Ristruflanir hjá karlmönnum

 

Ristruflanir hrjá stóran hluta karlmanna einhventíma á ævinni. Ástæðurnar eru mjög mismunandi en mikilvægt er að hafa í huga að ristruflanir geta verið undanfari eða vísbending um undirliggjandi hjarta eða æðasjúkdóm, segir í grein á vefnum hjartalíf.is.  Það sem kannski flestir sem þjást af þessu eiga sameiginlegt, er að ekki er rætt meira um vandamálið en nauðsynlegt er og stundum varla það.

Hér eru nokkur atriði sem gott er að vita um ristruflanir

  • Ristruflanir stafa oft af sjúkdómi eða ástandi sem verður algengara með hækkandi aldri og eða aukaverkun af lyfjum sem notuð eru til að meðhöndla sjúkdóma.
  • Önnur hugsanleg ástæða ristruflana getur verið vegna aðgerðar á blöðruhálskirtli, streitu, vandamálum í sambandinu og þunglyndi.
  • Aldur getur haft mikil áhrif á getu manns til að fá holdris. Vefir verða ekki eins sveigjanlegir og taugboð verða hægari. En jafnvel þessi atriði útskýra ekki mörg tilfella ristruflana.
  • Hjarta og æðasjúkdómur er algeng orsök ristruflana. Æðahrörnun vegna fituútfellinga (atherosclerosis) hefur ekki aðeins áhrif á æðarnar í kringum hjartað, heldur um allan líkamann.
  • Staðreyndin er sú að hjá um 30% þeirra karla sem leita til læknis vegna ristruflana, er ástandið fyrsta vísbending um að þeir hafi hjarta eða æðasjúkdóm.
  • Athyglisverðar niðurstöður í aldurstengdri rannsókn á körlum sem gerð var í Massachusetts bendir til þess að það geti verið eðlilegt að lenda í því að fá ristruflanir. Hjá sumum körlum virðast koma upp ristruflanir, standa í jafnvel umtalsverðan tíma, og hverfa síðan að hluta til eða að öllu leiti án nokkurrar meðferðar.

Burtséð frá því hver er orsakavaldurinn eru ristruflanir eitthvað sem hægt er að meðhöndla. Fyrir suma hjálpar einfaldlega að létta sig. Aðrir þurfa lyf. Auk þess eru aðrir möguleikar í meðferð ristruflana eins og t.d. sálfræðimeðferð. Hafandi í huga fjölbreytni meðferðarmöguleika sem í boði eru má því segja að möguleikarnir á að finna réttu lausnina séu meiri en nokkru sinni fyrr.

Þýtt af Health beat sem er útgefið af Harvard Medical School. Innskot hér og þar eru ritstjóra hjartalif.is en greinina er hægt að lesa í heild hér.

 

Ritstjórn maí 24, 2016 10:45