Styrktarþjálfun mikilvægust fyrir konur á breytingaskeiði
Þú getur ekki byggt upp vöðva án eldsneytis, bætt efnaskipti án nægrar orku og minnkað streitu án næringar. Þetta segir Björn Þór Sigurbjörnsson, einka- og styrktarþjálfari, en hann hefur mikla reynslu af þjálfun og er vel menntaður í sínu fagi.







