Prjónarar hafa ærna ástæðu til að gleðjast því næstu þrjú miðvikudagskvöld verður textíllistakonan Stella Ögmundsdóttir með æsispennandi prjónanámskeið á Borgarbókasafninu Gerðubergi.
Prjónaskapur er stóri hluti af lífi Stellu sem er textíllistakona og hannar alls kyns fallegar flíkur, listaverk og uppskriftir undir merkjum Fözz Studio. Næstu þrjú miðvikudagskvöld verður Stella með námskeið á Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem þátttakendum gefst kostur að prjóna peysu eftir einni af uppskriftum hennar.
„Á námskeiðinu ætla ég að fara yfir það hvernig prjóna má flíkur úr afgangsgarni, því sjálf nota ég bara garnafganga í mína sköpun. Svo prjónum við peysu og höfum til viðmiðunar „Helgarpeysuna“ svokölluðu, sem ég hannaði,“ útskýrir Stella glaðlega.
Hún getur þess að Helgarpeysan henti bæði byrjendum jafnt sem lengra komnum, enda er peysan gerð á 12mm stóra hringprjóna og vinnst því mjög hratt. Nauðsynlegt sé að mæta með prjóna á námskeiðið og afgangsgarn.
Eins og fyrr segir er um þriggja kvölda námskeið að ræða en ekki gerir til þótt þátttakendur missi úr skipti. Námskeiðið verður haldið miðvikudagskvöldin 11., 18. og 25 febrúar frá klukkan 19:30 til 21:00.
Nánar um námskeiðið á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







