Lífeyrisþegar greiða sjálfir 60% af ellilífeyri sínum

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson

„Eiga stjórnvöld eitthvað með að skerða lífeyri eldri borgara hjá almannatryggingum vegna greiðslna til þeirra úr lífeyrissjóði? Ég segi: Nei. Þau eiga ekkert með það,“ segir Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur í grein í Fréttablaðinu í dag.

„Þegar ríkisstjórn er að skerða lífeyri aldraðra hjá almannatryggingum eins og gerist nú, er eins og ríkisstjórnin sé að fara bakdyramegin inn í lífeyrissjóðina og láti greipar sópa þar um eigur okkar sjóðfélaga. Áhrifin eru nákvæmlega eins. Það verður að stöðva þetta strax. Það er ekki nóg að draga úr skerðingum. Þetta er ekkert samningsatriði. Við eigum þennan lífeyri í lífeyrissjóðunum. Við viljum fá hann óskertan á eftirlaunaaldri, hvorki meira né minna,“ segir Björgvin.

„Þessar miklu skerðingar, sem hér eru, tíðkast ekki annars staðar á Norðurlöndunum. Þar fá eldri borgarar þann lífeyri, sem þeir hafa greitt í lífeyrissjóð óskertan. En auk þess er grunnlífeyrir þar miklu hærri en hér, þrefalt hærri.“

Að lokum segir Björgvin:„Athuganir hafa leitt í ljós, að lífeyrisþegar hér greiða miklu stærri hlut sjálfir í lífeyrinum til aldraða en gerist í hinum norrænu ríkjunum. Það stafar af því, að lífeyrissjóðirnir greiða svo mikið af lífeyrinum og ríkið skerðir á móti sínar greiðslur á vegum almannatrygginga. Tölur leiða í ljós, að hér greiða lífeyrisþegar sjálfir 60% af ellilífeyri sínum. Þetta er miklu hærra hlutfall en á Norðurlöndunum. Þar verður ríkið að greiða megnið af ellilífeyrinum en hér greiða eldri borgarar sjálfir stærsta hlutann af lífeyrinum. Samt kvartar og kveinar ríkið miklu meira hér en annars staðar á Norðurlöndunum og vill ekkert gera fyrir eldri borgara. Það er eins og ríkisstjórnin hér sé á móti eldri borgurum.“ Greinina er hægt að lesa í heild hér.

Ritstjórn september 22, 2016 10:22