Leikhúsunnendur eiga von á góðu því mánudaginn 2. febrúar ætla Þór Tulinius og Katrín Lóa Hafsteinsdóttir að mæta í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Grófinni og ræða skrif í íslensku leikhúsi.
Þór og Katrín Lóa eru um margt ólíkir höfundar og verkin þeirra tvö „Bústaðurinn“ og „Mergur“, sem sýnd eru við góðar undirtektir í Tjarnarbíó, gjörólík. Annað tragíkómískt drama í sumarbústað og hitt gróteskt kórverk um leyndardóma líkamans.
Hvaðan kemur innblásturinn, hvar byrjar maður á leikverki og hvernig leikrit og leikhús vantar á Íslandi? Þetta og ýmislegt fleira ætla Þór og Katrín Lóa að ræða í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Grófinni.
Boðið verður upp á heitt kaffi og söng.
Viðburðurinn hefst kl. 17:00
Öll hjartanlega velkomin.
Um verkin tvö:
Bústaðurinn er nýtt leikrit eftir Þór Tulinius, sem fjallar á hugvitsamlegan hátt um innflytjenda-ótta. Leikhópurinn sem stendur að sýningunni vann Grímu-verðlaunin fyrir barnasýningu ársins 2024, en er nú með tragíkómedíu um eldri hjón í sumarbústað sem fá aðkomumann í heimsókn.
Í Merg eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur er kórsöngur settur í óvænt samhengi og andstæðum teflt saman. Líkamsstarfsemin er tekin fyrir á nærgöngulan, fáránlegan og jafnframt hlægilegan hátt og skömmin sem henni fylgir er krufin til mergjar.
Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







