Enginn áhugi á að bæta kjör aldraðra

Björgvin Guðmundsson

„Hvernig stendur á því, að hvorki ríkisstjórn né Alþingi hefur nokkurn áhuga á því að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja“, spyr Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur í Fréttablaðinu í dag. „Hvernig stendur á því, að þessir ráðamenn láta það afskiptalaust, að lægst launuðu aldraðir og öryrkjar hafi ekki nóg fyrir brýnustu útgjöldum? Þessir aðilar eiga jafnvel ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins. Þeir geta ekki átt eða rekið bíl; þeir geta ekki keypt tölvu og rekið hana; þeir verða oft að neita sér um að fara til læknis og geta ekki leyst út lyfin sín. Þessi hópur getur því ekki tekið fullan þátt í samfélaginu. Ríkisstjórn og Alþingi kemur í veg fyrir það. Það er mannréttindabrot.

Ég hef velt því fyrir mér, hvers vegna Alþingi og ríkisstjórn séu gersamlega áhugalaus um kjör og hag þess hóps, sem er á lægsta lífeyri almannatrygginga og hefur engar tekjur aðrar en lífeyri TR. Mér hefur komið eftirfarandi í hug: Sumir stjórnmálamannanna vita ekkert hvernig hagur þessara eldri borgara og öryrkja er í raun!

Er hagur þeirra ef til vill í lagi? Ég legg tölurnar fyrir lesendur svo þeir geti dæmt sjálfir: Aldraðir, sem hafa einungis tekjur frá TR, hafa 204 þúsund – 243 þúsund kr. á mánuði eftir skatt. Algengt er, að húsaleiga sé í kringum 200 þúsund kr. á mánuði. Ef um eignarhúsnæði er að ræða getur húsnæðiskostnaður verið nokkru minni en það munar þó ekki miklu. Fyrir það sem afgangs er þarf að greiða alla aðra útgjaldaliði, mat, fatnað, hreinlætisvörur, samgöngukostnað, lækniskostnað, lyf, gjafir, sjónvarp, síma og fleira. Það er engin leið, að þetta dæmi gangi upp. Stjórnmálamenn, sem hafa nú orðið mjög há laun ættu að skilja þetta. En það virðist þveröfugt. Það virðist svo sem eftir því, sem þeir hafa betri laun, átti þeir sig síður á því, að ekki er unnt að lifa af þeirri hungurlús, sem þeir skammta öldruðum og öryrkjum.

Þingmenn hafa í dag 1,1 milljón í laun fyrir skatt á mánuði. Síðan hafa flestir þeirra mörg hundruð þúsund til viðbótar í aukasporslur, fyrir að vera formenn í flokki (550 þús.), forseti Alþingis og varaforsetar, fyrir að vera formenn í nefndum og fyrir að sitja í nefndum. Þingmenn fá 1,1 milljón á mánuði þó þeir geri ekkert á Alþingi, flytji ekki eina einustu tillögu á Alþingi og sitji þegjandi. En um leið og þeir gera eitthvað fá þeir greitt sérstaklega fyrir það

Þetta eru mennirnir, sem eiga að ákveða hvað aldraðir og öryrkjar þurfi mikið í lífeyri sér til framfærslu. Þetta eru mennirnir, sem segja að hungurlúsin nægi öldruðum og öryrkjum. Er ekki tímabært, að þessir menn fari að borga eitthvað af sínum kostnaði af eigin launum eins og annað launafólk? Mættu þeir ekki greiða rekstur bíls af sínum eigin launum eins og aðrir? Það er tímabært að skera allt þetta bruðl og óhóf niður. Það fengjust þá peningar upp í kjarabætur aldraðra og öryrkja.

Kjör annarra eldri borgara eru betri en þó ekki til þess að hrópa húrra fyrir. Þeir sem hafa lágar greiðslur úr lífeyrissjóði eru lítið betur settir en þeir, sem hafa engan lífeyrissjóð vegna mikilla skatta og skerðinga ríkisins. Skerðing TR vegna 150 þús. kr. úr lífeyrissjóði er tæpur helmingur upphæðarinnar. Það er allt annað en lagt var upp með en þá var gert ráð fyrir, að lífeyrissjóður væri hrein viðbót við almannatryggingar. Það hefur verið svikið.“

Grein Björgvins í Fréttablaðinu er hægt að lesa í heild hér.

Ritstjórn júní 21, 2018 08:20