Móðgun við launafólk og lífeyrisþega

Gunnar Ólafsson

Gunnar Ólafsson heilsuhagfræðingur segir í grein í Fréttablaðinu að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sé ekkert að finna um afturköllun á 45 prósenta launahækkunum til þingmanna sem kjararáð ákvað eftir kosningar. „Hækkunin er hrein móðgun við launafólk og lífeyrisþega. Þingmenn hækkuðu um á fjórða hundrað þúsund í launum á mánuði en grunnlífeyrir örorku- og ellilífeyris er 214-228 þúsund á mánuði. Þetta ber merki um að meirihlutinn á Alþingi er ekki í tengslum við kjör almennings,“ segir Gunnar.
Hann segir að það sé heldur ekkert að finna um aðgerðir til að hækka frítekjumark ellilífeyris. „Frítekjumörkin voru lækkuð úr ca. 110 þúsundum í 25 þúsund þegar Eygló Harðardóttur var félagsmálaráðherra. Þessi aðgerð er frámunalega vitlaus, því hún letur fólk á besta aldri að halda áfram að vinna, því allar aukatekjur að 25 þúsundum skerða lífeyri á móti. Þetta dregur úr virkni eldri borgara og lífshamingju þeirra og getur fest þá í ákveðinni fátækragildru. Að auki gengur þetta gegn almennri skynsemi, því á vinnumarkaði er þensla og þessi aðgerð hefur þau áhrif að framboð á vinnuafli minnkar og hætta er á að verðbólga fari á skrið.

Með því að aðhafast ekkert varðandi launahækkanir til alþingismanna er verið að hlaða meira undir þá sem hafa það betra í þjóðfélaginu. Um leið er aðgerðum sleppt til að styðja við hópa sem hafa það erfiðara í samfélaginu, eins og að draga úr óvissu á húsnæðismarkaði eða hækka frítekjumark á lífeyri til aldraðra. Grein Gunnars er hægt að lesa í heild hér.

Ritstjórn febrúar 2, 2017 10:31