Níðst á kjörum aldraðra

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson skrifar:

Á sl. 14 árum hef ég skrifað yfir 600 greinar um kjaramál aldraðra. Fyrstu greinina skrifaði ég í desember 2003. Þar kom fram,að á tímabilinu 1995-2002 hefði kaupmáttur lágmarkslauna aukist um 44% en kaupmáttur lífeyrisgreiðslna hefði aðeins aukist um 13,5%. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sat þá að völdum. Ástandið í kjaramálum aldraðra var þá eins og nú.Það var níðst á kjörum aldraðra þá og það er níðst á kjörum aldraðra nú. Ég er stundum spurður að því hvort þessi kjarabarátta skili einhverjum árangri.Það er erfitt að svara því. Ég tel þó, að dropinn holi steininn. En margir leggja hönd á plóginn og erfitt er að segja, þegar einhver árangur verður hver á stærsta þáttinn í honum.Þetta er sameiginlegt átak margra. 2013 þegar grunnlífeyrir hafði verið endurreistur á ný hringdi til mín góður og gegn sjálfstæðismaður og þakkaði mér fyrir, að grunnlífeyrir hafði verið endurreistur. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík hafði barist fyrir því í mörg ár. Ég var formaður hennar og skrifaði auk þess margar blaðagreinar um málið.En fleiri lögðu hönd á plóginn.Nú hefur núverandi ríkisstjórn afnumið grunnlífeyrinn á ný. Kjarabarátta aldraðra og öryrkja verður að halda áfram þar til sigur er unninn. Greinin birtist fyrst á http://gudmundsson.blog.is/blog/bjorgvin_gudmundsson/

 

Ritstjórn júlí 10, 2017 08:36