Íslenskar konur óðar í Helgarpeysu Stellu

Prjónasmiðjan á Borgarbókasafninu er að gera allt vitlaust. Í kvöld koma prjónaglaðir landsmenn saman í Borgarbókasafninu Gerðubergi til að æfa sig og skella í eina helgarpeysu, viðburðurinn hefst  kl. 19:30.

Óhætt er að segja að nýtt æði hafi gripið um sig meðal íslenskra kvenna en það er hið svokallað Helgarpeysu-æði sem kenna má við hönnuðinn og textíllistakonuna Stellu Ögmundsdóttir hjá Fözz Studio.

Undanfarið hefur Stella staðið fyrir prjónasmiðju í Borgarbókasafninu Gerðubergi og aðsóknin svo gríðarleg að setið hefur verið í hverju sæti.

Í raun þarf kannski engan undra að smiðjan sé svona vel sótt því í smiðjunni kennir Stella þátttakendum að prjóna fyrrnefnda Helgarpeysu sem þykir bæði þægileg og einstaklega flott.

Peysan er prjónuð úr afgangsgarni með 12 mm stórum hringprjón sem gerir ennfremur að verkum að hún vinnst hratt og hentar því bæði byrjendum sem og lengra komnum.

Sjálf kveðst Stella eingöngu nota garnafganga í sinni sköpun, en hún hannar alls kyns fallegar flíkur, listaverk og uppskriftir undir merkjum Fözz Studio.

Því sameini Helgarpeysan þá hugmyndafræði sem hún vinnur eftir sem textíllistakona og hönnuður.

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 25. febrúar, er næsta smiðja Stellu í Borgarbókasafninu Gerðubergi milli klukkan 19:30 – 21:00.

Allar nánari upplýsingar um smiðjuna má nálgast á heimasíðu safnsins, https://borgarbokasafn.is/vidburdir/skapandi-taekni/make-thek-helgarpeysan-med-fozz-studio-1