Fólki nánast meinað að vinna

Erna Indriðadóttir

Erna Indriðadóttir fjölmiðlakona og varaformaður FEB skrifar:

Eldra fólk á Íslandi er fjölbreyttur hópur sem býr við mismunandi aðstæður. Engu að síður er það staðreynd að um 60% þeirra sem eru 67 ára og eldri, eru með mánaðartekjur undir 350 þúsundum á mánuði, fyrir skatt.

Fólk ekki tilbúið að vinna kauplaust
Þetta eru ekki háar tekjur og til að bæta gráu ofan á svart er þessum hópi nánast meinað að vinna og afla sér aukatekna til að drýgja mánaðarlaunin. Þeir sem gera það, sitja uppi með að þurfa að borga 60-73% í jaðarskatt af viðbótartekjunum og jafnvel meira. Þeir halda kannski ekki eftir nema 27 þúsund krónum, vinni þeir sér inn 100 þúsund krónur. Það er því ekki skrítið að fólk hugsi sig um tvisvar bjóðist því hlutastarf eftir að það er komið á eftirlaun. Þó fólki þyki gaman að vinna er það ekki tilbúið að gera það fyrir nánast ekki neitt.

Frítekjumark vegna viðbótartekna
Þeir sem eru á vinnumarkaðinum borga venjulegan skatt af þeim viðbótartekjum sem þeir kunna að afla sér fyrir utan sína föstu vinnu. En fyrir eldra fólk gilda svokölluð „frítekjumörk“. Þau eru samanlagt 25.000 á mánuði fyrir launatekjur, vaxtatekjur og lífeyristekjur. Sem þýðir að menn mega hafa 25.000 krónur í viðbótartekjur á mánuði áður en það fer að lækka heildarlaunin. Hafi þeir lífeyristekjur eða fjármagnstekjur umfram 25.000 krónur byrja atvinnutekjurnar strax að skerðast. Allt sem er umfram lækkar ellilífeyrinn frá Tryggingastofnun ríkisins.

Eiga að búa við sömu skattlagningu og aðrir
Á sama tíma vantar vinnandi hendur í landinu. Nýjustu fréttir herma að það vanti til dæmis starfsfólk á frístundaheimilin á höfuðborgarsvæðinu. Það er almennt viðurkennt að eldra fólk hefur gott af því að vinna eins lengi og það vill og getur. Það eykur veltuna í samfélaginu og bætir heilsu eldra fólks. Þannig sparast útgjöld ríkisins til heilbrigðismála og það fær líka meiri virðisaukaskatt í kassann. Ríkisstjórnin hyggst hækka frítekjumörkin fyrir atvinnutekjur í 100.000 krónur á fimm árum. Það er vissulega góður ásetningur, en það verður að afnema þessi frítekjumörk og það strax. Eldra fólk á að búa við sömu skattlagningu og aðrir sem vinna sér inn aukatekjur.

Eru allar bjargir bannaðar
Ef þeir sem hafa þessi lágu eftirlaun vilja selja eignir eins og til dæmis sumarbústað, til að drýgja tekjurnar, er þeim nánast gert það ókleift líka. Hjón sem seldu sumarbústaðinn sinn misstu þannig allan ellilífeyrinn frá Tryggingastofnun. Þannig eru þessum hópi allar bjargir bannaðar. Hann má hvorki afla sér viðbótartekna né selja eignir. Þeir sem eiga sitt eigið húsnæði geta skrimt af hinum lága ellilífeyri, en Guð hjálpi þeim sem eru á leigumarkaðinum. Ekki gera stjórnvöld það.
 
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu slóðin er hér.

Ritstjórn september 5, 2017 10:58