Um vefinn
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna og Erna Indriðadóttir stofnandi Lifðu núna
Vefurinn Lifðu núna var opnaður 12.júní 2014
Markmiðið með rekstri vefsíðunnar er að gera líf og störf þeirra landsmanna sem eru komnir um og yfir miðjan aldur sýnilegri en þau eru, auka umræðu um þau málefni sem tengjast þessu æviskeiði og lífsgæði þeirra sem eru komnir á þennan aldur. Fólk á aldrinum 55 ára og eldri, telur ríflega 70 þúsund manns árið 2024 og spáð er mikilli fjölgun í aldurshópnum á næstu árum, eins og verið hefur undanfarin ár, enda fjölmennustu árgangar Íslandssögunnar að eldast.
Á þessum aldri hefst nýtt æviskeið, sem stundum er kallað þriðja aldursskeiðið, með nýjum viðfangsefnum og áskorunum. Sumir minnka við sig vinnu, aðrir hætta að vinna og hefja jafnvel eigin rekstur. Fjölskyldulífið breytist, börnin fara að heiman, barnabörn fæðast, húsnæðið sem við vorum í er orðið of stórt og við þurfum að flytja. Þá glíma sumir við fjárhagsvanda þegar þeir hætta að vinna og fara á eftirlaun. Það kemur fram í könnunum að elsta fólkið okkar upplifir iðulega að það sé sett hjá og að viðhorf þess skipti ekki lengur máli. Sumir eru hraustir, aðrir veikir og enn aðrir einmana. Vinir hverfa og menn missa maka sem þeir hafa fylgt í áratugi.
Lifðu núna, leitast við að fjalla um þau málefni sem brenna á þessum hópi og réttindamál eldra fólks hafa ekki síst verið þar í fyrirrúmi í gegnum tíðina. Allir sem vilja vinna að sömu markmiðum, hafa hugmyndir um efni fyrir síðuna eða vilja leggja eitthvað af mörkum eru hvattir til að hafa samband við okkur.
Stofnandi vefsíðunnar árið 2014 var Erna Indriðadóttir sem tileinkaði hana móður sinni Kristínu Guðnadóttur. Hún var um tíma ritstjóri vefsins, en Jóhanna Margrét Einarsdóttir tók síðan við því hlutverki og gegndi því um árabil. Nokkrir blaðamenn hafa iðulega unnið við vefinn, auk þess sem sjálfstæðir pistlahöfundar hafa komið við sögu. Erna er eigandi Lifðu núna ehf. ásamt Jóhönnu Margréti Einarsdóttur. Í árslok 2023 fór Erna á eftirlaun og Steingerður Steinarsdóttir tók við rekstri og ritstjórn vefsíðunnar.
Auglýsingastjóri er Birna Sigurðardóttir og vefstjóri er Birgir Erlendsson.
Netföng: steingerdur@lifdununa.is eða lifdununa@lifdununa.is
Sími: 897-1599