Hamingjan er hér

Steingerður Steinarsdóttir

Rétt eftir áramótin árið 1971 var boðað til bekkjarkvölds í bekknum mínum. Við vorum tólf ára og þetta fyrsta ballið eða skemmtunin sem daðraði við að vera fullorðins. Auðvitað var ákveðinn spenningur í gangi og við töluðum ekki um annað. Kennarinn okkar heyrði umræðurnar og vangaveltur um hvort það yrði gaman eða ekki og sagði: „Ef þið ákveðið að það verði gaman, verður gaman.“ Mér fannst þetta heimskulegt en síðan hefur lífið kennt mér að þarna var lærð lexía að baki og hann hafði alveg rétt fyrir sér.

Auglýsing

Ég hef ákveðið að vera hamingjusöm en það þýðir ekki að ég sé alltaf hoppandi kát og full af lífsorku. Suma daga rignir og aðra skín sól bæði í sinni og raunveruleikanum. Eitt af því sem ég hef lært er að helsta hindrunin fyrir hamingju eru væntingar. Við gerum okkur svo oft alls konar hugmyndir um hvernig eitthvað á að vera eða muni verða og þegar það gengur ekki eftir eru vonbrigðin sár. Sumir láta sársaukann sitja eftir aðrir hrista hann af sér strax. Svo eru örfáir sem eru bara ekkert að búa sér til myndir í huganum af þessu og hinu, mæta bara ákveðnir í að hafa gaman og taka því sem að höndum ber. Ég er stundum í þeim hópi og stundum ekki.

Hvar er hamingju að finna?

Auðvitað er ekki hægt að koma í veg fyrir að við gerum okkur væntingar. Mannshugurinn vinnur þannig, hann er alltaf að velta fyrir sér næstu skrefum og það er hluti af öryggisútbúnaði okkar en við getum ákveðið að draga úr vonbrigðunum þegar við lendum í miðjum drullupolli í næsta skrefi í stað þess að hitta grasbalann við hliðina á. Margir hlakka nefnilega óstjórnlega til eftirlaunaáranna. Sjá fyrir sér að hafa þá loksins tíma til að stunda áhugamál sín af krafti, hitta vinina, fara á fætur þegar þeir vilja og njóta kaffibollans í friði. En það er ekkert víst að þetta gangi eftir. Lífið hefur lag á að koma aftan að manni.

En hvað þarf þá til að verða hamingjusamur ef ekki er hægt að skrúfa fyrir væntingar? Þakklæti er ein leið sem reynist mörgum vel. Að taka sér tíma reglulega til að rifja upp allt sem þeir geta verið þakklátir fyrir. Já, Pollýanna vissi sínu viti og viska hennar er góð og gild. Allir hafa eitthvað til að vera þakklátir fyrir og stundum getur verið gott að einbeita sér að því sem maður getur gert fremur en að sakna þess sem maður getur ekki lengur.

Annað ráð til að auka hamingju er að gefa sig að öðrum og hjálpa þeim. Í samfélaginu eru mörg tækifæri til þess bæði í eigin nánasta umhverfi og með því að taka þátt í starfi margs konar góðgerðafélaga. Nú á dögum er auðvelt að gleyma sér í áhyggjum og kvíða. Úti í heimi eru viðsjárverðir tímar, veðrabreytingar gefa til kynna ógnvekjandi ástand á plánetunni okkar og enn safnast upp kvika undir Svartsengi. Einmanaleiki og tilgangsleysi sækja einnig að bæði æsku og ellibelgjum þessa lands og margt fleira mætti tína til.

Verðmæt samskipti

Ég hef í því samhengi oft velt því fyrir mér hvort við getum ekki nýtt mannauðinn okkar betur. Skapað meiri samstöðu og nánd. Á hverjum degi geng ég með hundinn minn um hverfið mitt og sé gamalt fólk, ungt og miðaldra á gangi. Flestir eru einir, sumir í pörum og aðallega börnin í litlum hópum. Hvað ef við gæfum færi á okkur? Spjölluðum saman þegar við mætumst á göngustígnum og það þætti eðlilegt í stað þess að flýta sér framhjá ef ókunnug manneskja fer að gefa sig að þér?

Þegar snjallmenni svara orðið símanum í þjónustustofnunum, skanna inn vörurnar sem við kaupum í búðinni og tölvupóstur er tekinn við flestu öðru hungrar suma í samtal og nánd við aðra. Ef við stöldrum við og nýtum tækifærin er aldrei að vita til hvers það leiðir. Mér finnst stundum að við eyðum lunganum úr ævinni í að ergja okkur yfir að vera ekki eins og við vildum vera í stað þess að vera bara eins og við erum. Þess vegna erum við svo hrædd við viðbrögð annarra við okkur og gefum okkur því ógjarnan að öðrum. Þetta hljómar einfalt en er í raun rosalega flókið.

Jónas Sigurðsson syngur um að hamingjan sé hér og þegar grannt er skoðað er það rétt. Hún er í regndropunum á rúðunni, svörtu malbiki undir fótunum, brosandi börnum sem fara framhjá og í því að vera á lífi. Með því að einbeita sér að njóta og nýta stundina er hægt að skapa sér ríkulegt innra líf og ákveða að það verði gaman.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.