Júní er fyrsti sumarmánuðurinn hér á norðurslóð. Fuglarnir eru önnum kafnir við að koma upp ungum, sólin skín allan sólarhringinn og Íslendingar fyllast athafnagleði. Mánuðurinn dregur nafn sitt af gyðjunni Júnó en hún var gyðja hjónabanda, ástar milli hjóna og vellíðanar kvenna. Konur leituðu gjarnan fulltingis hennar vegna vandamála tengdum frjósemi og blæðingum.
Sumarsólstöður eru á tímabilinu 20.-22. júní og Jónsmessan er 24. júní. Í ár eru sumarsólstöður 20. júní. Mjög misjafnt er hvernig menn nýta þessi tímamót en sums staðar er venja að fagna sumarsólstöðunum sérstaklega. Svíar og Norðmenn safnast saman og kveikja bál á ströndinni, þar er líka síður að dansa kringum maístöngina, víða tíðkast að ganga berfættir í grasinu en í Alaska leika menn hornabolta og leikurinn hefst klukkan 10 og stendur fram yfir miðnætti. Í Puerto Rico ganga menn afturábak út í sjó þegar klukkan slær tólf á miðnætti og á Möltu safnast menn saman við ævafornar byggingar og fylgjast með hvernig sólin skín í gegnum eina þeirra. Sumir Íslendingar virða án efa enn þá gömlu hefð að vakna snemma að morgni Jónsmessu og baða sig upp úr dögginni til að tryggja sér góða heilsu það árið. Það hefur einnig verið siður sumra að ganga yfir Fimmvörðuháls á Jónsmessunótt.
Jónsmessan er kennd við Jóhannes skírara og sögð vera haldin hátíðleg á fæðingardegi hans. Hins vegar var venja í Rómaveldi til forna að halda mikla hátíð tengda sumarsólstöðum á þessum tíma og seinni tíma menn hafa talið að líklega sé Jónsmessan leið til að leyfa fólki að halda í þá venju. Víða hafa sumarsólstöður og Jónsmessan runnið saman og menn halda upp á hvoru tveggja annan hvorn daginn.
Júní er mánuður meðvitundar um alzheimer og aðra sjúkdóma tengda heilanum.
Blóm júnímánaðar er rós skrautlegasta og fegursta blómið. Mánaðarsteinarnir er uperla, mánasteinn og alexandrít.
Hér eru svo áhugaverðir dagar í júní bæði til að skapa gaman og alvöru:
1. júní er alþjóðlegur dagur jákvæðni og þá eiga allir að segja eitthvað fallegt við þá sem þeir hitta.
5. júní er alþjóðlegur dagur umhverfisins en þá er fólk hvatt til að kynna sérumhverfismál og verða meðvitaðra um hvernig það gengur um jörðina.
6. júní er jójó-dagurin.
21. júní er feðradagurinn.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.