Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem markaði tímamót og var undirritað þann 19. mars síðastliðinn hefur því nú verið fest í lög. Samkomulagið var gert á milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

„Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana og sett uppbyggingu hjúkrunarrýma í forgang. Við meinum það þegar við segjum að við tökum málefni eldra fólks alvarlega. Markmiðið er að tryggja landsmönnum áhyggjulaust ævikvöld,“ segir Inga Sæland. „Þetta sýnir auk þess í verki vilja þessarar ríkisstjórnar til að styrkja samskipti ríkis og sveitarfélaga.“

Ríkið ber samkvæmt lögunum alfarið ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila og sveitarfélög bera ekki lengur 15% stofnkostnaðar. Sveitarfélögum verður auk þess ekki lengur skylt að úthluta lóðum án greiðslu gatnagerðargjalda. Þegar sveitarfélög úthluta lóðum undir hjúkrunarheimili verður það þó áfram gert án lóðarleigu og án byggingaréttargjalda enda er um almannaþjónustu að ræða.

Bætt þjónusta við eldra fólk

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á fjölgun hjúkrunarrýma.

Ritstjórn júní 20, 2025 07:00