„Hef nú þroska til að standa með bókunum mínum“

Birgitta Halldórsdóttir var metsöluhöfundur á Íslandi á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Bækur hennar voru blanda af spennu- og ástarsögum og lesendur fengu hreinlega ekki nóg. Hún sendi einnig frá sér viðtalsbækur áður en hún hætti senda frá sér bækur. Nú hefur hins vegar orðið vending í lífi hennar því Storytel ákvað gefa út bækur hennar í hljóðbókaformi og í ljós kom að eftirspurnin var enn til staðar. Nú er Birgitta aftur farin að skrifar skáldssögur og ný bók eftir hana nýkomin á Storytel.

Birgitta fæddist á Syðri-Löngumýri í Húnavatnssýslu og ólst þar upp og þar býr hún dag. Hún varð ekkja fyrir fimm árum en eiginmaður hennar var Sigurður Ingi Guðmundsson frá Leifsstöðum í Svartárdal. Hvernig kom það til að þú fórst að skrifa í upphafi?

„Það er dálítið erfitt að svara því af hverju ég byrjaði að skrifa, segir Birgitta. „Kannski mest vegna þess að á þeim tíma bjuggum við hjónin hjá tengdaföður mínum og ég hafði nægan tíma. Við vorum lengst inní sveit og á þeim tíma snúið að sækja vinnu þaðan. Ég hafði reyndar alltaf verið að skrifa eitthvað, alveg frá því að ég var barn. Skrifaði alskonar ljóð og sögur. Ritgerð var uppáhaldsfagið mitt í skólanum og svo var ég alveg að kaffæra ættingjana með bréfaskriftum. Rétta svarið er líklega af því að mér finnst þetta svo gaman. Hins vegar datt mér aldrei á þessum tíma í hug að nokkuð kæmi út eftir mig. Þegar svo ég var komin með heilt handrit að skáldsögu, þá fékk ég þessa hugdettu að prófa að senda handritið til útgefanda. Það endaði sem sé þannig að fyrsta bókin mín Inga kom út hjá bókaútgáfunni Skjaldborg árið 1983. Ég var mjög stressuð og skíthrædd við dóma lesenda og athyglina sem þetta gæti valdið. En af því að mér finnst þetta svo gaman þá hélt ég áfram. Samt fannst mér þetta erfitt, Inga þótti gróf á þeim tíma þó hún þyki það ekki í dag.

Eftir þetta kom út ein skáldsaga á ári í tuttugu ár, tvær samtalsbækur og ein barnabók. Þetta var töluvert álag og uppskeran kannski ekki mikil og ég einfaldlega stoppaði vegna þess að það var svo mikið að gera hjá mér í öðru. Búskapurinn tók sinn tíma og ég var þreytt. Síðan gerðist það að ég og tvær vinkonur mínar stofnuðum félag, Töfrakonur, og gáfum þar út nokkrar bækur. Þar á meðal tvær skáldsögur eftir mig og tvær barnabækur. En þetta er hark að þurfa að gera alla hluti sjálfar og við gáfumst síðan upp á þessu. Þá í raun lagði ég pennann á hilluna. En þó ekki. Ég skrifaði mikið af ljóðum og smásögum á þessum tíma, sá um vísnaþátt fyrir Heima er bezt og tók viðtöl fyrir það tímarit. Það veitti mér útrás fyrir þörfina að skrifa.“

Birgitta með börnunum sínum.

Þrjár nýjar bækur á Storytel

Það hefur án efa ekki alltaf verið auðvelt að finna tóm til að skrifa og setja sig inn í hugarheim skáldsögu með stórt bú. Var það þess vegna að þú lagðir pennann á hilluna?

„Í febrúar 2021 lést maðurinn minn skyndilega og þá lagði ég einfaldlega allt á hilluna sem ég hafði verið að gera svona utan bús. Næstu árin var ég eingöngu í búskapnum en langaði alltaf að skrifa. Svo var ein vinkona mín sem fór að tala um við mig af hverju bækurnar mínar væru ekki á Storytel. Það varð til þess að ég hafði samband við þau og í framhaldinu skoðuðu þau verkin mín og höfðu áhuga á að prófa að setja þær inn sem hljóð og rafbækur. Þar sem þær fengu góðar viðtökur fékk ég í framhaldinu tækifæri til að gera samning við þau um að skrifa eingöngu fyrir Storytel.

Mér fannst það frábært tækifæri og nú hafa þau gefið út þrjár bækur eftir mig, sem eru eingöngu þar. Tvær þeirra eru í seríu, framhald af eldri bók sem kom út 1992 og heitir Dætur regnbogans og svo mínar minningar sem ég skrifa í áfallinu við að missa maka og hvernig tíminn þar á eftir var. Bókin um mig og mannin minn heitir Síðan hittumst við aftur og kom út í september síðastliðinn. Hinar tvær eru Undir óskasólu sem kom úr í janúar í 2025 og Horft til stjarnanna sem kom út núna í janúar. Eldri bækurnar mínar munu allar koma út hjá Storytel og hafa verið að tínast inn jafnt og þétt.“

Aldur skiptir engu máli

Nú ertu komin nærri hinum svokallaða eftirlaunaaldri en ert byrjuð að skrifa aftur í fullu starfi. Hvernig finnst þér það?

„Mér finnst frábært að vera farin að skrifa aftur og dásmlegt að hafa fengið þetta tækifæri. Bæði að í hausnum á mér er fullt af sögum sem mig langar að segja og svo finnst mér dýrmætt að eldri verkin mín fái annað tækifæri, en á þeim tíma sem þau komu út fyrst hafði ég ekki þroska til að standa almennilega með þeim, sem ég hef í dag,“ segir hún.

Ætlar þú að halda áfram að senda frá þér bækur nú þegar þú ert aftur komin á bragðið?

„Ég mun halda áfam að skrifa og er búin að skrifa undir samning við Storytel um tvær bækur sem ég er byrjuð að vinna í. Af því að þú minntist á eftirlaunaaldur þá langar mig að segja að aldur skiptir mig ekki máli. Við erum ekkert eldri en við upplifum okkur og meðan ég er með hausinn í lagi, langar til að skrifa og fólk er tilbúið til að lesa mun ég halda áfram. Ég læt ekki tækifærin úr greipum mér ganga í dag vegna minnar háu kennitölu. Ég er að draga mig saman í búskap, börnin komin meira inn og þá hef ég meiri tíma, sem mér finnst dásamlegt,“ segir Birgitta að lokum en nýju bækur hennar bera þess merki að þótt hér sé á ferð síungur höfundur er röddin þroskuð og hefur öðlast meiri dýpt.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna.