dauði – Lifðu núna

Stafrænt líf okkar eftir dauðann
Emil B. Karlsson

Á Facebook-síðu minni birtast stundum afmælistilkynningar frá látnum vinum mínum og ég hvattur til að senda viðkomandi árnaðaróskir í tilefni dagsins. Ég fæ þá alltaf óþægilega tilfinningu um að verið sé að raska friðhelgi þess látna sem fái ekki að hvíla í friði. Þetta ætla ég sko ekki að láta gerast eftir mína daga – en hef samt ekkert gert í málinu. Líklega vegna þess að það er svo óþægilegt að hugsa um dauðann og allt sem honum viðkemur.

Við skiljum öll eftir okkur spor – ekki aðeins í lífinu, heldur líka á netinu. Myndir, tölvupósta, færslur á Facebook og reikninga á hinum ýmsu vefjum lifa oft áfram löngu eftir að við höfum kvatt.

Ný skýrsla frá sænsku Internetstofnuninni sýnir að tveir af hverjum þremur Svíum hafa áhyggjur af stafrænum arfi sínum, en aðeins einn af hverjum tíu hefur tekið skrefið og gert áætlun um hvað skuli gerast við netreikningana eftir andlát. Líklega má heimfæra þessa tölfræði uppá okkur Íslendinga. Flestum okkar er umhugað um hvað verður um þessi stafrænu fótspor okkar. – Hvort til dæmis Facebooksíður okkar lifi áfram eftir okkar daga.

Staðreyndin er samt sú að ef við sjáum ekki til þess að gera hjá okkur stafræna tiltekt, eða fáum einhvern annan til þess, er hætta á að missa stjórn á því sem eftir verður og sést opinberlega um ókomna tíma. Persónuupplýsingarnar eru ekki eingöngu okkar eigin – þær tilheyra líka stórfyrirtækjum á borð við Meta og Google. Persónuverndarlögin ná til þess að verndar lifandi einstaklinga. Fyrir látna eru reglurnar óljósari.

Sumir gætu viljað dauðhreinsa allt sem fram hefur komið fram á samfélagsmiðlareikningum þeirra, aðrir gætu vilja grisja burt einkasamskipti eða viðkvæmar myndir. Svo bjóða sumir samfélagmiðlar uppá þann kost að breyta til dæmis Facebooksíðu einstaklings í minningarsíðu um viðkomandi eftir dauðann. Þannig hafi eftirlifandi ættingjar og vinir aðgang að þeim upplýsingum sem viðkomandi vill skilja eftir sig. Alla vega er mikilvægt að skilja eftir sig lykilorð að samfélagsmiðlareikningum til eftirlifandi sem maður treystir, hvort sem það er haft sem hluti af erfðaskrá eða í sjálfstæðu skjali.

Að ýmsu er að huga í slíku skjali: Í fyrsta lagi upplýsingar um hvaða samfélagsmiðla, tölvupósta, skýjaþjónustur og öpp viðkomandi hefur notað. Í öðru lagi hverju eigi að eyða, geyma eða breyta ef ætlunin er að gera minningarsíðu. Þá þarf að tilnefna þann sem fær aðgang að reikningum eftir andlát og getur sinnt lokauppgjöri. Sá tilnefndi fái lista yfir öll aðgangsorð.

Í grein sem birtist nýlega í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter er sagt frá ofangreindri rannsókn Internetstofnunarinnar. Þar kemur einnig eftirfarandi fram um þær reglur og möguleika sem mismunandi samfélagsmiðlar vieta í þessu sambandi:

Facebook: Hægt að breyta reikningum í minningarsíður eða eyða þeim.

Instagram: Hægt að breyta reikningnum í minningarsíðu eða eyða eftir tilkynningu um dauða eiganda reikningsins.

Google: Býður upp á að tilnefna umsjónarmann sem fær aðgang eftir óvirkni. Eftirlifandi aðstandendur geta óskað eftir að reikningi verði eytt eða fá aðgang að efni á reikningnum.

Apple/Icloud: Arftaki getur fengið aðgang með sérstakri beiðni.

WhatsApp: Eyðir reikningum eftir 120 daga óvirkni.

LinkedIn og Snapchat: Aðstandendur geta óskað eftir lokun eða eyðingu.

Emil B. Karlsson skrifar.

Viltu láta endurlífga þig?
Svona lítur bæklingurinn út

Það er að ýmsu að hyggja við lífslok. Þjóðkirkjan hefur gefið út bækling sem heitir Val mitt við lífslok og þar er komið inná marga þætti sem snúa að meðferð við lífslok og fyrirkomulagi jarðarfarar, þegar fólk yfirgefur þennan heim.  Með því að fylla út reiti í bæklingnum útbýr fólk svokallaða lífsskrá.  Í formála bæklingsins segir, að megintilgangur þessarar skrár sé að styðja fólk við að ákveða hvernig það óskar að hafa útför sína og annað sem tengist lífslokum þess. „ Vonandi gefur hún þér tækifæri til að koma á framfæri við ástvini þína vilja þínum varðandi lífslok þín, jafnframt því að opna umræðu um dauðann. Það er oft erfitt að hefja umræðu um dauðann við sína nánustu, en lífslokaskráin gæti auðveldað það. Oft þarf að taka erfiðar ákvarðarnir þegar horft er fram á alvarleg veikindi, andlát og útför “, segir í bæklingnum.

Viltu deyja heima eða á sjúkrahús?

Á einni af fyrstu blaðsíðunum er fjallað um lífslokin og  mönnum gefið tækifæri til að velja, hvað þeir vilja að gert verði, hafi læknar greint þá deyjandi og þeir séu ekki færir um að taka ákvarðanir sjálfir, vegna andlegs eða líkamlegs ástands af völdum sjúkdóma, eða slysa. Þannir er hægt að velja nokkur mismunandi svör, sem sjá má hér fyrir neðan.

Ég vil að allar meðfeðir beinist að því að viðhalda lífi og starfsemi líffæra eins lengi og gagn er að, miðað við aðstæður. Áhersla skal lögð á umönnum og vellíðan mína.

Ég vil ekki meðferðir til að lengja líf mitt. Ég vil ekki endurlífgun. En ef endurlífgun hefur þegar hafist, vil ég að hún verði stöðvuð. Ég óska eftir því að við lífslok verði áherslan í meðferð og umönnun þannig að andleg og sálarleg og líkamleg líðan mín verði eins góð og aðstæður leyfa og aðaláherslan verði lögð á að draga úr einkennum og þjáningu.

Ég treysti fjöslkyldu minni til að taka rétta ákvörðun varðandi meðferð mína í samráði við lækni.

Ég vil fá að deyja heima ef það er mögulegt.

Ég vil fá að deyja á sjúkrahúsi.

Viltu vera líffæragjafi?

Fólk er einnig spurt um líffæragjöf í bæklingnum. En samkvæmt íslenskum lögum, eru allir líffæragjafar, nema þeir hafi hafnað því að vera það. Í lífsskránni er hægt að merkja við að menn vilji ekki vera líffæragjafar.

Þetta er einungis dæmi um örfáar spurningar í bæklingnum, en með því að fylla út lífsskrána er fólki einnig gefinn kostur á að velja fyrirkomulag jarðarfarar, tónlist og ýmislegt fleira sem snýr að athöfninni.  Í formálanum segir að skráin útfyllt, undirrituð og vottuð muni verða þér og aðstandendum þínum gagnlegt leiðarljós og stuðningur við lífslok þín. „Þess vegna er mikilvægt að þú látir vita að þú hafir útfyllt þessa skrá og hvar hún sé geymd. Sé ekki nægilegt pláss til að skrá allt sem maður vill, er sjálfsagt að skrifa meira og láta fylgja skránni, segir að lokum í formálanum.  Hægt er að nálgast bæklinginn Val mitt við lífslok, á Biskupsstofu. Annað hvort með því að hringja í síma 528-4000 eða senda pöntun á netfangið –  eldriborgarar@kirkjan.is

Við vekjum athygli á Upplýsingabanka Lifðu núna. Þar er að finna ýmsar upplýsingar um réttindi eldri borgara og þjónustuna sem stendur eldra fólki til boða, bæði í heilbrigðiskerfinu, hjá sveitarfélögum og víðar. Þar eru einnig upplýsingar um andlát og útfarir.

Einmanaleiki getur leitt til ótímabærs dauða
Hank Williams söng eitt sinn „I‘m so lonesom I could cry“ en hefði allt eins getað sungið „I‘m so lonesome I could die.“ Því miður eru þetta engar ýkjur segir á vefnum aarp.org. Stöðugt fleiri rannsóknir á vesturlöndum sýna fram á tengsl á milli einmanaleika og líkamlegra og andlegra sjúkdóma. Þessi tengsl eru hins vegar ekki alltaf augljós. Það er tiltölulega einfalt að greina sjúkdóma á borð við sykursýki, ýmsar tegundir krabbameina og vöðvabólgu en það getur verið erfiðara að greina einmanaleika. „Það verður einhver að segja þér að hann eða hún sé einmana,“ segir Kerstin Gerst Emerson háskólaprófessor. „Það er hægt að taka blóðsýni úr fólki senda það í allskonar klínískar rannsóknir og þá kemur í ljós hvort það er haldið einhverjum þessara sjúkdóma. Að greina einmanaleika byggist hins vegar á að spyrja spurninga. Að búa einn er ekki alltaf vandamálið þó það geti verið. Það er mikilvægara að greina hvort fólki finnist það búa við félagslega einangrun. Upplifi lítil eða engin tengsl við ættingja eða vini.  Við erum öll einmana stöku sinnum en vandamálin byrja að hrannast upp þegar fólki finnst það  eitt daginn út og inn.“

Þegar einmanaleiki verður lífsstíll getur hann haft mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks. Sresshormónin í líkamanum geta hækkað, fólki er hættara við að fá hjartaáfall, heilablóðfall, heilahrörnunarsjúkdóma og deyja ótímabærum dauða. Samkvæmt nýlegri rannsókn telja 42 milljónir Bandaríkjamanna sig stöðugt einmana og talið er að fjöldi þeirra eigi eftir að aukast í framtíðinni. Því fjórðungur Bandaríkjamann býr einn og næstum helmingur þeirra er ógiftur. Í ljósi þessara staðreynda óttast sumir heilbrigðisstarfsmenn að einmanaleiki með tilheyrandi heilsubresti og ótímabærum dauða verði að faraldri.

Það er ekkert rétt eða rangt í sorg
Það er sama hversu gömul við verðum það fylgir því oftast  tregi og mikil sorg þegar foreldrar okkar falla frá, jafnvel þó þau hafi verið orðin háöldruð. Líka þó að sambandið við þau hafi verið slæmt. Flestir bera ást í brjósti til foreldra sinna og harma brotthvarf þeirra af þessari jörð, segir prófessor Alan D. Wolfelt í grein á vefnum aarp.org. Lifðu núna stytti og endursagði.

Sorg sérhvers manns er einstök. Fólk syrgir á mismunandi hátt engir tveir syrgja eins. Aðstæður eru mismunandi, sambönd fullorðinna barna og foreldra þeirra eru mismunandi. Hver og einn verður að syrgja á sinn hátt. Ekki bera reynslu þína saman við reynslu annarra. Taktu þann tíma sem þú þarft, sorgin hefur engin tímamörk. Gott ráð er að taka einn dag í einu, það gerir fólki oft kleift að syrgja á eigin hraða.

Samband foreldra og barna er eitthvert sterkasta samband sem til er. Þegar annað foreldrið deyr rofnar þetta samband. Fólk finnur oft fyrir sterkum tilfinningum, ást, reiði, ótta, sekt, létti og svo framvegis. Stundum koma þessar tilfinningar fram samtímis stundum finnur fólk bara fyrir einni tilfinningu í einu.

Fólk býst oft við að verða dapurt þegar það missir foreldra sína en þegar dauðinn er orðinn staðreynd verða margir hissa á hversu sterkar tilfinningar brjótast fram. Fólk upplifir sig „munaðarlaust“ á miðjum aldri. Það geta verið mjög sársaukafull umskipti. Sorgin brýst fram. Það er margt sem fólk syrgir. Eitt af því er til að mynda að börnin þín hafa ekki lengur tækifæri til að umgangast afa sinn og ömmu. Svo er það allt sem fólk vildi svo gjarnan hafa sagt við hinn látna. Það getur líka verið að þið hafið gert á hlut foreldra ykkar en aldrei komið ykkur að því að biðjast fyrirgefningar. Allt í einu er það of seint. Eða fólk hefur ekki gefið sér tíma til að heimsækja pabba eða mömmu og eyða með þeim tíma, margir iðrast þess þegar dauðinn bankar upp á.

Fólk getur líka fundið fyrir létti þegar foreldrar þeirra deyja. Þessi tilfinning getur verið sterk ef fólk hefur verið ábyrgt fyrir umönnun foreldris síns eða ef foreldrið hefur verið lengi veikt. Það þýðir ekki að fólk elski ekki foreldra sína, þetta er gangur lífsins.

Sumir finna fyrir mikilli reiði þegar foreldrar þeirra deyja. Ástæðan getur verið að ekki hefur verið leyst úr erfiðum ágreiningsefnum innan fjölskyldunnar eða að foreldrar þínir hafa brotið gegn þér. Það er líka hægt að verða reiður út í almættið fyrir dauða foreldra. Eða annað fólk sem kann að hafa orsakað dauða annars hvors þeirra eða beggja. Reynið að skilgreina reiðina hvers vegna hún brýst fram og leitið aðstoðar við að ráða fram úr þessum erfiðu tilfinningum.

Eins og sagt var í upphafi þá er sorg hvers manns einstök. Bræður ykkar og systur upplifa dauða foreldra ykkar á annan hátt en þið. Ágreiningsefni koma oft upp í fjölskyldum við dauða foreldra. Systkini eru ekki sammála um hvernig jarðarförin á að vera, hver á að fá hvað og svo framvegis. Dauðinn getur líka fært fólk nær hvert öðru og ný vinátta myndast. En að lokum að eftirlifandi maka, reynið að skilja áhrif dauðans á hann eða hana. Fólk er ekki ábyrgt fyrir sorg og lífi móður eða föður sem hefur misst maka sinn en það sakar ekki að minna sig á að reyna að sýna eftirlifandanum þann skilning sem hann þarf á að halda.

Það er ekkert rétt eða rangt í sorg.

Það sem fólk þarf að vita um hjartaáföll
Hjarta og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök fólks í hinum vestræna heimi og er Ísland þar engin undantekning. Allir ættu að vita um og þekkja fimm mikilvæg atriði sem skipta miklu máli þegar kemur að þessum sjúkdómu, segir á vefnum hjartalif.is. Hér eru fimm staðreyndir um hjartaáföll  sem allir ættu að kunna skil á.

Bráðdrepandi

Hjartasjúkdómar og þar með hjartaáföll eru bráðdrepandi og 40% af þeim sem látast á hverju ári deyja úr hjarta og æðasjúkdómum. Á hverju ári deyja fleiri úr hjarta og æðasjúkdómum en öllum krabbameinunum samanlagt.

Forvarnir

Hægt er að draga verulega úr hættunni á að fá hjartasjúkdóma, með því að hafa stjórn á blóðþrýstingi, kólesteróli og með því að reykja ekki. Um 85 prósent þeirra sem látast vegna hjartaáfalls hafa að minnsta kosti einn af þessum áhættuþáttum: Of háan blóðþrýsting, of hátt kólesteról eða eru reykingafólk.Karlar sem eru eldri en 45 ára og konur sem eru komnar yfir 60 ára aldur, ættu að taka hjartamagnýl daglega til að draga úr hættu á að fá hjartaáfall eða heilablóðfall. Margir sérfræðingar tala um að allir sem komnir eru yfir fimmtugt ættu að taka hjartamagnýl daglega. Rétt er að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er á að taka hjartamagnýl reglulega.

Einkenni

Einkenni um hjartaáfall eru ekki alltaf þau sem fólk heldur. Algengustu einkennin eru brjóstverkur eða vanlíðan. En viðvörunarbjöllurnar geta einnig verið verkir eða vanlíðan annarsstaðar í efri hluta líkamans, til dæmis í öxlum handleggjum, baki, hálsi eða maga.

Hjá konum geta merki um hjartáfall komið fram í því að þær verða andstuttar, úrvinda af þreytu, finna fyrir ógleði eða kasta upp, eða þær fá verki í bak eða kjálka. Þeir sem finna fyrir einhverjum ofangreindum einkennum eiga strax að hringja á sjúkrabíl. Skjót viðbrögð og tafarlaus meðhöndlun skiptir öllu máli þegar losa þarf um stíflaðar kransæðar og þannig komið í veg fyrir drep í hjartavöðvanum sem verður þegar blóðflæði til hjartans stöðvast.

Áætlun

Þeir sem eru í áhættuhópi ættu að gera áætlun í samráði við fjölskyldu og lækni sinn um hvernig skuli bregðast við hjartaáfalli. Í því felst að þekkja viðvörunarmerkin um hjartaáfall og taka nítróglýserín, sem er æðavíkkandi lyf. Ef einkennin hverfa ekki eftir fimm mínútur, skal taka aðra og þriðju töflu af nítróglýseríni. Hafa skal tilbúinn lista yfir þau lyf sem viðkomandi tekur reglulega, til að auðvelda þeim sem sinna viðkomandi hjartasjúklingi störf sín, hvort sem það er starfsfólk sjúkrabíls eða bráðamóttöku.Ef einkennin hverfa á innan við fimm mínútum, á viðkomandi samt sem áður að hringja í heimilis eða hjartalækninn sinn og láta vita og fá ráð.

Neyðartilvik

Allir þeir sem finna fyrir einkennum hjartaáfalls eiga að hringja í Neyðarlínuna 112. Og þeir eiga alls ekki að keyra sjálfir upp á sjúkrahús. Ekki ætti að hunsa einkennin af þeirri ástæðu einni að viðkomandi telji sig ekki vera í áhættuhópi þeirra sem fá hjartaáfall.Rannsóknir sína að allt að þrír klukkutímar líða frá því fyrstu einkenna verður vart og hringt er á sjúkrabíl og konur hafa tilhneigingu til að hringja seinna en karlar. Hver mínúta í seinkun á meðferð, getur orsakað hjartadrep. Tíminn skiptir því öllu máli.

Að halda fólk á lífi eins lengi og hægt er
„Mér var þrýst inn í það hlutverk að hugsa um veikan eiginmann minn fyrir hálfu ári. Það er eitt sem ég hef lært af því; öldrun er gróðalind fyrir margt fólk Ekki fyrir fólk eins og mig sem tekur að sér að annast maka sinn heldur fyrir nánast alla aðra. Ég heyri klingja í peningum fólk býðst til að hjálpa,“ segir pistlahöfundurinn Ann Brenoff í grein á vef  bandaríska blaðsins Huffington Post. Lifðu núna endursagði og stytti.

„Markmið heilbrigðiskerfisins er að halda fólki á lífi eins lengi og hægt er. Ástæðan er sú að það er ekki hægt að græða á látnu fólki. Um leið og einhver deyr geta læknar ekki gert dýrar rannsóknir til að sanna það sem þeir vissu fyrir. Þeir geta ekki ráðið sérfræðinga til ráðleggja einhverja nýja meðferð sem er ekki einu sinni víst að sjúklingurinn óski eftir. Um leið og fólk er látið er ekki hægt að sannfæra  fjölskylduna um að borga lækni eða hjúkrunarfræðingi fyrir að heimsækja hinn sjúka í korter. Það er heldur ekki borgað fyrir að fá einhvern til að líta til með sjúklingnum í fjóra tíma á meðan hann sefur eða skipta á honum. Sá sem selur göngustafi, hjólastjóla og súrefniskúta myndu fara á hausinn ef fólk fengi að deyja þegar það er tilbúið. Sama gildir um næringarfræðinga, sjúkraþjálfara, og ýmsa fleiri,“  segir Ann. Hún er mjög gagnrýnin og segir að  „viðskipamódelið“ að hugsa um gamalt fólk sé eitt það verðmætasta sem hafi verið fundið upp.

„Ég hélt að ég yrði þakklát fyrir alla þá aðstoð sem er í boði. Ég er það líka að sumu leiti en það er bara hluti sögunnar. Hinn þátturinn er að að ummönnun aldraðra er  iðnaður og ráðin sem þú færð, ráðin sem þú borgar fyrir eru drifin áfram af hagaðarvon. Heiladautt fólk er meira virði en látið fólk og þess vegna er því haldið á lífi. Það að það sé hægt að græða endalaust á sjúku gömlu fólki gerir mig reiða,“ segir Ann í lok greinarinnar.

Sem betur fer er málum ekki eins farið á Íslandi og í Bandaríkjunum en fólk ætti að vera vakandi yfir því  að það breytist ekki í þessa veru.

Hverjum klukkan glymur
Hildur Finnsdóttir

Hildur Finnsdóttir skrifar

Ég var nýbyrjuð á pistli sem átti að fjalla um bjartsýnina og gleðina sem Grái herinn hafði blásið mér í brjóst á Austurvelli; hvað það var gott að vera umlukin fjöldanum sem lét rigninguna ekkert á sig fá – fannst hún bara góð – og hvernig maður hristir af sér drungann eftir að maðurinn með ljáinn hefur á örfáum vikum gerst stórtækur nálægt manni. En þá hringdi síminn og veröldin snerist gjörsamlega á hvolf. Mér var nóg boðið.

Fyrst var það hann tengdapabbi á tíræðisaldri sem lifði svo gjörsamlega í núinu að læknirinn gat   ómögulega sagt til um hvort hann hefði dottið og dáið eða dáið og dottið; það hefði alla vega gerst á einu augabragði. Þannig myndi ég vilja fara og þannig veit ég að hann vildi fara – bara ekki strax.

Svo var það Sigga frænka. Hún var föðursystir mín á níræðisaldri. Það skemmtilegasta sem hún gerði undir lokin var að láta stóra sterka tengdasoninn sinn hjóla með sig um allar trissur á „heldrimannahjólinu“ og drífa sig svo inn, með roða í vöngum, og syngja með honum íslensk ættjarðarljóð í löngum bunum. Hún bjó í útlandinu næstum alla sína ævi og var auðvitað búin að gleyma ýmsu en þegar kom að ljóðum og gömlum lögum var allt á hreinu og gleðin við völd. Þannig gæti ég líka hugsað mér að kveðja.

Í jarðarför tengdapabba komu, meðal annarra sem gott var að hafa nálægt sér á þeirri stundu, frændi minn og hans góða kona sem voru á leið til útlanda til að vera sem næst fársjúkum syni sínum. Ég man að ég óskaði þess innilega í hljóði að það yrði langt þangað til við hittumst næst. Mér varð því miður ekki að þeirri ósk því að við kvöddum drenginn þeirra, kornungan manninn, fyrir fáeinum dögum.

Já, svona er þetta en áfram höldum við hin; söknum, syrgjum og yljum okkur við góðar minningar, hugsaði ég og vissi ekki hvort ég átti að þakka almættinu fyrir að leyfa þeim öldruðu að fara eða áfellast það fyrir að fella unga manneskju í blóma lífsins. Og þá hringdi síminn.

Í mars síðastliðnum skrifaði ég pistil hér og var heitt í hamsi. Þar skammaðist ég ekki beinlínis út í óréttlæti almættisins heldur kerfisins sem er okkar mannanna verk og getur stundum gert líf okkar minnstu bræðra og þeirra nánustu svo miklu erfiðara en það þyrfti að vera. Aðallega var ég þó að dásama æskuvinkonu mína og fatlaða soninn hennar sem þrátt fyrir allt og allt voru staðráðin í að upplifa saman vorið í Brighton. Og það tókst þeim svo sannarlega!  Sjá hér.

Hún hringdi áðan til að segja mér að hann væri farinn, eins og hendi væri veifað. Það finnst mér alveg ólýsanlega óréttlátt en áfram höldum við hin…….

Áskilur sér rétt til að deyja vegna ólæknandi krabbameins
Þórlaug Ágústsdóttir

Þórlaug Ágústsdóttir tveggja barna móðir í Reykjavík, áskilur sér rétt til að deyja á eigin forsendum vegna ólæknandi krabbameins. Þórlaug sem hefur barist við krabbamein í rúm 4 ár, segir að sé dauðinn óumflýjanlegur í bráð, eigi að gera hann eins bærilegan og hægt er. Hún segir að mörgum þyki erfitt að hugsa um dauðann og forðist þann deyjandi til að þurfa ekki að hugsa um endalokin. Menn vilji helst ekkert hugsa um dauðann fyrr en komið er að honum.

Vill ekki að aðrir þurfi að gerast lögbrjótar

Þórlaug skrifaði á Facebook síðu Siðmenntar í dag, en samtökin halda málþing á morgun um líknardauða. Þórlaug segist þar áskilja sér rétt til eigin dauða og vill ekki að einhver annar þurfi að gerast lögbrjótur fyrir að aðstoða sig, eða þurfi að ganga til viðbótar í gegnum lygina sem undirbúningur að ólöglegu sjálfsvígi er.

Vald yfir eigin lífi og dauða

Þórlaug segir í samtali við Lifðu núna að hún vilji tala opið um þessi mál. Fyrir 20 árum hafi hún keppt til úrslita í Morfís keppninni þar sem umræðuefnið var líknardauði. Henni hafi fundist efnið leiðinlegt og datt ekki í hug að einn góðan veðurdag stæði hún í þessum sporum, enda fyndist unglingum þeir vera ódauðlegir. „Það er skrítið að rifja upp það sem ég sagði þá og tengja við það núna á allt annan hátt“, segir Þórlaug. Hún segir að fyrir sér sé þetta spurning um að hafa vald yfir eigin lífi og eigin dauða, sé hann óumflýjanlegur. Ef sjúkdómur sé kominn á það stig að fólk þjáist af óbærilegum kvölum og taki lyf sem sendi það út úr heiminum.

Erfitt fyrir börnin

En það sé ekki hlaupið að þessu. Það sé erfitt að gera plön þegar ekki megi tjá sig og ekki megi binda enda á lífið. „Þetta er líka erfitt fyrir börnin mín“ segir Þórlaug. Það er íþyngjandi fyrir aðstandendur að fylgjast með þessu“,segir hún og þetta er líka erfitt fyrir börnin mín. Vill maður ekki hafa val um hvað maður leggur á þau? Hún segist viðurkenna að vera búin að safna morfíni og sprautum. Það megi ekki ræða málið við heilbrigðisstarfsmenn og þeir megi ekki hjálpa til. „Þeir verða að halda í mér lífinu“, segir Þórlaug sem á tvo syni 9 og 11 ára.

Prófar óhefðbundin lyf

Þórlaug sem greindist með krabbamein árið 2010, hefur gengið í gegnum skurðaðgerðir, geislameðferðir og lyfjameðferðir. En hún fékk krabbamein í legháls sem síðan breiddist út í eitlakerfið. Hún hefur að undanförnu prófað óhefðbundin lyf og segist í raun vera gangandi kraftaverk. En hennar líf sé ákveðinn gluggi, fyrst hafi hún haft þriggja mánaða glugga en nú sé hún komin í sex mánaða glugga. Óhefðbundnu lyfin hafi hún prófað undir umsjá læknis.

Dauðinn partur af lífinu

Henni finnst að sá sem er að deyja eigi að hafa eitthvað um sitt dauðaferli að segja. „Dauðinn er alltaf sársaukafullur fyrir þá sem sitja eftir, en ef hann er óumflýjanlegur á að gera hann eins bærilegan og mögulegt er. Sjúklingurinn sem er deyjandi og aðstandendur hans ættu að hafa mest um málið að segja. Hún segir að áfallastreita og þunglyndi fylgi í kjölfar krabbameinsgreiningar og aðstandendur fái líka áfall. „En fólk skyldi ekki gleyma að dauðinn er partur af lífinu“, segir Þórlaug að lokum.

Málþing Siðmenntar um líknardauða er á Hótel Sögu í Reykjavík á morgun klukkan 17.