Ertu farin að eldast?

Hvenær erum við orðin miðaldra eða þaðan af eldri? Það er að sjálfsögðu jafn misjafnt og við erum mörg. Hér eru 15 staðhæfingar um að þú sért orðin miðaldara -ef þú svarar játandi.

  1. Plönturnar þínar lifa góðu lífi og þú ert farin að gefa afleggjara
  2. Það er meira af mat í ísskápnum en af bjór og léttvíni.
  3. Klukkan sex að morgni ferðu á fætur í stað þess að fara sofa.
  4. Þú heyrir uppáhalds lögin þín í lyftu.
  5. Þú fylgist með öllum veðurfregnum.
  6. Frídögunum fer fjölgandi.
  7. Gallabuxur og peysa ganga ekki lengur ef það á að fara eitthvað fínna. Þú vilt föt sem endast og halda sér vel.
  8. Eldri ættingjum finnst í lagi að segja dónabrandara í návist þinni.
  9. Þú veist ekki lengur hvenær skyndibitastaðirnir loka.
  10. Þú fóðrar gæludýrin á dýrafæði í stað þess að henda afgöngum af skyndibita í þau.
  11. Þú borðar morgunmat á réttum tíma.
  12. Segir ekki lengur, ég get ekki lengur drukkið eins og ég var vön og segir þess í stað,ég ætla aldrei að drekka aftur.
  13. 90 prósent þess tíma sem þú situr fyrir framan tölvu notar þú til að vinna, ekki til að vafra um veraldarvefinn.
  14. Þú drekkur heima til að spara peninga eða það heldur þú að minnsta kosti. Ástæðan er hins vegar sú að þú nennir ekki að fara út.
  15. Þú óskar vinum þínum til hamingju með barnabörnin.
Ritstjórn maí 11, 2017 13:48