Konan sem skapaði Scarlett O’Hara
Þegar Margaret Mitchell sendi frá sér skáldsöguna, Á hverfanda hveli, eða Gone With the Wind, var ekki markmið hennar að skapa ódauðlega ástarsögu. Hún ætlaði að endurskapa andrúmsloft og erfiðleika sunnanmanna meðan á þrælastríðinu stóð og eftir að því lauk.







