Komdu að syngja í Borgarbókasafninu Spönginni

Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng með íslenskum dægurlagaperlum.

Auglýsing

Raddböndin verða þanin og slegið á létta strengi á Borgarbókasafninu Spönginni á viðburðinum Komdu að syngja, laugardaginn 26. september kl. 13:00 – 13:45.

Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valgeir Gestsson, eða Valli eins og hann er oftast kallaður, leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja!

Tilvalið er að mæta með alla fjölskylduna – nú eða vinir og vinkonur að taka sig saman og skella sér í skemmtilega söngstund. Engrar söngkunnáttu krafist og textum verður varpað á skjá.

Komdu að syngja er á dagskrá einu sinni í mánuði frá hausti og fram á vor á Borgarbókasafninu Spönginni.

Öll hjartanlega velkomin!