Tengdar greinar

Ostakaka með balsamedikberjum!

Hér er komin kaka helgarinnar. Hún jafnast á við það besta þessi kaka og galdurinn er balsamedikberin sem dreift er yfir áður en hún er borin fram. Þegar berin eru látin liggja í balsamediklegi verða þau dásamlega ljúffeng og bragðið af ostakökunni, sem annars er fremur venjulegt, verður himneskt. Fyrir utan hvað kakan verður falleg.

Ostakaka með kexbotni

150 g kex, mulið smátt, má vera hafrakex en Oreo kex er líka mjög ljúffengt í botninum. Takið frá svolítið til að dreifa yfir í lokin ef vill.

3 msk. bráðið smjör

Blandið þessu saman og þjappið í botn á lausbotna formi eða öðru íláti sem gott er að bera kökuna fram í.

Kakan

200 g rjómaostur, notaði Philadelphia cream cheese en íslenskur rjómaostur er líka mjög góður

1/3 bolli sykur, má vera minna

½ tsk. salt

1 bolli rjómi, þeyttur

Blandið öllu saman og setjið yfir kexið. Geymið þetta í ísskáp þar til kakan er borin fram.

Balsamedikber

1 askja jarðarber, skorin í bita

1-3 tsk. sykur (eftir smekk)

2 msk. balsamedik

Blandið öllu saman og látið standa á meðan kakan er búin til. Setjið berin yfir kökuna áður en hún er borin fram og lögurinn er einstaklega ljúffengur, Honum má hella yfir líka.

Dreifið mulda kexinu yfir í lokin ef vill og þá er kakan tilbúin.

 

Ritstjórn febrúar 9, 2018 13:16