Sjómannadagsráð afhenti á árinu tvö ný hús með leiguíbúðum á Skógarvegi í Reykjavík. Alls eru þetta 87 íbúðir í tveimur samtengdum húsum fyrir fólk 65 ára og eldra. Fyrra húsið var afhent í júlí og það seinna í október og eru bæði húsin tengd lífsgæðakjarnanum Sléttunni þar sem hægt er að sækja fjölbreytta þjónustu. Húsin eru byggð út frá hugmyndafræði DAS en kjarninn í þeirri hugmyndafræði er að veita eldra fólk tækifæri til að búa sem lengst heima hjá sér og njóta lífsgæðanna í nánasta umhverfi.
Samkvæmt opinberum spám mun hlutfall fólks 67 ára og eldra á Íslandi vera orðið 19% árið 2040, þá um 76.000 talsins. Vaxandi hópur fólks á þessum besta aldri kallar á þróun og uppbyggingu á byggingum og þjónustu sem er sniðin að þeirra þörfum og hefur Sjómannadagsráð starfað lengi með hönnuðum sem hafa mikla þekkingu á þessu sviði. Fyrstu íbúðirnar voru byggðar árið 2001 og síðan þá hafa nýjar byggingar verið þróaðar hvað varðar hönnun og skipulag, þar sem hlustað er á þarfir íbúanna og íbúðum breytt í samræmi við þær þarfir. Íbúðirnar eru t.a.m. mismunandi stórar til að ná til sem flestra en sömu gæði er að finna alls staðar í efnisvali og innréttingum og aðgengi er alls staðar gott. Huggulegir og vistlegir gangar tengja saman íbúðakjarna og þjónustumiðstöðvar og eru gönguleiðir hafðar eins stuttar og hægt er.
Ör fjölgun í hópi eldra fólks er áskorun um allan heim og kallar á breytingu á viðhorfum og aðferðum í málefnum þeirra. Hugtakið heilbrigð öldrun hefur því sprottið fram og í því felst að fólk viðhaldi virkni og færni til að stunda athafnir daglegs lífs á efri árum og líði almennt vel. Öll uppbygging Sjómannadagsráðs hefur þetta hugtak að leiðarljósi. Þjónustan sem er í boði í lífsgæðakjarna DAS á Sléttunni styður við að þeir sem nýta sér hana geti búið lengur heima. Í kjarnanum er hægt að sækja sér félagsskap, borða hollan og fjölbreyttan mat og nýta sér ýmsa heilsueflandi þjónustu eins og líkamsræktina. Lífið í kjarnanum á að vekja gleði og vellíðan enda er þessi hluti æviskeiðs okkar sannarlega tíminn til að njóta.
Þröstur Söring skrifar.
Höfundur er framkvæmdastjóri eignasviðs Sjómannadagsráðs.