Atvinnu- og fjármál – Lifðu núna

Allir verða að vera meðvitaðir um fjármál sín
Lengi var algengt að eingöngu karlar væru meðvitaðir um efnahag heimilisins og að þeir héldu öllum þeim þráðum í hendi sér. Það hefur breyst mikið en engu að síður eru margar konur ekki nógu meðvitaðar um fjárhagslega stöðu sína og bæði kynin kærulaus í fjármálum. Þetta þarf að breytast því allir ættu að vera vel meðvitaðir um efnahag sinn og annast fjármál heimilisins af sömu alúð og allt annað.

Það vakti mikla athygli þegar erfðamál Stieg Larson, höfundar Millenium-þríleiksins, rötuðu í fjölmiðla. Eva Gabríelson og Stieg höfðu búið saman í yfir tuttugu ár. Þau höfðu aldrei talið ástæðu til að giftast, enda ekki trúuð. Þegar Stieg lést óvænt úr hjartaáfalli erfðu faðir hans og bróðir eignir hans þar með talinn útgáfurréttinn af bókum hans. Í kjölfarið spruttu miklar deilur milli feðganna og Evu, enda hún allsendis ósammála mörgum ákvörðunum þeirra varðandi útgáfu, sölu og kvikmyndun bókanna. Nýjustu fréttir herma að nú hafi feðgarnir fengið enn annan rithöfund til að skrifa framhald af sögunum um Lisbet Salander og Michael Blómkvist en Evu er það mjög á móti skapi.

Ágóði af sölu Millennium-bókanna hleypur orðið á milljörðum króna og sé salan á kvikmyndaréttindum í bæði Svíþjóð og Bandaríkjunum tekinn með er ljóst að þeir Larson-feðgar eru meðal ríkustu í heimi. Eva hefur ávallt sagt að fyrir henni snúist baráttan ekki um peninga heldur það að sjá til þess að farið verði með bækur Stieg á þann hátt sem hann hefði sjálfur viljað og ákvarðað. Þessi saga er rifjuð upp hér vegna þess að íslensk lög eru eins og sænsk að þessu leyti. Einhver Eva Gabríelsdóttir á Íslandi hefði hugsanlega þurft að horfast í augu við þetta sama.

Sambúð jafngildir aldrei hjónabandi

Alltof margar konur telja að eftir ákveðið mörg ár í sambúð öðlist þær sama rétt og giftar konur. En lögunum er ekki þannig varið. Nýlega fréttum við af konu á áttræðisaldri  sem var gert að flytja út úr íbúð sinni sem skráð var á sambýlismann hennar til átján ára. Börn hennar reyndu, fyrir hennar hönd, að semja um einhvers konar viðurkenningu á eignamyndun meðan á sambúðinni stóð en erfingjar hans voru ófáanlegir til að taka slíkt í mál.  Að lokum féllu aðstandendur frá því að reyna að höfða mál, enda benti lögfræðingur þeim á að eitt sinn hafi verið leitast við að koma til móts við konur í þessari stöðu með því að reikna þeim ráðskonulaun meðan á sambúð stóð en núorðið sé sjaldgæft að dómarar fari þá leið. Það komi fyrir að hægt sé að fá viðurkenningu á eignamyndun meðan á sambúðinni stóð en það sé aldrei tryggt.

Þótt pör í sambúð skrái eignir sínar á nöfn beggja er samt sem áður ekki búið að tryggja helmingaskiptareglu, eins og gildir um hjón. Til þess þarf að skrá helmings eignarhlut hvors um sig. Margar konur hafa talið sig í öruggri sambúð vegna þess að íbúð, bíll og annað er einnig skráð á þær. Við sambúðarslit hafa þær hins vegar þurft að gefa eftir stóran hlut einkum vegna þess að algengt er að karlar greiði af lánum en konur sjái um að halda heimilinu gangandi. Karlinn hefur þá getað sýnt fram á að hann hafi haft hærri tekjur og greitt af öllum húsnæðislánum meðan á sambúð stóð og því beri honum stærri eignarhlutur en konunni. Það er slítandi og erfitt að standa í skilnaði eða sambúðarslitum og verður ekki léttbærara þegar einnig þarf að berjast fyrir því að halda einhverju af eignum sínum. Þeir sem kjósa sambúð fremur en hjónaband verða að gera sér grein fyrir að auknar skyldur fylgja vali þeirra. Fyrst og fremst þarf að horfa til þess að skrá allar sameiginlegar eignir til helminga á báða aðila en einnig að gera erfðaskrá sem tryggir rétt makans við andlát en þá er líka gott að hafa í huga að eigi annar hvor aðilinn börn teljast þau skylduerfingjar og sá sem er foreldri getur einungis ráðstafað 1/3 eigna sinna til sambýlingsins.

Í hlýrri hjónasæng

Kannski mætti halda að öllum áhyggjum af eignaskiptingu sé létt af herðum fólks við það eitt að ganga í hjónaband en svo er ekki. Eigi hjón, annað hvort eða bæði, eignir þegar gengið er í hjónaband og vilji halda þeim óskertum verður að gera að þær séreign með kaupmála. Hið sama gildir um arf, stórar gjafir eða annað sem gift fólk eignast sem hægt er að fallast á að sé ekki réttur makans að eignast hlutdeild í. Ótal dæmi eru um að annað hvort hjóna fái arf og hann sé notaður til að kaupa húsnæði en við skilnað sé ekki tekið tillit til þess, enda ekki löglega frá því gengið að arfurinn teldist séreign þess sem hann fékk

En ekki enda öll sambönd með skilnaði og margir eiga hamingjusamt og gefandi líf með maka sínum. Það fólk ber oft gæfu til að vera samstíga í fjárfestingum jafnt sem öðru og nær í flestum tilfellum að skapa sér fjárhagslegt öryggi. En það er líklega óhætt að fullyrða að þeim árangri hafi ekki verið náð án umræðna og samstillingar.

Verið samtaka

Suzy Orman er einn þekktasti fjármálaráðgjafi Bandaríkjanna. Suzy hefur sjálf reynt fjárhagsörðugleika. Eftir háskólapróf í félagsfræði starfaði hún sem þjónustustúlka og fékk áhuga á að koma á fót eigin veitingastað. Hún fékk lánaða peninga frá viðskiptavinum og vinum sínum. Áður en langt um leið hafði safnast nægilega há upphæð til að það mætti verða. Hún lét slag standa en reksturinn náði aldrei flugi og áður en langt um leið hafði hún tapað öllu. Eftir þetta sneri Suzy sér að fjármálum. Hún fékk lærlingsstöðu hjá Merrill Lynch-bankanum. Henni gekk vel en þegar hún komst að því að einn ráðgjafi þeirra starfaði ekki samkvæmt settum reglum fór hún í mál við bankann. Samið var um bætur utan réttarsalarins en svo hrifnir voru menn þar á bæ af þessum lærling sem hafði þetta mikið bein í nefinu að þeir réðu hana í áframhaldandi vinnu. Hún telur að eitt það mikilvægasta sem pör geri sé að ræða fjármál. Þar sem rannsóknir sýna að flestir hjónaskilnaðir verða vegna fjárhagsörðugleika eða deilna tengdum fjármálum sé mikilvægt að pör ræði hernig þau vilja verja tekjum heimilisins. Sé fólk ekki samstíga og sammála um hvað sé þess virði að stefna að og hvers konar fjárfestingar það vilji gera. Hún mælir með því að fólk geri fjárhagsáætlanir og vinni að þeim í sameiningu.

Mitt, þitt, okkar

Sum pör grípa til þess ráðs, einmitt vegna ósamstöðu í fjármálum, að hafa aðskilinn fjárhag. Mörgum finnst þá sanngjarnt að skipta öllum reikningum jafnt eða deila þeim hlutfallslega niður með tilliti til tekna beggja. Þetta hefur þann kost að hvor aðili um sig er þá frjáls að því að ráðstafa því sem eftir stendur af tekjum sínum þegar búið er að greiða reikninga. Þetta hljómar einstaklega vel en ekki er víst að þetta leysi allan vanda. Til dæmis er hugsanlegt að hvernig peningunum er varið fari samt sem áður í taugarnar á báðum. Það sem einn telur nauðsynlega hluti eða sjálfsagt að veita sér getur virst algjör sóun í augum annars.

Hver ert þú?

Persónuleiki hvers og eins getur skipt miklu máli þegar verið er að tala um og skipuleggja fjármál. Jafnvel þótt eldra fólk hittist og taki saman á tímapunkti þar sem hvorugt skuldar getur orðið mikill ágreiningur ef viðhorf þeirra til eyðslu fer ekki saman. Sumir eru varkárir í peningamálum og kjósa að eiga ávallt varasjóð. Þeirra eigin langanir eða draumar eru látnir bíða þar til öruggt er að nóg er til. Aðrir kjósa að taka áhættu og stundum getur hún borgað sig. Það er mjög mikilvægt fyrir hvern og einn að gera sér grein fyrir hvers konar persóna hann er, hver viðhorf hans eru til peninga og hvernig hann kýs að haga fjármálum sínum. Síðan þarf að leita leiða til að samræma þína afstöðu og makans. Umfram allt þarf að ræða þessa hluti af hreinskilni svo þú vitir nákvæmlega hvernig hegðun þín í peningamálum snertir makann.

Valdatafl

Staðreyndin er sú að peningar leika oft stórt hlutverk í valdatafli innan sambanda. Það er algengara enn í dag að karlmenn hafi hærri tekjur en konur jafnvel þótt fólk sé komið á eftirlaun. Í sumum tilvikum getur þetta orðið til þess að tekjumeiri aðilinn stjóri og ráði algjörlega hvernig tekjum heimilisins er varið. Að lifa við slíkt getur verið mjög þrúgandi og er alls ekki til þess fallið að auka samstöðu og vellíðan í samböndum.

Íslensk kvenorka áberandi á GlobalWIIN 2024
Lifðu núna barst fréttatilkynning frá KVENN – félagi kvenna í nýsköpun vegna GlobalWIIN alþjóðlegrar viðkenningarhátíðar kvenna í nýsköpun. Þar eru hvorki meira né minna en sjö íslenskar konur tilnefndar fyrir fimm verkefni. Svo skemmtilega vill til að úr þessum frækna hópi hafa forsvarskonur tveggja verkefnanna verið í viðtali á Lifðu núna.

Tilnefndar frá Íslandi eru:

Björg Árnadóttir: Stílvopnið – valdefling og sköpun

Ævistarf við samfélagslega nýsköpun með aðferðum listanna.

Dögg Gudmundsdóttir, Heiðdís Einarsdóttir og Þórhildur Einarsdóttir: Aska Bio Urn

Græn framtíðarsýn við hönnun og framleiðslu umhverfisvænna duftkera.

Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir: Catecut

Smáforrit sem notar gervigreind til að finna föt sem klæða hvern og einn.

Hraundís Guðmundsdóttir: Hraundis, íslenskar ilmkjarnaolíur Íslenskar jurtir eru í aðalhlutverki við framleiðslu á heilsueflandi ilmkjarnaolíum.

Ólöf Rún Tryggvadóttir: Eylíf heilsa

Fæðubótarefni úr hreinum, íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum.

Dögg Guðmundsdóttir er einnig tilnefnd fyrir hönd Danmerkur: A Peaceful Place

Fjölnota legsteinn sem sameinar umhverfisvitund og nýsköpun á einstakan hátt.

Hvers vegna er GlobalWIIN viðurkenning mikilvæg?

Einungis 20% nýsköpunarstyrkja á Íslandi renna til kvenna. Í Evrópu eiga konur aðeins 5-15% tæknifyrirtækja og 9% af skráðum einkaleyfum og staðan er síst betri í öðrum heimsálfum. Viðurkenningar eru því ómetanlegar til að vekja verðskuldaða athygli á framlagi kvenna til nýsköpunar.

Hvað eru GlobalWIIN og KVENN?

Alþjóðasamtökin GlobalWIIN (Global Women Inventors and Innovators Network) hafa frá stofnun árið 1998 tengt saman nýskapandi konur heims með því að skipuleggja fræðslu og ráðstefnur og veita viðurkenningar á öllum sviðum nýsköpunar.

Hérlendis tilnefnir KVENN-félag kvenna í nýsköpun konur og verkefni þeirra. Elínóra Inga Sigurðardóttir, stofnandi og formaður KVENN, hefur frá árinu 2003 verið óþreytandi við að vekja athygli á íslenskum konum í nýsköpun með yfir 100 tilnefningum til GlobalWIIN. Elínóra er einnig forseti EUWIIN, Evrópudeildar GlobalWIIN, varaforseti IFIA, alþjóðasamtaka hugvitsfélaga og situr í nýsköpunarnefnd FKA.

Þeir sem hafa áhuga á lesa viðtölin á Lifðu núna geta skoðað þau hér:

„Ætli ég verði ekki að fram að áttræðu“

Heiðra bæði náttúruna og látna ástvini

Lækkaðu verðið á matarkörfunni
Viðvarandi verðbólga kemur við budduna hjá öllum og eldra fólk finnur ekki síður fyrir hækkandi verði á matarkörfunni en þeir sem yngri eru. Með því að skipuleggja innkaup sín og varast nokkrar alltof auðveldar gryfjur að falla í má draga úr kostnaði við heimilishaldið. Fyrsta skrefið er að vera meðvitaðri um hvað er keypt inn, hvenær og hversu oft.

Það er freistandi að kaupa tilbúinn mat eða eitthvað sem auðvelt er að elda en almennt gildir að þau matvæli eru dýrari og óhollari. Þau eru meira unnin og ætti þess vegna að forðast. Hér eru nokkrar leiðir til að bæði lækka verðið á matarkörfunni og líka bæta mataræðið:

Veldu vel

Vissulega er öðruvísi að elda fyrir einn eða tvo en það var að setja saman holla máltíð fyrir heila fjölskyldu. Það er hins vegar hægt að finna leiðir til að gera slíka matargerð áhugaverða og skemmtilega líka. Vissulega eru tilbúnir skammtar af kjöti og fiski oftast nær miðaðir við fjóra en auðvelt er að skipta þeim niður eða elda réttinn og frysta helminginn. Það er tímasparnaður og þægindi síðar. Ef farið er í sérverslanir með kjöt eða fisk fást þessi hráefni hins vegar eftir vigt og þá er engin hætta á afgöngum. Til að auka grænmetisneyslu er gott ráð að til dæmis bæta rifnu grænmeti út í kjöthakk, kjötfars eða ofan á fiskrétti í ofni. Það gefur gott bragð í réttina og eykur hollustuna. Sumt grænmeti er vissulega dýrt á Íslandi en margt er verulega ódýrt, til dæmis, rófur, hvítkál og gulrætur. Hvítkál er gott í salat og pottrétti og það passar einkar vel með fiski. Til að bragðbæta hvítkálssalat er gott að bæta við rifnum eplum, ananas eða öðrum ávöxtum.

Kex, kökur og annað kruðerí

Af kexi, kökum, snakki, poppi og sælgæti er mikið úrval í íslenskum verslunum og þessar vörutegundir eru dýrar og óhollar. Í staðinn fyrir að eiga kex eða annað til að grípa milli mála er sniðugt að kaupa ávexti og grænmeti og skera niður í þægilega bita. Þeir geymast ágætlega í ísskáp í um það bil tvo sólarhringa en svo má líka byrja hvern dag á að skera niður dagsskammt af grænmeti og ávöxtum. Það bæði þægilegt og sérlega gómsætt að grípa til yfir daginn.

Innkaupalistar eru algjör nauðsyn

Að fara í búð án innkaupalista er oftast ávísun á að fleira ratar í körfuna en heimilið beinlínis vantar. Margir hafa hangandi í eldhúsinu minnismiða og skrifa á hann um leið og eitthvað klárast. Þessi miði verður svo innkaupalistinn og gott er að einsetja sér að kaupa aldrei neitt sem ekki er á honum. Sumir kjósa líka að ákveða matseðlana viku fram í tímann og kaupa inn með þá í huga.

Dísætir drykkir og sódavatn

Mjög margir geta ekki verið án gosdrykkja og það færist í vöxt að Íslendingar drekki sódavatn í stað kranavatns. Þessi drykkir eru dýrir og algjör óþarfi í landi þar sem hreinasta og besta vatn sem hugsast getur kemur úr krönunum. Ekki má heldur gleyma að plastflöskur og áldósir eru síður en svo umhverfisvænar. Leggjum okkar af mörkum til náttúruverndar og hættum að kaupa drykki í verslunum. Njótum íslenska vatnsins og spörum í leiðinni.

Kauptu þar sem er ódýrast

ASÍ gerir reglulega verðkannanir og það er sjálfsagt að skoða þær áður en haldið er af stað út í búð. Í stað þess að sýna búðinni á horninu tryggð er mun nær að verðlauna þann sem býður besta verðið.

Veldu ódýrustu tegundina

Í flestum verslunum á Íslandi er mikið vöruúrval og sama varan fæst frá mörgum mismunandi merkjum. Gæðamunur er oftast lítill eða enginn. Veldu ódýrasta merkið. Það borgar sig þegar til lengri tíma er litið.

Magninnkaup geta borgað sig

Í stórmörkuðum er oft mun ódýrara að kaupa meira magn en minna. Það getur borgað sig að nýta sér slíkt og eins að kaupa tilboðsvöru, skipta henni upp í hæfilegar einingar fyrir þitt heimili og frysta. Þurrvöru er hægt að geyma í góðum loftþéttum umbúðum í langan tíma svo oftast er óhætt að kaupa hana í talsverðu magni.

Nýttu vel það sem keypt er

Enginn vill stunda matarsóun en á fámennum heimilum er oft erfitt að verjast því að hráefni skemmist. Grænmeti og ávextir sem keypt er, brauð, mjólkurvörur og annars konar ferskvara á það til að skemmast því tvær manneskjur komast einfaldlega ekki yfir að nýta þær eins hratt og þyrfti. Oft er hægt að frysta slíkan mat þegar ljóst er að hann verður ekki notaður strax. En það má líka drífa í að elda nokkra rétti og frysta þá. Ávexti er fyrirtak að frysta og nota í hristinga.

Fylgist vel með verðlagi

Við erum fæst okkar meðvitaðir neytendur því miður. Margir vita ekki hvað lítri af mjólk kostar, skyrdós eða bréf á kjötáleggi. Það getur hins vegar skipt miklu máli að fylgjast vel með verðlagningunni og laga sig að breytingum á verði vörunnar. Ef kjötálegg hækkar velja þá eitthvað annað ofan á brauð til dæmis eða kjósa aðra tegund en venjulega ef hún er ódýrari. Undanfarið hefur einnig mikið verið tala um að framleiðendur notfæri sér hrekkleysi neytenda og minnki magn í umbúðunum en selji vöruna áfram á sama verði. Allir ættu að sniðganga framleiðanda sem fer þannig að ráði sínu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Með eldri borgaraafslátt í öðrum löndum
Þegar kemur að starfslokum nýta margir tækifærið og ferðast víðar og oftar en þeir hafa gert áður. Það er nærandi og skemmtilegt að uppgötva ný lönd, fallega staði og spennandi menningu en vissulega dýrt. Eitt af því sem getur borgað sig að skoða er hvort stofnanir, fyrirtæki og þjónustuaðilar bjóði upp eldri borgara afslátt.

Í mörgum Evrópulöndum fær fólk sextíu ára og eldra 10% afslátt af fargjaldi almenningssamgöngutækja. Hið sama gildir um aðgangseyri að söfnum, vinsælum ferðamannastöðum, sundstöðum og í sumum tilfellum íþróttamannvirkjum. Á Ítalíu á þetta þó eingöngu við um íbúa frá löndum Evrópusambandsins. Á Spáni fá eldri borgarar, bæði þarlendir og erlendir, einnig afslátt af aðgangseyri að söfnum og almenningssundlaugum. Í sumum tilfellum er einnig hægt að fá afslátt þar í landi af innlandsflugi, gistingu og skoðunarferðum framvísi menn skilríkjum því til sönnunar að þeir hafi náð tilskildum aldri.

Sum félög eldri borgara gert millilandasamninga um afslætti hjá ýmsum fyrirtækjum og félagar í slíkum samtökum hér á landi ættu að athuga áður en þeir halda af stað hvort það eigi við um þeirra félag. Að öðru leyti eru afslættir til eldri borgara háðir samningum fyrirtækja og geðþótta eigenda þeirra. Hins vegar er sjálfsagt að spyrja á ferðalögum úti í heimi þegar menn ákveða að heimsækja staði þar sem slíkir afslættir eru hugsanlega veittir.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Aldursfordómar á vinnumarkaði
Þótt mismunandi sé hvort og hvernig fólk finnur fyrir aldursfordómum á vinnumarkaði er engu að síður staðreynd að þeir eru til staðar. Erlendar rannsóknir sýna að vinnuveitendur hafa ákveðnar hugmyndir um hæfni og getu eldri einstaklinga til að sinna vinnu og alhæfingar eru umtalsverðar, það er að mannauðsstjórnendur hafa tilhneigingu til að setja alla á tilteknu aldursbili undir einn hatt.

Skoðum þetta ögn nánar. Til að mynda kom fram í breskri rannsókn að mannauðstjórar stórra fyrirtækja þar í landi voru sammála um að eldri starfsmenn þeirra væru yfirleitt ekki eins fljótir að hugsa og jafnskarpir og hinir yngri. Staðreyndin er hins vegar sú að í rannsókn American Psychological Association frá árinu 2015 kom í ljós að eldra fólk á vinnumarkaði hafði til að bera yfirgripsmeiri þekkingu á starfi sínu, var fljótara að komast að rótum vandamála og hafði betri orðaforða og hæfni til að koma upplýsingum til skila en þeir sem yngri eru.

Bresku mannauðsstjórarnir töldu sömuleiðis að eldra starfsfólk væri afkastaminna en þeir yngri en í samanburðarrannsókn á vegum breskra heilbrigðisyfirvalda reyndist aldurshópurinn 65-80 ára vera bæði afkastameiri og áreiðanlegri í vinnu en samstarfsmenn þeirra á aldrinum 20-31 árs. Það kom einnig í ljós að hinir eldri voru almennt í betra jafnvægi og sköpuðu mun þægilegri vinnuanda en hinir yngri. Það stangast allverulega á við þær hugmyndir mannauðsstjóranna að eldri starfsmenn séu almennt ergilegir og líklegir til að skapa leiðindi.

Tæknin flækist ekki fyrir

Það er einnig algengur misskilningur að eldra fólk hafi minna vald á tækninni en kynslóðin á eftir. Þetta átti vissulega við fyrir um það bil tveimur áratugum en undanfarin ár hafa hinir eldri mjög sótt í sig veðrið hvað tæknina varðar og geta bæði notað tölvur sér til gagns og eru fullfærir um að leita sér upplýsinga á netinu.

Þrátt fyrir þessar staðreyndir er sýna tölur ráðningastofa að enn er það svo í Bandaríkjunum, Bretlandi og á Norðurlöndum að fólk yfir 50 ára aldur er síður tekið í viðtöl en yngri umsækjendur, því er fremur sagt upp í hópuppsögnum og það er lengur að finna nýja vinnu ef það missir vinnuna. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni Centre for Aging Better telur mikill meirihluti eldra fólks á vinnumarkaði í Bretlandi sig verða fyrir aldursfordómum. Eftir fimmtugt sé því síður treyst fyrir erfiðum verkefnum, það fái ekki stöðuhækkanir sem það sækir um og það eigi erfiðara með að sækja launahækkanir. Stór hópur segist einnig síður fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr vegna þess að ekki sé hlustað á hugmyndir þeirra.

Yfirvöld í Bretlandi og víðar hafa áhyggjur af þessari þróun og í Bandaríkjunum hafa verið sett lög sem banna mismunun vegna aldurs á vinnumarkaði og fólk þar getur sótt rétt sinn gagnvart vinnuveitanda telji það á sér brotið. Sú þróun er tilkomin vegna þess að vestrænar þjóðir eldast hratt og þess vegna er æskilegt að halda fólki lengur á vinnumarkaði. Til þess að standa undir velferðarkerfinu eru þeir sem vilja og geta unnið lengur en fram að 67 ára aldri samfélaginu ekki bara verðmætir heldur lífsnauðsynlegir.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Fjármálaáætlun fyrir efri árin – algjör nauðsyn
Víða erlendis þekkist að fólk byrji ungt að undirbúa eftirlaunaárin. Það velur sparnaðarleið, velur ákveðnar fjárfestingaleiðir umfram aðrar og setur sér markmið um hvenær það ætlar að vera orðið skuldlaust. Hér á landi er mjög misjafnt hvort ungt fólk hugsar á þennan hátt eða ekki. Þótt það hafi ekki verið rannsakað er það líklega tilfinning flestra að færri séu svo skipulagðir en hinir sem ekki eru það.

Mjög misjafnt er hvernig fólk horfir til eftirlaunaáranna. Margir sjá þau sem tímabil frelsis og lífsnautnar. Þá dreymir um að ferðast, stunda áhugamál sín óhindrað og njóta lífsins með góðum vinum. Aðrir hafa fá plön en hugsa fegnir til þess að vera óbundnir af skyldum og vilja gjarnan geta leyft sér eitthvað og allir vilja trygga afkomu. En til þess að það megi verða er nauðsynlegt að fylgjast vel með og byrja snemma að huga að því hvernig þú ætlar að vera staddur fjárhagslega þegar þú hættir að vinna.

Hér á landi höfum við lífeyrissjóðakerfi. Allir á vinnumarkaði greiða í einhvern lífeyrissjóð og atvinnurekandi greiðir framlag á móti. Það er hluti af launakjörum fólks á vinnumarkaði. Árið 1997 voru samþykkt fyrstu lög um séreignarsparnað og síðar var leyft að nýta hann til að greiða inn á húsnæðislán og auðvelda sér þannig húsnæðiskaup. Flestir kjósa að safna séreignarsparnaði í dag, enda munar um það bæði til að minnka greiðslubyrði og alla munar um þessa eign þegar þeir hætta að vinna.

Fjárfestingarkostir og fjármálaráðgjöf

Verðbólga og háir vextir hér á landi setja strik í reikninginn hjá jafnvel skipulagðasta fólki en engu að síður er fyrsta skrefið að ákveða hvenær allar skuldir eiga að vera uppgreiddar. Það er gríðarleg kjarabót og trygging fyrir ásættanlegri afkomu að skulda ekkert þegar kemur að því að draga sig í hlé af vinnumarkaði. Sumir kjósa að minnka við sig vinnu áður en þeir hætta alveg og það er auðveldara ef menn engar skuldir þarf að greiða um hver mánaðamót. Í mörgum tilfellum gefst fólki kostur á að minnka starfshlutfall og hefja töku lífeyris á móti því tekjutapi sem af því hlýst. Best er að skoða þann möguleika með ráðgjöfum á vegum þess lífeyrissjóðs sem menn hafa greitt í.

Skynsamlegt er einnig að leita til fjármálaráðgjafa, helst einhvers sem hefur sérhæft sig í lífeyriskerfinu, og skoða stöðu sína áður en að starfslokum kemur. Hverjar verða tekjurnar? Munu þær nægja miðað við þann lífsstíl sem þú hefur tileinkað þér og vilt halda áfram? Er eitthvað sem þú getur gert til að tryggja betur afkomu þína? Allt eru þetta spurningar sem vert er að vera búinn að svara áður en fólk hættir að vinna og vera með fjármálaáætlun til að fylgja svo hægt sé að sjá nokkuð vel fyrir hver staðan þín verður og hvað þú munt geta leyft þér.

Flestir ná að leggja fyrir á langri starfsævi aukasjóð fyrir utan það sem lífeyriskerfið býður þeim upp á. Þann sjóð geta menn notað að vild og margir nota einnig húsnæði sitt sem aukatryggingu fyrir vellíðan á efri árum og minnka við sig, kaupa ódýrara húsnæði og nota mismunin til að auka lífsgæði sín. Á fjármálamarkaði bjóðast einnig fjölmargir fjárfestingakostir og leiðir til að ávaxta sparifé sitt. Það er hægt að leita til fjármálaráðgjafa og fá bæði upplýsingar og útskýringar á þessum kostum og þá sérstaklega með tilliti til hversu öruggir þeir eru.

Sjúkdóma- og líftryggingar

Að hafa sjúkdóma- og líftryggingu er nauðsynlegt og getur skipt sköpum ef fólk missir heilsuna tímabundið eða varanlega. Gildi þessara trygginga minnkar með árunum, einkum vegna þess að tryggingaupphæðin lækkar með hækkandi aldri en í flestum tilfellum veita þær þó eitthvert skjól. Eitt af því sem sjálfsagt er að skoða reglulega er hvaða vörn þessar tryggingar veita og hvort það borgar sig að halda þeim áfram að greiða þær.

Eignir og arfur

Líklega vilja flestir hafa eitthvað með það að gera hvernig eignum þeirra er ráðstafað eftir þeirra dag. Þess vegna ættu allir gera erfðaskrár. Það er einnig hægt að útbúa yfirlýsingu um sinn hinsta vilja, þ.e. hvernig menn vilja haga jarðarförinni, hvar koma fyrir gæludýrum, ráðstafa einhverjum munum og annað er kann að hvíla á fólki. Sumir skjalfesta vilja sinn varðandi hverjum þeir vilja treysta fyrir sínum málum geti þeir af einhverjum ástæðum ekki ákveðið það sjálfir. Til þess að tryggja að slík skjöl hafi lagalegt gildi er gott að leita aðstoðar lögfræðinga við samningu og frágang þeirra.

Félagslíf og virkni

Það eru það samskipti við aðra og félagsleg virkni sem mestu skiptir um vellíðan og hamingju á eftirlaunaárunum. Góð fjármálaáætlun er undirstaða þess að tryggja áhyggjulaust ævikvöld og jafnframt grunnurinn að því að fólk geti ræktað fjölskyldu sína og vini. Þurfi menn að hafa fjárhagsáhyggjur og viti ekki hvort þeir nái endum saman þennan mánuðinn kemur það niður á hvert þeir fara og hvort þeir mæta á mannamót og taki þátt í lífinu. Það er vert að benda á að víða fá eftirlaunaþegar afslátt af menningarviðburðum, frítt í sund og svo standa ýmsar menningarstofnanir opnar, til að mynda bókasöfn. Þar eru oft áhugaverðar uppákomur og umræður. Rannsóknir hafa sýnt að því virkara sem fólk er í félagslífi og þátttöku í menningarviðburðum og tómstundastarfi því heilsuhraustara er það. Þetta geta verið bestu ár lífsins ef þau eru vel undirbúin og fólk ákveðið í að njóta þeirra.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Portúgal leggur af skattfríðindi fyrir eftirlaunafólk
Portúgalar hafa í rúman áratug veitt útlendum „ellilífeyrisþegum“, sem hafa kosið að búa Í Portúgal veruleg skattfríðindi í samtals 10 ár, samkvæmt svokölluðu NHR kerfi.  Þeir sem fluttu búferlum þangað, borguðu í fyrstu engan tekjuskatt, en síðustu 4 ár hafa þeir greitt 10% skatt af tekjum sínum.  Fjármagnsskatt hafa þeir hins vegar þurft að greiða og er hann 28%, meðal annars á verðbætur. Um áramótin verða skattfríðindi þessa eftirlaunafólks aflögð Í Portúgal, nema hjá þeim sem sækja um aðgang að kerfinu fyrir 31. desember næstkomandi og fá umsóknina afgreidda fyrir 31. mars á næsta ári. Þeir geta fengið áframhaldandi skattfríðindi þar til 10 árum er náð. Nokkrir tugir Íslendinga hafa nofært sér þetta kerfi.

Losna við hærri skatta myrkur og hálku

Þeir hafa þurft að flytja lögheimili sitt til Portúgals, en samkvæmt samræmdum evrópskum reglum ber fólki að hafa lögheimili og greiða skatta þar sem það dvelur meirihluta ársins. Þannig hafa þeir Íslendingar sem hafa flutt til Portúgals, orðið að halda sig utan Íslands 184 daga ársins. Einn þessara íslensku eftirlaunamanna sagði í samtali við Lifðu núna um búsetuna ytra, að margir væru betri í skrokknum á suðlægum slóðum, þeir vildu jafnframt losna  við myrkur og hálku yfir vetrartímann og innkaupakarfan kostaði helming á við það sem hún kostar heima á Íslandi. Hiti væri líka skaplegur á þessum slóðum og færi yfirleitt ekki yfir 30 gráður.

Hefur valdið húsnæðisskorti hjá verr settum

Talið er að um 10.000 manns hafi notfært sér þetta skattfríðindakerfi í Portúgal að því er fram kom í grein í Viðskiptablaðinu, en ástæða þess að nú hefur verið ákveðið að leggja það niður, er að það hefur leitt til mikillar ásóknar erlendra ellilífeyrisþega í húsnæði þar í landi sem hefur valdið bæði mikilli hækkun húsnæðisverðs og húsaleigu. Fyrir þá verr settu hefur þetta svo þýtt húsnæðisskort. Fleiri þjóðir, svo sem Ítalía, hafa einnig boðið eldri borgurum skattaívilnanir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Forsenda þessara kostaskattakjara sem verið er að bjóða er að landið þar sem fólk býr, sé með tvísköttunarsamning við landið sem það ætlar að flytja til.

Erna Indriðadóttir skrifar

Heldur ellilífeyririnn í við verðbólguna?
Á hverju ári verða líflegar umræður í hópi eldri borgara um hækknir ellilífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins, en í  lögum um almannatryggingar er kveðið á um að bæturnar skuli breytast árlega og taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Landssamband eldri borgara hefur iðulega bent á að hækkanir  hjá TR fylgi ekki launaþróun, en um það verður ekki fjallað í þessari grein, heldur um hvort hækkanir síðustu missera hafi haldið í við verðbólguna sem hefur verið á uppleið.

„Ellilífeyrir“  sem Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins greiðir, hækkar mánaðarlega í takt við hækkun neysluverðsvísitölunnar, samkvæmt lögum sem um það gilda.  Fyrirkomulag lífeyrisgreiðslna úr B-deildinni er þó annað, en þar gildir svokölluð eftirmannsregla. Það sama á því miður ekki endilega við um lífeyirssjóði þeirra sem eru á almennum vinnumarkaði.  Þar er staðan misjöfn og sumir sjóðir sem töpuðu miklu í fjármálahruninu hafa til að mynda skert lífeyrissjóðsgreiðslur sinna félaga verulega. Þeir eru þannig háðari lífeyri frá TR, en hinir sem voru í  LSR.

Greinarhöfundi Lifðu núna lék forvitni á að vita hvernig ellilífeyrir Tryggingastofnunar hefði þróast í samanburði við verðbólguna, sem byrjaði að fara verulega úr böndunum á síðasta ári, eftir nokkuð langt tímabil stöðugleika. Hann leitaði til fjármálaráðuneytisins varðandi upplýsingar um hækkun ellilífeyris í fyrra og það sem af er  þessu ári og bar saman við verðbólguna á sama tíma. Einnig var spurt um hvaða forsendur hefðu legið að baki hækkununum.

Hækkun ellilífeyris og verðbólga árið 2022.

1.janúar árið 2022 hækkaði ellilífeyrir um 4,6%. Í svari sínu til Lifðu núna vísar ráðuneytið í 69 grein almannatryggingalaganna frá 2007 og segir forsendur hækkunarinnar í samræmi við hana.  Ástæðan fyrir hækkuninni hafi verið tvíþætt. Annars vegar hafi hún byggst á mati á áætluðum meðaltaxtahækkunum á vinnumarkaðinum í heild fyrir árið 2022 sem nam 3,8%.   Vænt verðbólga ársins 2021 var samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands um 4,4%. Því var verðlagshækkun almannatrygginga hækkuð um 0,8% til að hækkun ársins 2021 yrði ekki minni en hækkun verðlags.

Þótt almennt sé ellilífeyrir frá Tryggingastofnun einungis hækkaður einu sinni á ári voru, eins og segir í svari fjármálaráðuneytisins, „bætur“ almannatrygginga  hækkaðar um 3% í júní í fyrra, í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins“. Þetta var ákvörðun umfram ákvæði 69 gr. almannatrygginga og þarna var tekið var viðmið af verðlagsþróun ársins. Samtals hækkun ellilífeyris árið 2022 nam því 7,6%.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands var verðbólga frá upphafi til loka árs 2022, 9,6%  sem er 2% hærra en hækkun ellilífeyris  . Þarna halla því á þá sem fá ellilífeyri frá TR.

Hækkun ellilífeyris og verðbólga árið 2023

Um síðustu áramót, var hækkun „bóta“ almannatrygginga og þar með talið „ellilífeyris“ 7,4% (fyrir árið 2023).  Þessi hækkun var í samræmi við 69. grein laga um almannatryggingar. Hækkunin nam verðbólguspá fyrir árið um 5,5% þar em ekki lágu fyrir kjarasamningshækkanir fyrir komandi fjárlagaár.

Því til viðbótar var tekin sérstök ákvörðun um að hækka bæturnar um 1,3% með hliðsjón af verðlagsþróun yfirstandandi árs (2022), auk þess sem bæturnar voru hækkaðar um 0,5% til viðbótar með hliðsjón af kaupmáttaraukningu. Samanlagt nam hækkun bóta almannatrygginga í fjárlögum 2023 7,4%.

Við þetta má bæra að um mitt þetta ár (2023) var tekin ákvörðun um að bætur almannatrygginga hækkuðu enn frekar um 2,5% til að verja kaupmátt örorku- og ellilífeyrisþega sem var liður í aðgerðum stjórnvalda vegna verðbólgu.   Samanlögð hækkun ellilífeyris þessa árs er því 9,9%.

Tölur um verðbólgu ársins 2023 liggja ekki fyrir ennþá, en frá janúar til og með október hækkaði vísitala neysluverðs um  6%.  Ef verðbólgan verður í lok ársins á svipuðum nótum, verður hækkun ellilífeyris hugsanlega eitthvað meiri en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs frá upphafi til loka árs.  Verði það niðurstaðan hefur ellilífeyrir að meðaltali haldið  í við verðbólguna á síðustu tveimur árum, sem breytir ekki þeirri staðreynd að þeir sem eru eingöngu með lífeyri frá TR eru með tekjur undir lágmarkslaunum í þjóðfélaginu.

Erna Indriðadóttir skrifar fyrir Lifðu núna.

Ræða vinnuna á kvöldin í heita pottinum heima
„Ég er ómögulegur ef ég er ekki að gera eitthvað, ég verð að vinna“, segir Guðmundur Sigurvinsson sem er elsti starfsmaður fjölskyldufyrirtækisins Heyrnartækni, en hann er 75 ára gamall. „Ég byrjaði að vinna hér árið 2012, en hafði áður aðstoðað Björn við að hanna lógóið fyrir fyrirtækið, sem var stofnað árið 2001“, segir hann. Guðmundur starfaði lengi á teiknistofu Rafmagnsveitu Reykjavíkur og sá meðal annars um hönnun bæklinga og ársreikninga. „Þá vann ég hjá pabba á sumrin með skólanum og teiknaði raflagnir og heimtaugar í Reykjavík“, grípur Anna Linda dóttir hans fram í samtalið, en blaðamaður er kominn í heimsókn til að spjalla við þau um fjölskyldufyrirtækið og hvernig það er, að vinna nær eingöngu með fjölskyldunni.

Samstillt hjón

Þau segjast vera samstillt, hjónin Anna Linda Guðmundsdóttir og Björn Víðisson eigendur Heyrnartækni. Það er eins gott því þau vinna saman alla daga. Guðmundur faðir hennar, vinnur sem sagt líka hjá fyrirtækinu og nýlega gekk Magnús bróðir Önnu Lindu einnig til liðs við Heyrnartækni.  Guðmundur vann síðast sem deildarstjóri hjá Orkuveitunni áður en hann lenti í fjöldauppsögn eftir hrun, en hann átti þá eftir tvö ár  í eftirlaunaaldurinn. „ Pabbi þrífst á því að vinna og fór þá að vinna á bensínstöð, þrátt fyrir að kaupið þar væri lægra en atvinnuleysisbætur“, segir Anna Linda.

Björn veitir ráðgjöf

Var ánægður með Oticon heyrnartækin

Björn, eiginmaður Önnu Lindu, stofnaði fyrirtækið árið 2001, eða fyrir 22 árum.  Það má rekja sögu þess aftur til þeirrar staðreyndar að faðir Björns, Víðir Páll Þorgrímsson var mjög heyrnarskertur. Hann fékk miklar eyrnabólgur sem barn og fór á sínum tíma í eyrnaaðgerð til Þýskalands. Þegar Víðir þurfti heyrnartæki leist honum ekki á að þurfa að bíða í  yfir tvö ár, eftir að fá tæki hjá Heyrnar- og Talmeinastöðunni. Hann rak fjölskyldufyrirtækið Tösku- og hanskabúðina ásamt eiginkonu sinni Jóhönnu Haraldsóttur og var á þessum tíma mikið í viðskiptum í Danmörku. Hann vissi af danska heyrnartækjaframleiðandanum Oticon og fór til þeirra til að fá sér heyrnartæki. „Þá kviknaði sú hugmynd að fá umboð fyrir Oticon hér á landi“, segir Anna Linda.

Fyrsta einkarekna heyrnartækjastöðin

Björn segir að faðir hans hafi verið sér innan handar við að fá umboðið. „Pabbi sagði Oticon frá því að sonur hans á Íslandi hefði áhuga á þessu og þeim leist vel á það væri fjölskylda sem sýndi rekstrinum áhuga og það hafði talsvert að segja að við höfðum báðir glímt við heyrnarvandamál og að ég hafði menntun á heilbrigðissviði „Ég fer til Danmerkur og fæ þar mikla þjálfun og kennslu hjá Oticon og ræð síðan heyrnarfræðing til að vinna með mér við stöðina. Við vorum fyrsta einkarekna fyrirtækið í þessari grein og þetta var rosaleg barátta. Það vantaði til dæmis reglugerðir og við vorum í stöðugum viðræðum við yfirvöld vegna þessa“, segir Björn en á næstu 3-5 árum bættust fleiri einkarekin fyrirtæki við. „Til að byrja með  var til dæmis engin niðurgreiðsla á heyrnartækjum hjá einkareknum stöðvum“, segir hann.

Tengdapabbi hvatti hana til náms

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þetta var og Anna Linda, sem er hjúkrunarfræðingur að mennt,  starfaði ekki með Birni í fyrirtækinu til að byrja með. Hún vann á þeim tíma í lyfjageiranum sem sölu- og markaðsstjóri hjá Pharmaco og seinna Vistor. „Tengdapabbi var oft búinn að nefna við mig hvort ég vildi ekki fara að læra heyrnarfræði og vinna hjá fyrirtækinu. Mig langaði til þess en það var vissulega dálítið stökk að fara af fjölmennum vinnustað yfir í lítið fyrirtæki. Því til viðbótar reyndist vandasamt að finna hentugt nám í þessum fræðum, án þess að þurfa að flytja af landi brott í nokkur ár.  Svo tók ég þessa ákvörðun, að fara að vinna með eiginmanni mínum. Tengdaforeldrar mínir unnu saman alla tíð en það eru ekki öll hjón sem geta unnið saman á sama vinnustað, en það hefur gengið mjög vel hjá okkur. Ég kom hér inn í fyrirtækið árið 2006 og fer fljótlega að leita að námi í heyrnarfræðum.  Ég fékk góðan stuðning frá Oticon í Danmörku, þjálfun hjá þeirra færu sérfræðingum og svo sótti ég líka frábær námskeið hjá bresku heyrnarfræðisamtökunum.  Ég klára síðan nám í heyrnarfræði í Edinborg og hélt áfram í viðbótarnámi við háskóla í Cambridge“, segir hún.

Hafa bæði ástríðu fyrir vinnunni

En hvernig er það að vinna saman alla daga og koma svo heim og  halda kannski áfram að ræða um vinnuna þar?  „Það er mjög gott að Anna Linda er oftast bara rúman hálfan dag á stofunni“ segir Björn og kímir. „Við erum að vinna í sitt hvoru verkefninu í sitt hvoru herberginu, en við erum samstillt“. Þau segjast stundum setjast í heita pottinn á kvöldin og ræða vinnuna. Þau hafi mikla ástríðu fyrir vinnunni og að gera stöðugt betur. Þau séu bæði vakin og sofin yfir fyrirtækinu. „Við reynum stundum að hnippa hvort í annað og segja;, „Eigum við ekki að hætta að tala um vinnuna og taka okkur frí í kvöld?“, segir Anna Linda og brosir. Hún sinnir ýmiss konar verkefnum heiman frá, en Björn kemur heim um kvöldmatarleytið og er þá búinn á stofunni.

Gervigreindin öflug í heyrnartækjum

Magnús Guðmundsson bróðir Önnu Lindu er búinn að vinna hjá fyrirtækinu í tæp tvö ár. Honum finnst það alveg eðlilegt að vinna með systur sinni og föður. „Við erum lítil fjölskylda og erum í góðu sambandi. Þetta small allt saman þegar ég byrjaði, þó efasemda hafi gætt í byrjun um hvernig þetta myndi ganga, hafa aldrei orðið neinir árekstrar eða hnökrar hérna“, segi hann. „Það er í vinnslu að fara í nám og með því að vinna hér opnast fleiri möguleikar á að sækja sér menntun í þessum geira“. Magnús segist vija afla sér menntunar, hugsanlega sem heyrnarfræðingur eða sem sérfræðingur í tækninni, svipað því sem Björn er að vinna við í dag.  Það séu tækninýjungar í  boði á markaðinum og hann hafi mikinn áhuga á þeim. „Ég er yngstur hér og hef gaman af tækninýjungum, það er komin mjög öflug gervigreind í heyrnartækin og gaman að spá í framtíðina í þessum geira“, segir hann. Anna Linda systir hans segir að hann hafi blómstrað í starfinu „Mér finnst hann hafa vaxið mjög í þessu starfi, er fljótur að læra og tileinka sér nýjungar og er algjörlega ómetanlegur starfskraftur fyrir okkur“, segir hún.

Vilja helst ættleiða Kollu

Kolbrún Harðardóttir hefur staðið vaktina í móttökunni hjá Heyrnartækni nánast frá upphafi en hún er þó ekki með nein fjölskyldutengsl við Björn og Önnu Lindu. Það sama á við um  Árna Hafstað, heyrnarfræðing hjá Heyrnartækni, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu  í liðlega 20 ár.  Hann byrjaði upphaflega hjá HTÍ á Akureyri og vann þar í nokkra mánuði eftir að hann lauk námi sínu í Kaupmannahöfn.  Hann gekk svo til liðs við Heyrnartækni árið 2002 og smám saman bættust við fleiri staðir á landsbyggðinni sem Árni sá um að þjónusta.  Þetta framlag Árna til landsbyggðarinnar er ómetanlegt þar sem ljóst er að það hafa ekki allir tækifæri eða getu til að ferðast til Reykjavíkur til að sækja sína þjónustu.  Árni var ekki staddur hjá Heyrnartækni í Glæsibæ, þar sem viðtalið fór fram, en kom og sat fyrir á mynd nokkrum dögum síðar.

Starfsmannahópurinn við innganginn hjá Heyrnartækni

„Mér sýnist við vera fjarskyld Kollu og Árna í 9. og 10. ættlið þó svo að mér finnist stundum eins og Kolla og pabbi séu náskyld, því þau eru svo ansi lík með margt.  Við höfum nú stundum sagt í gamni að við ættum kannski bara að ættleiða hana“ segir Anna Linda og hlær. Guðmundur og Kolla eru góðir félagar, en hann kom fyrst inn í fyrirtækið til að leysa hana af í fæðingarorlofi fyrir 11 árum. Kolbrún gerir grín að því að það hafi verið reynt að para sig við karlana á staðnum, en ekki vð Önnu Lindu. „Það er kannski fyrir komandi kynslóðir að reyna það “, segir hún hlæjandi.  Henni finnst hún sannarlega ekki vera útundan í fjölskyldufyrirtækinu „ þá væri ég ekki hér“ segir hún. „Ég er búin að vera hér í 20 ár og það er hugsað svo vel um mig að ég get alveg hugsað mér að vera hér 20 ár í viðbót. Gunnar Dofri sonur minn vann hér við þrif meðfram námi og ég á 10 ára dóttur sem kemur stundum með mér í vinnuna. Það er verið að ala hana upp sem framtíðarstarfsmann“, segir hún og skellihlær.

Kann vel við sig með ungu fólki

En langar Guðmund, sem er faðir tveggja starfsmanna á staðnum, aldrei til að grípa inní ef honum finnst þau vera að gera einhverja vitleysu?  „Það er afskaplega gott að vinna með þeim, bara mjög fínt. Ég er ekki að rekast í þeim, það er frekar að þau stjórni mér! Ég kann vel við mig með ungu fólki og finnst gaman að fara á námskeið með fólki á svipuðum aldri og barnabörnin mín eru“, segir hann. Verkefni Guðmundar eru margvísleg. Hann fyllir á lagerinn og kemur snemma á morgnana til að gera allt klárt fyrir daginn. Ef eitthvað er bilað, gerir hann við það ef hann getur. „Svo sé ég um sendiferðir, sæki mat fyri liðið og hita kaffið. Á laugardögum kíki ég hingað til að athuga hvort allt sé í lagi og geri klárt fyrir mánudaginn. Ég hef alltaf gert þetta, líka þegar ég var hjá Orkuveitunni. Mér finnst, að þegar maður er í vinnu, eigi maður alltaf að haga sér eins og maður sé að vinna í sínu eigin fyrirtæki“, segir Guðmundur.

Á borðnu í kaffistofunni bíður okkar girnilega kaka frá Íslandsbanka. Tilefni kökusendingarinnar er að Heyrnartækni var á dögunum valið framúrskarandi fyrirtæki í sínum stærðarflokki hjá Creditinfo, rétt eins og síðastliðin fimm ár.

Hver verður staða mín við starfslok?
Guðmundur Ragnarsson

Guðmundur Ragnarsson hjá GR-Ráðgjöf slf. skrifar                                                              gr.radgjof@outlook.com

Áhyggjulaust ævikvöld er fallegt hugtak og öll óskum við þess að geta komist á þann stað þegar við förum á eftirlaun. Það er hinsvegar með þetta verkefni í lífinu eins og flest önnur að góður undirbúningur og raunsætt mat á stöðunni gerir okkur kleift að komast eins nálægt því eins og hægt er.

Ekki er það minna mikilvægara verkefni, að við ætlum að hafa eins gaman á þessu æviskeiði og við mögulega getum.

Við eigum að byrja að skoða og undirbúa þessi mál um fimmtíu og fimm ára aldurinn og í síðasta lagi um sextugt. Auðvitað eigum við að vera meðvituð um hvert við stefnum með framfærslu okkar á eftirlaunaárunum allan tímann sem við erum á vinnumarkaði.

Höfum stjórn á breytingunum og tökum ákvarðanir

Það er mikil áskorun að fara inn í eftirlaunaárin og hætta á vinnumarkaði, það má ekki gera

lítið úr því. Það verða bæði fjárhagslegar og félagslegar breytingar sem margir hræðast.

Við eigum hinsvegar að líta á þetta sem skemmtilegt verkefni og enginn er ómissandi

til dæmis á vinnustað. Ef við höfum tök á því þá eigum við að láta þessi ár snúast um okkur,

því er mikilvægt að fara ekki of seint af stað í verkefnið til dæmis með því að vera alltaf að fresta því að hætta að vinna.

Allt of margir leiða það hjá sér að vera mikið að velta þessu fyrir sér, hafa hlustað á allskonar fullyrðingar um lífeyrissjóðina og annað sem við vitum að framfærsla okkar kemur til með að byggjast á og trúa því að það sé allt í klessu.

Að fara úr því að halda yfir í að vita breytir öllu

Óvissa veldur áhyggjum það þekkjum við öll, en við það að fara úr því að halda yfir í að vita hver staða okkar er, þá kemur ný og raunveruleg sýn á framtíðina og við getum farið að vinna út frá henni hver sem hún er. Allar áhyggjurnar voru kannski óþarfar?

Nú er kominn tími til að eyða sparnaðnum í okkur sjálf ef hann er til. Við þurfum að átta okkur á því að tíminn líður hratt og það var ekki tilgangur okkar í lífinu að skilja allt eftir okkur fyrir erfingjana.

Ég legg áherslu á að við séum meðvituð um að árin frá 65 ára til 74 koma aldrei aftur og þó meðalaldur Íslendinga sé að hækka þá eru ekki mörg hjón, þar sem báðir aðilar eru að fara á Úlfarsfellið annan hvern dag eftir 74 ára aldur. Síðan er það kjarkurinn sem fer að minnka þannig að þegar aldurinn færist yfir er ekki sami kraftur og áður til að fara t.d. í ferðalög.

Verðum að vita hver staða okkar er

Staðan er mjög misjöfn hjá okkur öllum og ekki hægt að búa til eina formúlu fyrir alla.

Það verður að skoða hvert einstakt dæmi og vinna út frá því. Þetta er ekki keppni um það hver er ríkastur heldur að átta sig á sinni stöðu og fá yfirlit yfir hver framfærsla okkar verður og hvað við getum leyft okkur eftir að við hættum á vinnumarkaði.

Við þurfum að skoða, hver verður framfærsla okkar úr lífeyrissjóði, samtryggingu, tilgreindri séreign, séreignarsparnaði og frá Tryggingastofnun ríkisins.

Hver er eignarstaðan og uppsafnaður sparnaður? Erum við á leigumarkaði og eða skuldug.

Ef það eru skuldir, er gott að losa sig við þær ef það er einhver möguleiki á því.

Hver verður framfærsla eftirlifandi maka og fleira og fleira. Það er margt sem þarf að skoða.

Þær eru margar sviðsmyndirnar sem geta komið upp en það er okkar að velja hvað við viljum gera og hvernig við viljum haga hlutunum.

Við getum gert lista yfir allt sem okkur langaði að gera en höfum ekki komið í framkvæmd, það er hugsanlega fyrst núna sem við höfum tíma og tækifæri til að gera það og láta drauma rætast.

Breytingarnar snúast ekki bara um fjármál og sparnað

Þó framfærslan og fjármálin séu stórt atriði til að eiga áhyggjulaust ævikvöld eru önnur mál ekki minna mikilvæg sem við þurfum að ganga frá ef þess þarf.

Þau mál eru oftast miklu erfiðari en peningamálin og getur tekið tíma að vinna úr þeim. Það eru börn, stjúpbörn, seinni maki og allskonar flækjur sem þarf hugsanlega að ganga frá svo við förum sátt inn í ævikvöldið. Ef þarf að gera erfðaskrá til að tryggja stöðu maka þá á að gera það strax.

Einstaklingar í sambúð þurfa að átta sig á því að hjónaband er eina sambúðarformið til að tryggja stöðu maka þar sem það er ekki erfðaréttur á milli sambúðarfólk. Því er mikilvægt að ganga í hjúskap til að tryggja stöðu eftirlifandi maka. Það skiptir einnig máli ef aðilar eiga sérniðja, þ.e. ekki bara sameiginleg börn.  Þá er nauðsynlegt að gifta sig og gera erfðaskrá sem mælir fyrir um rétt til setu í óskiptu búi. Erfðaskrá og kaupmála þarf ekki að gera strax við hjúskaparstofnun, heldur er hægt að gera það seinna þegar niðurstaða er komin í hvernig við viljum hafa hlutina. Það er sorglegt að sjá einstaklinga enda ævikvöldið bitra og sára vegna svona mála sem ekki var gengið frá eins og viðkomandi ætlaði og vildi. Fjölmargt sambúðarfólk hefur búið saman í áratugi og virðist ekki gera sér grein fyrir því að við fráfall sambúðarmaka þá eru það bara börnin sem erfa. Skiptir þá engu þó fjárhagsleg samstaða sambúðarfólksins hafi varað í áratugi.  Hluti af því gæti til dæmis verið staðan í seinna hjónabandi, að staða eigna sé á hreinu milli aðila, réttlát og sanngjörn. Við verðum að forðast það að við séum föst í eignum og getum ekki lifað lífinu. ( mitt og þitt – mín börn og þín börn).

Verum tilbúin að fara á eftirlaun

Það er ekki mikil vinna að fá heildaryfirlit yfir stöðuna og flestir ættu að geta gert þetta sjálfir, það er hinsvegar að koma sér í það og klára dæmið, það er þar sem þessi vinna stoppar hjá flestum. Því er mjög gott að fá aðstoð við að fá þessa yfirsýn sem ég hef fjallað um.

Ég býð upp á fyrirlestra hjá fyrirtækum, stéttarfélögum, hópum og þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þessi mál til að fara yfir það sem þarf að skoða og til að ýta við fólki að koma sér af stað í þessi mál.

Einnig er ég með ráðgjöf og aðstoð fyrir einstaklinga og hjón til af fá yfirlit yfir sína stöðu, hvað þarf að skoða til að undirbúa þetta æviskeið og fara inn í það eins áhyggjulaust og hægt er á okkar forsendum. Einnig leiðbeini ég við að fá lögfræðiráðgjöf ef þarf.

Ég hvet fólk til að fara í þessi mál og nýta sér aðstoð við að fá heildaryfirsýn yfir stöðuna.

Reynsla mín er að í flestum tilfellum er staðan talsvert betri en fólk heldur.

Það er áskorun og verkefni að eyða uppsöfnuðum sparnaði í sjálfan sig ef hann er til.

Ekki tökum við þetta með okkur þegar við yfirgefum þetta jarðlíf.