Tekur maðurinn þinn Viagra?

 

Milljónir karlmanna á sjötugs og áttræðisaldri hafa gengið í endurnýjum lífdaganna í kynlífinu, með tilkomu Viagra og annarra skyldra lyfja. En eru konurnar sem eru á svipuðum aldri jafn sprækar í kynlífinu og þeir? Þeirri spurningu varpaði bandaríski rithöfundurinn Judith Nweman fram, en hún hefur skrifað um ástir á tímum Viagra lyfsins.

Konurnar kannski ekki jafn spenntar

Hún segir: „Þótt karlar sem hafa náð ákveðnum aldri séu örugglega yfir sig hrifnir af að hafa fundið leið til endurvekja kynferðislega getu sína eru konurnar þeirra kannski ekki jafn spenntar. Það sem við fyrstu sýn virðist vera beggja hagur, getur nefnilega haft hliðarverkanir sem ekki var hugsað út í.

Þarf að finna jafnvægi

Hún kallar bláu pilluna „undralyf“ og segir hana hafa ýmsa kosti fyrir karlmenn, bæði sálrænt og líkamlega. „Vandinn felst hins vegar í því að finna jafnvægi á milli nýfundinnar kynorku karlsins og þeirra breytinga sem verða hjá konunni eftir tíðahvörf“, segir hún en þær breytingar eru meðal annars, að áhugi þeirra á kynlífi minnkar og breytingar í leghálsinum geta gert það sársaukafullt fyrir þær að hafa samfarir.

Pörin þurfa að ræða saman

Judith segir mikilvægt að báðir aðilar geri sér grein fyrir því að Viagra geri engin kraftaverk eitt og sér. Það þurfi áfram að vera til staðar í kynlífinu áhugi og vilji til athafna. Hún bendir líka á að pör þurfi að ræða saman um hvaða væntingar hvort um sig hefur til sambandsins. Það er gott ráð, jafnvel þótt menn séu ekki að taka litlu bláu pilluna, segir á vef AARP, systurvefs Lifðu núna í Bandaríkjunum.

Ritstjórn maí 28, 2015 14:30