Tæplega tíu prósent með atvinnutekjur

Rúmlega þrjú þúsund manns 70 ára og eldri  höfðu einhverjar atvinnutekjur  á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum  frá Tryggingastofnun. Á þessu ári  er gert ráð fyrir að  tælega 3.800 ellilífeyrisþegar verði með einhverjar atvinnutekjur.

Rúmlega 29 þúsund manns eru 70 ára og eldri hér landi. Í kjölfar fjármálahrunsins var  frítekjumarkið lækkað með lögum í 40 þúsund á mánuði, en var svo hækkað aftur fyrsta júlí í fyrra.Nú mega þeir sem eru 70 ára og eldri hafa 109.600 krónur í atvinnutekjur á mánuði án þess að það skerði ellilífeyrinn.

Rúmlega 1100 í ár

Við lagabreytinguna  í fyrra fjölgaði talsvert í hópi þeirra sem hafa hámarksatvinnutekjur án þess að þær skerði ellilífeyrinn. Frá því í nóvember 2011 til nóvember 2012 voru þeir 538. Frá því í nóvember 2012 til nóvember 2013, fjölgar þeim í  906.  Ekki er ljóst hversu margir eru með hámarksatvinnutekjur í ár en samkvæmt tekjuáætlunum er gert ráð fyrir að þeir hafi verið rétt rúmlega 1100.Hópurinn sem er með einhverjar tekjur það er tekjur frá nokkur þúsund krónum og uppundir 110 þúsund  á mánuði er mun fjölmennari. Samkvæmt upplýsingum frá TR voru tæplega 1800 með einhverjar atvinnutekjur fyrir tveimur árum, þeim fjölgaði í 2100 á síðasta ári ári og í ár er gert ráð fyrir að 2.700 manns, 70 ára og eldri verði með atvinnutekjur.

Ritstjórn desember 8, 2014 11:13