Nýlega kom út bókin Þér eruð ekki neitt, fröken Sigríður! um ævi Sigríðar Meyburg hjúkrunarkonu. Sigríður átti auðvelt með að læra og fyrir dugnað og þrautseigju tókst henni að komast í hjúkrunarnám sem var sannarlega ekki sjálfsagt fyrir fátæka stúlku á þeim tíma. Hún hafði mikla útþrá, fór í framhaldsnám til Danmerkur og vann svo um hríð á Grænlandi áður en hún flutti vestur um haf. Sigrún Hildur Kristjánsdóttir, höfundur bókarinnar, segir Lifðu núna frá þessari stórmerkilegu ömmusystur sinni sem ekkert fékk stöðvað.
„Hún var alþýðustúlka frá Ströndum, fædd árið 1916,“ segir Sigrún. „Foreldar hennar hétu Ólafía Halldóra Árnadóttir og Ólafur Jónsson. Sigríður fæddist í torfkofa á Þiðriksvöllum en þegar hún var um tveggja ára flutti fjölskyldan í stærra timburhús í Arnkötludal. Hún var elst fjögurra systkina og fann því snemma fyrir ábyrgðinni sem fylgdi þvi að vera elst. Æskuárin einkenndust af leik og störfum í sveitinni, en fjölskyldan hafði ekki mikil tækifæri til að ferðast út fyrir heimahéraðið. Foreldrar hennar stunduðu hefðbundinn búskap og faðir hennar fór stundum á sjó til að auka tekjur fjölskyldunnar. Líf Sigríðar breyttist mikið árið 1928 þegar faðir hennar fórst með togaranum Jóni forseta þegar hann strandaði. Eftir það neyddist móðir hennar til að leysa heimilið upp og koma þremur elstu börnunum fyrir á öðrum heimilum og flutti sjálf til Reykjavíkur í leit að vinnu. Nokkrum árum síðar tókst henni að sameina fjölskylduna á ný.“
Þráði að læra meira
„Sigríður fann fljótt að hún átti auðvelt með að læra og eftir að hafa lokið Ingimarsskóla langaði hana til að halda áfram námi. Hún þurfti þó fyrst að vinna í nokkur ár til að geta látið þann draum rætast,“ heldur Sigrún áfram.
Átti hún sér fyrirmyndir? „Nei, í rauninni ekki en hún þekkti til stúlku sem hafði lært hjúkrun og hafði talað vel um starfið. Það gæti hafa haft áhrif á val hennar. Á þessum tíma var seinni heimsstyrjöldin skollin á og Sigríður fann sterka löngun til að láta gott af sér leiða og geta hjálpað öðrum. Hjúkrunin varð því leið fyrir hana til að nýta hæfileika sína og sinna starfi sem hafði raunverulegan tilgang.“

Góð menntun stóð fátækum alþýðustúlkum ekki almennt til boða. Sigríður þráði að verða hjúkrunarkona og tókst að sannfæra inntökunefnd skólans um að hún ætti fullt erindi í námið, þótt hún væri „ekki neitt“ …
Engin uppgjöf
„Það var í raun ekki sjálfgefið að Sigríður kæmist inn í hjúkrunarnámið. Hún kom úr alþýðustétt, hafði ekki langa skólagöngu að baki og ekki sama bakland og margar aðrar stúlkur sem sóttu um námið. Það vakti því nokkra furðu að hún skyldi sækja um, eins og titill bókarinnar segir til um, og forsvarsmenn námsins voru ekki alveg sannfærðir í fyrstu. Sigríður gafst þó ekki upp og tókst að sannfæra inntökunefndina um að hún ætti erindi í námið.
Á námsárunum kynnist hún manni þegar hún var hjúkrunarnemi á Kristneshæli fyrir norðan og varð ófrísk. Á þessum tíma þurftu konur í þessari stöðu oft að hætta námi. Samband hennar og mannsins varð ekki varanlegt en Sigríður eignaðist barnið og varð einstæð móðir. Með stuðningi móður sinnar og systkina, ásamt mikilli elju- og útsjónarsemi, tókst henni þó að ljúka námi.
Það má segja að þetta sýni hversu þrautseig Sigríður var og að hún lét erfiðar félagslegar aðstæður ekki koma í veg fyrir að hún næði markmiði sínu,“ segir Sigrún.

Hún naut þess að vera á skíðum árin sín á Grænlandi.
Útlönd kalla
Eftir að Sigríður útskrifaðist úr Hjúkrunarkvennaskólanum fór hún til Danmerkur til að stunda framhaldsnám í geð- og skurðhjúkrun og var þar við nám og störf í um tvö ár. Sonur hennar var á Íslandi á meðan. „Hún þurfti að takast á við ýmsar áskoranir þar,“ segir Sigrún, „meðal annars vegna þess að samskipti Íslendinga og Dana voru ekki alltaf auðveld eftir að Ísland hlaut sjálfstæði. Síðar starfaði hún sem aðstoðaryfirhjúkrunarkona á Jótlandi. Þá bauðst henni að fara til námubæjarins Ivigtut á Grænlandi þar sem hún varð eina hjúkrunarkonan. Þar í námunni var unnið krýólít, afar verðmætt steinefni sem stundum hefur verið kallað hvíta gullið. Á Grænlandi öðlaðist hún mikla reynslu og lærði mikið í starfi. Sonur hennar bjó hjá henni þar um tíma. Eftir um fjögur ár á Grænlandi flutti hún til New York í Bandaríkjunum, þar sem hún bjó og starfaði í um 60 ár. Þar vann hún meðal annars með einum fremsta hjartalækni á þeim tíma, dr. Charles Bailey.
Það má því segja að Sigríður hafi valið að vinna erlendis til að afla sér meiri menntunar, öðlast meiri reynslu og takast á við ný tækifæri í hjúkrun. Starfsferill hennar sýnir að hún var mjög metnaðarfull og óhrædd við að fara nýjar leiðir. Það gæti hafa bitnað á sambandi hennar við soninn sem var alla tíð flókið.“

Sigríður starfaði í litlum námubæ á Grænlandi í fjögur ár. Hún naut útivistar í frístundum sínum, ekki síst með stóru ástinni sinni, bandarískum herlækni sem tók ótal margar myndir af henni.
Stóra ástin
„Á Grænlandi kynnist Sigríður bandarískum herlækni sem hún varð mjög ástfangin af. Þau störfuðu einnig saman á meðan hún dvaldi þar og áttu í nánu sambandi. Þegar herskyldu hans á Grænlandi lauk þurfti hann að snúa aftur til Bandaríkjanna til að ljúka herþjónustu sinni þar. Sigríður ákvað að fylgja honum til Bandaríkjanna í von um að þau gætu átt framtíð saman. Þegar hún kom þangað tók móðir hans henni vel í fyrstu og hjálpaði henni að koma sér fyrir. Móðirin hafði hins vegar önnur áform og aðrar hugmyndir um framtíð sonar síns …“
Hugmyndin að bókinni
Sigrún hefur alltaf haft gaman af því að skrifa og haft áhuga á fólki og sögum þess. Strax sem barn hafði hún gaman af því að semja sögur og í gegnum tíðina hafa störf hennar að miklu leyti tengst fólki í gegnum mannauðsmál og kennslu.
„Hugmyndina að bókinni um Sigríði, sem er ömmusystir mín, kviknaði þegar ég rakst á ýmis gögn og ljósmyndir sem hún hafði skilið eftir sig heima hjá föður mínum,“ segir Sigrún. „Mér fannst ótrúlega áhugavert að skoða þetta efni og fór fljótt að hugsa með mér að það þyrfti að skrifa bók um þessa konu. Og ég ákvað einfaldlega að gera það sjálf!
Þegar ég fór að kafa ofan í efnið komst ég að ýmsu forvitnilegu sem ég hafði ekki vitað áður og áttaði mig á því að ævi hennar var jafnvel enn merkilegri en ég hafði gert mér grein fyrir. Mér finnst líka mjög dýrmætt að varðveita sögur fólks því við getum lært svo mikið af fyrri kynslóðum,“ segir Sigrún að lokum.
Texti: Ritstjórn Lifðu núna
Myndir: Úr einkasafni







