Greiddi reikninginn fyrir Engla alheimsins á Grillinu

Wilhelm Wessman

Wilhelm Wessman skrifar

Eitt þekktasta atriði íslensku kvikmyndasögunnar er úr kvikmyndinni Englar Alheimsins þar sem þrjár af aðalpersónum sögunnar fara á Grillið á Hóteli Sögu og fá sér flottan kvöldverð. Þegar þjónninn kemur með reikninginn segir einn þeirra: „Við erum allir vistmenn á Kleppi, verið svo vinsamlegir að hringja á lögregluna strax.“

Atriðið er auðvitað byggt á bók Einars Más Guðmundssonar sem, eins og kvikmyndin, ber titilinn Englar Alheimsins. Leiksýning var einnig byggð á bókinni frægu.Ég var á þeim tíma  sem atvikið átti sér stað framkvæmdastjóri Hótels Sögu. Atriðið er byggt á sönnum atburði, nánast frá A til Ö. Þetta var árið 1986.
Mennirnir  þrír voru í sínu fínasta pússi þegar þeir komu á Grillið. Í þá daga giltu strangar reglur um klæðaburð. Menn gátu ekki komið inn á Grillið í gallabuxum eða bindislausir.

Þeir pöntuðu  það dýrasta á matseðlinum og drukku bestu vín hótelsins með, eins og  Chateau Monton Rothschild 1982, en 1982 árgangurinn er einn besti árgangur Bordeoux-vína á síðustu öld. Það er því greinilegt að mennirnir hafi verið góðir smekkmenn á mat og drykk. Vínið kostaði sitt; flaskan var á 26.800 krónur þá. Svo reyktu þeir kúbanska vindla frá Davidoff. Þetta voru eiginlega einu Kúbu-vindlarnir sem hægt var að fá á þessum tíma. Stykkið kostaði tólf hundruð krónur. Í þá daga var hægt að fá hádegisverð á Grillinu fyrir sömu upphæð. Til þess að mega selja vindlana þurfti að uppfylla ströng skilyrði. Ég þurfti að senda alla þjónana mína á námskeið í meðhöndlun á þeim. Þegar gestir pöntuðu svona vindla þurfti að klippa þá sérstaklega og var það einskonar  athöfn sem endaði með því að þjónarnir kveiktu í vindlunum fyrir gestina.

Ég man enn eftir því þegar Halldór Sigdórsson, veitingastjóri á Grillinu, hafði samband. Hann sagði mér að þarna væru þrír vistmenn á Kleppi sem væru búnir að borða dýrustu réttina, drekka fínustu vínin og reykja flottustu vindlana. Þeir gætu ekki borgað reikninginn og lögreglan væri í lobbíinu. Hann spurði mig hvað hann ætti að gera í málinu. Grillið var fullt af gestum og ég bað Halldór því að láta lögregluna bara bíða eftir mönnunum. Ég taldi augljóst að við hefðum tapað þeirri upphæð sem mennirnir höfðu borðað og drukkið fyrir. Mér fannst því mikilvægast að ónáða ekki hina gestina með einhverri uppákomu.

Mennirnir fengu að klára máltíðina og mættu svo lögreglumönnum í anddyri. Síðan voru þeir bara keyrðir inn á Klepp af lögreglumönnum eins og fínir herrar.

Ég sagði Halldóri að láta reikninginn á skrifborðið til mín. Það má því segja að besta sena í íslenskri kvikmyndagerð sé orðin til vegna fagmannlegra vinnubragða okkar starfsmanna í Grillinu. En ég greiddi reikninginn.

 

Wilhelm Wessman september 11, 2017 11:55