Svandís Svavarsdóttir laus við aldursfordóma

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ráðið Birgi Jakobsson sem aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu. Birgir hefur gegnt embætti landlæknis undanfarin þrjú ár, en lætur af því embætti vegna aldurs. Ráðherra segir mikinn feng að því að fá Birgi sér til aðstoðar við þau stóru og flóknu verkefni sem heyri undir embætti ráðherra. Hann hafi viðamikla þekkingu á heilbrigðiskerfinu, bæði á sviði stjórnunar og stefnumótunar og fagþekking hans sem læknis sé einnig mikilvæg.  „Í Embætti landlæknis hefur Birgir komið fram með skýra sýn á ýmsa þætti sem hann telur mega betur fara í heilbrigðiskerfinu og um mótun heilbrigðisstefnu til framtíðar sem byggist á samfélagslegri sátt. Áherslur hans falla vel að þeim verkefnum sem ég mun setja á oddinn á komandi misserum og ég hlakka til að vinna með honum,“ segir Svandís í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Birgir starfaði lengi í Svíþjóð og gegndi ýmsum stjórnunarstöðum við sjúkrahús þar í landi.  Sérgrein hans er barnalækningar og árið 1988 lauk hann doktorsprófi frá Karolinska Institutet.

Ráðning Birgis vekur athygli, en margir ráðherrar hafa á undanförnum árum ráðið til sín tiltölulega unga og reynslulitla aðstoðarmenn.Það er ánægjulegt að sjá að Svandís Svavarsdóttir virðist algerlega laus við aldursfordóma.

Hér má sjá viðtal við Birgi sem birtist á Lifðu núna, fyrir tveimur árum.

 

Ritstjórn janúar 10, 2018 17:45