Gengur 500 kílómetra á hverju sumri

 

Sigrún Valbergsdóttir

Sigrún Valbergsdóttir

„Það er aldrei of seint að byrja á að ganga um fjöll og firnindi,“ sagði fararstjórinn og lífskúnsterinn Sigrún Valbergsdóttir, þegar Lifðu núna hafði upp á henni í Grímsey. Þar var hún að leiðsegja hópi af þýskum ferðamönnum. Sigrún er þrautreyndur fararstjóri, innan lands og utan  og hefur starfað sem slíkur í 20 ár. Hún er varaforseti Ferðafélags Íslands og  formaður ferðanefndar félagsins. Þetta er kona sem þekkir Ísland betur en margur annar, hefur ferðast um  landið þvert og endilangt.

Andlega  úthaldið mikilvægast

„Ég er búin að vera í gönguferðum svo lengi  að ég er í miklu betra formi nú en þegar ég var fertug. Þeir sem byrja í alvöru gönguferðum 30 til 40 ára og halda þeim áfram, halda þrekinu fram á níræðisaldurinn séu þeir frískir á annað borð. Fólk lærir á líkamann og hvað sé hægt að bjóða honum og andlega úthaldið eykst með tímanum,“ segir hún og bætir við að í lengri gönguferðum sé það andlega úthaldið sem skipti mestu máli. „Það sem breytist kannski einna helst með hækkandi aldri er að fólk fer síður í  margra daga göngur með allt á bakinu.“

Góður undirbúningur mikilvægur

„Áður en haldið er í göngu  þarf að undirbúa sálina,  skoða hversu mikil hækkunin er á gönguleiðinni, hvort þar séu farartálmar svo sem ár sem þarf að vaða eða klettar sem þarf að klöngrast upp eða niður. Gangan verður auðveldari þegar maður veit á hverju er von.“ Hún segir  að þeir sem séu komnir á miðjan aldur og séu að byrja að ganga hafi mestar áhyggjur af því að þeir verði dragbítar.  „Fólk hefur mestar áhyggjur af því að það haldi ekki í við hópinn og dragist aftur úr. En í gönguferðum fer hver á sínum hraða og það er beðið eftir þeim sem fer síðastur. Gönguferðir eru ekki kappganga. Ef fólk ætlar að vera í einhverju kapphlaupi við tímann á það ekkert erindi í göngu með öðru fólki. Gönguferðir snúast um að upplifa náttúruna, fræðast um jarðfræði og merka staði. Slíkt gerir fólk ekki á hlaupum.“

 Skór og stafir

Sigrún segist ráðleggja öllum að huga vel að vali á skóm áður en haldið er til fjalla.  Það skipti miklu máli að vera vel  búinn til fótanna í góðum gönguskóm. „Ætli ég gangi ekki svona um það bil 500 kílómetra á hverju sumri og  skórnir mínir endast  í svona 2000 kílómetra,“ segir hún hlæjandi.  „Það er komin tími til að endurnýja þá sem ég á núna,“ bætir hún við. „Það er líka gott að eiga göngustafi. Jafnvægið riðlast aðeins með aldrinum og þá er gott að hafa  stafina. Stafirnir létta líka álagi af hnjánum þegar gengið er niður brekkur og  þeir koma að góðum notum þegar þarf að stikla yfir ársprænur eða  læki.“

Unir sér vel á fjöllum.

Unir sér vel á fjöllum.

Á eftir að heimsækja Öskju 

Eins og áður sagði er Sigrún víðförul kona. Þegar hún er beðin um að nefna uppáhaldsstaðina sína segir hún að það sé nú eins og að biðja einhvern um að gera upp á milli barnanna sinna.  „Það eru svo margir staðir sem koma upp í hugann. Ég get nefnt Arnvarvatnsheiði, Svarfaðadal, Krepputungur. En sennilega er  gýgurinn Hallmundur í stöllum Langjökuls  suður af  Fljótsdrögum í Húnavatnssýslu  mesta upplifunin. En ætli séu einhverjir staðir sem Sigrún á ókannaða. „Já, ég hef aldrei komið að Öskju eða í Dyngjufjöll. Ég kemst ekki þangað í sumar en stefni á að komast þangað síðar. Það er gott að eiga eitthvað eftir,“ segir Sigrún að lokum.

 

 

Ritstjórn júní 24, 2015 14:05