Bannað að heita Nutella!

Þótt Mannanafnanefnd þyki að sumra mati vera miskunnarlaus eru þó dæmi um talsvert mikla tilslökun síðustu árin.

Ísfólksnafnið Villimey hefur verið leyft um árabil og nú mega konur loksins bera nafnið Kona. Nýlega voru samþykkt stúlkunöfnin Zulima, Hrafnea, Trausta, Brynylfa, Bábó og Eldrós. Nýleg leyfileg strákanöfn eru Konstantín, Fox, Andrei, Ezra, Brynjarr, Óbi og Özur.

Nafnareglur eru til víðar í heiminum en hér og eru misjafnlega sveigjanlegar.

Þótt íslenskir karlar megi svo sannarlega heita Víkingur er það nafn, eða Viking, harðbannað í Portúgal, ásamt nöfnunum Jimmy, Rihanna og Sayonara, og þar í landi er eins gott að stafsetja Katrínarnafnið rétt. Caterina er hin opinbera og eina leyfilega stafsetning á nafninu. Einnig banna Portúgalar nöfn eins og Emily, George, Thomas og Charlotte sem eru aldeilis vinsæl annars staðar.

Í Noregi gilda reglur um að ekki megi nota ættarnöfn sem eiginnöfn, t.d. Hansen, Johansen og Olden. Í Sádí-Arabíu var árið 2014 opinberaður listi yfir 51 bannað nafn og þar má t.d. ekki heita Alice eða Maya. Danir geta valið nöfn af lista yfir 7.000 leyfð nöfn og ef þeir kjósa nafn utan listans á barn sitt verður nafnið að fara í gegnum sérstakt ferli til samþykkis, ef það verður þá samþykkt. Nýja-Sjáland hefur einnig gefið út lista yfir leyfileg nöfn og sjálfsagt fleiri lönd.

Kynlaus nöfn 

Margir muna eftir baráttunni fyrir því hérlendis að stúlka fengi að heita Blær. Fram að því mátti einungis nefna drengi því nafni. Sigur vannst með dómi árið 2013 og nú mega bæði kynin heita Blær. Kynlaus nöfn sem hafa bæst í hópinn síðan þá eru m.a. Auður, Aríel, Elía, Karma, Eir, Júlí, Júní, Marís, Maríon og Sigríður.

Í Danmörku og Þýskalandi má ekki heita kynlausum nöfnum á borð við Taylor, Ashley, Morgan og Jordan.

Hér á landi má ekki heita Epli en dóttir leikkonunnar Gwyneth Paltrow ber það nafn, eða Apple. Og hún Norður litla, dóttir Kanye West og Kim Kardashian, heitir fullu nafni North West, eða Norður Vestur sem yrði stytt í Norðvestur hér á landi. Dóttir söngkonunnar Beyoncé heitir Blue Ivy, eða Blá Bergflétta. Á Íslandi mega stúlkuhnokkar reyndar heita Dimmblá Fura, svo dæmi sé tekið. Sonur Forest Whitaker heitir Ocean, Haf … eða bara Ægir og, eins og þekkt er, ber einn sonur Michaels heitins Jackson nafnið Blanket, eða Teppi.

Í Sviss er harðbannað að heita Júdas eða öðrum „neikvæðum“ Biblíunöfnum, svo er einnig víða um heim. Á Íslandi máttu ekki heita Satanía en beiðni um það nafn var hafnað af mannanafnanefnd. Ekki er langt síðan þýsk yfirvöld komu í veg fyrir að barn fengi nafnið Lúsífer sem er einnig bannað m.a. á Íslandi og á Nýja-Sjálandi. Malak sem þýðir Engill er bannað í Saudi-Arabíu, ásamt fleiri trúarlegum nöfnum en á Íslandi er nafnið Engill gott og gilt karlmannsnafn. Þeir Íslendingar sem trúa á álfa, og auðvitað fleiri, hafa nú í örfá ár mátt láta dóttur sína heita Álfmey.

Harðbönnuð nöfn

Dýranöfn á borð við Úlfur og Birna þykja sérdeilis flott á Íslandi en afar óviðeigandi í Malasíu. Dæmi um bönnuð nöfn þar eru Björn og Snákur.

Víða um heim er harðbannað að nefna börn sín skrítnum og óvenjulegum nöfnum. Franska hagstofan lætur yfirvöld hiklaust vita ef undarleg nöfn eru skráð sem þá neita að samþykkja þau. Í Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð, Mexíkó og mörgum fleiri löndum gilda reglur um slík nöfn til að börn verði ekki fyrir aðkasti vegna þeirra. Hér eru nokkur nöfn sem hlutu ekki náð fyrir augum yfirvalda viðkomandi landa:

Prince William í Frakklandi

Osama bin Laden og Adolf Hitler í Þýskalandi.

Anus (endaþarmsop) í Danmörku.

Elvis og Metallica í Svíþjóð.

Rambo og Batman í Mexíkó, að auki bönnuðu mexíkósk yfirvöld nafn sem merkir pungur.

Lyktandi Höfuð í Malasíu og einnig Samfarir.

Eftirfarandi vörumerkjanöfn hafa ekki fengist samþykkt sem drengja- eða stúlknanöfn: Facebook fékkst ekki samþykkt í Mexíkó, kyn barnsins fylgdi ekki. Svíar samþykktu ekki Ikea og Svisslendingar settu sig upp á móti Chanel og einnig nafninu Mercedes þótt það sé gott og gilt stúlkunafn á Spáni. Nutella hlaut ekki náð í Frakklandi og heldur ekki nafnið Mini Cooper. Hér á Íslandi var millinafninu Carlsberg hafnað af mannanafnanefnd.

Guðríður Haraldsdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn október 6, 2023 18:00