Erfitt að eiga við lystarleysi

Óla Kallý Magnúsdóttir

Óla Kallý Magnúsdóttir

„Það getur verið mjög erfitt að eiga við lystarleysi. Það skiptir auðvitað máli að maturinn sé lystugur og við hæfi, hitastig sé rétt og að við mötumst í fallegu umhverfi í góðum félagsskap,“ segir Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur hjá Heilsuborg.  Hún segir að við viðvarandi lystarleysi geti verið gott að fá sér litla bita milli mála, svo sem ávexti, eða brauð með smjöri og áleggi til dæmis osti eða kæfu. „Ef einstaklingar eru að léttast getur verið þörf á að gera matinn hitaeiningaríkari, til dæmis með því að nota rjóma, smjör og olíur í matargerð,“ segir hún og bendir á að einnig sé hægt að kaupa næringardrykki, svo sem Build-up duft til að blanda í mjólk eða kaupa tilbúna næringardrykki sem fást í apótekum.

Uppþemba og harðlífi

Margir sem komnir eru á efri ár kvarta yfir því að þeir séu slæmir í maga, annað hvort með uppþembu eða harðlífi.  Óla Kallý segir að við harðlífi geti hjálpað að auka trefjaneyslu. „Það gerum við með því að borða trefjaríka og fjölbreytta fæðu, gróf brauð og grauta, ávexti og grænmeti. Þegar trefjaneysla er aukin er mikilvægt að passa sig á því að drekka ríflega af vatni yfir daginn. Við harðlífi getur einnig hjálpað að borða reglulega yfir daginn, 3-5 máltíðir, hreyfa sig daglega og passa að hafa reglu á salernisvenjum og taka sér tíma í salernisferðir. Í einhverjum tilfellum gæti þurft að nota hægðalyf,“ segir hún. Hvað varðar uppþembuna þá segir hún málið vandast nokkuð.„Ráðleggingar vegna uppþembu eru flóknari vegna þess að ekki er alltaf ljóst hvað veldur. Sumir telja að of mikið loft valdi uppþembu en oft er þetta umkvörtunarefni þrátt fyrir að loftmagn sé eðlilegt. Það getur verið erfitt að mæla með því að sneiða hjá loftmyndandi fæðutegundum því það eru oft hollar og góðar vörur, til dæmis grænmeti, ávextir og heilkorn. Stundum er mælt með því að takmarka neyslu á mjög fituríkum matvælum þar sem þau hægja á magatæmingu. Þetta er þó mjög einstaklingsbundið og því oft nauðsynlegt að fólk prófi sig áfram,“ segi hún að lokum.

 

 

 

Ritstjórn október 19, 2015 13:00