Vilja nýja Landsspítalann við Hringbraut

Stjórnarfundur Landssambands eldri borgara sem var haldinn í gær skorar á stjórnvöld að standa við fyrri ákvörðun um byggingu Landsspítala við Hringbraut. Í ályktun fundarins segir:

Allur sá undirbúningur sem hefur miðast við þá staðsetningu má ekki fara forgörðum.  Þær byggingar sem fyrir  eru á Hringbraut eru sumar það nýjar að eðlilegt er að þær séu í tengslum og nýtist við nýjan landsspítala.  Má þar meðal annars  nefna Barnaspítala Hringsins.  Þó skiptar skoðanir hafi verið um staðsetningu hefur sú tillaga að byggja við Hringbraut notið  meirihluta fylgis.   Ljóst er að allar breytingar  mundu seinka byggingu um all mörg ár.   Það er óásættanlegt að svo fari.  Með nýrri byggingu landsspítala við Hringbraut skapast möguleikar á að nýta núverandi Landsspítala í Fossvogi  sem sérstaka miðstöð öldrunarlækninga.   Það væri verðugt hlutverk fyrir þá byggingu þar sem ljóst er að með fyrirsjáanlegri  fjölgun aldraðra er mjög æskilegt að hafa betri aðstöðu til  öldrunarlækninga og rannsókna en nú er.

 

Ritstjórn apríl 16, 2015 16:09