tíð hefur fólk farið að efast um þennan titil á einstaklingum: „Eldri borgari“. Enda óþjálft og ekkert sérstaklega aðlaðandi. Eldra fólk hefur sjálft haft frumkvæði að því að þessi hópur þjóðfélagsþegna sé kallaður, þegar þarf að nefna hann sérstaklega, „Eldra fólk“. Stjórnmálafólk og aðrir í opinberri stjórnsýslu eru líka farnir að kalla þennan þjóðfélagshóp „Eldra fólk“!

Það er bara ágætt… fyrir þau. En ekki get ég kallað sjálfan mig, einan og sér, „Eldra fólk“!

„Þarna er efinn“, sagði Hamlet forðum þegar hann velti fyrir sér tilvist sinni á heimspekilegum nótum. Ég fór að taka undir með Hamlet þegar ég hætti föstu starfi á vinnumarkaði. „Hver er ég“?, spurði ég sjálfan mig aftur og aftur og aftur. Já, þið munið að ég var hættur á vinnumarkaði og var kominn í svona „tilvistarkrísu“ eins og hendir oft unglinga – og Hamlet og eldra fólk!

Eftir rúmt ár komst ég loks að niðurstöðu. Ekki seinna vænna fyrir mann sem situr í öldungaráði Reykjavíkurborgar fyrir hönd U3A-Reykjavík sem skilgreinir sig sem Háskóla 3ja æviskeiðsins. Sit þar sem „öldungur“ ásamt tveimur öðrum „öldungum“. Okkur er treyst til að hafa innsýn og þekkingu á málefnum og hagsmunum eldri borgara, eldra fólks, allra öldunga í borginni.

Þarna kom það! Ég er ÖLDUNGUR. Fallegt orð sem tengist aldri og visku í gegnum aldirnar. Vissulega hef ég aldurinn þó viskan sé nú svona og svona.

Fyrst niðurstaða var komin og ég nokkuð ánægður með hana þá dreif ég mig í að fara á ja.is til að breyta starfsheiti mínu. Það er nefnilega hægt að breyta skráningu sinni á vefnum ja.is. Ég skráði mig: „leikstjóri og öldungur“.

Kerfið hikstaði aðeins og lét vita að þetta myndi ekki ganga, það væri eitthvað óvenjulegt við þessa skráningu og það þyrfti lifandi manneskja að yfirfara þessa skráningu til að hún hlyti samþykki.

Það er svosem alveg skiljanlegt að ja.is myndi hiksta ef einhver útí bæ myndi skrá sig t.d. sem „hóra“ eða „forsætisráðherra“! En er „öldungur“ vikilega annað hvort dónalegt eða óviðeigandi?

En ég þurfti ekki að bíða lengur en til næsta virka dags til að sjá að nýja skráningin mín hafði verið samþykkt! Ég fór að skoða vefinn ja.is og prófaði að seja inn orðið „öldungur“.

Þá kom í ljós að ég var eini öldungurinn á Íslandi! Ótrúlegt en satt, miðað við símaskrána ja.is.

Þið þarna ca 54.000 öldungar þarna úti, skráið ykkur strax svo það sé ekki bara einn öldungur á Íslandi.

Vitglöp Bruce Willis draga fram í dagsljósið matarvenjur sem læknar segja gætu verið fyrstu merki um þau
Fréttin af því að bandaríski leikarinn Bruce Willis hafi verið fluttur að heiman vegna framheilabilunar hefur vakið mikla athygli vestan hafs og hefur um leið varpað nýju ljósi á sjúkdóminn og hvernig hann hefur áhrif á matarvenjur.

Emma Hemming, eiginkona hins sjötuga Willis, tilkynnti nýlega að hún hefði ákveðið að flytja hann í annað fjölskylduhús, þar sem núverandi heimili, sem hann deildi með henni og tveimur ungum dætrum sínum, væri ekki hentugt fyrir uppeldi þeirra og þroskaskilyrði á sama tíma og andlegu ástandi hans hrakaði.

Framheilaheilabilun einkennist af hrörnun og rýrnun á framhlið og hliðum heilans, sem síðan leiðir til breytinga á hegðun og persónuleika – og eins og í tilfelli Willis hefur það áhrif á minni og  getu til að hugsa og tala.

Fæða er annar þáttur í lífi sjúklingsins sem sjúkdómurinn hefur áhrif á

Dæmi um að matarvenjur breytist og hafa um leið áhrif á vitglöp er hin svokallaða „Bananakona“ sem International School of Advanced Studies skoðaði árið 2006. Á einhverjum tímapunkti fékk þessi kona ástríðu fyrir banönum og drakk lítra af mjólk daglega.

„Eftir að hún lést staðfesti heilagreining sjúkdómsgreiningu læknisins: konan þjáðist af framheilabilun, algengri tegund vitglapa sem er næst algengust á eftir Alzheimerssjúkdómnum,“ greindi Science Daily frá.

Í rannsókninni kom fram að konan neytti ekki neins annars en banana, hegðun sem vísindamaðurinn Marilena Aiello benti á gæti valdið því að einstaklingar léttist „vegna þess að þeir borða einhæfa fæðu á þráhyggjukenndan hátt.“ Livewell, samtök sem sérhæfa sig í umönnun Alzheimerssjúklinga og annarra með vitglöp, benda á að þyngdartap hjá sjúklingum geti stafað af fjöltengdum vandamálum, þar á meðal vanhæfni þeirra til að nærast sjálfir, tjá sig um hungur og í alvarlegum tilfellum gætu þeir ekki einu sinni áttað sig á því að þeir séu svangir. „Sannleikurinn er sá að mikil breyting á matarlyst er oft eðlilegur hluti af sjúkdómnum,“ segir á vefsíðu samtakanna. Það sem flækir enn frekar erfiðar aðstæður er að þessi venja magnast upp í áráttu fyrir því að borða óætar vörur.

Kona greip eiginmann sinn við að reyna að borða glerkúlu

Dr. Elaine Eshbaugh, prófessor í öldrunarfræði og fjölskyldufræði við Háskólann í Norður-Iowa, rifjar upp þegar eiginmaður vinkonu hennar reyndi að borða glerkúlu. Þetta leiddi til þess að sjúklingurinn var færður á minnisdeild, enda benti þetta til þess að þörf væri á „nákvæmu eftirliti“.

„Það er vitað að einstaklingar með vitglöp hafa drukkið hreinsiefni og borðað uppþvottaefnispúða [Tide Pot],“ skrifar Eshbaugh á vefsíðu sinni, When Dementia Knocks. „Augljóslega þarf fólk sem hefur myndað með sér tilhneigingu að borða óætar vörur, náið eftirlit og vera í vandlega stýrðu umhverfi til að tryggja öryggi sitt.“

Á hinn bóginn er einnig vitað að heilasjúkdómurinn getur líka haft þveröfug áhrif á mataræði. Sjúklingar með framheilabilun hafa einnig orðið uppvísir að stela mat af diskum annarra. „Þessi hegðun er vandamál, auðvitað félagslega, en einnig hvað varðar heilsu sjúklinga þar sem þeir hafa þá tilhneigingu til að þyngjast,“ sagði Aiello í viðtali við Science Daily. Í öðrum tilfellum gæti sjúklingurinn gleymt að hafa borðað, haft áhyggjur af næstu máltíð eða jafnvel ruglað þorsta saman við hungur. Þetta gerist þegar undirstúkan er skemmd. Þessi röskun gæti þó tengst beint framheilavitglöpum þar sem hún hefur áhrif á undirstúkuna (framhluti milliheila, liggur milli framstúku og þriðja heilahólfs. Tekur þátt í samhæfingu milli sjálfvirka taugakerfis og heiladinguls), sem stjórnar meðal annars matarlyst.

„Þetta gæti falið í sér breytingu á sjálfvirka taugakerfinu, sem einkennist af breyttu mati á merkjum líkamans, svo sem hungri, mettunartilfinningu og matarlyst,“ sagði Aiello. „Þessar skemmdir á framheila geta valdið tapi á hömlunarmerkjum, sem leiðir til hegðunar eins og ofáts.“ Í viðtali á dögunum gaf Emma, eiginkona Bruce Willis, til kynna að hann hefði misst minnið og talgetuna. „Bruce er við mjög góða heilsu almennt, veistu. Það er bara heilinn sem er að bregðast honum,“ sagði hún í viðtalinu. „Tungumálið er að breytast og, þú veist, við höfum lært að aðlagast,“ sagði hún áður en hún bætti við: „Og við höfum leið til að eiga samskipti við hann, sem er bara öðruvísi leið, öðruvísi.“ Emma talaði ekki um matarvenjur leikarans, þó að það væri nefnt að hann yrði í umönnun sérstaks teymis allan sólarhringinn á nýjum dvalarstað, öðru fjölskylduheimili þeirra. En engu að síður hefur fréttin um veikindi svo frægs leikara orðið til þess að fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa beint  kastljósi sínu meira að vitglöpum og öðrum heilabilunarsjúkdómum og keppst við að fræða almenning um þá. Það er þá alltént til einhvers ef slíkur harmleikur sem Willis fjölskyldan glímir nú við verði til vitundarvakningar meðal þjóðarinnar um alvarlega sjúkdóma.

Viðar Eggertsson, leikari og leikstjóri, skrifar fyrir Lifðu núna

Ljóðaflokkur eða ballett?
Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri skrifar.

Fyrir nokkrum árum barst inn á heimili mitt listaverk sem ég hef fyrir augunum alla daga og minnir mig á tímann; tímann sem er að líða og mun hverfa í næstu andrá.

Þetta er textaverk þar sem einfaldlega stendur: ÞAÐ VERÐUR EKKI AFTUR NÚIÐ.

Ég staldra stundum við þetta verk, þessa áminningu. Þau andartök er gott að hugleiða tímann. Hvert fór tíminn? Hversu mikill tími er eftir?

Því er gott að hjafa í huga sem segir í Predikaranum í Biblíunni:

Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma.

Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma.

Því er ekki að undra að tíminn og æviskeiðið sé vinsælt yrkisefni skálda. Hvernig við verjum tímanum – já, eða eyðum honum. Hinum knappa tíma lífsins sem okkur hefur verið úthlutað.

Halldór Laxness yrkir fyrir hana Lóu í Silfurtúnglinu vögguvísu sem hún syngur fyrir barnið sitt. Söngurinn ber hana á svið skemmtistaðarins Silfurtúnglsins þar sem hún syngur vögguvísuna fyrir skemmtanaglaða áhorfendur, en gleymir á meðan barninu sem vögguvísan var fyrir. Vögguljóðið byrjar svona:

Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,

hvert andartak er tafðir þú hjá mér

var sólskinsstund og sæludraumur hár,

minn sáttmáli við guð um þúsund ár.

Vögguljóðinu lýkur á þessari áminningu um tímann sem er svo hverfull og fljótur að líða:

Já, vita eitthvað anda hér á jörð

er ofar standi minni þakkargjörð,

í stundareilífð eina sumarnótt,

ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt.

Já, það verður ekki aftur núið, um það söng hún Lóa í Silfurtúnglinu, en gleymdi sér þó og missti af hinum raunverulega dýrmætu andartökum, andartökunum sem liðu hjá svo undurskjótt.

Jökull Jakobsson leikskáld skrifaði gjarnan um hinn hverfula tíma í leikverkum sínum. Í einu þeirra, Klukkustrengjum, lætur hann eina persónuna, hann Kristófer bankagjaldkera,  vitna í sífellu í persneska skáldið Omar Khayyám í íslenskri þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar:

Sjá. Tíminn, það er fugl, sem flýgur hratt.

Hann flýgur máske úr augsýn þér í kveld!

Kristófer bankagjaldkera í leikverkinu Klukkustrengjum dreymdi dagdrauma um að breyta lífi sínu algjörlega. Hver hefur ekki gælt við slíka drauma? Að eitt líf þyrfti ekki að vera helgað einu ævistarfi, því mætti skipta í nokkur áhugaverð líf með því að skipta um ævistarf. Því „Tíminn, það er fugl, sem flýgur hratt…“ og „Það verður ekki aftur núið“.

Kristófer hafði gengið með það lengi í maganum að verða listamaður. Hann var búinn að ganga með það í maganum mjög lengi. Hann var meira að segja með hugmynd að listaverki.

En það stóð hnífur í kúnni eins og þar segir – og sá hnífur var þungur. Og meðan sá hnífur var til staðar gat Kristófer ekki tekið skrefið, stóra skrefið að breyta lífi sínu áður en tíminn flygi úr augsýn hans síðasta ævikvöldið, sem gæti verið fyrr en varði.

Það sem stóð í vegi fyrir að hann tæki skrefið var að hann gat ómögulega gert upp við sig hvort listaverkið sem hann var að vinna að í huganum ætti að vera ljóðaflokkur eða ballett.

Með því að koma sér upp þeim vafa, tókst Kristófer það sem svo mörgum okkar hefur tekist: Að koma sjálf í veg fyrir að við tökum skrefið að kanna nýja stigu og njóta lífsins til fulls – áður en tíminn flýgur okkur úr augsýn, jafnvel í kveld.

Það verður ekki aftur núið!

Silfurskeiðungar eru pörupiltar og hrekkjusvín ársins
Viðar Eggertsson

Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri skrifar.

Við árgangurinn minn úr Leiklistarskóla SÁL sem útskrifuðumst 1976 höfum haft að sið síðan að halda saman pálínuboð á gamlársdag. Þá fögnum við lífinu, árinu sem er að kveðja og nýju komandi ári. Þetta er yndisleg árviss stund. Auðvitað höfum við breyst, því öll erum við hvert með sínu móti. En við eigum þessi tímamót sameiginleg og vináttuna sem aldrei bregst. Við höfum skiljanlega þroskast heilan helling á þessum 48 árum – aðallega líkamlega. En mikið er þetta gaman!

Á sama tíma fór fram annað partý í öðru húsi með öðru fólki. Það partý fór fram fyrir opnum tjöldum fyrir alþjóð og kallast Kryddsíld. Ég sá það ekki fyrr en mínu vinaboði lauk.

Í tímaflakkinu sá ég að fólkið í Kryddsíldinni sat ekki hringinn í kringum veisluborðið eins og við gerðum og gátum verið í góðu augnsambandi, heldur sátu þau við háborð með óbreytta horfandi á úr rökkvuðum sal og þjóna á hverjum fingri.

Fyrir miðju tveir gestgjafar og þrír stjórnmálaleiðtogar á hvora hönd þeirra; þrjár konur sem nýbúnar eru að mynda ríkisstjórn með ríflegum fjölda þingsæta eftir lýðræðislegar kosningar og hins vegar þrír karlar sem lutu í lægra haldi og sitja nú í minnihluta á þingi. Allir karlarnir eiga að baki endasleppta veru í stóli forsætisráðherra og hrökkluðust frá yfirleitt vegna baktjaldamakks og hneykslismála.

Þetta var erfitt að horfa á. Þarna reigðu sig föllnu höfðingjarnir þrír sem auðljóslega töldu að þeir hafi verið bornir til auðs (rétt) og til valda (rangt)! Þeir hjuggu á báðar hendur – bókstaflega – því konunum hafði verið stillt upp á milli þeirra við háborðið. Þeir létu eins og þeir hafi verið rændir völdum af skríl.

Sérstaklega hömuðust þeir með svívirðingum á Ingu og gerðu bókstaflega hróp að henni sem stofnaði stjórnmálaflokk 2016 til að berjast fyrir þá sem verst eru settir. Hún sjálf þá öryrki í öryrkjaíbúð og með lítið á milli handanna eins og margir í þeirri stöðu. Hvað vill hún upp á dekk, óbreytt alþýðukonan?!

Hún komst á þing með flokkinn sinn 2017 og hefur verið óþreytandi í að segja silfurskeiðingunum sem hafa stjórnað Íslandi að það hafa það bara alls ekki allir jafn gott í samfélagnu og þeir. Því þó þeir hafi hrópað á móti: „Sjáið þið ekki veisluna?!“ Þá hefur hún óhrædd bent þeim á að hin svokallaða „veisla“ er bara einkapartý milljarðamæringa í Garðabænum.

Nú er hún komin í valkyrjuríkisstjórn og orðin ráðherra. Í stað þess að samfagna og bera tilhlýðilega virðingu fyrir henni, lá við að þeir misstu sig af reiði og hneykslun á að hún skyldi vera komin þangað sem hún er komin vegna eigin verðleika. Auðvitað varð hún bæði særð og reið og reyndi af fullum mætti að svara fyrir sig.

Þorgerður Katrín og Kristrún voru þær einu af gestum háborðsins sem sýndu yfirvegun og voru málefnalegar og hvetjandi við háborðið. Þær sýndu vel úr hverju þær eru gerðar og hvers má vænta af valkyrkjunum á komandi árum – og vonandi áratug.

Fallegast var þegar Kristrún forsætisráðherra minnti ákveðið og rólega óknyttadrengina og hrekkjusvínin á að Inga væri fullgildur flokksformaður í ríkisstjón og nyti trausts og virðingar sem slíkur. Þarna var landsmóðir sem kunni að tala við óuppdregna pörupilta.

Það eru breyttir tímar með rísandi sól!

Myndin er af veisluborði okkar SÁLarana sem við nutum af innilegri gleði meðan hnútuköst fúllyndra karla sem töldu sig eiga Ísland flugu um háborð Kryddsíldarinnar.

„Ég verð að hrökklast inn í skápinn aftur. Ég þori ekki annað“
Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri skrifar.

Hvernig er að eldast hinsegin á Íslandi?

Þau sem stóðu að stofnun Samtakanna ’78 á sínum tíma eru nú komin á ellilífeyrisaldur. Af þeim sökum blasa við nýjar áskornir þessum hópi sem mörg hver þurfa að endurlifa gamla fordóma frá yngri árum sem þau höfðu sigrast á – nú á síðasta æviskeðinu.

Við hjúkrunarheimilum landsins blasir alveg nýr veruleiki: Fólk sem er að koma þar inn hefur sumt verið opið með sína kynhneigð og út úr skápnum mestan hluta ævinnar. Þetta fólk hefur ekki verið í felum með hver þau eru og vill halda því áfram. Það vill ekki fara inn í skápinn af því það er komið á hjúkrunarheimili.

Sama máli gegnir í búsetukjörnum fyrir eldra fólk eingöngu.

Vinur minn einn býr á slíkum kjarna og þar er auðvitað fyrir fólk sem er á svipuðum aldri og hann eða eldra. Skyndilega var hann aftur kominn í sömu stöðu og sem ungur maður þegar hann var einn sem stóð í mannréttindabaráttu Samtakanna 78. Þá þurfti hann að líða einelti og hatursorðræðu sem hann hafði kjark og dug til að berjast gegn. Hann er að upplifa þessa tíma aftur inni á íbúðakjarnanum og er að einangrast þar. Því hann lokar að sér og lætur lítið fyrir sér fara, því hann heyrir hvískrið, sér bendingar og augngotur. Í sameiginlegum rýmum er hann sífellt á varðbergi því hann óttast að þurfa að upplifa það sama og hann þurfti mörgum áratugum áður. Hann hefur ekki það þrek lengur að verjast augliti til auglitis. Eða eins og hann sagði við mig: „Ég verð að hrökklast inn í skápinn aftur. Ég þori ekki annað. Ég er að mæta aftur fólki sem sýndi mér andúð í gamla daga. Ég get ekki tekið þessum fordómum aftur.“

Fyrir nokkrum árum fór kona nokkur hér á landi inn á hjúkrunarheimili, en hún upplifði þar að það væri ekki tekið tillit til reynslu hennar og langrar sambúðar hennar með konu. Hún hafi í raun verið komin inn í skápinn aftur af því að ekki hafi verið gert ráð fyrir því að hún væri lesbísk. Ávallt sé gert ráð fyrir því, alveg frá leikskóla og upp úr, að foreldrar séu karl og kona og að maki sé af hinu kyninu.

Ekki fyrir löngu sagði forstöðukona hjúkrunarheimilis að þar væru engir fordómar í garð samkynhneigðra. Þegar hún var síðan spurð hversu margir íbúar heimilisins væru samkynhneigðir. Vissi hún um enga. Enga.

Í stærri samfélögum eins og Danmörku eru rekin sérstök hjúkrunarheimili og íbúakjarnar fyrir þennan hóp, því Danir hafa áttað sig á að við þessu þarf að bregðast.

Fyrir nokkrum árum birtist viðtal við gamlan Dana sem var orðinn ekkill. Hann hafði stungið myndunum af sér og manninum sínum niður í skúffu. Honum fannst erfitt að þurfa að koma út úr skápnum aftur gagnvart öllu starfsfólkinu á þessu nýja heimili sínu, svo hann bara hrökklaðist inn í skápinn aftur. Svo var stofnað þetta nýtt hjúkrunarheimili, hann flutti þangað og er með allar sínar fjölskyldumyndir og regnbogafána upp um alla veggi, alls staðar. Þetta skiptir máli, það skiptir máli að fá að hvíla sæll í sjálfum sér, sama hvar þér er holað niður.

Í október sl fór fram Norræn ráðstefna í Stokkhólmi um stöðu eldra hinsegin fólks á Norðurlöndunum með þáttakendum frá Íslandi, Svíþjóð, Grænlandi, Danmörku, Færeyjum, Noregi, Álandseyjum og Finnlandi.

Í lok ráðstefnunnar var samþykkt yfirlýsing sem birtist HÉR á íslensku.

Besti vinur hundsins
Viðar Eggertsson leikari og leikstjóri skrifar.

Það er gott að eiga vin, vin sem elskar mann skilyrðislaust, vin sem fylgist með hverju fótmáli manns af ástúð, vin sem bíður manns heima og fagnar innilega þegar maður kemur heim.

Ég er svo heppinn að eiga slíkan vin. Það er hann Ísar. Átta ára gamall smáhundur. Hann lítur á mig sem besta vin sinn. Hann heldur mér selskap og sér um að ég hreyfi mig nægjanlega á hverjum degi.

Dag hvern fer hann með mig í göngutúra svo ég fái nægja hreyfingu og útivist. Ferðir okkar saman um nágrennið verða oft ævintýraferðir þar sem við upplifum og sjáum alls konar smálegt sem oft er skemmtilegt, fallegt og athyglisvert. Þannig þjálfar hann mig í líkamlegri hreyfingu og viðheldur athyglisgáfu minni.

Mikið væri líf mitt snautlegt og viðburðasnauðara án hans, að ég tali ekki um hve heilsa mín væri bágbornari.

Það hefur verið sýnt fram á, með ýmsu móti, hvað gæludýr geta veitt mikilli jákvæðni inn í líf fólks og þá ekki síst inn í líf eldra fólks. Enda eru hundar gerðir út sem heimsóknarvinir á vegum Rauða krossins á öldrunarstofnunum til að létta lund heimilisfólks þar og veita þeim ánægju og gleði. Það hefur stytt þeim stundirnar og veitt þeim lífsfyllingu að verða bestu vinir hundsins.

Því er stórundarlegt að það skuli viðgangast að húsfélagsfundir í fjöleignahúsum banni alfarið gæludýrahald. Þar hefur meirihlutinn ákeðið slíkt og samþykktin síðan gengið í erfðir til allra þeirra sem síðar eignast íbúðirnar.

Slíkt er „löglegt“ en í rauninni á skjön við lögin.

Eins er mjög vafasamt þegar fasteignasalar auglýsa að í tilteknum fjöleignahúsum sé „gæludýrahald leyft“. Eins og þannig sé og verði um aldur og ævi.

Því það gilda lög í landinu um gæludýrahald í fjölbýlishúsum. Með þessum lögum á hver og einn hundur, eða annað gæludýr, rétt á að vera borinn undir atkvæði og fá rétt til búsetu ef tveir  þriðju íbúðaeigenda hússins samþykkja heimilishald hans í fjölbýlinu. Hver samþykkt gildir eingöngu um t.d. tiltekinn hund og framlengist ekki fyrir aðra hunda sem síðar kynnu að koma. Þess vegna er það brot á lögum að samþykkja alfarið hundabann í fjölbýli eða að auglýsa að í tilteknu fjölbýli sé gæludýrahald leyft. Því slíkar samþykktir eru hrekjanlegar á húsfundi fjöleignahússins.

Á Alþingi liggur fyrir frumvarp frá þingmönnum Flokks fólksins, (lagt fram fimm þing í röð án þess að fá enn þinglega meðferð) sem mun útvíkka þennan rétt fólks til að hafa „besta vininn“ hjá sér í sinni eigin íbúð. Í frumvarpinu er kveðið á um að almennt sé gæludýrahald leyft í íbúðum fjölbýlishúsa, en réttur annarra í húsinu þó tryggður séu gild málefnaleg rök fyrir að úthýsa gæludýrinu.

Þegar ég eignaðist fyrri hundinn minn, einnig smáhund, bjó ég í fjöleignarhúsi með fimm íbúðum. Ég gekk með hann 10 vikna í öðrum lófanum á milli íbúða og spurði við hverjar dyr hvort hann mætti búa hjá mér. Meira segja hún Margrét sem bjó beint á móti og hefur alltaf verið hrædd við hunda samþykkti sambýling minn. Eftir því sem dvöl hans ílengdist fór Margrét að sýna honum vaxandi athygli og ástúð. Hún varð síðar sá íbúi hússins sem marg bauðst til að passa hann ef á þyrfti að halda og bauð honum oftast inn til sín í heimsókn. Eftir að ég og hundurinn fluttum út sé ég iðulega myndir af Margréti á móti með hundum á Facebook.

Ég þekki marga sem veigra sér við að skipta um húsnæði, jafnvel þó það væri bæði hagkvæmara fyrir þá sjálfa og samfélagið, vegna þess að þeir óttast að þurfa sjá að baki besta vininum.

Ég gæti alla vega ekki hugsað mér að þurfa skilja við hundinn minn, ljúflinginn og gönguþjálfarann minn, hann Ísar.

Ég er alveg handviss um að hann Ísar vill alls ekki missa besta vin sinn -mig.

Hrukkur eru heiðursmerki lífsins
Viðar Eggertsson

Viðar Eggertsson leikari, leikstjóri, leikhússtjóri og varaþingmaður Samfylkingarinnar skrifar.

Reglulega horfi ég á sjálfan mig í spegli. Oftast er það á morgnana þegar ég greiði mér og raka mig. Einnig meðan ég bursta tennurnar. Rafmagnstannburstinn minn gefur mér tvær mínútur til verksins. Á meðan þarf ég að hafa augun einhvers staðar og einfaldast er að horfa á sjálfan mig þar sem ég stend við baðvaskinn fyrir framan risastóra baðherbergisspegilinn.

Maðurinn sem blasir við mér er bara allra huggulegasti maður. Hárið er að vísu að þynnast örlítið og svolítið að grána, en andlitið er ótrúlega lítið markað árafjölda og hann ber aldurinn svo vel og er hreint út sagt: Unglegur eftir aldri.

Fullur af gleði og sátt geng ég frá tannburstanum, yfirgef spegilinn og klæði mig. Síðan sest ég við tölvuna og fletti Facebooksíðum. Alltaf blasir andlitið mitt við á sínum vísa stað á Facebook.

Um daginn tók ég upp á þeim óskunda að fara skoða myndirnar af mér í myndasafninu mínu á Facebook. Óskunda segi ég, því við mér blasti annar maður en ég sá í speglinum nokkrum mínútum áður. „Nei, þetta getur ekki verið“, hugsaði ég, þegar ég leit á fyrstu myndina, „svona lít ég ekki út. Þetta er vond mynd af mér“. Lífsreynda andlitið sem brosti við mér á myndinni var mun markaðra árum en ég. Hárið þynnra en á mér. Maðurinn var einfaldlega eldri en ég. Eða hvað?

Ég skoðaði fleiri myndir og niðurstaðan var sú að ég hlyti að myndast bara óvenju illa. Því fleiri myndir sem ég skoðaði af mér komst ég að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að finna einhvern góðan ljósmyndara til að smella af raunverulega „góðri mynd“ af mér.

Ég fór að skoða myndir af vinum mínum á Facebook, fólki á svipuðum aldri. Flestir virtust myndast illa og vera mun eldri en ég, ef ég sko miða við spegilmynd mína.

Í speglinum sjáum við okkur eins og við viljum líta út, en ekki eins og við lítum út í raun og veru.

Ég fór að skoða mig aftur í speglinum og tók tölvuna með mér. Þannig gat ég gert góðan samanburð á sjálfum mér í spegli og sjálfum mér á mynd. Hvor maðurinn er ég? Hvorum manninum vil ég líkjast?Smátt og smátt fór ég að taka ljósmyndirnar í sátt. Þessi maður á ljósmyndunum var víst meira ég. Þroskaður maður með ótrúlega lífsreynslu, breyskur maður sem samt hefur reynt svo margt að hann hrekkur varla við þó eitthvað fari úrskeiðis á hraðferð daganna. Maður sem ber þess merki að hafa lifað! Maður sem ekki hefði viljað fara á mis við neitt af ævintýrum lífsins sem hann á að baki, né áföllunum. Hver splunkunýr dagur með fullt af nýjum verkefnum og upplifunum sem er svo gaman að fást við, einmitt með alla þessa lífsreynslu að vopni. Lífsreynslan er á við heilan verkfæraskúr.

Þessi uppgvötvun hefur reyndar haft eitt slæmt í för með sér – fyrir suma: Ég er hættur að standa upp í strætó, biðstofum og slíkum stöðum með takmarkað sætapláss, fyrir „eldra fólki“. Ég veit orðið að líklega er þetta „eldra fólk“  jafnaldrar mínir, eða fólk sem er yngra en ég sjálfur. Það getur staðið. Ég er búinn að vinna fyrir þessu sæti.

Ég hlakka til að bæta árunum við og bera þess merki. Allar hrukkurnar eru eins og heiðursmerki þess að hafa lifað og upplifað. Heiðursmerki lífsins.