Heilaleikfimi

Leikfimi er alltaf mjög góð fyrir heilsuna og hún er enn mikilvægari fyrir líkamann á efri árum. Það að hreyfa sig reglulega t.d með því að fara í göngutúra, leikfimi, synda, fara á dansæfingar eða stunda jóga, Pilates eða Tai-Chi, er nauðsynlegt til að okkur líði betur bæði líkamlega og andlega.

En við þurfum ekki aðeins að æfa líkamann heldur líka minnið, því þegar við eldumst þá valda líffræðilegir þættir í heila okkar því að geta okkar til að hugsa þverr, og við verðum aðeins gleymnari en áður. Skv. kenningum um þennan þátt getum við sjálf haft áhrif á minnið og hugsunina með því að æfa heilann, s.s. stunda heilaleikfimi eins og það er stundum kallað (www.Human memory net).

Heilaleikfimi er því mikilvæg þegar við eldumst og öllum hollt og gott að reyna á sig með því að læra eitthvað nýtt, rifja upp orð, spila Sudoku eða leysa krossgátur. Í dag eru líka enn fleiri sem eru að komast á efri ár að læra tungumál, fara í endurmenntun eða jafnvel í háskólanám. Aðrir þættir sem geta haft áhrif á minnið eru lífshættir eins og reykingar, drykkja og óhollt mataræði. Það er því ljóst að getum sjálf haft mikil áhrif á minnið og öldrun líkamans með hreyfingu og virkni.

Á netinu eru til síður með æfingum fyrir heilann sem hægt er að stunda nokkrum sinnum í viku. Hér er slíka síða á ensku fyrir þá sem geta notfært sér hana, en því miður eru þær ekki til á íslensku ennþá. http://brain.aarp.org/

 

 

 

Ritstjórn júní 18, 2014 10:46