Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 4. mars kl. 19:30 verður Emma Shannon, textíllistakona og hönnuður, með spennandi smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem hún kennir þátttakendum aðferðir til að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl.
Margir halda að gömul klæði hafi lokið hlutverki sínu en það er fjarri sanni eins og textíllistakonan, hönnuðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Emma Shannon veit mætavel.
Emma er skosk textíllistakona og hönnuður búsett í Reykjavík, en hún leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni, viðgerðir og endurhugsun staðbundins textíls og fatnaðar.
Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 4. mars, leiðir Emma skapandi og skemmtilega smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi kl. 19:30 undir yfirskriftinni Táfýlutextíll með Emma Shannon. Í smiðjunni mun Emma miðla þekkingu sinni og reynslu og kenna þátttakendum einfaldar aðferðir til að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl.
Áhersla verður á sköpunargleði og tilraunastarfsemi og uppgötvun nýrra möguleika í hversdagslegum efnum – í afslöppuðu og hvetjandi umhverfi. Þátttakendur þurfa ekki að hafa reynslu af textílvinnnu og því hentar smiðjan byrjendum jafnt sem lengra komnum. Það eina sem þátttakendur þurfa að hafa meðferðis eru slitnir sokkar að heiman!
Smiðjan er haldin undir merkjum „make-a-thek“, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í til næstu þriggja ára. Markmið verkefnisins er að búa til vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumers) til að læra nýjar aðferðir í handavinnu, glæða gamlar flíkur nýju lífi og deila þekkingu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Smiðjan með Emma Shannon er ókeypis.
Öll hjartanlega velkomin.
Nánar um smiðjuna á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







