Marokkóskur lambapottréttur

„Þegar maður sér uppskriftir þar sem hráefnin eru tuttugu og sex þá flettir maður nú oftast yfir á næstu síðu eða hugsar ekkert meira um þetta. Myndin sem fylgdi uppskriftinni var svo girnileg að ég sló til og sé ekki eftir því, þessi réttur er guðdómlega góður. Í hann notaði ég lambalæri sem beið sallarólegt í fjóra daga í ísskápnum áður en ég skar það niður deginum áður og marineraði eins og fram kemur í lýsingunni“, segir Albert Eiríksson listakokkur, þegar hann lýsir þessari uppskrift á matarblogginu sínu, sem má sjá með því að smella hér.

Það er rétt hjá Albert, rétturinn er guðdómlega góður, það getur hópurinn sem snæddi hann hjá Alberti og Bergþóri á dögunum, vitnað um. Hann átti dásamlegt kvöld á heimili þeirra hjóna sem verður lengi í minnum haft.  Fiskisúpa kennd við Hrísey var í forrétt og hún er virkilega góð og öðruvísi en flestar aðrar fiskisúpur. Marokkóski lambapottrétturinn er sannarlega þess virði að leggja vinnu í hann, þegar mikið stendur til. Albert bætti að þessu sinni við uppskriftina, einum kúrbít og einni sætri kartöflu, en hann segir líka um að gera að nota í réttinn, það sem fólk á til í ísskápnum!

Marokkóskur lambapottréttur

2 tsk paprika

1 tsk turmerik

1 tsk kúmín

1 tsk kóríander

1 tsk kanill

1/2 tsk kardimommur

1 tsk salt

1/2 tsk cayenne pipar

smá saffran

1 tsk rifinn sítrónubörkur

1 msk rifinn hvítlaukur

1 msk rifið engifer

2 msk matarolía

500 g lambakjöt í bitum

1 laukur

2 msk tómatpurre

kjötkraftur

1 ½ dl þurrkaðar apríkósur

1 dl rúsínur

1 msk hunang

1 msk chili, saxað

⅓ dl pistasíuhnetur, saxaðar gróft

⅓ dl kóríander, saxað

⅓ dl steinselja

2 dl Grísk jógúrt.

Blandið saman papriku, túrmerik, kúmíni, kóriander, kanil, kardimommum, salti, cayenne, saffrani, sítrónuberki, olíu, hvítlauk og engifer í skál. Blandið vel saman

Skerið niður lambakjötið í munnstóra bita og blandið saman við kryddblönduna. Látið bíða í nokkrar klst við stofuhita eða í ísskáp yfir nótt.

Saxið laukinn og léttsteikið á pönnu, bætið við tómatpuré, kjötkrafti, apríkósum, rúsínum, hunangi, chili, pistasíum, kóríander og grískri jógúrt. Blandið vel saman. Blandið þessu og kjötinu saman og setjið í eldfast form – eða tagínu.

Setjið álpappír eða lok yfir formið og bakið í 3 klst við 150°C eða lengur á lægri hita

Saxið steinseljuna og stráðið yfir. Berið fram með kúskús.

Við bætum svo við linkum inná uppskriftirnar hans Alberts hérna fyrir neðan.

Marokkóskur lambapottréttur

Hríseyjarfiskisúpan góða

Ritstjórn október 25, 2019 11:27