Með hækkandi sól mæta þrjú ljóðskáld á Borgarbókasafnið Kringlunni laugardaginn 28. febrúar kl. 14 til að lesa upp úr og spjalla um nýútkomnar ljóðabækur sínar.
Ljóðskáldið Brynja Hjálmsdóttir stýrir umræðum Önnu Rósar Árnadóttur, Birgittu Bjargar Guðmarsdóttur og Þórdísar Drafnar Andrésdóttur á Ljóðakaffi á Borgarbókasafninu Kringlunni laugardaginn 28. febrúar.
Skáldkonurnar þrjár eiga það sameiginlegt að hafa nýverið sent frá sér sína fyrstu ljóðabók: Anna Rós með bókina Fyrir vísindin, Birgitta með Draugamandarínur og Þórdís með bókina Síðasta sumar lífsins. Verkin hafa öll vakið verðskuldaða athygli og hlotið bæði tilnefningar og verðlaun.
Hér er á ferð viðburður sem unnendur ljóðlistar ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
Öll velkomin og aðgangur ókeypis.
Anna Rós hefur birt ljóð og ljóðaþýðingar í Tímariti Máls og menningar, Ljóðabréfi Tunglsins og víðar. Anna er hluti ljóðahópsins MÚKK, hóps ungskálda sem hafa látið nokkuð að sér kveða undanfarið. Í janúar 2025 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Skeljar“. Með ljóðabókinni Fyrir vísindin kveður Anna Rós sér hljóðs með vísindalegri nákvæmni.
Birgitta Björg er skáld og tónlistarkona. Skáldsaga hennar Moldin heit (2024) var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut Fjöruverðlaunin 2025 í flokki fagurbókmennta. Í nýútkominni ljóðabók hennar Draugamandarínur (2025) er að finna hennar helstu yrkisefni: erótík, líkamann, skynjun og hrylling.
Þórdís Dröfn starfar sem aðjúnkt við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í fyrra fyrir ljóðabókina Síðasta sumar lífsins. Umfjöllunarefni ljóðanna eru þau sömu og skáld hafa fengist við frá örófi alda; ástin, dauðinn, náttúran, svo eitthvað sé nefnt, en höfundur tekst á við þemun af tilfinningalegri dýpt, næmni og frumleika.
Brynja Hjálmsdóttir er mjög virk í íslensku ljóðsenunni, ásamt því að skrifa stendur hún líka á bak við upplestrarseríuna Ljóð og vinir, ásamt Fríðu Ísberg. Brynja fékk tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir sína fyrstu bók, Okfrumuna, og hlaut einnig Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslanna. Fyrir ljóðabókina Kona lítur við hlaut Brynja tilnefningu til Maístjörnunnar. Hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2022 og sama ár hlaut hún Hvatningarverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur. Fyrsta skáldsaga hennar Friðsemd kom út 2024.
Nánari upplýsingar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins:
www.borgarbokasafn.is







