Þeim, sem hafa ekki smekk fyrir þorramat eða langar að bjóða ungum afkomendum í skotheldan grænmetisrétt, er óhætt að elda þennan rétt. Hann er einfaldur í undirbúningi og léttur í maga. Þess vegna er hann kallaður ,,andstæðan við þorramatinn“. Kryddin í réttinum eru gjarnan notuð í marokkóskri matargerð.
1 laukur
2-3 hvítlauksrif
2 msk. ólífuolía
2 tsk. kummin
2 tsk. turmerik
1 tsk. engiferduft
1/4 tsk. chilipipar
1 dós tómatar og safi með
1 dós kjúklingabaunir, safa hellt af
150 ml vatn
500 g sætar kartöflur
150 g gulrætur
1 kúrbítur
salt eftir smekk
Skerið laukinn smátt og pressið hvítlaukinn eða skerið smátt. Hitið olíuna og mýkið laukinn og hvítlaukinn þar í án þess að hráefnið brúnist. Bætið kryddi þá út í og látið krauma þar til það fer að ilma vel. Setjið tómatana og kjúklingabaunirnar og vatnið út í, hitið að suðu og látið malla í nokkra stund. Afhýðið sætu kartöflurnar og hreinsið gulræturnar og skerið í litla bita. Skerið kúrbítinn í bita og bætið grænmetinu út í pottinn. Látið malla undir loki í 20 mínútur eða þar til grænmetið hefur meyrnað.
Kúskús:
250 g kúskús
sjóðandi vatn
2 msk. ólífuolía
safi úr einni sítrónu
nýmalaður pipar
salt
1/2 knippi steinselja, söxuð
Úbúið kúkús samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum og látið standa í nokkrar mínútur. Hrærið þá olíu og sítrónusafa saman við og kryddið með salti og mikið af nýmöluðum pipar. Hrærið steinseljunni að lokum saman við.







