Farið verður í hina árlegu sumarsólstöðugöngu í Viðey laugardagskvöldið 21. júní. Á sólstöðum er sólargangur lengstur hér á norðurhveli jarðar og hádegissólin hættir að hækka dag frá degi. Eftir sumarsólstöður fer sólin að lækka og dagurinn styttist.
Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns, mun leiða gönguna. Gestur göngunnar er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem flytur þátttakendum ávarp. Þá mun upphafsmaður göngunnar Þór Jakobsson veðurfræðingur segja nokkur orð.
Gönguleiðin er hæfileg, gengið er á mjúku undirlagi en mælt er með góðum skóm, skjólgóðum jakka og gott er að hafa með sér smá nesti. Sumarsólstöðuganga í Reykjavík og nágrenni hefur nú verið stunduð árlega síðan 1985. Gangan hefur verið kölluð „meðmælaganga með lífinu og menningunni“ og gestir eru hvattir til að spjalla saman og njóta samvista.
Siglt verður frá Skarfabakka í Viðey kl. 20:00 og tilbaka ekki seinna en kl. 23:00.
Ókeypis er á viðburðinn, en greiða þarf í ferjuna. Gestir eru hvattir til að kaupa miða fyrir fram í ferjuna á elding.is.