Frá örófi alda hefur maðurinn skreytt umhverfi sitt og sjálfan sig með blómum. Þetta foldarskart talar til fólks á margvíslegan hátt og flestir eiga minningar tengdar einhverjum jurtum meðal annars úr tilhugalífinu og brúðkaupinu. Á viktoríutímanum varð til táknmál blómanna og alveg síðan þá hafa margir valið þau með tillit til þess boðskapar sem þau bera.
Líklega hefur aldrei ríkt annar eins tvískinnungur í kynferðismálum og á nítjándu öld. Viktoría drottning leiddi Bretland og nýlendur þess og hún setti eiginmann sinn á stall og eftir lát hans sá hún samlíf þeirra í ákaflega rómantísku ljósi. Skáldskapur þessa tíma sýndi ástina einnig á mjög upphafinn hátt og algjör skil voru milli líkamlegrar og andlegrar ástar. Menn áttu helst ekki að tjá tilfinningar hvorki með orðum né látbragði. Allt var bælt niður og undir rósemdaryfirbragði kraumaði oft eldur. Það er þess vegna ekkert undarlegt að fólk hafi farið að deila þrám sínum og löngunum þannig að talað var mjög undir rós og lostinn klæddur í fagran búning.
Blóm voru kölluð sendiboðar hjartans og alla nítjándu öldina var mjög algengt að elskendur sendu skilaboð með blómum eða fallegum vöndum. Hér á eftir verður fjallað um nokkrar blómategundir og hvað þær þýða.

Lilja
Liljur
Almennt standa liljur fyrir fyrstu hreinu ástartilfinningar mannsins. Þær eru einnig oft valdar til að merkja mikilfengleika, heiður og sannleika. Freysliljur, dalaliljur og goðaliljur eru glæsilegar jurtir. Goðaliljur eða híasintur þekkjum við helst sem jólablóm en þær eru mjög ilmsterkar og ekki öllum fellur það. Þétt blómkróna situr efst á stöngli og það getur verið mjög fallegt. Dalaliljan hefur mun léttari ilm en blóm hennar eru einkar fínleg og geta gefið blómavendi fágaðan og sérstæðan svip. Goðaliljan táknar stöðugleika og ást en dalaliljan að sólin muni ávallt koma upp aftur og hamingja ríkja. Freysliljur eða fresíur eru ilmsterkar, litríkar og fallegar og gefa því góðan híbýlailm ef menn vilja. Þær standa fyrir sakleysi og heiðarleika.
Drottningablóm eða nellikur
Drottningarblóm eru einstaklega skemmtileg vegna þess hversu litrík þau eru. Blómið er líka fremur stórt og getur skapað fyllingu og glæsileika í vendi. Þær hafa mismunandi merkingu eftir litum en bleikar eru tákn dirfsku, rauðar bera vitni um ást og hvítar senda skilaboð um ástúð og hæfileika. Nú eru líka fáanlega margar tegundir tvílitra drottningarblóma og þau geta verið mjög skemmtileg til að gefa líf í vendi sem að meginuppistöðu eru með hvítum blómum.

Garðakornblóm
Garðakornblóm
Garðakornblóm gefa til kynna velsæld og vináttu. Líklega þrá allir að velsæld fylgi þeim í lífinu og að þeim takist að mynda djúpa og trausta vináttu við aðra. Þau eru yfirleitt djúpblá að lit en einnig eru til hvítar og bleikar tegundir.

Dalíur
Glitfífill eða dalía
Glitfíflar eru stór glæsileg blóm. Þeir eru til í ótal litbrigðum og verða ávallt afgerandi í vendinum séu þeir notaðir. Þeir standa fyrir að deila með öðrum tilfinningum sínum, vonum og þrám. Þesd vegna eru þeir fullkomnir í brúðarvendi. Drottningarfiflar eða zinníur eru líka vinsælar í brúðarvendi en þær eru mun minni en dalíur. Þétt blómkrónan er fínleg og mjög áferðarfalleg. Þær koma í mörgum litum og standa fyrir langvarandi kærleika og vináttu.
Freyjubrár
Freyjubrár eru eins og fíngerðari útgáfa af baldursbrá. Þær eiga alltaf mjög vel við í blómvendi þótt þær virki hversdagslegar á suma. Þær standa fyrir samkennd og samstöðu og þess vegna væri einnig gaman að nota þær í skreytingar í matarboðum.
Gardeníur
Dýrlega gardeníur ilma dásamlega og standa fyrir hreinleika og gleði. Þær eiga mjög vel við í brúðkaupum og blómin eru hvít svo þær eru oft valdar í skreytingar í kirkjum

Orkideur
Brönugrös eða orkideur
Brönugrös eru hin einu sönnu ástarblóm. Þær standa fyrir fegurð, ást, fágun, frjósemi og gleði. Ótal tegundir þeirra er að finna um allan heim en þess ætt blóma á það sameiginlegt að blómið stendur lengi. Þess vegna hafa þau iðulega einnig verið látin standa fyrir eilífðina og langvarandi tryggð. Brönugrös eru mjög spennandi og falleg í brúðarvendi.
Bóndarósir
Þessi glæsilegu blóm eru táknmynd ástarinnar, hamingjunnar og metnaðar.

Anemóna
Sóleyjar
Ótal tegundir af sóleyjum eru til og almennt séð þýða þær: „ég er heilluð/aður af töfrum þínum.“ Þær koma í ótal litbrigðum en meðal þeirra vinsælustu eru skógarsóleyjar eða anemónur. Þær litríku og fallegu sóleyjar er hægt að tína úti í skógi víðast hvar um Evrópu en hér á Íslandi leynast þær víða í görðum. Þær standa einnig fyrir væntingar og vonir. Þess vegna hafa þær oft verið notaðar til að sýna fram að framtíðin blasi við þeim sem setur saman vöndinn og á Viktoríutímanum sendu þær einnig skilaboðin gæfan verði með þér. Frá aldaöðli hafa þær einnig verið notaðar til verndar. Á miðöldum voru menn vissir um að þær héldu illum öflum frá. Þær gefa frá sér lítinn ilm og það getur sannarlega verið kostur.

Rósir og bóndarósir eru vinsæl blóm í vendi.
Rósir
Rósir hafa sterk tengsl við ást og rómantík. Á táknmáli blómanna er merking þeirra ást, rómantík, fegurð, vinátta og tryggð. Þær eru ótrúlega fallegar.
Grænir sprotar og lauf
Í flestum vöndum eru ávallt grænir sprotar eða lauf enda táknar græni liturinn frjósemi og velgengni. Nokkrar jurtir eru þar vinsælastar meðal annars stephanotis en það eru sígrænir blaðfallegir runnar sem blómstra litlum, hvítum, stjörnulaga blómum og þau fá oft að fljóta með. Merking þeirra er hjónabandsæla. Bergfléttan táknar tryggð, hamingju og trúnað.
Hvað segja vendir hinna konunglegu brúða
Í dag kjósa margar brúðir að senda einhver skilaboð með brúðarvendinum. Þær Katrín hertogaynja af Cambridge og Meghan Markle voru þar á meðal en báðar veltu vandlega fyrir sér merkingu þeirra blóma sem þær völdu í tiltölulega einfalda vendi sína. Val þeirra vakti athygli og kom af stað tískubylgju sem meðal annars náði hingað til Íslands og má meðal annars nefna að lengi hékk uppi í Garðheimum spjald með táknmáli blómanna til að hjálpa brúðhjónunum að velja þau skilaboð sem þau vilja senda. En vegna þessarar forgöngu hertogaynjanna tveggja er ekki úr vegi að skoða hvaða blóm voru í þeirra vöndum og hvers vegna.
Katrín hertogaynja af Cambridge
Vöndurinn var í laginu eins og lítill skjöldur og í honum voru eingöngu hvít blóm en sást í græn lauf inn á milli. Mörg þeirra voru ilmrík og hafa örugglega náð að róa taugar hennar meðan á athöfninni stóð.
Í vendinum voru:
Dalaliljur en þær þýða að hamingja muni ríkja á ný
stúdentanellika en hún stendur fyrir hugprýði
goðaliljur eða híasintur en þær tákna traust og stöðuga ást
bergflétta trúnaður, hjónaband, vinátta og kærleikur
brúðarlauf táknmynd hjónaástar
Það að nota brúðarlauf í vöndinn hafði einnig mikla persónulega þýðingu fyrir Katrínu vegna þess að lauf var tekið jurt sem Viktoría drottning gróðursetti fyrir brúðkaup dætra sinna árið 1858 og kynslóðir afkomenda hennar hafa tekið úr henni hluta til að skreyta og tákna heilagleika konunglegra brúðkaupa, meðal annars voru klippt lauf af henni í vönd Elísabetar drottningar en hún gifti sig árið 1947.
Meira að segja trén í Westminster Abbey sendu skilaboð
Þau fallegu tré sem Katrín kaus til að skreyta kirkjuna höfðu sína merkingu. Þetta eru enskar viðartegundir og voru valdar sérstaklega vegna þess sem þær stóðu fyrir á viktoríutímanum.
agnbeyki – táknar þrautseigju
hlynur – auðmýkt
Katrín virti einnig fleiri gamlar hefðir því eftir athöfnina fór hún og lagði vöndinn sinn á leiði óþekkta hermannsins í Westminster Abbey. Þessi venjan hófst þegar drottningarmóðirin, Elísabet, langamma Vilhjálms, lagði vöndinn sinn á leiðið til minningar um bróður sinn Fergus, en hann lést í fyrri heimstyrjöldinni árið 1915. Hann var einn margra til að hvíla í franskri mold eftir lát sitt en enginn veit nákvæmlega hvar gröf hans er. Eftir að drottningarmóðirin og Georg VI höfðu gift sig ákvað hún að minnast bróður síns á þennan fallega hátt. En þess má geta að þegar þau giftu sig, árið 1923, hefði engum dottið í hug að Georg yrði konungur árið 1936 þegar bróðir hans Játvarður afsalaði sér krúnunni.
Meghan hertogaynja af Sussex
Í vendi Meghan var gleymérei en það var uppáhaldblóm Díönu prinsessu, tengdamóður hennar. Auk þeirra voru blóm sem Harry tíndi að morgni brúðkaupsins í einkagarði þeirra við Kensington-höll en það voru ilmbaunir, sækóróna eða jasmína og dalalilja. Sætbaunir merkja ánægju og jasmínan ást, lukku og velvild. Nú og svo leyndist þar grein af bergfléttu Viktoríu. Í vendinum var einnig geitaskegg eða astilbe valið af Philippu Craddock, blómaskreytingakonu konungsfjölskyldunnar, en blóm þessa runna þýða: Ég mun ávallt bíða þín eða ég mun ávallt vera til staðar.
Þessi silfurhvítu blóm voru einnig áberandi í skreytingunni í Sankti Georgs kapellunni þar sem athöfnin fór fram. Þær voru líka verk Philippu. Þéttur krans hvítra blóma einkennir geitaskegg og merking blómsins er eitt af mottóum góðgerðafélagsins Sentebale sem Harry prins stofnsetti eftir ársdvöl í Lesotho árið 2005. Félaginu er ætlað að hjálpa bönrum í Lesotho, Botswana og Malawi til að lifa heilbrigðu og gefandi lífi. Þótt félagið styrki margvísleg verkefni er því einkum ætlað að stuðla að andlegu heilbrigði.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







