Þrjár kynslóðir á faraldsfæti

Fjölskyldufrí verða sífellt vinsælli í Danmörku. Frí þar sem þrjár kynslóðir ferðast saman, börnin, foreldrarnir, afar og ömmur. Stundum bætast í hópinn frændur og frænkur.

Á síðastliðnum fimm árum hefur orðið 30% fjölgun í slíkum ferðum í Danmörku að því er fram kemur í grein sem Anne Bennike skrifar á vef danska ríkisútvarpsins. Haft er eftir Nikolai Johansen, blaðafulltrúa ferðaskrifstofunnar TUI,  að afar og ömmur vilji gjarnan ferðast með börnum sínum og barnabörnum. Fólk fari gjarnan í slíkar ferðir þegar fagna eigi stórafmælum eða öðrum mikilvægum viðburðum í lífi fjölskyldunnar. Mörgum vaxi í augum að halda boð fyrir 50 til 100 manns og kjósi því frekar að fara í ferðalag með fjölskyldunni. Bónusinn sé að fjölskyldan fái þá lengri tíma til að vera saman. Flestir kjósi að ferðast til hlýrra staða þar sem fjölskyldan getur notið útivistar saman.

Þegar fólk skipuleggur ferðir fyrir stórfjölskylduna setur það þarfir barnanna í fyrsta sæti. Þess vegna eru hótel með stórum sundlaugum og rennibrautum og sérstökum barnaklúbbum vinsæl. Staðir þar sem börnin geta unað sér við ýmsa leiki. Fjölskyldan vill að allt sé innifalið í verðinu. Þá veit fólk nákvæmlega hvað ferðin kostar. Fólk vill ekki eyða tíma í að finna matsölustaði sem eru við hæfi allra í fjölskyldunni, þess vegna finnst fólki þægilegt að borða á hótelinu. Þegar þrjár kynslóðir ferðast saman er hótelið það mikilvægasta, segir Nikolai. Tíminn við sundlaugina eða tíminn á ströndinni er mikilvægari en að fara á söfn og í skoðunarferðir. Þessar ferðir snúast um að vera saman, segir hann.

Britta Timm Knudsen, lektor við háskóann í Árósum, segir að við lifum á tímum þar sem allt gerist hratt. Það hafi trosnað um tengsl á milli kynslóða með tilkomu samfélagsmiðla. Þess vegna hafi fólk sívaxandi þörf fyrir að styrkja tengslin upp á nýtt. Einmanaleiki hafi aukist og fólk hafi þörf fyrir að upplifa sig sem hluta af hóp. Þegar fólk ferðist saman styrkist tengslin, fólk eignist sameiginlegar minningar sem séu dýrmætur fjársjóður fyrir framtíðina.

Ritstjórn janúar 30, 2017 11:26