Einn mikilvægasti kostur prjónarans er án efa þolinmæðin því í byrjun er nauðsynleg lexía að rekja upp og prjóna aftur. Gott er að muna að við munum mjög ólíklega gera aftur sömu mistök og mikilvæg lexía hefur verið numin. Ég er farin að sjá mynd á peysuna sem er á mínum prjónum sem er mjög hvetjandi og kappið hefur tekið yfir og mjög stutt er þangað til að verkið verður fullklárað. Ég veit að það mun takast því Gyða Einarsdóttir heldur enn í hönd mína og sér um að ég fari rétt að. Næst mynd sem ég mun birta af peysunni verður vonandi af henni tilbúinni.

Sólveig Baldursdóttr, blaðamaður Lifðu núna skrifar.