Tengdar greinar

Brjóstabollur með kaffinu á mæðradaginn

Fjölmargir ganga árlega með Göngum saman. Hérna er mynd af göngunni á síðasta ári

Fjölmargir ganga árlega með Göngum saman. Hérna er mynd af göngunni í Reykjavík á síðasta ári

Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sem er á sunnudaginn kemur 8. Maí. Gangan hefst klukkan 11:00. Í Reykjavík verður gengið frá Háskólatorgi þar sem íslenskir vísindamenn, sem hafa þegið styrki félagsins, kynna störf sín.

Einnig verður gengið í  Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga, Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaupstað, Reyðarfirði, Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi og Reykjanesbæ. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað verður að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is

Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða m. a. seldir bolir, höfuðklútar og margnota innkaupapokar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Lóu Hjálmtýsdóttur og vettlingar úr íslenskri ull, hannaðir af Farmers Market.

Félagar í Göngum saman bjóða margvíslegan varning til sölu, til að afla fjár til rannsókna á brjóstakrabbameini

Félagar í Göngum saman bjóða margvíslegan varning til sölu, til að afla fjár til rannsókna á brjóstakrabbameini

Styrktarfélagið Göngum saman  nýtur góðs af samstarfi við Landssamband bakarameistara sem stendur fyrir sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land dagana 6. – 8. maí í tengslum við mæðradaginn. Landsmenn eru hvattir til að bjóða upp á brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina og láta þannig gott af sér leiða, brjóstanna vegna.

Markmið Göngum saman er að afla fjár til að styrkja grunnrannsóknir á eðli og orsökum brjóstakrabbameins og flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum. Félagið úthlutar styrkjum í október ár hvert og frá stofnun þess, haustið 2007, hefur um 60 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsókna á sviði brjóstakrabbameins.

 

Ritstjórn maí 6, 2016 15:25