Góða veislu gjöra skal

Á sumrin er gaman að safna til sín fjölskyldu, vinum, samstarfsmönnum, nágrönnum og sveitungum og borða saman. Í dag er þjóðhátíðardagur Íslendinga og margir bjóða þá upp á vöfflur eða annað góðgæti. Sumir kjósa að bjóða fiskisúpu í garðinum, aðrir grilla og svo er alltaf gott að sitja innandyra í kringum borðstofuborð. En hvaða leið sem fólk kýs til að skapa stemningu er eitt víst, því betri sem undirbúningurinn er því skemmtilegri er veislan.

Góður grunnur; fallegt leirtau, hnífapör og dúkar

Ekkert setur meiri svip á veislur en skemmtileg umgjörð um matinn á borðinu. Fallegir dúkar, leirtau og hnífapör eru til á öllum heimilum en stundum er ekki við hæfi að nota sparistellið. Það getur verið gaman að bregða út af og er þá allur gangur á hvað menn kjósa að nota. Fallegur marglitur borðbúnaður ætlaður á garðborðið fæst nú víða í verslunum. Sumir kjósa að fara endurnýtingarleiðina og safna ósamstæðu postulíni úr eigu ættingja eða kaupir á nytjamörkuðum. Á sumum heimilum er til safn af gömlum diskum, bollum og skálum sem hefur verið safnað meðvitað og liturinn og mynstrið parar saman annars ólíka muni. Dúkar eru líka góð leið til að setja hátíðlegan svip á matarborðið. Á flestum heimilum eru til nokkrir sem eiga við mismunandi hátíðisdaga. Að auki einhverjir hlutlausir. Pappírsdúkar eru frábær leið til að gera garðborðið fallegt og hátíðlegt. Það er heldur engin regla sem segir að aðeins megi nota einn dúk í einu. Það er stundum hægt að leggja þá hvorn ofan á annan til að skapa stemmningu.

Handskrifuð skilaboð

Fátt er jafnpersónulegt og rithönd fólks. Hún er nánast eins og fingrafar því enginn dregur eins til stafs. Þess vegna getur verið einstaklega gaman að senda út handskrifuð boðskort eða koma fyrir nafnspjöldum við hvern disk með skilaboðum til hvers og eins. Þetta geta verið málshættir, speki eða orðtök sem hafa annað hvort verið valin af gestgjafanum eða dregin af tilviljun úr potti. Miðar af þessu tagi eru skemmtilegir minjagripir og gestir kjósa oft að geyma þá og eiga. Snjallir teiknarar geta svo bætt við litlum myndum til að gera kortin enn eftirminnilegri og verðmætari. Þessir miðar eru líka stórskemmtileg leið til að skapa fjörugar samræður sérstaklega ef gestirnir þekkjast ekkert óskaplega vel.

Borðskreytingar

Það er gaman að skreyta borð og finna leiðir til að gera það þannig að það hæfi tilefninu. Aðeins ein regla gildir þar og hún er sú að skreytingarnar hindri aldrei að fólk geti horfst í augu yfir borðið. Blóm eru vinsæl til skreytinga en einnig greinar, könglar, skeljar, fallegir steinar, kristallar, glerperlur, kerti og glitagnir. Slaufur og borðar eru einnig hentug og góð skreytingaefni, silkiblóm, gervikransar og sömuleiðis servíettur sem má brjóta á margvíslegan hátt.

Matur er mannsins megin

Eitt það mikilvægasta í hverri veislu er maturinn. Það krefst alltaf skipulagningar að setja saman matseðilinn og undirbúa þannig að allt sé tilbúið þegar veisludagurinn rennur upp. Flestir velja ávallt nokkra rétti sem hægt er að hafa til nokkrum dögum áður. Forréttir, eftirréttir og sumt meðlæti er þannig að hægt er að forvinna það. En það má líka fara auðveldu leiðina til að tryggja að allir geti notið sín og enginn sé bundinn í eldhúsinu meðan hinir njóta og kaupa matinn tilbúinn. Það er ekkert að því að bjóða góðum vinum heim, leggja smart á borð og panta nokkrar pizzur. En vilji menn ekki fara þá leið heldur leyfa vinum að njóta matreiðsluhæfileika sinna má nefna að pottréttir og súpur er meðal þeirra rétta sem hægt að er hafa til daginn áður og svo eru pavlóvur, ís, kökur, pæ og frómas meðal eftirrétta sem hægt er að hafa til fyrirfram. Auðvelt er að taka þetta úr frysti samdægurs og skreyta áður en borið er fram. Ýmsa forrétti má sömuleiðis útbúa eitthvað áður en til veislunnar kemur og má þar nefna paté, grafinn lax og kjöt, fisk í hlaupi, litlar bökur og fleira.

Lýsing 

Ljós skapar andrúmsloft og þa er hægt að velja margskonar lýsingu til að skapa andrúmsloft í veisluna. Nú fást rafmagnskerti, led-ljós og seríur sem nota má til að skapa ævintýraheim í garðinum eða inn á heimilinu. Útieldstæði eru mörg einstaklega falleg og það er fátt skemmtilegra en að safnast í kringum eld, njóta hlýju af honum og spjalla af heilindum við góða vini.

Ljúfir tónar

Tónlist talar til manna á mjög djúpan hátt. Hún getur glatt, hresst, bætt og lyft upp andanum. Það er gaman að velja lög og setja saman lagalista fyrir boðið. Þá er gott að hafa í huga að passa að tónlistin verði aldrei svo yfirgnæfandi að fólk geti ekki talað saman nema auðvitað um sé að ræða danspartí, þá er fínt að hafa rólegri lög inn á milli til að menn nái að hvílast aðeins í hægari dansi.

Gjafir

Það er góður siður að koma með gjöf handa gestgjafa sínum. Hún sýnir að menn meta þá vinnu sem hann hefur lagt á sig og vilja launa honum fyrirhöfnina. Margir kjósa vínflösku eða blóm en margt fleira getur komið honum skemmtilega á óvart t.d. góð krydd, kerti, fallegir bakkar eða skurðarbretti, viskastykki í fínni kantinum, handgert konfekt eða krukkur með einhverju sælkerafæði. Sumir gestgjafar hafa líka gaman af að færa gestum sínum smágjöf þegar þeir fara, eitthvað sem tengist veislunni. Þetta getur verið heimagerð sulta, konfekt, smákökur eða brjóstsykur. En einnig servíettur eins og þær sem notaðar voru í boðinu, pappír eins sá sem nafnspjöldin voru gerð úr eða eitthvað sem tengist þema kvöldsins.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn júní 17, 2025 07:00