Tengdar greinar

Geiðslukortum og netbanka lokað við andlát

„Starfsfólk Landsbankans er oft beðið um aðstoð og upplýsingar við meðferð og frágang dánarbúa. Eðli málsins samkvæmt geta þau mál verið viðkvæm og flókin. Strangar reglur gilda um meðferð dánarbúa og bankinn getur aðeins veitt upplýsingar ef öllum formsatriðum hefur verið fylgt. Við skipti á dánarbúi þarf að gæta vel að því að allra tilskilinna leyfa og umboða hafi verið aflað. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um hvernig standa skal að skiptingu dánarbúa á vef sýslumanna “.

Þannig hefst pistill á vef Landsbankans eftir Aðalheiði Stefánsdóttur fyrrverandi þjónustustjóra í bankanum, en hún var komin með 43 ára reynslu af bankastörfum, þegar hún lét af störfum árið 2020.  Aðalheiður fjallar í pistlinum, sem er á vef Landsbankans, um það hvernig bankastarfsmenn geti aðstoðað og hvaða upplýsingar þeir geti veitt erfingjum vegna skiptingar dánarbúa, en við andlát verður til sérstakur lögaðili, dánarbú, sem tekur við réttindum og skyldum hins látna uns skiptum á dánarbúinu lýkur:

Fyrsta skrefið í skiptingu dánarbúa er að tilkynna sýslumanni um andlátið með því að senda þangað dánarvottorð. Erfingi getur í kjölfarið fengið skriflega heimild frá sýslumanni til að afla upplýsinga um eignir og skuldir hins látna, m.a. hjá bönkum og sparisjóðum. Bönkum er óheimilt að veita upplýsingar um stöðu reikninga til annarra en þeirra sem hafa þessa skriflegu heimild frá sýslumanni. Hafi hinn látni veitt öðrum umboð á reikninga, falla öll slík umboð niður við andlát.

Ef allir erfingjar eru sammála um hvernig eignum og skuldum dánarbús skuli skipt er þeim heimilt að skipta dánarbúi einkaskiptum, enda sé öllum skilyrðum fullnægt. Ef slíkt samkomulag næst ekki þurfa almennt að fara fram opinber skipti og er þá skipaður sérstakur skiptastjóri yfir búinu.

Aðalheiður ítrekar að til að fá afhent reikningsyfirlit þess sem er látinn þurfi menn að hafa skriflega heimild og heldur áfram  pistlinum:

Við andlát er greiðslukortum og aðgangi að netbanka hins látna lokað. Ef um fastar greiðslur hefur verið að ræða á kreditkorti, t.d. vegna reksturs á húsnæði, er kortinu haldið opnu þar til gengið hefur verið frá málum því tengdu. Ef hinn látni hafði gert samning um greiðsludreifingu má leyfa tímabilinu að renna út og ekki er heimilt að fella niður samninginn fyrr en honum hefur verið sagt upp af hálfu erfingja sem hafa fengið leyfi til einkaskipta. Samningar um greiðsluþjónustu eru gerðir til 12 mánaða í senn og ekki er hægt að endurnýja hann að því tímabili loknu eða framlengja hann.

Ef erfingjar eru margir er algengt að einhverjum einum þeirra sé veitt umboð til að koma fram fyrir hönd hinna í tengslum við skiptin á dánarbúinu. Getur það verið hvort heldur sem er í leyfi sýslumanns til einkaskipta eða erfingjar sem veita umboðið skriflega, enda liggi þá fyrir leyfi sýslumanns til einkaskipta. Í flóknari tilfellum er lögmanni eða öðrum sérfræðingi fengið slíkt umboð. Í þeim tilfellum sem enginn einn aðili hefur fengið umboðið þurfa allir að mæta á staðinn í hvert skipti sem eitthvað er hreyft við eignum eða unnið að skiptingu dánarbúsins á annan hátt.

Ef hinn látni hefur verið með geymsluhólf í banka, er ekki heimilt að opna það fyrr en leyfi til einkaskipta liggur fyrir, auk þess sem erfingjar þurfa að hafa lykla að geymsluhólfinu.

 

Aðalheiður segir að ýmsu öðru að huga við skiptingu dánarbúa, svo sem séreignasjóðum lífeyris eða viðbótarlífeyrissparnaði.  Þá geti sýslumaður gefið út sérstakt leyfi fyrir greiðslu útfararkostnaðar, það sé forgangskrafa og sá sem hafi fengið slíkt leyfi þurfi að framvísa reikningum ti að fá þá greidda í bankanum. Hún segir það ekki fjarri lagi að að kostnaður við útför liggi á bilinu 700 þúsund til ein milljón króna. Aðalheiður endar svo pistilinn þannig:

Fólki sem stendur í fyrsta skipti frammi fyrir því að skipta dánarbúi finnst ferlið oft flókið og reglurnar stundum óþarflega stífar. Þá er gott að hafa í huga að reglurnar hafa verið settar til að tryggja að staðið sé að skiptunum með sanngjörnum hætti. Það eru því miður mörg dæmi um að sársaukafullar deilur hafa sprottið upp meðal erfingja um skiptingu dánarbúa og er það meðal annars þess vegna sem nauðsynlegt er að fara varlega og fylgja öllum formreglum.

 

Ritstjórn ágúst 30, 2023 07:00