Hvernig áttu að velja nýtt rúm?

Kristín Gísladóttir klippt

Kristín Gísladóttir

Góður nætursvefn er nauðsynlegur fyrir fólk á öllum aldri. Án hans verður fólk pirrað, þreytt og á erfitt með einbeitingu. Gott rúm til að sofa á er ein af forsendum þess að við sofum vel. Góð rúm eru hins vegar dýr og því betra að vanda valið eins og nokkur kostur er. Kristín Gísladóttir, sjúkraþjálfari hjá Gáska hefur undanfarin ár hjálpað fólki við að velja sér rúm í versluninni, Vogue -fyrir heimilið. „Sama hvað hver segir það er ekki til neitt besta rúm í heimi, við erum jafn misjöfn og við erum mörg, rúm sem hentar einum, hentar ekki öðrum þess vegna er svo mikilvægt að prófa sem flestar gerðir af rúmum, áður en ákvörðun um það eina rétta er tekin,“ segir Kristín.

 Dýnur orðnar mýkri

„Fólk á að fara á milli verslana og prófa rúmin og kynna sér hvort hægt sé að skila rúminu ef fólki finnst það óþægilegt þegar það hefur sofið á því í nokkrar nætur,“ segir hún. Kristín segir að það skipti máli á hvernig dýnum fólk sem komið er á fullorðins ár sé vant að sofa á, það þýði ekkert að segja fólki að það eigi að fara að sofa á harðri dýnu þegar það hefur allt sitt líf sofið á mjúkri og öfugt. Framleiðendur nota ýmis efni í dýnur til að ná fram mýkt, svo sem gorma, latex, svamp eða blöndu af þessu öllu „Almennt eru dýnur orðnar mýkri en þær voru fyrir nokkrum árum. Dýnan þarf að laga sig að líkamsvexti fólks og veita þannig stuðning. Með því móti næst góð líkamsstaða liggjandi. Það er mikilvægt að hryggurinn fái stuðning,“ segir Kristín. Hún segir að flestir sofi á hliðinni og þá verða öxl og mjöðm álagssvæði. Öxlin þarf að fá rými í dýnunni og því þarf að vera mýkra svæði fyrir hana. Við erum þyngst um miðjuna og því þarf góðan stuðning fyrir mjaðmir. Ef ekki er nógur styrkur í dýnunni undir mjöðminni er hætta á að hryggurinn svigni.

Rafmagnsrúm eða dýna með þrýstijöfnun

„Það eru fleiri þættir sem skipta máli, eins og aldur fólks, líkamlegt ástand, vaxtarlag og sjúkdómar. Fólk sem er þungt á sér eða á erfitt með að hreyfa sig þarf dýnu sem auðvelt er að snúa sér á. Rúmið á líka að vera með háum fótum sem auðvelda fólki að komast fram úr. Margir fá gigt með hækkandi aldri og morgunstirðleiki er þekkt fyrirbæri. Fólk sem er með gigt eða morgunstirðreika ætti að velja dýnu sem sem hamlar ekki hreyfingum eins og dýnur með þrýstijöfnun gera.Margir velta því fyrir sér hvort þeir eigi að fá sér rafmangnsrúm. „Áður en fólk tekur ákvörðun um að fjárfesta í þeim ætti það að hafa í huga til hvers það notar rúmið. Mörgum sem lesa mikið í rúminu eða horfa á sjónvarp í rúminu finnst þægilegt að geta hækkað höfðalagið með því móti næst góð hvíldarstaða. Þau geta líka hentað mjög vel fyrir þá sem eru bak-eða fótaveikir. Fólk á hins vegar að sofa í láréttri stöðu það er ekki nema það sé með bakflæði eða bjúg þá getur verið gott að geta hækkað dýnuna undir herðum eða fótum,“ segir hún.

Það er því að mörgu að hyggja þegar nýtt rúm er valið. „Aðalatriðið er að flýta sér ekki um of heldur prófa, tala við sérfræðinga og fá ráð. Í dag er hægt að aðlaga rúmdýnur að þörfum hvers og eins,“ segir Kristín að lokum.

 

 

 

Ritstjórn ágúst 20, 2015 11:06