Tengsl og tengslaleysi ungra og gamalla

Þau sem gleymast á sunnudögum er áhrifamikil og falleg saga eftir frönsku skáldkonuna Valérie Perrin. Justine missir foreldra sína ung að árum og elst eftir það upp hjá afa sínum og ömmu ásamt frænda sínum. Feður þeirra voru tvíburabræður og dóu báðir ásamt konum sínum í bílslysi. Frændsystkinin taka mjög ólíkt á aðstæðum sínum, Justine sættir sig við hlutina, sér jafnvel ýmislegt jákvætt við þá en Jules er uppreisnargjarn og vill helst af öllu komast burtu.

Justine vinnur á elliheimili í þorpinu og finnur sig innan um gamla fólkið. Hún er vön að umgangast eldri manneskjur. Hún heillast af einni vistkonunni, Hélène og fer að skrifa sögu hennar. Hélène er lesblind en í þegar hún var barn þekktist það hugtak ekki og hún var dæmd heimsk. Þegar hún hittir Lucien, son blinds orgelstillara, kennir hann henni að lesa blindraletur og hún verður svo þakklát að hún giftist honum. Þau reka kaffihúsið í þorpinu og ganga í gegnum hræðilega hluti í heimstyrjöldinni síðari.

Justine á hinn bóginn reynir að halda tengslunum við eigin kynslóð með því að fara út að dansa í Paradísarklúbbnum um helgar. En smátt og smátt fær lesandinn betri innsýn inn í hennar eigin fjölskyldusögu. Nær að púsla saman hvað leiddi til þess að bræðurnir og konur þeirra lentu í slysinu sem kostaði þau öll lífið. Hér eru alls konar snúningar og fléttur og óvænt horn á söguþræðinum sem heldur athyglinni lifandi og gerir söguna sérlega spennandi og áhugaverða.

Og ekki má gleyma ráðgátunni á elliheimilinu. Einhver hringir reglulega í ættingja þeirra sem aldrei fá heimsókn á sunnudögum og segir þeim að ástvinur þeirra sé dáinn. Fólkið flykkist á staðinn svartklætt og grátandi til þess eins að mæta ættingjanum sprelllifandi. Hver er á bak við hringingarnar? Það vilja stjórnendur elliheimilisins vita og hrundið er af stað rannsókn.

Valérie er dásamlegur höfundur og það nýtur sín ekki hvað síst í köflunum um Hélène, meðal annars lýsingunni á því þegar hún lærir að lesa. Hann er einstaklega ljóðrænn og fallegur og gæti hrært steinhjarta. Hún er fædd árið 1967 í Remiremont í Vosage-héraði í Frakklandi enn ólst upp í Búrgúndí. Hún flutti til Parísar og hóf ferilinn sem handritshöfundur en Þau sem gleymast á sunnudögum er fyrsta bók hennar og kom út árið 2015. Árið 2018 kom svo Changer l’eau des fleurs, en sú varð metsölubók og fyrirhuguð er kvikmynd gerð eftir þeirri sögu. Eiginmaður Valérie er kvikmyndaframleiðandinn, Claud Lelouch og samtals eiga þau 9 börn. Hann 7 frá fyrra sambandi og þau 2 saman.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.